Morgunblaðið - 02.08.2002, Síða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 19
ÞEIM ferðamönnum sem sækja
Húsavík heim hefur fjölgað mjög
undanfarin ár og hefur þar mikið
að segja starfsemi Hvalamiðstöðv-
arinnar og hvalaskoðunarferðirnar
sem Norðursigling ehf. og Hvala-
ferðir ehf. bjóða upp á. Í sumar
hefur orðið 60% aukning á gesta-
komum í Hvalamiðstöðina, Ásbjörn
Björgvinsson forstöðumaður henn-
ar segir það vafalaust helgast af
því að safnið er nú komið í stórt og
glæsilegt húsnæði en það var opn-
að í „gamla sláturhúsinu“ um miðj-
an júní sl.
Meðal þeirra sem lagt hafa leið
sína í Hvalasafnið í sumar eru þau
Sigurður Konráðsson og Dagbjört
Jónsdóttir sem búsett eru á Sel-
tjarnarnesi. Er þau komu í safnið á
dögunum var vel tekið á móti þeim
þar sem Dagbjört reyndist vera
10.000. gesturinn sem heimsækir
það á árinu. Erla Sigurðardóttir,
stjórnarformaður Hvalamistöðvar-
innar, afhenti þeim í tilefni þess
blómvönd og bók um hvali, auk
þess sem þau fengu boli merkta
safninu.
Ásbjörn sagði það ánægjulegt að
það skyldi vera Íslendingur sem
reyndist vera 10.000. gestur ársins.
Ferðamönnum sem heimsækja
safnið hefur fjölgað mikið í ár, ekki
síst vegna þess hve landinn hefur
verið duglegur að sækja safnið
heim. Það sýnir okkur einnig að
safnið er orðið eitt hið vinsælasta á
landinu. Þess má geta að lokum að
árið 2001 kom gestur nr. 10.000 á
safnið mánuði seinna en í ár.
Gestum á
hvalasafn-
inu fjölgar
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Frá vinstri: Ásbjörn Björgvinsson, Sigurður Konráðsson, Dagbjört
Jónsdóttir, sem er tíuþúsundasti gesturinn, og Erla Sigurðardóttir.
Húsavík
EFTIR leiðindatíð í sumar sást loks
til sólar og þá lifnaði heldur betur
yfir bæjarlífinu. Blíðvirði hefur
verið undanfarna daga. Stefán Að-
alsteinsson og tíkin hans hún Tinna
nutu kvöldblíðunnar og sigldu á
lygnum sæ á heimasmíðuðum bát.
Stefán hefur smíðað marga báta
um ævina og í bakgrunni sjást
tveir af þeim, Svali og Ása.
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Njóta sumarblíðunnar
Djúpivogur
SVO illa vildi til þegar Karl
Pálmason, bóndi í Kerlingadal,
var að sækja heyrúllur ásamt
vinnumanni sínum að vegkantur
gaf sig þegar vinnumaðurinn
beygði inn á þjóðveginn. Mikil
mildi var að vélin og vagninn ultu
ekki. Hallinn var það mikill að all-
ar rúllurnar ultu af vagninum og
lentu út í lóni sem var þarna við
veginn. Þær rak þó allar að landi á
hinum bakkanum en vegna mikils
hliðarhalla reyndist erfitt að
bjarga þeim á land. Dráttarvélin
var oftar á þremur hjólum en fjór-
um meðan á björguninni stóð og
mátti Karl hafa sig allan við að
velta henni ekki.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Karl mátti vanda sig mikið til að velta ekki dráttarvélinni.
Á þremur hjólum
Fagridalur
TEKIN hefur verið fyrsta skóflu-
stunga að íþróttahúsi, sundlaug
og þjónustubyggingu á Hólmavík.
Verkefnið var boðið út snemma í
vor og lægsta tilboð í fyrsta
áfanga, þ.e. að gera bygginguna
fokhelda, átti Trésmiðja Guð-
mundar Friðrikssonar í Grund-
arfirði upp á rúmar níutíu millj-
ónir króna.
„Ég er mjög ánægður með að
verkefnið sé komið af stað,“
sagði Haraldur V. Jónsson, odd-
viti Hólmavíkurhrepps. „Það er
mjög brýnt fyrir okkur að fá
sundlaug og íþróttaaðstöðu en
íþróttir hafa verið stundaðar í fé-
lagsheimilinu þar sem salur er
lítill og ófullnægjandi. Þá höfum
við orðið að aka skólabörnum í
sund norður í Laugarhól en
þangað eru um þrjátíu kílómetr-
ar.“
Það voru tvær ungar stúlkur,
þær Sara Benediktsdóttir og
Árný Huld Haraldsdóttir, sem
tóku fyrstu skóflustunguna en
þær hafa ásamt þeim Valdísi
Kristjánsdóttur, Þórunni Freyju
Gústafsdóttur, Erlu Björk Jón-
asdóttur og fleiri duglegum
krökkum staðið að söfnun fyrir
byggingu sundlaugar og íþrótta-
húss frá ungaaldri, meðal annars
með hlutaveltu og sölu margs
konar varnings.
Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir
Sara Benediktsdóttir og Árný Huld Haraldsdóttir taka fyrstu skóflu-
stungu að sundlaug og íþróttahúsi á Hólmavík. Haraldur V. Jónsson, odd-
viti Hólmavíkurhrepps, og Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri fylgjast með.
Bygging
sundlaugar
og íþrótta-
húss að
hefjast
Hólmavík
UM verslunarmannahelgina verð-
ur haldin fjölskylduhátíð á
Kirkjubæjarklaustri. Þó að ekki
sé um að ræða svokallaða „útihá-
tíð“ verður margt áhugavert um
að vera. Þar má nefna sem dæmi
frásögn um klausturrústirnar,
andlitsmálun, húlahúlakeppni,
stultugöngu, hjólreiðaþrautir og
trúður mætir á svæðið. Á laug-
ardagskvöld verður dansleikur í
félagsheimilinu Kirkjuhvoli með
hljómsveitinni Sixties, sem einnig
verður með fjölskyldudansleik á
sunnudag.
Á sunnudagskvöld verður svo
að sjálfsögðu brenna, brekku-
söngur og flugeldar líkt og und-
anfarin ár. Eins og margir vita er
ýmsa þjónustu og afþreyingu að
finna á Klaustri og í nágrenni svo
sem sundlaug, golfvöll, veit-
ingastaði, ferðaþjónustu, veiði og
fleira. Að sjálfsögðu má njóta
náttúrufegurðarinnar óspart, sér-
staklega þegar veðrið leikur við
íbúa á Klaustri eins og verið hef-
ur undanfarið.
Fjölskylduhátíð á Kirkjubæjarklaustri
Morgunblaðið/EBI
Kirkjubæjarklaustur