Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BENEDIKT Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Talnakönnunar, og
Friðrik Pálsson og Dögg Pálsdótt-
ir, stofnfjáreigendur í SPRON,
hafa velt upp leiðum til þess að ná
sáttum í þeim átökum sem staðið
hafa um SPRON. Friðrik segir að
Benedikt hafi leitað til sín og
Daggar um úrlausn málsins.
„Það var leitað til okkar og at-
hugað hvort við vildum gefa kost á
okkur í nýja stjórn ef vantraust
yrði samþykkt á núverandi
stjórn,“ segir Friðrik. „Við hug-
leiddum því hvert yrði verkefni
okkar í nýrri stjórn umfram það
sem núverandi stjórn SPRON hef-
ur á sinni könnu. Niðurstaða okkar
varð sú að það bæri fyrst og fremst
að tryggja hagsmuni stofnjáreig-
enda jafnframt hagsmunum
SPRON. Kveikjan að þessu var
þegar starfsmannafélag SPRON
fetaði í fótspor stofnfjáreigend-
anna fimm, þ.e. að safna loforðum
frá stofnfjáreigendum um að selja
bréf sín, augljóslega með vitund og
vilja stjórnenda og stjórnar
SPRON. Okkur varð þá ljóst að
bæði stofnfjáreigendurnir fimm og
starfsmannafélagið höfðu sama
markmið, að tryggja að stofnfjár-
eigendur fengju að selja bréf sín
fyrir einhvers konar markaðsvirði.
Þess vegna veltum við því fyrir
okkur hvers vegna þessi sjónarmið
gætu ekki náð saman. Ef 70–80%
stofnfjáreigenda eru þeirrar skoð-
unar að það eigi að fá að selja bréf-
in, þá hlýtur stjórnin sem starfar í
umboði stofnfjáreiganda að þurfa
að taka mið af þessu sjónarmiði.
Við höfum þess vegna átt samtöl
við fulltrúa þessara svokölluðu
stríðandi fylkinga og teljum
ástæðu til að ætla að hægt verði að
ná saman um niðurstöðu sem þarf
ekki að kljúfa stofnfjáreigendur í
andstæðar fylkingar til frambúð-
ar. SPRON er gamalgróið og gott
fyrirtæki og flestir stofnfjáreig-
endur leggja augljóslega áherslu á
að félagið fái að vaxa og dafna
áfram, burtséð frá því hverjir eru
eigendur þess á hverjum tíma,“
segir Friðrik.
Unnið að sáttum
innan SPRON
SIGURBJÖRN Hjaltason, bóndi á
Kiðafelli í Kjós, hefur gert kröfu
um að útgreiðsla úr séreignarsjóði
Mjólkursamsölunnar verði hækk-
uð. Mjólkursamsalan greiddi hon-
um úr séreignarsjóði eftir að hann
hætti mjólkurframleiðslu, en hann
telur sig eiga rétt á hærri greiðslu.
Mjólkursamsalan samþykkti á
aðalfundi sínum hinn 8. mars í vet-
ur að breyta 11. grein samþykkta
félagsins á þann veg að greiða
skyldi bændum sem hættir eru
mjólkurframleiðslu að fullu hlut-
deild þeirra í séreignarsjóði ásamt
vöxtum í árslok, eigi síðar en 1.
júlí 2002, eins og hlutdeild fram-
leiðandans stóð í árslokauppgjöri
31. desember 2001. Lögmannsstof-
an Legalis hefur nú til meðferðar
mál Sigurbjörns Hjaltasonar sem
fékk í júní síðastliðnum bréf frá
Mjólkursamsölunni þess efnis að
ákveðið hefði verið að greiða hon-
um hlutdeild hans í séreignarsjóði
félagsins og fylgdi bréfinu ávísun
að fjárhæð 227.725 krónur. Telur
Sigurbjörn að hann eigi kröfu á
mun hærri útborgun með vísan til
bráðabirgðaákvæðis laga nr. 22/
1991 um að endurmeta séreign-
arhluti félagsaðila.
Í bréfi lögmanns Sigurbjörns
kemur fram að hann telji að 11.
grein samþykkta félagsins hafi
verið breytt án þess að gæta að
skilyrðum laga nr. 22/1991 um
samvinnufélög og sé breytingin af
þeim sökum marklaus. Í öðru lagi
geri hann athugasemd við það að
stjórn Mjólkursamsölunnar geti
einhliða tekið ákvörðun um að
víkja einstökum félögum úr Mjólk-
ursamsölunni án nokkurra athuga-
semda eða tilkynninga þannig að
viðkomandi geti gætt lögvarinna
hagsmuna sinna. Telji Sigurbjörn
að hér sé um að ræða ólögmæta
úthýsingu hans úr félaginu. Í bréfi
lögmannsins kemur einnig fram að
breytingar á 11. grein samþykkt-
anna hafi ekki verið tilkynntar til
samvinnufélagaskrár þrátt fyrir
skýra lagaskyldu þar um og hafi
breytingin því enn ekki öðlast gildi
enda fullnægi hún ekki ströngum
skilyrðum 70. og 71. greinar lag-
anna.
