Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 22
ERLENT 22 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ MIKIÐ vantar upp á að ýtrustu reglum, sem gilda um endur- skoðun, sé fylgt við gerð fjár- laga Evrópu- sambandsins (ESB). Raun- ar eru fjárlög ESB – upp á 98 milljarða evra, eða um 8.500 millj- arða ísl. króna – alger mar- tröð fyrir end- urskoðanda; full af mistökum og vitleysum. Þetta segir hin spænska Marta Andreasen, sem rekin var úr starfi endurskoðanda hjá framkvæmdastjórn ESB í maí sl. Yfirlýsingar Andreasen valda framkvæmdastjórninni nokkr- um ama enda reyna yfirvöld hvarvetna nú að stoppa í þau göt, sem virðast vera á lögum um reikningsskil fyrirtækja, a.m.k. ef marka má hneykslis- mál er tengdust bandaríska orkurisanum Enron og fjar- skiptafyrirtækinu WorldCom. Fulltrúar framkvæmdastjórnar ESB hafa borið staðhæfingar Andreasen til baka og segja þær uppspuna. Mynda nýjar al- Qaeda-sellur FREGNIR herma að liðsmenn al-Qaeda-hryðjuverkasamtak- anna, sem flúðu Afganistan eftir að Bandaríkjamenn hófu þar hernaðaraðgerðir sl. haust, hafi að undanförnu tekið að safnast saman á nýjan leik í löndum Norður-Afríku og í Suðaustur- Asíu. Er fullyrt að þeir liðs- manna al-Qaeda, sem voru við þjálfun í búðum Saudi-Arabans Osama bin Laden í Afganistan, séu nú komnir á heimaslóðir sín- ar og hafi þar tekið að mynda nýjar „ofursellur“ í því skyni að leggja á ráðin um frekari hryðjuverk. Fimm Banda- ríkjamenn dóu í Jerúsalem FIMM Bandaríkjamenn voru í hópi þeirra sjö sem biðu bana í sprengjutilræði í Jerúsalem á miðvikudag. Einn Bandaríkja- mannanna hafði einnig franskan ríkisborgararétt en hin fórnar- lömbin tvö voru ísraelsk. Að minnsta kosti áttatíu til viðbótar særðust í tilræðinu. George W. Bush Bandaríkjaforseti kvaðst í gær vera „fokreiður“ vegna blóðsúthellinganna. Suharto áfrýjar ekki TOMMY Suharto hyggst ekki áfrýja dómi yfir sér en dómari í Jakarta í Indónesíu dæmdi Su- harto nýlega í fimmtán ára fang- elsi fyrir að hafa lagt á ráðin um morðið á hæstaréttardómara í fyrra. Ákvörðun Tommys kom nokkuð á óvart en hann skýrði ákvörðun sína með þeim hætti, að almenningsálitið væri svo andsnúið sér að rétt væri að áfrýja ekki. STUTT Pottur brotinn í fjárlögum ESB? Marta Andreasen DÓMARI við alríkisdómstól í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að sex hundruð mönnum sem grunaðir eru um tengsl við talibana eða al-Qaeda- samtökin og eru í haldi í banda- rískri herstöð við Guantanamo-flóa á Kúbu sé óheimilt að flytja mál sitt fyrir bandarískum dómstólum. Samkvæmt úrskurði dómarans, Colleen Kollar-Kotely, hafa Banda- ríkin ekki lögsögu yfir bandarísk- um herstöðvum í öðrum löndum og því geta mennirnir ekki leitað rétt- ar síns fyrir bandarískum dómstól- um. Ákvörðun dómarans hefur það í för með sér að bandarískum stjórnvöldum er heimilt að halda mönnunum föngnum um óákveðinn tíma án þess að birt sé ákæra á hendur þeim. Kollar-Kotely tók það fram að réttarstaða mannanna myndi breytast þegar og ef ákæra yrði birt á hendur þeim. Við þær að- stæður ættu þeir rétt á lögfræðingi og nytu allra réttinda sem sakborn- ingar njóta í Bandaríkjunum. Fjölskyldur þrettán manna, sem eru í haldi bandaríska hersins í Guantanamo-flotastöðinni, kröfðust þess að mál fanganna yrði tekið fyrir af bandarískum dómstólum en um er að ræða ellefu Kúveita, einn Breta og einn Ástrala. Lögfræð- ingar fjölskyldnanna höfðu krafist þess að mennirnir fengju að vita hvers vegna þeir væru í haldi. Einnig var þess krafist að þeir fengju lögfræðiaðstoð, en mennirn- ir hafa ekki fengið að hitta lögfræð- ingana. Munu áfrýja úrskurðinum Justin Willard, sérfræðingur í bandarískum stjórnskipunarrétti, segir dóminn geta haft víðtækar af- leiðingar. „Það er ekkert sem kom- ið getur í veg fyrir að beita megi þessari aðferð út í það óendanlega,“ segir hann. „Af hverju ætti að flytja mann, sem grunaður er um hryðju- verk, til Bandaríkjanna þegar hægt er að fangelsa hann á Kúbu og forð- ast það að svara nokkrum spurn- ingum um hver hann sé eða hvað hann á að hafa brotið af sér?