Morgunblaðið - 02.08.2002, Qupperneq 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 25
SUÐUR-AFRÍSKAR kvikmyndir
eru harla fáséðar hérlendis, þótt
nokkrar gamanmyndir hafi skotið
upp kollinum gegnum árin.
Skemmst er að minnast The Gods
Must be Crazy I og II, sem glöddu
heimsbyggðina fyrir röskum áratug.
Mr. Bones er einnig í hópi vinsæl-
ustu grínmynda sem gerðar hafa
verið í Suður-Afríku, en Suður-Afr-
íkumenn hafa verið umtalsverð kvik-
myndaþjóð í gegnum tíðina. Leik-
stjóri myndarinnar, Leon Schuster,
er þekktasti gleðigjafi þjóðarinnar
og sló fyrst í gegn sem poppstjarna.
Fyrsta mynd Búans, You Must be
Joking, og framhald hennar voru vel
sóttar heima fyrir og erlendis og hef-
ur Schuster gert fjölda feikivinsælla
gamanmynda síðan. Þeirra frægust
er Panic Mechanic, næstmest sótta
mynd S-Afríku. Mr. Bones er spáð
mikilli aðsókn víða um lönd enda
minnir efnisþráðurinn á bestu mynd-
ir þjóðarinnar, þar sem þeir blanda
saman frumstæðri menningu og lífs-
háttum frumbyggjanna og hraða og
tækni nútímans.
Mr. Bones hefst á flugslysi á há-
sléttum Afríku þar sem allir farast
nema hvítt smábarn sem kemur
vappandi út úr rjúkandi flakinu.
Ekki nóg með það heldur hrekur
barnunginn á flótta gutlhungrað ljón
sem kemur aðvífandi!
Með þessum ósköpum fylgjast
felmtri slegnir veiðimenn af ættbálki
Kavuki, sem taka barnið í sína vörslu
og álíta guðlega veru af himnum
senda.
Barnið dafnar og er skýrt Bones,
þar sem það sýnir einstaka hæfileika
í að sjá fyrir óorðna hluti með hinum
ævaforna galdri beinaspámennsku.
Hæfileikinn færir hr. Bones á fund
Tsonga, höfðingja Kavukimanna,
sem er orðinn örvæntingarfullur því
hann hefur ekki eignast erfingja til
þess að taka við ríkinu.
Árin líða og enginn fæðist sonur-
inn en hr. Bones tjáir kóngi að láta
ekki hugfallast. „Þú átt son,“ segir
hann, „í Borg sólarinnar.“
Tsonga sendir hr. Bones umsvifa-
laust til Borgar sólarinnar (Sun
City), þar sem stendur yfir alþjóð-
leg, milljón dala golfkeppni, í leit að
erfingja Kavuki-ættbálksins. Við
tekur óvenjuleg atburðarás með lit-
ríkum persónum sem áhorfendur
verða að sjá með eigin augum.
Leikarar: David Ramsey (Pay it For-
ward, Three to Tango, Con Air); Fazion
Love (The Replacements, Money Talks,
Friday); Robert Whitehead (Cry, the
Beloved Country, Ernest Goes to Afr-
ica). Leikstjóri: Leon Schuster (You
Must Be Joking I og II, Yankee Zulu.
Ævintýri beina-
spámannsins
Frumbyggjar og nútíminn mætast í s-afríkönsku gamanmyndinni Mr. Bones.
Sambíóin frumsýna Mr. Bones með Dav-
id Ramsey, Fazion Love, Robert White-
head og Jane Benney.
FRANK Sangster (Steve Martin),
nýtur ameríska draumsins. Hann er
velmetinn, og vinsæll tannlæknir
sem rakar saman fé, á glæsilegt
heimili og er hamingjusamlega trú-
lofaður henni Jean Noble (Laura
Dern), sem jafnframt er hans hægri
hönd á stofunni. Hvað gæti svosem
farið úrskeiðis? Allt!
Ógæfan birtist einn góðan veður-
dag í Susan Ivy (Helen Bonham
Carter) munaðarlegum viðskiptavin,
sem hlemmir sér í stólinn og fer
samstundis að gefa hinum góða
lækni undir fótinn. Hún virðist ekki
aðeins hafa áhuga á Sangster heldur
verkjatöflunum hans, sem fara að
hverfa af stofunni.
Þetta er byrjunin. Áður en langt-
um líður er Duane (Scott Caan),
geðtruflaður bróðir Susan, farinn að
ofsækja lækninn og eiturlyfja- lög-
reglan er einnig komin á hæla hans.
Grunar Sangster um dópsölu og
morð.
