Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. JOSEF Bonnici, við-skiptaráðherra Möltu,segir fulltrúa Evrópusam-bandsins (ESB) hafa sýnt sjónarmiðum Möltumanna mikinn skilning en Malta á nú í aðildar- viðræðum við sambandið. Engin dæmi séu um að erindrekar ESB hafi stillt viðsemjendum sínum upp við vegg og sagt að þeir yrðu einfaldlega að samþykkja skil- mála sambandsins eða hafna þeim. „Það er mögulegt að semja um hlutina,“ segir Bonnici. „Vissulega gilda ákveðnar for- sendur [í viðræðunum] en við höf- um komist að raun um að sú stað- reynd að við erum smáríki þýðir ekki að okkur sé verr sinnt en öðrum.“ Bonnici var hér á landi í vik- unni og gerði hann þá Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra m.a. grein fyrir stöðunni í við- ræðum Möltu og ESB. Bonnici sagði í samtali við Morgunblaðið að samninga- viðræður ESB og Möltu gengju vel, búið væri að ljúka viðræðum um 23 málaflokka af 29. „Reynsla okkar er sú að okkur hafi verið sýnd tilhlýðileg virðing, rétt eins og hinum ríkjunum, sem sótt hafa um aðild. Það sem ég á við er það að jafnvel þó að við séum lítið land hefur verið hlýtt á okkar sjónarmið og menn hafa sýnt okkar sér- stöku vandamálum og þjóðareinkennum full- an skilning.“ Bonnici nefnir sem dæmi í þessu sam- bandi að menn hafi haft áhyggjur af því á Möltu að með inn- göngu í ESB myndi erlent vinnuafl flæða til landsins. „Malta er lítið land, aðeins 318 ferkílómetrar að stærð, en íbúarnir eru um 400 þúsund og það er því afar þéttbýlt. En okkur tókst að ná samningum við ESB í þessu máli, samningi sem engu öðru landi hefur tekist að ná. Fyrstu sjö árin mun- um við einhliða geta ákveðið að takmarka fjölda erlends verka- fólks í tilteknum at- vinnugreinum, og fólk mun því áfram þurfa að hafa atvinnuleyfi. Við höfum semsé rétt til að segja að við vilj- um ekki fá fleiri er- lenda kokka eða bíla- viðgerðarmenn til landsins, svo dæmi sé tekið, einfaldlega vegna þess að þeir séu þegar of margir í land- inu. Eftir þessi sjö ár munum við síðan taka allar ákvarðanir um þessi efni í sameiningu við ESB.“ Segir Bonnici að ríkisstjórnin telji raunar ekki að hætta sé á því að vandræði skapist vegna frjálsrar farar verkafólks. Reynsla annarra ríkja bendi ekki til þess. „En við töldum ástæðu til að baktryggja okkur með þessum hætti. Evrópusambandið hefði vel getað tekið einarðari afstöðu og sagt að annaðhvort sættust menn á frjálst flæði verkafólks eða ekki. En þetta dæmi sýnir hins vegar, að okkar mati, heilindi við- semjenda okkar.“ Bonnici nefnir einnig ótta margra á Möltu við að efnafólk frá hinum ESB-ríkjunum kaupi upp allar eignir á Möltu og hífi þannig upp fasteignaverð. Tekist hafi að semja um ýmsar takmark- anir í samningaviðræðum við ESB. „Engin breyting verður reyndar er fólk frá hinum ESB- löndunum kaupir sína fyrstu eign; það eru þegar í gildi reglur sem heimila frjálst flæði fjármagns. En vilji menn kaupa fleiri fasteignir verða þeir að hafa búið á Möltu í fimm ár. Þetta verður viðvarandi krafa. Hún er auðvitað ekki í samræmi við regluna um frjálst flæði fjár- magns en við fengum hana sam- þykkta vegna þess að menn gerðu sér grein fyrir því, hversu þéttbýl eyjan væri og hversu sér- stakar okkar aðstæður eru. Þessi tvö mál hafa því verið leidd til lykta með jákvæðum hætti og sýna að mikill vilji er fyrir því hjá ESB að finna lausnir á þeim sér- tæku vandamálum sem eru fyrir hendi hjá hverju ríki fyrir sig.“ Sjá um að ákveða heildarafla Niðurstöður viðræðna Möltu- manna og ESB um sjávarútvegs- mál vöktu talsverða athygli hér á landi nýverið. „Þó að fiskveiðar séu ekki jafn mikilvægar efnahag okkar og fyrir ykkur Íslendinga þá þýðir það ekki að einfalt hafi verið að semja um þau mál,“ seg- ir Bonnici aðspurður. „Ríkisstjórn Möltu lýsti ein- hliða yfir 25 mílna efnahags- lögsögu á sínum tíma, snemma á áttunda áratugnum. Lögsaga okkar hlaut ekki viðurkenningu á alþjóðavettvangi, slík viðurkenn- ing fékkst aðeins fyrir 12 mílum, en það sem við höfum nú gert er að tryggja að ábyrgðin á því að stýra veiðum á 25 mílna svæðinu fellur í okkar hlut. Þetta er kannski ekki stórt svæði en þá verða menn að hafa í huga að fjarlægðin á milli Möltu og Sikil- eyjar er aðeins 60 mílur. Við er- um því að tala um að næstum helmingur þess svæðis teljist efnahagslögsaga okkar. Það fell- ur í okkar hlut að ákveða heildar- afla hvers fiskveiðiárs og einnig munum við ákveða stærð veið- arfæra og þar fram eftir göt unum.