Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 18
SUÐURNES 18 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Gasol® Heimsendingarþjónusta ÍSAGA nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins. Heimsendingargjald er kr. 500,- Afgreiðslan Breiðhöfða 11 er opin virka daga frá kl. 8 til 17. 800 5555 Hluti af Linde Gas Group ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11 Sími 577 3000 • Fax 577 3001 www.aga.is IS A -2 43 .1 – ÍD E A meistar inn. is GULL ER GJÖFIN YFIRVÖLD í Vatnsleysustrandar- hreppi hafa ákveðið að loka gáma- svæði fyrir flokkaðan úrgang sem verið hefur við höfnina í Vogum undanfarin þrjú ár. Ástæðan er mjög slæm umgengni þrátt fyrir ítrekaðar áminningar og viðvaranir. Jóhanna Reynisdóttir sveitarstjóri segir að mjög illa hafi verið gengið um svæðið og reynslan því ekki góð. „Það eru ekki íbúarnir sem ganga verst um, heldur tel ég fyrst og fremst að utanaðkomandi fyrirtæki geri það. Þau hafa komið og skilið t.d. eftir heilu dekkjafarmana, raf- geyma og annað, til að þurfa ekki að greiða fyrir það annars staðar. Svæðið hjá okkur hefur verið opið, enda hugsað fyrst og fremst fyrir íbúana í Vogum.“ Nýtt gámasvæði undir eftirliti á næsta ári Jóhanna segir að ástandið sé óvið- unandi og því hafi verið ákveðið að loka svæðinu í núverandi mynd. „Í staðinn munum við á næstunni bjóða fólki að losa flokkaðan úrgang í gáma einu sinni í mánuði, í nokkra daga í senn, undir eftirliti.“ Það verður auglýst síðar hvenær sú þjón- usta hefst. Vatnsleysustrandarhreppur á að- ild að Sorpeyðingarstöð Suðurnesja. Hefur stöðin samþykkt að setja upp gámasvæði í Vogum í tengslum við nýja sorpeyðingarstöð sem stendur til að byggja í Helguvík. Áætlað er að svæðið gæti verið tilbúið 2003. „Þá erum við að tala um afmarkað og lokað gámasvæði með eftirliti sem uppfyllir allar kröfur um um- hverfismál,“ segir Jóhanna. Núverandi gámasvæði verður lok- að eftir helgi og gámarnir fluttir á brott. Svæðið verður hreinsað, jafn- að og lokað af með blómakerum og keðjum. Að sögn sveitarstjóra hefur borið á því að sorpi frá fyrirtækjum utan Voga sé komið fyrir á gámasvæðinu og illa gengið um, en eftirlit þar er lítið. Umgengni afleit þrátt fyrir áminningar Vogar Gámasvæði við höfnina fyrir flokkaðan úrgang verður lokað fljótlega KJARTAN Már Kjartansson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ, lagði í gær tillögu fyrir bæjarráð um breytt fyrirkomulag ferðastyrkja til nemenda sem stunda viðurkennt nám á framhalds- eða háskólastigi á höfuðborg- arsvæðinu skv. gildandi viðmiðunarreglum. „Í stað þess að niðurgreiða fargjöld með SBK ein- göngu fái nemendur ferðastyrk, sem nemur upp- hæðinni sem annars færi til niðurgreiðslunnar, fyrir eina önn í senn.“ Tillögunni var vísað til skóla- og fræðsluráðs en verði hún samþykkt munu breytingarnar taka gildi 1. sept. nk. Á fundi bæjarstjórnar Reykja- nesbæjar 2. júlí s.l. lagði Kjartan Már fram fyr- irspurn þar sem hann óskaði eftir að bæjarstjóri taki saman upplýsingar um hvort og þá með hvaða hætti önnur sveitarfélög á Reykjanesi og suðvesturhorni landsins stæðu að því að veita nemendum, sem búa í sveitarfélögunum en sækja skóla í Reykjavík, ferðastyrki. Í svari Árna Sig- fússonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, sem lagt var fyrir bæjarráð í gær, kemur fram að leitað hafi verið svara hjá sjö sveitarfélögum: Gerða- hreppi, Grindavík, Sandgerði, Vogum, Hvera- gerði, Árborg og Ölfusi. Fimm sveitarfélög hafi svarað en ekki hafi borist svar frá Vogum og Grindavík. „Niðurstaðan er sú að hjá öllum nema Ölfus- hreppi er sama fyrirkomulag og hjá okkur, þ.e. niðurgreiðsla á fargjöldum til Reykjavíkur. Eins og er veitir Ölfushreppur ekki ferðastyrki en það stendur til hjá þeim að taka upp sama fyrirkomu- lag og við höfum,“ segir í svari bæjarstjóra. Óeðlilegt að ekki fái allir styrk Í greinargerð sem fylgir tillögunni segir að nú- verandi fyrirkomulag ferðastyrkja Reykjanes- bæjar til nemenda, sem stunda nám á framhalds- eða háskólastigi á höfuðborgarsvæðinu, eigi ræt- ur sínar að rekja til þess tíma er SBK var í eigu Keflavíkurbæjar. Þá var kostnaður sveitarfé- lagsins vegna styrkjanna því óbeinn þar sem nemendur gátu nýtt sæti sem annars voru tóm í rútunum, án þess að til sérstakra beinna aukaút- gjalda sveitarfélagsins kæmi. „Eftir að SBK varð að sjálfstæðu hlutafélagi kaupir Reykjanesbær þessi sæti með beinum hætti. Þarna er því mikil breyting á. Ljóst er að nokkur fjöldi nemenda sækir nám daglega til höfuðborgarsvæðisins eftir öðrum leiðum og fær því ekki ferðastyrk frá sveitarfélaginu. Slíkt hlýtur að teljast óeðlilegt þar sem allir nemendur, sem á annað borð eiga rétt á ferðastyrk skv. gildandi viðmiðunarreglum, hljóta að eiga jafnan rétt óháð því hvort þeir fara með SBK eða á einkabílum. Því hlýtur að vera eðlilegast að nemendur fái styrkinn og ráði sjálfir hvort þeir nýta sér þjónustu SBK eða fara á einkabílum.