Er Sangster leggur á flótta undan
yfirvöldunum, dregst hann jafn-
framt að hinni lostafullu Susan, sem
fræðir tannlækninn um að hann sé
fórnarlamb snjallrar áætlunar sem
getur einnig náð til furðufuglsins
Harlans (Elias Koteas), bróður
hans.
Dr. Sangster veit ekki sitt rjúk-
andi ráð, hyggst byrja nýtt líf með
Susan en sogast með henni í undir-
heima glæpa, eiturlyfja og kynlífs og
það líður ekki á löngu uns hann fer
að sakna stofunnar, kærustunnar og
öryggisins. Það reynist hinsvegar á
brattann að sækja að hreinsa mann-
orðið og sanna sakleysi aitt.
Novocaine er hröð, hörð og myrk
flétta gamans og alvöru og skapar
óvenjulegt hlutverk fyrir háðfuglinn
Steve Martin sem hefur nánast ein-
göngu verið viðriðinn ómengaðar
gamanmyndir á löngum og farsæl-
um ferli. Eins gefur myndin Helenu
Bonham Carter tækifæri að brjótast
út úr viðjum þunglamalegra hlut-
verka sem einkennt hafa langan fer-
il á Englandi.
Myndin er fyrsta leikstjórnar-
verkefni Davids Watkins, sem hefur
vakið athygli sem handritshöfundur.
Atkins er ekki alveg ókunnugur um-
fjöllunarefninu því nokkrir hans
nánustu ættingjar eru tannlæknar!
Leikarar: Steve Martin (Bowfinger, The
Spanish Prisoner, Grand Canyon); Hel-
ena Bonham Carter (Howard’s End,
Hamlet, A Room With a View); Laura
Dern (I Am Sam, Jurassic Park III.,
October Sky). Leikstjóri: David Atkins;
Frumraun.
Tannlæknirinn og
harðjaxlarnir
Sambíóin og Háskólabíó frumsýna
Novocaine með Steve Martin, Helenu
Bonham Carter, Lauru Dern, Scott
Glenn og Elias Koteas.
LÍKT og aðrir bandarískir ungling-
ar þráir Zak Gibbs (Jesse Bradford)
fátt heitara í lífinu en að eignast átta
gata tryllitæki. Til þess þurfa menn
að eiga peninga og þeir vaxa ekki á
trjánum.
Zak fer að leita í kringum sig að
öllu mögulegu og ómögulegu sem
hann getur komið í verð. Snýr við í
þeim tilgangi öllum koppum og kirn-
um á heimilinu. Faðir hans, dr.
George Gibbs (Robin Thomas), er
ekkert alltof hrifinn af uppátæki
stráks. Vill að hann kúri frekar yfir
námsbókunum og hugsi um einkunn-
irnar og framtíðina. George er virtur
prófessor og vísindamaður og eyðir
frítímanum í alls kyns uppgötvana-
og tilraunastarfsemi. Tekur gjarnan
afraksturinn með sér heim.
Meðal uppfinninga karlsins er for-
láta armbandsúr sem hann hefur
gleymt uppi í skáp. Zak þarf nátt-
úrlega að reka í það augun, skellir
því á sig, ýtir á takka og skyndilega
frýs allt í kringum hann. Zak hefur
dottið niður á furðusmíð sem gefur
eiganda sínum færi á að flakka um
rúm og tíma.
Bíllinn gleymist, Zak hefur fundið
annað og svalara tæki og þau leggj-
ast í tímaflakk, Zak og Fransesca
(Paula Garces), vinkona hans.
Allt gengur vel til að byrja með,
eða þangað til skötuhjúin komast að
því að þau eru ekki ein á tímaferð-
unum. Þau rekast á ýmsa skugga-
lega náunga, þeirra á meðal Henry
Gates (Michael Biehn) sem hefur
hrikalegar framtíðaráætlanir á
prjónunum. Zak gerir sér ljóst að
hann sjálfur verður að takast á við
þennan þorpara ef ekki á illa að fara.
Ungu leikararnir eru lítið reyndir,
enn sem komið er, sá þekktasti er
hinsvegar Michael Biehn, vel kunnur
skapgerðarleikari úr fjölda heims-
frægra átakamynda.
Leikarar: Jesse Bradford (King of the
Hill, Far From Home: The Adventures of
Yellow Dog, Hackers); Paula Garces
(Harvest, Dangerous Minds, Life with
Mikey); Michael Biehn (The Terminator,
Aliens, The Abyss, The Rock, K2).
Leyndardómar
armbandsúrsins
Háskólabíó og Sambíóin frumsýna
Clockstoppers með Jesse Bradford,
Paul Graces, Michael Biehn og French
Stewart.
UM verslunarmannahelgina er
fimmta og síðasta helgi Sumartón-
leika í Skálholtskirkju. Flutt verða
verk eftir Jóhann Sebastian Bach,
ensk kammerverk frá 17. öld og
fantasíur, kansónur og dansar eftir
meistara 16. og 17. aldar. Helgin
hefst kl. 14 á morgun á því að dr.