“ Stephen Kenny, lögmaður fjöl- skyldu Davids Hicks, ástralsks fanga í Guantanamo-stöðinni, segir fjölskyldurnar munu áfrýja dómn- um. „Við trúum því ekki að staður eins og Guantanamo, sem er alger- lega undir stjórn Bandaríkjahers, falli utan lögsögu bandarískra dóm- stóla. Við væntum þess að áfrýj- unardómstóll úrskurði á annan veg.“ Kenny segir það gróft mann- réttindabrot að neita mönnunum um lögfræðiaðstoð. Segir hann það jafnvel hugsanlegt að verði úr- skurði alríkisdómstólsins ekki hnekkt muni mennirnir ekki njóta aðstoðar lögfræðings við réttarhöld fyrir herdómstóli en slíkir dómstól- ar geta dæmt menn til dauða. Bandaríkjastjórn hefur neitað að veita mönnunum sex hundruð rétt- indi stríðsfanga og eru því fáir, ef nokkrir, alþjóðasamningar sem veita þeim vernd. Réttlausir fangar í Guantanamo Washington. AP, The Washington Post. Reuters Einn mannanna sexhundruð sem haldið er föngnum í herstöðinni við Guantanamo-flóa á Kúbu grunuðum um tengsl við hryðjuverkasamtök. ELÍSABET önnur Bretlands- drottning (lengst til hægri á myndinni) stendur skólaus inni í Gurdhwara sjíka-hofinu í Leicest- er ásamt ónefndum mönnum, en hún heimsótti hofið í gær. Drottn- ingin heldur í ár upp á það að fimmtíu ár eru liðin frá því að hún tók við völdum eftir fráfall föður hennar, Georgs sjötta. Mun hún ferðast um landið og heimsækja sem flesta þeirra trúarhópa sem starfa í Bretlandi. Í fyrradag varð hún fyrst breskra þjóðhöfðingja til að stíga fæti inn í mosku þegar hún heimsótti bænahús múslima í Scunthorpe. AP Bretlands- drottning í sjíka-hofi BELGÍSK stjórnvöld munu banna sölu tyggigúmmís, taflna og matvæla sem í er bætt efninu flúoríð, að því er heilbrigðisráðu- neytið belgíska tilkynnti í vikunni. Bannið nær ekki til tannkrems, tannþráðar eða lyfja er sérfræð- ingar skrifa upp á, að sögn heil- brigðisráðherrans Mögdu Alvoet. „Fjöldi vísindamanna telur að of mikið flúoríð hafi neikvæð áhrif á taugakerfið og hefur áhyggjur af fjölda tilfella flúoríð-eitrunar og beinþynningar,“ sagði ráð- herrann. Þá segir hún að menn séu teknir að draga jákvæð áhrif flúoríðs á tannheilsu í efa. „Ákvörðun mín um að banna matvæli með flúoríð á án efa eftir að leiða til þess að málið verði tek- ið fyrir í Evrópusambandinu,“ sagði hún. Mun hún mælast til þess að sambandið banni notkun flúoríðs í tannkremi og öðrum tannhirðuvörum. Talsmenn belgísku tannlækna- samtakanna gagnrýndu ákvörð- um heilbrigðisráðherrans. „Bann við notkun flúors í tannkremi er í andstöðu við ráðleggingar Al- þjóða heilbrigðisstofnunarinnar. Ég trúi því ekki að belgíski heil- brigðisráðherrann sé svona heimskur,“ sagði einn þeirra. Bannið tekur gildi í næsta mán- uði. Belgísk stjórnvöld setja bann á flúoríð Brussel. AP, AFP. LEONÍD Kútsjma, forseti Úkraínu, hét því í gær að loka ótryggum nám- um en á miðvikudaginn létust 20 námamenn í sprengingu er varð í kolanámu í Donetsk-héraði í austur- hluta landsins. Í gær höfðu lík allra mannanna fundist. Kútsjma sagði að öllum námum, sem ekki stæðust ör- yggiskröfur, yrði lokað. „Þetta er of dýrt verð fyrir kolin,“ sagði hann. Námuslysið á miðvikudaginn var það þriðja í Úkraínu á einum mán- uði, og lést alls 61 maður í þeim. Á föstudaginn tilkynnti aðstoðarfor- sætisráðherra landsins að 12 stjórn- endur á námasvæði í Donetsk, þar sem 35 manns létust í eldi í júlí, hefðu verið reknir fyrir að brjóta ör- yggisreglur. Alls er talið að 160 námamenn hafi látist í slysum í Úkraínu það sem af er árinu, og 1999 og 2001 létust alls 105. Námuslys í Úkraínu Kiev. AFP. SAMSKIPTI stjórnvalda í Rúss- landi og Georgíu eru með versta móti þessa dagana, en Rússar hafa sakað Georgíumenn um skort á vilja eða getu til að fara gegn tsjetsjensk- um skæruliðum sem halda til í Pank- isi-gili, rétt sunnan við landamærin að Tsjetsjníu. Þá hefur Georgy Shpak, hershöfð- ingi í rússneska hernum, sagst vera reiðubúinn að fara yfir landamærin inn í Georgíu og takast á við skæru- liðana þar. „Við erum hermenn og munum fara eftir svoleiðis skipun verði hún gefin,“ sagði hann. Bandaríkjamenn tóku illa í um- mælin og sagði talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins að þau myndu taka alvarlega brot á fullveldi Georgíu. Stirt milli Rússlands og Georgíu Moskva. AP, AFP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.