Morgunblaðið - 06.07.2002, Page 16
LANDIÐ
16 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að
Framkvæmdasjóður Akureyrar
kaupi hlutafé í Globodent B.V. fyrir
20 milljónir króna. Globodent er fyr-
irtæki Egils Jónssonar, tannlæknis á
Akureyri, en fyrirtækið stefnir að
framleiðslu og sölu á fjöldafram-
leiddum postulínsfyllingum. Gert er
ráð fyrir að Globodent starfi á Ak-
ureyri og að í kringum fyrirtækið
geti skapast tugir starfa á næstu ár-
um.
Egill fékk verðlaun Nýsköpunar-
sjóðs árið 2000, fyrir viðskiptaáætl-
un sína og frá upphafi hefur hann
unnið með Iðntæknistofnun að þró-
un hugmyndarinnar. Einng hafa fjöl-
margir sérfræðingar, bæði innlendir
og erlendir verið kallaðir til. Þá hef-
ur Globedent samið við danska fyr-
irtækið Pinol A/S um smíði á tæki
sem tannlæknar þurfa að nota við
vinnu með postulínsfyllingarnar.
Samþykkt bæjarráðs er bundin
því skilyrði að í hluthafasamkomu-
laginu skuldbindi aðrir hluthafar eða
Globodent B.V. sig til að kaupa ofan-
greindan 20 milljóna króna hlut
Framkvæmdasjóðs að viðbættum
verðbótum og 6% ársvöxtum frá inn-
borgunardegi til kaupdags, ef í ljós
kemur að 18 mánuðum liðnum frá
innborgun hlutafjárins, að uppbygg-
ing á starfsemi fyrirtækisins hafi
ekki hafist á Akureyri eins og gert er
ráð fyrir í fjárfestingarsamningnum.
Einnig ef óljóst verður um framtíð
starfseminnar í bænum eða að fyrir
liggi að hún verði byggð upp annars
staðar.
Oddur Helgi hefur efasemdir
Oddur Helgi Halldórsson, bæjar-
fulltrúi L-lista fólksins og bæjar-
ráðsmaður, sat hjá við afgreiðslu
málsins.
„Mér finnst hlutirnir ekki liggja
nógu vel fyrir og ég hef heldur ekki
alveg nógu mikla trú á þessu. Ég
vona þó svo sannarlega að ég hafi
rangt fyrir mér og von mín er sú að
þetta fyrirtæki komi til með að
ganga,“ sagði Oddur Helgi í samtali
við Morgunblaðið.
Framkvæmdasjóður Akureyrar
Kaupir 20 millj-
óna króna hlut
í Globodent
starfið að sundlaugin hverfi.
Tenging við gamla skólahúsið
er vel leyst en útlit nýbygginga
samræmist ekki nógu vel nánasta
umhverfi. Tillagan er auðveld í
framkvæmd og vænleg til þróun-
ar. Tillagan er mjög skýr og vel
fram sett.“
Alls bárust sjö tillögur og var
dómnefnd sammála um að tvær
þeirra þættu vænlegastar til frek-
ari útfærslu, „þótt engin tillaga
skilaði afdráttarlaust fullnægj-
andi heildarlausn“, eins og segir í
dómnefndarálitinu. Í mati sínu
leit nefndin aðallega til heild-
arskipulags á skólasvæði, nýt-
ingar og aðlögunar að núverandi
byggingum og byggðarmynstri,
innra skipulags með tilliti til sam-
spils rýma og hvernig tillögur
féllu innan ramma húsrýmisáætl-
unar og innra starfs skólans.
Auk þess að velja bestu tillög-
una veitti dómnefnd tillögu númer
fjögur önnur verðlaun að upphæð
1.500.000 krónur. Að tillögunni
stóð arkitektinn Albína Thordar-
son. Í umsögn um tillögu númer
fjögur segir meðal annars:
„Tillagan byggist á áhuga-
verðri tilraun til að tengja saman
hina ýmsu byggingarhluta um
DÓMNEFND í hugmynda-
samkeppni um framtíðarhúsnæði
Grunnskólans á Ísafirði hefur lok-
ið störfum og voru niðurstöður
nefndarinnar kynntar í Stjórn-
sýsluhúsinu á Ísafirði nýlega.
