Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                          BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. MEÐFERÐ Ísraelsmanna á Palest- ínumönnum er svo yfirgengileg að maður er alveg agndofa. Þetta minn- ir æ oftar á fram- göngu Gestapo og SS-sveita nasist- anna eins og þær höguðu sér verst í hernumdum lönd- um seinni heims- styrjaldarinnar og vart verður neðar komist í ómennskunni. Ísraelski herinn setur á útgöngu- bann sólarhringum saman, tekur raf- magnið af, lokar fyrir vatn í tíma og ótíma í refsingarskyni fyrir hvaðeina sem hernámsliðinu þóknast að kalla brot. Herinn setur sölubann á afurðir Palestínumanna svo að þær grotna, hann stundar gripdeildir í fyrirtækj- um þeirra og á heimilum, hann drep- ur börn og unglinga sem kasta grjóti, hann fer hús úr húsi í leit að meintum andófsmönnum og er þá allt brotið og bramlað, sjónvarpsskjáir hvað þá annað. Sjúkrabílum er meinað að komast leiðar sinnar þegar á „að- gerðum“ hersins stendur, margir slasaðir, hjartasjúklingar og fólk með sykursýki á háu stigi hafa látið lífið af þessum sökum. Svona mætti lengi telja. Ekki er síður reynt að særa andlega og niðurlægja fólkið. Hermenn gera þarfir sínar við gæslustörf á húsþökum arabafjöl- skyldna, stífla þá iðulega niðurföll og stundum er saur skilinn eftir fyrir ut- an dyrnar hjá þeim. Um þetta skrif- aði ísraelskur varaliði í hernum í Jerúsalem Post á sínum tíma við lít- inn fögnuð landa sinna. Svo þykjast menn alveg forviða þegar einstak- lingar úr röðum þessa fólks, sturlaðir af hatri, sprengja sig í loft upp til að taka með sér einhverja úr röðum herraþjóðrinnar. Ísraelsmenn hafa sjálfir skapað þessa aðila með linnu- lausri kúgun og ofbeldi áratugum saman. Tugir þúsunda Palestínu- manna búa í flóttamannabúðum og hafa gert í langan tíma. Heil kynslóð hefur fæðst og alist upp í þessum búðum og það fólk elur nú upp þriðju kynslóð flóttamanna, börnin sem þessa dagana kasta grjóti í áttina að hernámsliðum, gleymið því ekki eitt augnablik, fólkið er í flóttamanna- búðum í sínu eigin landi og það má horfa upp á aðkomumennina reisa sér nýtískuhús með öllum þægindum á landinu sem af því hefur verið tek- ið. Jahve gaf okkur landið, segja gyð- ingarnir, þeir eru bara að endur- heimta það. Þegar gyðingarnir (Hebrear) réðust inn í Palestínu fyrir 3000 árum var landið löngu byggt öðrum þjóðum. Þarna var ríki Kan- aan og hafði staðið í langa hríð, þeir byggðu til dæmis Jerúsalem sem hafði staðið í nokkrar aldir þegar gyðingarnir komu. Lengst af og þorrann af sögu gyðinga voru þeir fá- mennir í Palestínu. Palestínumenn eiga rætur þúsund ár ef ekki þús- undir ára aftur í tímann í þessu landi. Tilkall gyðinga er því byggt á heldur haldlitlum „rökum“. Indíánar ættu heimtingu á N-Ameríku með meiri rétti. Palestínumenn hafa margbeðið alþjóðasamfélagið um vernd, þeir sem eiga sökina og vilja viðhalda of- beldinu biðja ekki um slíkt, það ætti að liggja í augum uppi. Ísraelsmenn neita að fallast á að gæslusveitir verði sendar á svæðið og Bandaríkin styðja þá í því eins og öllu öðru. Eng- ir tala meira og oftar um frelsi og sjálfsákvörðunarétt þjóða en Wash- ington-herrarnir og engir aðrir en einmitt þeir fótum troða þessi rétt- indi sé það þeim í hag. Þarna er hægt að koma á friði strax og tryggja að Palestínumenn fái sitt ríki, þeir hafa sæst á að fá Vesturbakkann, Gaza- ræmuna og A- Jerúsalem og tryggt yrði af umheiminum að þetta héldi, þeir vita að réttlætið mun ekki ná fram að ganga þannig að þessi litlu landsvæði yrðu að nægja. Nei, ekki einu sinni þetta samþykkja Ísr- aelsmenn þó að þeir réðu þá meira en þrem fjórðu landsins, 20% stærra svæði en þeim var fært af SÞ á silf- urfati á sínum tíma. Menn ættu að kynna sér það hrikalega óréttlæti er þá var framið þegar gyðingunum var úthlutað rúmum helmingi landsins þó að arabarnir væru tvöfalt fleiri og gyðingarnir komnir til landsins lang- flestir fyrir örfáum árum eins og manntal Breta frá þessum tíma sýn- ir. Þess vegna verður að koma alvar- legur þrýstingur frá Vesturveldun- um eða hótanir um aðgerðir gegn Ísraelsmönnum haldi þeir áfram á sömu braut. Serbunum voru settir afarkostir og síðan reknir frá Kosovo þegar þeir létu sér ekki segjast: Nú horfir allt til betri vegar á þeim slóð- um. Því miður standa leiðtogar Vest- urlanda hjá algerlega aðgerðarlausir í reynd og ekki eru nein merki þess að breyting verði þar á. Þeir taka lík- lega undir með íslenska forsætisráð- herranum þegar hann segir: Ísr- aelsmenn eru vinaþjóð okkar. Hafið ævarandi skömm fyrir, vesælu menn. GUÐJÓN V. GUÐMUNDSSON, eftirlaunaþegi. Hörmungar í Palestínu Frá Guðjóni V. Guðmundssyni: Guðjón V. Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.