Morgunblaðið - 20.03.2002, Page 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2002 53
EURO
NCAP
Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir
Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar
Vertu í góðum höndum!
Eitt númer - 511 1707
www.handlaginn.is
handlaginn@handlaginn.is
FÁIR tónlistarmenn hafa verið dug-
legri við að leggja góðum málefnum
lið í gegnum tíðina en André Bach-
mann, stundum nefndur „konungur
kokkteiltónanna“.
Færri vita kannski að André sjálf-
ur hefur þurft að berjast við illvígan
sjúkdóm og sjaldgæfan, sem kallast
„ofholdgun“. Ýmislegt annað, miður
skemmtilegt, hefur hent þennan
bjartsýnismann á lífsleiðinni, en
aldrei lætur hann deigan síga.
Á föstudagskvöld ætla vinir og
samstarfsmenn Andra í gegnum tíð-
ina að halda honum skemmtun í Ás-
byrgi, hliðarsal Broadway. Þar
munu koma fram, m.a. Helga Möll-
er, Raggi Bjarna, Laddi, Höfðaborg-
arafélagið og Gleðigjafarnir (hljóm-
sveit sem Andri stofnaði fyrir um tíu
árum og inniheldur Árna Sheving,
Alfreð Alfreðsson, Karl Möller og
Tryggva Hübner). Húsið opnar
21.30 og rennur allur ágóði af
skemmtuninni beint til Andra Bach-
mann, sem kominn er upp yfir í haus
Morgunblaðið/Jim Smart
í skuldum, vegna mikils kostnaðar
við sjúkraaðgerðir.
Morgunblaðið ræddi við bróður
Andra, Jóhannes, af þessu tilefni.
„Ég er svona að reyna að klappa
honum á bakið og hvetja hann
áfram,“ segir Jóhannes. „Og þessir
tónleikar á föstudaginn eru liður í
því. Við erum ekki bara að horfa á
peninginn, aðalatriðið er að brosa,
klappa honum á bakið og styðja
hann.“
Jóhannes segist vilja fá þarna fólk
sem þekkir til Andra og hafa fylgt
honum á ferlinum. „Hann er búinn
að gera svo margt fyrir lamaða og
fatlaða, styrktarfélag vangefinna,
barnadeild Hringsins og hin og þessi
sambýli. Hann er búinn að gefa út
geisladiska þar sem allur ágóði fer í
einhver líknarmál og jólatrés-
skemmtanir í hrönnum þar sem allt
er gefið.“
Og alltaf hefur hann haldið söngn-
um áfram, þrátt fyrir mótlætið.
„Já, já, hann gerir það,“ segir
bróðir hans. „Hann fæddist holgóma
og margir þannig eiga erfitt með tal.
En það var hans draumur þegar
hann var ungur að geta sungið og
hann hélt því bara áfram. Það eru
ekki nema þrjú eða fjögur ár síðan
ég heyrði á leikskóla í foreldri sem
var að koma með barnið sitt sem er
holgóma. Þetta tiltekna foreldri tal-
aði um hvað því þætti leiðinlegt að
barnið sitt væri svona og þá sagði
fóstran: „Ja... veistu, þetta er ekkert
sem þú þarft að hafa miklar áhyggj-
ur af. Horfðu bara á Andra Bach-
mann, þetta er maður sem fer í við-
tal og syngur heilu böllin.“ Þetta
finnst mér sýna svolítið þau jákvæðu
áhrif sem Andri hefur verið að hafa
á fólk.“
Klapp
á bakið
Skemmtun til stuðnings André Bachmann
Bræðurnir André og
Jóhannes Bachmann.