Dómnefndin veitti tillögu númer 6
fyrstu verðlaun að upphæð 2
milljónir króna, en að tillögunni
stóðu arkitektarnir Einar Ólafs-
son og Örn Þór Halldórsson.
Í endanlegu dómnefndaráliti
segir um verðlaunatillöguna: „Til-
lagan er skýr og góð, jafnt hvað
varðar innra skipulag, form og
áfangaskiptingu. Aðkoma og
tenging við Silfurtorg, Aðalstræti
og Hæstakaupstað er vel leyst og
fellur vel að skipulagi bæjarins.
Afmörkun útisvæða, annars vegar
Austurvöllur og hins vegar að-
alskólalóð, styrkir tillöguna. Höf-
undar leysa byggingarnar á ein-
faldan og hagkvæman hátt, um
leið og þeir skapa eina sannfær-
andi heild. Þó mætti styrkja enn
frekar götumyndir við Silfurgötu
og Brunngötu með t.d. auknum
byggingum. Það er ókostur að
salur og félagsaðstaða skuli vera í
öðru húsi og slæmt fyrir skóla-
nýjan sal miðsvæðis á lóð og
gamla skólahúsinu er gert sérlega
hátt undir höfði. Götumyndir
Brunngötu og Silfurgötu eru
styrktar til muna með nýbygg-
ingum. Tenging við Austurvöll er
meðhöndluð á skemmtilegan hátt,
en mikil áhersla á aðkomuna frá
Aðalstræti og Silfurgötu er á
kostnað leiksvæðisins. [...] Ný-
byggingar eru stílhreinar og í
góðri sátt við umhverfið. Tillagan
er athyglisverð og vænleg til þró-
unar.“
Dómnefndin komst einnig að
þeirri niðurstöðu að ráðist skyldi í
innkaup á hugmyndum númer 2, 5
og 7, en með innkaupunum mun
fást einhver réttur til nýtingar á
hugmyndum. Hvað gert verður
næst í húsnæðismálum Grunnskól-
ans á Ísafirði mun bæjarráð og
bæjarstjórn þurfa að ákveða í
nánustu framtíð. Höfundar tillögu
nr. 7 eru AT4 arkitektar ehf.,
Gísli Sæmundsson, arkitekt FAÍ
og Ragnar Ólafsson, arkitekt FAÍ.
Höfundar tillögu nr. 2 eru Zeppel-
in-arkitektar og Orri Árnason
arkitekt. Höfundar tillögu nr. 5
eru Ásmundur Hrafn Sturluson,
arkitekt FAÍ og Steinþór Kári
Kárason, arkitekt EPFL-FAÍ.
Framtíðarhúsnæði Grunnskólans á Ísafirði
Sigruðu í hugmynda-
samkeppni
Ísafjörður
Ljósmynd/Sigurður Mar Óskarsson
Örn Þór Halldórsson og Einar Ólafsson við verðlaunatillöguna.
VIÐ SKRIÐUKLAUSTUR í
Fljótsdal stendur nú yfir fornleifa-
uppgröftur og hafa fundist rústir
af því sem líklega hefur verið
klaustur, ásamt nokkrum athygli-
verðum gripum. Tilgangur upp-
graftarins er að rannsaka gerð og
uppbyggingu munkaklausturs frá
síðmiðöldum. Uppgröfturinn er
unninn á vegum Skriðuklausturs-
rannsókna, sem er félag á vegum
Minjasafns Austurlands og Gunn-
arsstofnunar.
Það er Steinunn Kristjánsdóttir
fornleifafræðingur sem er verkefn-
isstjóri. Hún segir að mikið sé af
rústum á þessum stað og að bæj-
arstæði sé talið vera undir klaustr-
inu. 10 íslenskir og erlendir sér-
fræðingar starfa að uppgreftrinum.
