Morgunblaðið - 06.07.2002, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Á ÍSLANDI eru lygilega margir sem
telja sig vita meira um Kína en Kín-
verjar sjálfir, en í Kína þar sem
fyrstu sprotar menningar skutu rót-
um býr fjölmenn-
asta þjóð verald-
ar. Það er mikil
þjóð sem hefur á
nokkrum áratug-
um brotist úr viðj-
um landlægs
hungurs, fátækt-
ar og grimmi-
legra siða sem
leiddu fjölda
kvenna til ör-
kumlunar. Kín-
verjar hafa mátt þola nýlenduáþján
og ótal styrjaldir og nú koma þeir
fram sem stórveldi sem þorir að taka
á vandamálum. Þeir hafa gert mistök
eins og flestar þjóðir, en þeir eru að
koma út úr sortanum og hafa máls-
bætur umfram svo ótal marga. Úr
bernsku man ég setninguna: „Mundu
svöngu börnin í Kína.“ Ég dreg í efa
að nokkur landi minn geri sér ljóst
hvað þarf til að koma í veg fyrir
hungursneyð í milljarða þjóðfélagi.
Hafa ber í huga mállýskur, fjærlægð-
ir, misjafna siði og fjöldann. Í litla
landinu Noregi eru margar mállýsk-
ur. Það er víðar en í Sómalíu og Afg-
anistan sem sjálfskipaðir herstjórar,
sem eru lítið annað en fjöldamorð-
ingjar, gera löndin erfið í að búa. Kín-
verjar taka slíkan glæplýð engum
vettlingatökum og firra samfélag sitt
upplausn og ógæfu og fá t.d. eitur-
lyfjasmyglarar það sem þeir eiga
skilið. Öndvert Vesturlöndum er ekki
liðið að glæpalýður græði á að drepa
börn og unglinga á eitri. Kínverjar
taka alþýðuna fram yfir glæpalýðnn
á róttækari hátt en vestrænum þjóð-
um hugnast. Hvor vinnur heildinni
betur? Sá sem tekur hagsmuni ein-
staklingsins umfram þjóðar eða öf-
ugt. Ég trúi að Kínverjar viti betur
en útlendingar hvað þjóð þeirra kem-
ur best. Bandaríski rithöfundurinn
Pearl S. Buck skrifaði skáldsögur
með sannsögulegu ívafi um Kína og
skín aðdáun hennar á þjóðinni víða í
gegn. Eftir Cang Kai Cék, Maó Ce
Tung og fjórmenningaklíkuna, sem
skapaði skaðræðisöfl rauðliðanna,
kom mikil óvissa og hætta fyrir þjóð-
ina. Öldungurinn Cao Ping komst
aftur til valda og náði á ótrúlega
skömmum tíma að koma málum í við-
unandi horf. Kínverjar hafa mátt
þola endalausa gagnrýni vesturveld-
anna fyrir að leyfa ekki trúarhreyf-
ingum að fara sínu fram. Skiljanlega
óttast þeir trúarbragðaþvæluna sem
tröllríður heiminum meira í dag en
nokkru sinni. Aðgangsharka trúar-
hópa er misjöfn en trúarofstækis-
menn úr röðum múslima eru erfið-
astir og hafa þeir náð fótfestu með
ofbeldi eins og á Filippseyjum, þar
sem þeir stunda mannrán, eitursölu
og morð til að fjármagna starfsemi
sína. Á Vesturlöndum og víðar reka
þeir áróður úr moskum sínum gegn
viðtökulöndunum. Auðvitað er hér
átt við takmarkaða hópa bókstafstrú-
aðra ofstækismanna sem einskis svíf-
ast. Ísraelsmenn og Palestínumenn
berast á banaspjót því í þeirra trú
hefur hatur og hefnd undirtökin í
skjóli fyrirlitlegrar klausu um auga
fyrir auga og er eins og öll skynsemi
og góðvild sé útlæg á þeim slóðum.
Ótal fleiri eru dæmin um óhugnað
þann sem trúarbrögð geta valdið og
er Írland nærtækast. Það ætti engan
að undra þó Kínverjar láti annarra
þjóða víti sér til varnaðar verða og
fari sér hægt í varasamt frjálsræði og
láti málin þróast á viðráðanlegan
hátt. Kínverjar sýna kristinni trú
mestu þolinmæði og er það vel. Allir
eiga að vita að ókurteisi við fulltrúa
erlendrar þjóðar, sérstaklega í opin-
berri heimsókn, er virðingarleysi við
þjóð hans.
ALBERT JENSEN,
Sléttuveg 3,
Reykjavík.
Frá Alberti Jensen:
Albert
Jensen
Morgunblaðið/Þorkell
Allir eiga að vita að ókurteisi við fulltrúa erlendrar þjóðar, sérstaklega í
opinberri heimsókn, er virðingarleysi við þjóð hans, segir í greininni.
Kína og Ísland