“ „Auðvitað þurfum við líka una ákveðnum takmörkunum segir Bonnici. „Þannig verð bátar, sem eru stærri en tól metrar á lengd, að veiða uta fiskveiðilögsögunnar. En þá rétt að muna að fæstir báta fiskveiðiflota okkar eru stæ tólf metrar að lengd.“ Hann segir að þetta fyr- irkomulag muni í raun þýða einungis maltneskir bátar v að veiðum í lögsögu Möltu. Kostnaður við að sigla smáb t.d. alla leið frá Spáni geri a verkum að slíkur útvegur ge aldrei orðið arðbær. Fjarlæ sé of mikil, veður geti verið lynd og um of langan veg sé fara til að landa aflanum. Engin þjóð er eylan Samtalið berst að umræð um það fullveldisafsal sem f inngöngu í ESB. „Vissulega um við framvegis þurfa að d fullveldi okkar [með ö́ðrum um ESB] í sumum málum,“ segir Bonn- ici. „Menn hafa t.d. rætt um hlutleys- isstefnuna sem við höfum fylgt en þá má minna á að Austurríki, S þjóð, Finnland og Írland ha sömu stefnu, og eru þó öll lö ESB. Vissulega er rætt um menn ráði sér sjálfir, ef þeir standa utan ESB, en um hv menn þá að tala? Ef við sko Josef Bonnici, viðskiptaráðherra Möltu, átti fund með Halldóri Ásgrímsso Sjónar- miðum okkar sýnd tilhlýðileg virðing Josef Bonnici, viðskiptaráðherra Möltu, seg samtali við Davíð Loga Sigurðsson að viðræ um aðild að ESB gangi vel. Malta hafi ekk goldið þess í viðræðunum að vera smárík Ge fj Ekki líklegt að spænskir smábát- ar komi til veiða GEGN BARNAKLÁMI Netið er talið eiga snaran þátt íþeirri aukningu sem orðið hef-ur á barnaklámi í heiminum á undanförnum árum. Á ráðstefnu sem haldin var um málefnið í Japan í lok síðasta árs kom fram að Netið hefur jafnframt gert erfiðara fyrir að taka á þessum ógeðfellda iðnaði sem talið er að velti nokkrum milljörðum dollara. Fyrir sex árum var fyrsta þing ný- stofnaðs Heimssambands gegn kyn- ferðislegri misnotkun barna í ábata- skyni haldið og var þar ákveðið að knýja á um aðgerðir bæði í einstökum löndum og með stofnun gagnagrunns sem næði yfir bæði afbrotamennina og börn sem væru í hættu. Alþjóðleg sam- vinna lögregluyfirvalda hefur aukist á undanförnum árum og hafa aðgerðir meira að segja verið samræmdar með þeim hætti að látið hefur verið til skar- ar skríða í nokkrum löndum samtímis. Einn helsti ávinningurinn á undan- förnum árum þykir vera sá að í ýmsum löndum hefur verið sett í lög að hægt sé að refsa afbrotamönnum fyrir glæpi sem framdir hafa verið gegn börnum í öðrum löndum. En þrátt fyrir öflugri umræðu og löggæslu hefur barnaklám færst í aukana á Netinu og samkvæmt nýlegri skýrslu Barnahjálpar Samein- uðu þjóðanna, UNICEF, er ein milljón barna seld í kynlífsþrælkun af ein- hverjum toga á ári hverju. Samtökin Barnaheill hafa undanfar- ið tekið þátt í alþjóðlegu verkefni sem ber yfirskriftina Stöðvum barnaklám á Netinu. Verkefnið er rekið í samvinnu við lögreglu, netþjónustur á Íslandi og samtök um allan heim sem starfa inn- an regnhlífarsamtaka er nefnast In- hope. Hluti af verkefninu felst í því að hvetja fólk til að senda ábendingar til Barnaheilla verði það vart við barna- klám á Netinu. Verkefnið hófst í októ- ber í fyrra og bárust í upphafi um 100 ábendingar um barnaklám á Netinu en nú berast um 60 ábendingar á mánuði. Kristín Jónasdóttir, framkvæmda- stjóri Barnaheilla, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að barnaklám væri nú orðið að iðnaði. Það væri nýtt í stöðunni og fólk væri órólegt vegna þess. Áður fyrr hefði það verið þannig að barnaníðingar skiptust á myndum sín á milli, en nú framleiddu menn jafnvel barnaklám þótt þeir hefðu eng- ar hneigðir til þess sjálfir. Á vefsíðu Barnaheilla, barnaheill.is, er sérstakur hnappur sem hægt er að smella á til þess að benda á barnaklám á Netinu. „Það er markmiðið með því að starf- rækja tilkynningahnappinn að vera stöðugt vakandi og vekja okkur öll til umhugsunar um að þarna er verið að fremja hryllilegustu glæpi sem hugs- ast getur gagnvart öðrum einstak- lingi,“ sagði Kristín Jónasdóttir. „Samfélagið má ekki loka augunum fyrir þessu og láta þetta sig engu varða því að þá mun starfsemi barna- níðinga án efa eflast.