Miklar fornleifarannsóknir munu
fara fram við Skriðuklaustur fram
til ársins 2007 og er þessi upp-
gröftur liður í þeim. Reiknað er
með að grafið verði í klausturrúst-
irnar um tveggja mánaða skeið á
hverju sumri og unnið úr gögnum
þar á milli.
Fornleifarannsóknir við Skriðuklaustur
Ljósmynd/Skriðuklaustursrannsóknir
Unnið er að fornleifauppgreftri við Skriðuklaustur í Fljótsdal. Fundist hafa rústir munkaklausturs.
Egilsstaðir
Fundu rústir munka-
klausturs frá síðmiðöldum
AKUREYRI
BOÐIÐ verður upp á ferðir með leið-
sögn um verslunarstaðinn Gásir í
Hörgárbyggð í sumar eða á tíma-
bilinu frá 4. júlí til 9. ágúst. Ferð-
irnar verða farnar alla daga kl. 11,
13, 14.30 og 15.30 og verður lagt af
stað frá bílastæðinu. Ingibjörg
Magnúsdóttir er leiðsögumaður.
Fornleifarannsóknin á Gásum er
verkefni Minjasafnsins á Akureyri,
Þjóðminjasafns Íslands og nokkurra
stofnana á Akureyri auk sveitarfé-
lagsins Hörgárbyggðar. Fornleifa-
stofnun Íslands sér um framkvæmd
rannsóknanna og er stefnt að nokk-
urra ára rannsóknum á svæðinu.
Vonast er til að þær muni leiða
margt nýtt í ljós um viðskipti og
framleiðsluhætti í nærliggjandi
byggðalögum en þess er einnig
vænst að niðurstöðurnar hafi gildi
langt út fyrir landsteinana. Rann-
sóknirnar fela einnig í sér kortlagn-
ingu á gróðri og fuglalífi en svæðið á
Hörgárósum er á náttúruminjaskrá.
Ferðamálasetur Íslands annast
verkefnisstjórn og er hún í höndum
Kristínar Sóleyjar Björnsdóttur
menningarlandafræðings. Í framtíð-
inni er stefnt að því að gera Gásir að
vel skipulögðum ferðamannastað
með áherslu á fræðslu og upplifun
ferðamanna á menningararfleifð Ís-
lendinga. Rústasvæðið er stórt og
tilkomumikið og auðvelt að tengja
það við meginatriði miðaldasögu Ís-
lands. Einnig er næsta nágrenni
áhugavert til náttúruskoðunar.
Ferðir með leið-
sögn um Gásir
HÓPUR ungmenna á aldrinum 16–
20 ára frá Akureyri kom í vikunni
heim frá norrænu vinabæjarmóti í
Randers í Danmörku. Einnig voru
með í för embættis- og stjórnmála-
menn, eins og segir á heimasíðu Ak-
ureyrarbæjar.
Í Randers hittust sams konar hóp-
ar frá Lathi í Finnlandi, Vesterás í
Svíþjóð, Álasundi í Noregi, ásamt
heimamönnum í Danmörku. Þema
vikunnar var vatn og skipuðu krakk-
arnir hópa sem unnu undir heitunum
vatn og líf, vatn og tónlist, vatn og
kajak og vatn og vindur.
Tilgangur ferðarinnar er að
mynda tengsl á milli ungmenna frá
vinabæjunum og fyrir tilstilli bæjar-
ins geta þau tekið þátt í svona æv-
intýri óháð efnahag. Auk þess er til-
gangurinn að gefa starfsmönnum og
stjórnmálamönnum bæjarins tæki-
færi á að mynda persónuleg tengsl
við kollega sína frá hinum Norður-
löndunum.
Ferðin tókst í alla staði vel og
krakkarnir voru Akureyrarbæ til
sóma og vakti reglusemi og fram-
takssemi þeirra athygli annarra og
stolt fylgdarmanna, segir ennfremur
á heimasíðu bæjarins.
Vel heppnuð ferð
á vinabæjarmót
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is