Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í RÓTGRÓNU hverfi í Vesturbæn-
um, nánar tiltekið við Hjarðarhaga
24, hefur Björn H. Jónsson, fyrrver-
andi sóknarprestur á Húsavík, selt
bækur og tímarit í á sjöunda ár.
Björn hefur haft aðstöðu í sam-
eign á neðstu hæð hússins þar sem
bækur, blöð og tímarit teygja sig
upp til lofts og meðfram veggjum og
mynda völundarhús á svæði sem
hæglega er á stærð við rúmgóða
íbúð.
Sú breyting verður á á næstunni
að Björn færir út kvíarnar og flytur
starfsemina að hluta yfir í minna
húsnæði í næsta stigagangi, Hjarð-
arhaga 26. Við það grynnkar eitt-
hvað á stórum lager sem hann hefur
komið sér upp frá því hann hóf söfn-
un fyrir tæpum fjörutíu árum og
ekki vanþörf á, að sögn Björns, sem
ætlar að veita góðan afslátt af völd-
um bókum þegar að því kemur, eftir
viku til hálfan mánuð.
„Ég byrjaði að safna tímaritum
þegar ég kom til Húsavíkur árið
1964,“ segir Björn þar sem við tök-
um okkur stöðu í miðju völundarhús-
inu og undirstrikar að hann hafi
strax frá upphafi verið alæta á blöð
og tímarit og skipti þá ekki máli
hvort þau væru heil.
Þegar Björn hóf að selja bækur á
Hjarðarhaganum hætti hann, svo að
segja, að safna bókum og tímaritum
og nú kaupir hann aðeins það sem
fólk óskar eftir að komast yfir.
„Ég sá að ég átti orðið það mikið af
bókum og tímaritum að ég varð að
reyna að losa mig við þetta,“ segir
hann og bendir á að börnin hans hafi
ekki sýnt sama áhuga á bókasöfnun
og hann eða þeim bókum og blöðum
sem í safninu er að finna.
Aðspurður hvaða tímarit sé að
finna í hillum safnsins nefnir hann
undir eins gersemar á borð við tíma-
ritið Skírni. Litli Skírnir kom út á ár-
unum 1827–55, mið-Skírnir 1856–
1903 og nýi Skírnir hefur komið út
frá árinu 1905 og fram á þennan dag.
Forvera hans, Íslensk sagnablöð, á
hann raunar ekki en gott úrval er af
Skírni. Fjallkonuna og Þjóðólf er að
finna í hillunum hjá Birni, Sunnan-
fara, sem kom út í 13 ár, og Óðin sem
kom út í 32 ár, að hans sögn, en hvort
tveggja er tímarit með ættfræðifróð-
leik sem án efa höfðar til margra
safnara.
Ómældur tími fer í að flokka
Björn segist ætíð hafa haldið mik-
ið upp á Lesarkasafn Jóns Ófeigs-
sonar sem var gefið út í mörgum
flokkum og inniheldur meðal annars
gömul og þekkt ævintýri.
Í safninu hans má finna hin ólík-
legustu tímarit sem sum hver eru
ekki nema nokkurra ára gömul. Þar
má jafnvel finna tímarit á borð við
Samúel. Björn brosir út í annað og
bendir á að hann hafi aldrei sett fyrir
sig efni tímaritanna, jafnvel þótt þau
væru ljósblá.
Alla virka morgna um hálfátta-
leytið er Björn mættur á Hjarðar-
hagann þar sem hann tekur á móti
fólki og veitir viðtöl en einnig fer
ómældur tími í að reyna að flokka
bækur og blöð. Klukkan 14 opnar
hann dyrnar fyrir gestum og gang-
andi sem vilja skoða úrvalið hjá hon-
um eða kaupa sér efni.
En hvað er það sem veldur því að
menn fara út í það að safna bókum og
blöðum eins og hann hefur gert um
áratugaskeið?
„Ætli það sé ekki fróðleiksfýsnin
mikið til,“ segir Björn og bætir við að
líklegast þurfi hann að fá lánaðar
hjólbörur til að ferja bækurnar á
milli sem gnæfa yfir okkur eins og
fjöll í kjallaranum á Hjarðarhagan-
um.