“ Það er erfitt að finna nógu sterk orð til að fordæma atferli barnaníðinga og vart hægt að sökkva dýpra í skipulegri glæpastarfsemi en að gera sér neyð barna að féþúfu til að svala fýsnum barnaníðinga. Á Netinu ríkja engin landamæri og hafa þeir sem dreifa barnaklámi athafnað sig í skjóli þess. Nú er unnið að því að samræma lög- gjöf gegn barnaklámi innan Evrópu- sambandsins og nefnd um klám og vændi á Íslandi á vegum dómsmála- ráðuneytisins hefur skilað tillögum um svipaða löggjöf hér á landi. Framtak samtakanna Barnaheilla er lofsvert. Spyrna verður fótum við barnaklámi og þar verða allir að leggjast á eitt. KLAUFASKAPUR VIÐ KOSNINGAR Félagsmálaráðuneytið hefur úr-skurðað sveitarstjórnarkosning- arnar í Borgarbyggð, sem fram fóru 25. maí sl., ógildar og verður að efna til nýrra kosninga í sveitarfélaginu. Ástæðan er ágallar á framkvæmd kosn- inganna, að mati ráðuneytisins. Þannig urðu átta utankjörfundaratkvæði ógild vegna þess að undirskrift kjósenda vantaði á fylgibréf með þeim. Svo virðist sem þessir kjósendur hafi ekki fengið réttar leiðbeiningar, en í kosningalög- um segir að kjósandi skuli árita og und- irrita fylgibréf í viðurvist kjörstjóra, sem votti atkvæðagreiðsluna. Þá var eitt þessara átta atkvæða sett í kjör- kassa og talið eins og gilt væri, en aftur á móti láðist yfirkjörstjórn að taka gilt utankjörfundaratkvæði, þar sem kjós- andi hafði undirritað fylgibréfið, en á röngum stað. Ráðuneytið telur að ef at- kvæðið yrði opnað nú, væri ekki hægt að tryggja viðkomandi kjósanda leynd um það hvað hann kaus, en það er grund- vallaratriði í lýðræðislegum kosningum. Úrslit kosninganna í Borgarbyggð voru með þeim hætti að eitt atkvæði gat ráðið liðsstyrk framboðslista í bæjar- stjórninni og því telur ráðuneytið ekki annað fært en að ógilda kosninguna. Auðvitað dettur engum í hug að þeir, sem sáu um framkvæmd kosninganna, hafi vísvitandi viljað hafa áhrif á niður- stöðuna; það virðist þvert á móti ljóst að hér er einskær klaufaskapur og kannski að einhverju leyti vanþekking á kosn- ingalögunum á ferðinni. Það er því miður ekki einsdæmi að kosningar til sveitarstjórna séu ógiltar vegna þess að ekki hafi verið farið í einu og öllu eftir kosningalögum. T.d. voru kosningar í Geithellnahreppi árið 1978 ógiltar vegna þess að notaður var of þunnur pappír í kjörseðla, 1990 var kosning í Nauteyrarhreppi ógilt þar sem yfirlýsing frá einum frambjóðenda lá frammi í kjörklefa og 1994 voru kosn- ingar til sveitarstjórna í Stykkishólmi og á Hólmavík ógiltar af þeim sökum að ákvæðum laga um framboðsfrest var ekki fylgt. Það er í raun alveg grafalvarlegt að mál af þessu tagi skuli koma upp í grónu lýðræðisríki eins og Íslandi. Það er al- gjört grundvallaratriði að kosningar séu frjálsar, leynilegar og réttmætar og að enginn vafi leiki á lögmæti úrslitanna. Til þess þarf að fylgja kosningalögum út í yztu æsar. Á öllum þeim, sem koma að framkvæmd kosninga, hvílir því mikil ábyrgð. Ef menn fara að umgangast grund- vallarreglur lýðræðislegra kosninga af kæruleysi, dvínar virðing fyrir þeim og um leið fyrir lýðræðinu. Íslendingar eru oft fengnir til að tilnefna fulltrúa til að hafa eftirlit með kosningum í ungum lýðræðisríkjum og gæta þess að þær fari rétt fram. Eigi þetta fólk að verða trúverðugir fulltrúar einhverrar elztu lýðræðishefðar í heimi, verðum við að gera þá kröfu til sjálfra okkar að ekki þurfi að ógilda kosningar vegna klaufa- legra formgalla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.