Morgunblaðið - 02.08.2002, Qupperneq 1
179. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 2. ÁGÚST 2002
PALESTÍNUMENN höfnuðu í gær
þeirri niðurstöðu nýrrar skýrslu
Sameinuðu þjóðanna að ekki hefðu
verið framin fjöldamorð á Palestínu-
mönnum í flóttamannabúðum í Jenín
á Vesturbakkanum meðan á hernámi
Ísraelshers stóð í apríl. Ísraelar
sögðust hins vegar vera ánægðir
með niðurstöður skýrslunnar.
Í skýrslunni er fjallað um átök í
flóttamannabúðunum 2.–12. apríl.
Palestínskir embættismenn sökuðu
Ísraelsher um að hafa orðið um 500
manns að bana en Ísraelar sögðu að
52 Palestínumenn hefðu fallið, auk
23 ísraelskra hermanna. Höfundar
skýrslunnar segja að enginn fótur sé
fyrir ásökunum Palestínumanna og
staðfesta að 52 Palestínumenn hafi
fallið, þar af hafi helmingurinn verið
óbreyttir borgarar. Á sama tíma hafi
rúmlega 100 ísraelskir borgarar týnt
lífi, flestir þeirra fórnarlömb sjálfs-
morðsárása Palestínumanna.
Þótt skýrsluhöfundarnir hafni
fullyrðingum Palestínumanna um
fjöldamorð gagnrýna þeir Ísraela
fyrir að hafa beitt „þungavopnum á
svæðum óbreyttra palestínskra
borgara“ og meinað starfsmönnum
hjálparstofnana að fara þangað til að
koma nauðstöddu fólki til hjálpar. Í
nokkrum tilvikum hafi ísraelskir
hermenn „ekki virt hlutleysi hjúkr-
unarfólks og starfsmanna mannúð-
arsamtaka og ráðist á sjúkrabíla“.
Báðir aðilar stefndu lífi
saklausra borgara í hættu
Í skýrslunni eru Palestínumenn
jafnt sem Ísraelar gagnrýndir fyrir
að hafa stefnt lífi óbreyttra borgara í
hættu. Vopnaðar palestínskar hreyf-
ingar, sem aðgerðir Ísraelshers
beindust að, hefðu komið „liðs-
mönnum sínum og búnaði fyrir með-
al óbreyttra borgara“.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
Ísraels sagði að í skýrslunni væri
heimastjórn Palestínumanna kennt
um átökin þar sem hún hefði leyft
vopnuðum hópum að starfa á yfir-
ráðasvæðum hennar, auk þess sem
fullyrðingarnar um fjöldamorð hefðu
verið hraktar.
Palestínskir embættismenn sögð-
ust standa við ásakanirnar um
fjöldamorð. „Sameinuðu þjóðirnar
hefðu átt að nota orðin „fjöldamorð“
og „stríðsglæpi“, einkum vegna þess
að búðirnar voru undir stjórn sam-
takanna,“ sagði Saeb Erakat, aðal-
samningamaður Palestínumanna.
Palestínskir embættismenn gagn-
rýndu það að sendimenn Sameinuðu
þjóðanna skyldu ekki hafa fengið að
fara inn í flóttamannabúðirnar eftir
að átökunum lauk.
Skýrslan byggist á upplýsingum
frá starfsmönnum SÞ, Palestínu-
mönnum, fimm erlendum ríkjum,
hjálparsamtökum og skjölum sem
Ísraelsstjórn hafði gert opinber, en
hún neitaði að aðstoða við rannsókn-
ina. Ákveðið var að semja skýrsluna
eftir að stjórn Ísraels neitaði að
hleypa þriggja manna sendinefnd
frá SÞ inn í Jenín.
Fullyrðingum um fjöldamorð í flóttamannabúðum í Jenín hafnað í skýrslu SÞ
Palestínumenn hafna
niðurstöðu skýrslunnar
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
AFGANSKUR hermaður bíður eftir útborgun á launum
í herskóla í Kabúl. Ríkisstjórnir Frakklands og Banda-
ríkjanna greiða laun 300 Afgana sem vestrænir her-
menn eru að þjálfa til að gegna herþjónustu í nýjum
stjórnarher Afgana. Hver hermaður fær greidda um
þrjátíu Bandaríkjadali, eða um 2.500 krónur, á mánuði.