Fornbókasali í Vesturbænum færir út kvíarnar eftir sjö ár í sameigninni á „númer 24“
Völundarhúsið á
Hjarðarhaganum
Morgunblaðið/Kristinn
Björn H. Jónsson, fornbókasali í Vesturbænum, hefur safnað bókum og tímaritum í hartnær 40 ár.
Hagar
Völundarhúsið hjá Birni teygir anga sína í hvern krók og kima á neðstu
hæðinni í rúmgóðri sameigninni í stigaganginum. Fyrstu viðbrögð
þeirra sem líta í heimsókn gætu hæglega verið: „Hvernig rata ég út?“
Allir bókaskápar hjá Birni eru fyrir löngu fullir. Aðspurður segist hann
vita með nokkurri vissu hvar megnið af titlunum er að finna.
Bóksalan er staðsett í sameign á Hjarðarhaga 24. Innan skamms mun
Björn einnig fá afnot af húsnæði á „númer 26“ undir safnið sitt.
ALLS úthlutaði Reykjavíkurborg
504 lóðum frá 1. nóvember 2000 til 1.
nóvember 2001 samanborið 647 lóðir
sömu 12 mánuði þar á undan, að því
er fram kemur í Árbók Reykjavíkur
2001.
Í Grafarholti var samtals úthlutað
472 lóðum í fyrra, þar 357 undir fjöl-
býli, 70 undir einbýli og 45 undir rað-
húsabyggingar. Á Kjalarnesi var
samtals úthlutað 21 lóð en 11 lóðum
annars staðar á höfuðborgarsvæð-
inu. Árið á undan voru langflestar
lóðaúthlutanir einnig í Grafarholti,
eða 662, 15 úthlutanir í Borgarholti
en færri annars staðar. Líkt og í
fyrra voru flestar úthlutanir í Graf-
arholti árið 2000 undir fjölbýli, eða
396, og 163 úthlutanir undir raðhús,
sem er mun meira en var í fyrra.
Lóðaúthlutanir undir einbýli í Graf-
arholti voru svipað margar í fyrra og
árið á undan, eða í kringum 70.
Lóðaúthlutanir
2001
Langmest
úthlutað í
Grafarholti
Reykjavík
SKIPULAGS- og bygginganefnd
Reykjavíkur hefur lýst sig jákvæða
gagnvart umsókn um byggingu átta
hæða skrifstofubyggingar í Borgar-
túni 31.
Það er byggingafélag Gylfa og
Gunnars sem hyggst reisa húsið en
hönnuður þess er Guðni Pálsson
arkitekt. Húsið verður steinsteypt
og klætt með náttúrusteini en í
greinargerð arkitektsins segir að
vesturhlið þess verði klædd með
gleri.
Alls verður nýbyggingin rúmlega
7.100 fermetrar að stærð en fyrir er
tæplega 2.400 fermetra bygging á
sama byggingarreit. Gert er ráð fyr-
ir að á fyrstu hæð hússins verði mót-
taka og skrifstofur og að á 2.–7. hæð
þess verði skrifstofur. Á áttundu og
efstu hæðinni verður matsalur og
fundaraðstaða.
Í kjallara hússins verða geymslur
og um 1.400 fermetra bílageymsla
með stæðum fyrir 54 bíla en á lóðinni
er gert ráð fyrir 203 bílastæðum
þannig að samtals verða 257 stæði
við húsið. Í greinargerðinni er bíla-
stæðaþörfin fyrir Borgartún 31 talin
230 stæði.
7.100 fermetra nýbygging með 1.400 fermetra bílageymslu í Borgartúni 31
Teikning/Teiknistofa, Suðurlandsbraut 4
Vesturhlið byggingarinnar verður klædd með gleri.
Teikning/Teiknistofa, Suðurlandsbraut 4
Austurhlið hússins. Á efstu hæð er matsalur og fundaraðstaða.
Skrifstofubygging á átta hæðum í bígerð
Tún