Mjólkursamsalan
á miklar eignir
Bent er á að eignir Mjólkursam-
sölunnar séu umtalsverðar og sýni
efnahagsreikningur ársins 2000 að
eigið fé Mjólkursamsölunnar sé
tæpir 4 milljarðar. Er vísað sér-
staklega til höfuðstóls séreignar-
sjóðs upp á tæpar 95 milljónir og
endurmatsreiknings, sem stofnað-
ur var til að endurmeta séreign-
arhluta félagsaðila samvinnu-
félags, en á þessum reikningi hafi
verið rúmir 2,5 milljarðar árið
2000. Ástæðan fyrir stofnun þessa
reiknings hafi verið að gera sam-
vinnufélagi kleift að leggja við-
skiptalegt mat á fyrirtækið, þann-
ig að ársreikningar félagsins gæfu
rétta mynd af eignastöðu þess og
þar af leiðandi af fjárhagslegri að-
ild félagsmanna. Í þessu sambandi
þurfi að líta til heimildar Mjólk-
ursamsölunnar í bráðabirgða-
ákvæði með lögum nr. 22/1991 um
að endurmeta séreignarhluti fé-
lagsaðila. Að teknu tilliti til þessa
sé það afstaða Sigurbjörns að
hann eigi kröfu á mun hærri út-
borgun en fram komi í bréfi
Mjólkursamsölunnar.
Jafnframt segir í bréfinu að
ákvörðun Mjólkursamsölunnar
veki furðu þegar litið sé til þeirrar
heimildar sem hún byggi á, en
ákvörðunin virðist ekki eiga sér
fullnægjandi stoð í samþykktum
félagsins, burtséð frá því hvort
breytingar á samþykktum Mjólk-
ursamsölunnar séu lögmætar eða
ekki. Þannig sé mælt fyrir um í 3.
málsgrein 11. greinar samþykkt-
anna að „séreign hvers mjólkur-
framleiðanda falli til útborgunar
er hann hættir mjólkurframleiðslu,
en hún sé að öðru leyti ekki kræf“.
Þetta orðalag beri með sér að það
sé mjólkurframleiðandans að
krefjast þess að fá hlutdeild sína
greidda út. Sigurbjörn hafi ekki
krafist þess að fá greidda hlutdeild
sína í séreignarsjóði félagsins og
því sé erfitt að sjá hvaða ástæður
búi að baki því að Mjólkursam-
salan greiði honum út inneign
hans hjá félaginu.
Mjólkursamsalan greiðir út hlutdeild í séreignarsjóði til fyrrverandi framleiðanda
Telur sig eiga rétt á
mun hærri útborgun
MARGIR komu með Herjólfi til
Vestmannaeyja í gær. Þessi mynd
var tekin í síðustu ferð ferjunnar í
gær og var fjölmenni á bryggjunni
meðan fólk nálgaðist farangur sinn.
Ekki voru allir klæddir í hefðbund-
inn útivistarklæðnað heldur lögðu
sumir sig fram um að klæðast frum-
legum fatnaði. Í gær var haldið svo-
kallað húkkaraball og eru líkur á
að fjörið aukist enn í dag og á
morgun.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Fólk flykkist til Eyja
EIGANDI Vídeómarkaðarins við
Bæjarlind í Kópavogi skarst á
hendi þegar innbrotsþjófur sló til
hans með litlu kúbeini í fyrrinótt.
Eigandinn hafði ásamt mági sín-
um og starfsmanni vídeóleigunn-
ar vaktað húsnæðið og gátu þeir
stöðvað tvo innbrotsþjófa sem
höfðu brotið sér leið inn um úti-
dyrahurð. Grunur vaknaði um að
innbrot væri í uppsiglingu þegar
starfsmaður varð þess var að límt
hafði verið yfir hreyfiskynjara
sem eru tengdir við þjófavarnar-
kerfi. Sömu aðferð var beitt við
innbrot í vídeóleiguna fyrir hálfu
ári. Innbrotsþjófarnir, sem voru
handteknir, eru um tvítugt. Þeir
voru yfirheyrðir síðdegis í gær og
sleppt að loknum yfirheyrslum. Jafn-
framt var reynt að hafa uppi á bíl-
stjóra sem ók bifreið þeirra.