Reuters
Beðið eftir hýrunni
BANDARÍSKUR alríkislögreglu-
maður leiðir David Myers (t.v.),
fyrrverandi fjármálastjóra hjá
fjarskiptafyrirtækinu WorldCom,
í handjárnum inn í réttarsal í New
York í gær þar sem Myers og
Scott Sullivan, fyrrverandi yfir-
fjármálastjóra fyrirtækisins, voru
birtar ákærur fyrir sviksemi í
tengslum við 3,8 milljarða dollara
bókhaldssvindl fyrirtækisins. Þeir
eiga yfir höfði sér allt að 15 ára
fangelsi, verði þeir fundnir sekir.
Nokkrir vegfarendur fyrir utan
skrifstofur alríkislögreglunnar á
Manhattan klöppuðu þegar Myers
og Sullivan voru leiddir í hand-
járnum út úr byggingunni, settir
upp í lögreglubíla og þeim ekið
spottakorn að dómshúsinu.
Sullivan og Myers voru reknir
frá WorldCom í lok júní þegar
fyrirtækið gerði uppskátt um að
það hefði vantalið 3,8 milljarða
dollara og hefði því í raun ekki
skilað neinum hagnaði 2001. Fór
fyrirtækið síðan fram á greiðslu-
stöðvun sem gerir því kleift að
halda starfsemi áfram.
Lögfræðingar Myers og Sulliv-
ans hafa undanfarnar vikur rætt
við saksóknara og hefur getum
verið að því leitt, að reynt hafi
verið að ná samkomulagi um að
mennirnir beri vitni gegn öðrum
yfirmönnum WorldCom. Reuters
Yfirmenn hjá World-
Com handteknir
VINSTRIFLOKKARNIR í Þýska-
landi eiga nú undir högg að sækja
vegna frétta þýska blaðsins Bild um
að þingmenn hafi notað frípunkta,
sem þeir fengu vegna flugferða í op-
inberum erindagerðum, til að fá
ókeypis ferðir í einkaerindum. Þýski
Jafnaðarmannaflokkurinn sakar
Bild um hafa birt nöfn vinstrisinn-
aðra þingmanna, sem hafa misnotað
frípunktana, til að koma höggi á
vinstriflokkana en hlíft hægrimönn-
um af ásettu ráði
til að auka sigur-
líkur þeirra í
þingkosningun-
um 22. septem-
ber.
Greinar Bild
um hneykslismál-
ið hafa valdið
miklum titringi í
þýskum stjórn-
málum. Einn af
vinsælustu stjórnmálamönnum
Þýskalands, Gregor Gysi, leiðtogi
Lýðræðislega sósíalistaflokksins,
flokks fyrrverandi kommúnista í
Austur-Þýskalandi, sagði sig úr
fylkisstjórn Berlínar í fyrradag eftir
að hafa játað að hafa misnotað frí-
punkta til að fá ókeypis farmiða til
Kúbu fyrir sig, eiginkonu sína og
dóttur þeirra þegar hann átti sæti á
þýska þinginu. Þetta er brot á þýsk-
um lögum sem kveða á um að þing-
mönnum beri að afhenda ferðaskrif-
stofu þingsins alla frípunkta sem
þeir fá vegna ferða í opinberum
erindagerðum.
Græningi lætur af
þingmennsku
Cem Oezdemir, einn af atkvæða-
mestu þingmönnum Græningja,
hefur dregið sig í hlé sem talsmaður
flokksins í innanríkismálum vegna
misnotkunar á frípunktum og hætt
við að gefa kost á sér til endurkjörs í
komandi kosningum. Á meðal
þeirra, sem Bild hefur sakað um að
hafa misnotað frípunkta, er græn-
inginn Jürgen Trittin umhverfisráð-
herra, en hann ber af sér allar
ásakanir.
Aðeins einn þingmaður hægri-
flokkanna hefur verið bendlaður við
hneykslismálið. Günter Nooke,
varaformaður þingflokks kristilegu
flokkanna, hefur viðurkennt að hafa
misnotað ferðapunkta „aðeins einu
sinni“ til að komast í veislu vinar
síns í Frankfurt.
Kosningabaráttan í Þýskalandi
Vinstrimenn
í vörn vegna
nýs hneykslis
Þingmenn sagðir misnota frípunkta
til að ferðast ókeypis í einkaerindum
Berlín. AFP, AP.
Gregor Gysi