“ Tillaga um breytta ferðastyrki þeirra sem sækja nám til Reykjavíkur Allir nemendur fái ferðastyrk Reykjanesbær ÞEIR eru orðnir tveir, sem- entsturnar fyrirtækisins Aal- borg-Portland hf. í Helguvík. Turnarnir taka samtals um 9.000 tonn af sementi, um 4.500 tonn hver, sem flutt er inn frá Danmörku. Nýi turninn tók að rísa í apríl og í fyrsta sinn á þriðjudag í síðustu viku var tekið í hann sement. Bjarni Halldórsson, framkvæmdastjóri Aalborg- Portland á Íslandi, segir að turninn verði formlega tekinn í notkun um miðjan ágúst, þegar búið verður að ganga frá lóðinni umhverfis hann að fullu. Danski sementsframleiðand- inn Aalborg Portland A/S stofnaði árið 2000 dótturfélag á Íslandi, Aalborg Portland á Ís- landi hf., og hóf dreifingu á sementi í landinu. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Bárðar Nýr sem- entsturn risinn Helguvík FÉLAGSSKAPURINN Einhuga foreldrar (EF) starfar í Grindavík með það að markmiði að berjast gegn vaxandi vímuefnanotkun ung- linga í bæjarfélaginu. Að baki EF standa samkvæmt upplýsingum frá félaginu nokkrir foreldrar sem hafa áhyggjur af stöðu mála og/eða eiga börn sem glíma við vímuefnavanda. Hópurinn hefur starfað síðan í febrúar í ár og hefur komið saman á laugardögum. Í sumar hefur hóp- urinn hins vegar hist í Kvennó ann- an hvern þriðjudag kl. 20 og segir talsmaður hópsins að öllum bæjar- búum sé velkomið að mæta og taka þátt í starfinu. „Það hafa komið upp mörg mál undanfarið ár varðandi vímuefnanotkun hér í bænum og varða þau börn allt niður í fimmtán ára gömul,“ segir talsmaðurinn. „Svo að okkur finnst vandamálið greinilega fara vaxandi, en mér skilst að það sama sé að gerast um allt land.“ Hluti af starfi hópsins felst í að ræða saman um vandann og hvaða úrræði séu í boði. „Við teljum mjög mikilvægt að fólk standi saman og hafi augun op- in fyrir neyslu allra fíkniefna, einn- ig áfengis og tóbaks,“ segir tals- maður hópsins. „Okkur kemur öllum við hvort unglingarnir okkar eru að stefna lífi sínu í voða, og það að leyna upplýsingum um vímu- efnaneyslu unglings jafngildir því í raun að samþykkja neysluna.“ Hægt að senda ábendingar Nýlega sendi hópurinn bæði bréf og segulkort á ísskápa inn á öll heimili í Grindavík þar sem starf- semi hópsins er kynnt. Á segulkort- unum eru upplýsingar um netfang hópsins, hrein-samviska@visir.is. „Þangað er hægt að senda ábend- ingar um börn og unglinga sem vit- að er að neyta vímuefna af ein- hverju tagi. Hópurinn sér svo um að koma þeim upplýsingum áfram til foreldranna, auk þess sem for- eldrum er bent á viðeigandi úr- ræði,“ segir í frétt frá félaginu. „Því miður hefur raunin oft verið sú að foreldrarnir eru síðastir til að frétta af því þegar börn þeirra misstíga sig. Því fyrr sem gripið er inn í neyslu unglinganna þeim mun lík- legra er að hægt sé að snúa þeim á rétta braut.“ Hópur foreldra ræðir vímuefnavandann og úrræði „Við teljum mjög mikilvægt að fólk standi saman og hafi augun opin fyr- ir neyslu allra fíkniefna, einnig áfengis og tóbaks,“ segir talsmaður hópsins Einhuga foreldrar í Grindavík. Myndin er sviðsett. Barist gegn fíkni- efnum Grindavík BRUNAVARNIR Suðurnesja voru kallaðar út um tíuleytið í gærmorg- un vegna díselolíuleka á Kirkjuvegi í Keflavík. Þar munu nokkrir tugir lítra hafa runnið niður og dreift úr sér. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar í Keflavík er ekki vitað frá hverju olían lak, en talið er að hún hafi lekið frá farartæki sem var búið að fjarlægja áður en lögregla og slökkvilið komu á vettvang. Slökkviliðið notaði mengunar- varnabúnað sinn við hreinsunar- starfið og gekk það vel. Olíuleki á Kirkjuvegi Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.