Sauma þurfti nokkur spor í úlnlið
og hönd Guðlaugs Kristjánssonar,
eiganda Vídeómarkaðarins, eftir
átökin. Hann segist vera feginn að
ekki fór verr en hann segist hvorki
hafa búist við innbroti né átökum við
innbrotsþjófa.
Fyrir hálfu ári var brotist inn í Víd-
eómarkaðinn, en þá höfðu þjófarnir
átt við hreyfiskynjara sem eru tengd-
ir við þjófavarnakerfið og því fór það
ekki í gang við innbrotið. Í fyrrakvöld
tók starfsmaður vídeóleigunnar eftir
því að búið var að líma yfir hreyfi-
skynjara og vöknuðu þá grun-
semdir um að innbrot væri í
uppsiglingu. Lögreglunni í
Kópavogi var gert viðvart og
eftir lokun fylgdust Guðlaugur,
mágur hans og starfsmaður
vídeóleigunnar með húsnæðinu
úr bifreið sem þeir lögðu gegnt
vídeóleigunni. Um eittleytið
renndi bíll upp að húsinu og út
úr honum stigu tveir menn sem
fóru þegar að eiga við útidyra-
hurðina en bílstjórinn beið í
bílnum. Guðlaugur og félagar
hringdu í lögreglu en óku síðan
upp að húsinu í þeim tilgangi að
hefta för innbrotsþjófanna.
Guðlaugur segir að annar
þeirra hafi haft sig lítið í frammi en
hinn réðst þegar að þeim og reiddi
upp lítið en oddhvasst kúbein. „Hann
reyndi að slá til mágs míns en ég náði
að grípa í höndina á honum og koma í
veg fyrir það. Hann sló þá til mín með
kúbeininu en við náðum að losa það úr
höndum hans og snúa hann niður,“
segir Guðlaugur.
Innbrotsþjófur sló til
eigandans með kúbeini
Guðlaugur Kristjánsson verslunareigandi.
Morgunblaðið/Arnaldur
FYLGI Samfylkingarinnar mældist
í símakönnun Gallup í júlí rúm 26%
og hefur aukist jafnt og þétt frá í jan-
úar þegar það mældist 20%. Er fylg-
ið því orðið nánast það sama og í al-
þingiskosningunum 1999. Frá júní til
júlí bætir Samfylkingin við sig einu
prósentustigi en Sjálfstæðisflokkur-
inn tapar einu prósentustigi á sama
tímabili og er fylgið nú 41%, var 42%
í júní. Svo litlar breytingar milli
mánaða eru ekki tölfræðilega mark-
tækar. Fylgi Sjálfstæðisflokksins
hefur lítið breyst síðustu átta mán-
uði, var 42% í nóvember 2001. Hefur
flokkurinn nánast sama fylgi nú og í
kosningunum 1999.
Stuðningur við ríkisstjórnina er
nokkurn veginn sá sami og í júní, er
nú 61% en var 62% í júní.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð stendur í stað milli júní og júlí og
mælist með 12,5% fylgi en var með
17% fylgi í maí. Í kosningunum fékk
flokkurinn tæplega 27% fylgi.
Þá bætir Framsóknarflokkur við
sig einu prósentustigi frá því í júní,
mælist nú með 18% fylgi, það sama
og flokkurinn fékk í síðustu kosning-
um.
Frjálslyndi flokkurinn mælist nú
með 2% fylgi og hefur staðið í stað
síðan í apríl þegar flokkurinn mæld-
ist með 3% fylgi en hann var með 4%
fylgi í síðustu alþingiskosningum.
Könnunin var gerð dagana 27.
júní–29. júlí 2002. Úrtak var 3.096
manns á aldrinum 18 til 75 ára og
svarhlutfall 70%.
Samfylkingin hefur
bætt við sig fylgi
Óbreytt verð
hjá Skeljungi
og Olís
SKELJUNGUR og Olís gerðu eng-
ar breytingar á verðskrá sinni um
þessi mánaðamót. Eins og kom fram
í blaðinu í gær gerði ESSO heldur
engar breytingar á bensínverði.
Verð á 95 oktana bensíni er 97 krón-
ur lítrinn hjá öllum olíufélögunum
þremur.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, segir að bensínverð á
mörkuðum hafi heldur farið hækk-
andi í júlí. Það hafi hins vegar óneit-
anlega hjálpað hvað gengismálin
hafa verið hagfelld. „Hækkunarþörf-
in er einhvers staðar á bilinu 50 aur-
ar til einnar krónu en við ætlum að
láta það á móti okkur.“
♦ ♦ ♦