Orri Vigfússon fornleifafræðingur
heldur erindi í Skálholtsskóla sem
hann nefnir „Skálholt, höfuðstaður
Íslands í 700 ár“. Kl. 15 flytur Bach-
sveitin í Skálholti verk eftir Jóhann
Sebastian Bach. Einsöngvarar eru
Rannveig Sif Sigurðardóttir sópran,
Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt,
Þorbjörn Rúnarsson tenór og Bene-
dikt Ingólfsson bassi. M.a. verður
flutt Missa Brevis í g-moll, BWV
235 og er um að ræða frumflutning
á Íslandi. Leiðari Bachsveitarinnar
er Hollendingurinn Jaap Schröder.
Kl. 17 verða flutt ensk kamm-
erverk frá 17. öld. Flytjendur eru
Bachsveitin í Skálholti. Um kvöldið,
kl. 21, hefjast tónleikar þar sem
fluttar verða fantasíur, kansónur og
dansar eftir meistara 16. og 17. ald-
ar. Flytjendur eru hollenski blokk-
flautuleikarinn Paul Leenhouts,
sem leikur á endurreisnarblokk-
flautur, og Gunnhildur Einarsdóttir
sem leikur á barokkhörpu.
Á sunnudag hefst dagskráin með
tónleikum kl. 15 þar sem endurflutt
verða ensk kammerverk frá 17. öld.
Flytjendur eru Bachsveitin í Skál-
holti. Kl. 16.40 verður tónlistar-
stund fyrir messu í Skálholtskirkju.
Flutt verða verk fyrir blokkflautu
og hörpu. Kl. 17 verður messa í
Skálholtskirkju með þátttöku Bach-
sveitarinnar í Skálholti. Flutt verð-
ur Missa Brevis í g-moll, BWV 235.
Sr. Egill Hallgrímsson prédikar.
Síðustu tónleikar Sumartón-
leikanna að þessu sinni hefjast kl.
15 á mánudag en þá verða end-
urfluttir tónleikar frá laugardags-
kvöldinu.
Tónleikar standa yfir í u.þ.b.
klukkustund og er boðið upp á
barnagæslu í Skálholtsskóla fyrir þá
sem þurfa. Aðgangur er ókeypis.
Sumartónleikar í Skálholti
Missa Brevis á
lokatónleikum
MARTEINN H. Friðriksson dóm-
organisti leikur á orgel Reyk-
holtskirkju í Borgarfirði á morg-
un, laugardag, kl. 16. Þetta eru 5.
tónleikar í tónleikaröð sumarsins
við orgelið, en þeir eru haldnir
því til styrktar, í samvinnu við
Félag íslenskra organleikara.
Marteinn leikur verk eftir
Bach, Buxtehude, Jón Nordal og
Þóru Marteinsdóttur.
Marteinn H. Friðriksson hefur
frá árinu 1978 verið dómorganisti
og stjórnandi Dómkórsins í
Reykjavík.
Hann hefur haldið orgel-
tónleika víða um heim og hefur
jafnan verk íslenskra tónskálda á
efnisskrá sinni.
Auk organistastarfsins kennir
Marteinn í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og stjórnar Kór
Menntaskólans í Reykjavík.
Tónleikar til
styrktar
gömlu orgeli
Marteinn H. Friðriksson dóm-
organisti.
HEFÐ er komin á djasskvöld í
Reykjahlíðarkirkju um verslunar-
mannahelgina og er engin undan-
tekning á því um þessa verslunar-
mannahelgi. Á laugardagskvöld kl.
21 leikur Tríó Andrésar Þórs Gunn-
laugssonar. Tríóið skipa auk Andrés-
ar Þórs, sem leikur á gítar, Agnar
Magnússon orgel, og Rene Winter,
trommur.
Þá verður á sunnudag kl. 14 hefð-
bundin helgistund í „Kirkjunni“ í
Dimmuborgum. Valmar Väljaots,
Margrét Bóasdóttir og Kaldo Kiis
flytja tónlist og leiða almennan söng
kirkjugesta. Prestur er sr. Örnólfur
J. Ólafsson.
Dagskráin er á vegum tónleika-
raðarinnar Sumartónleika við Mý-
vatn.
Kirkjudjass í
Reykjahlíðarkirkju
KVARTETT söngkonunnar Ragn-
heiðar Gröndal er gestur á tíundu
tónleikum sumartónleikaraðar
veitingahússins Jómfrúrinnar við
Lækjargötu á morgun, laugardag,
kl. 16. Með Ragnheiði leika gít-
arleikarinn Jón Páll Bjarnason og
bassaleikarinn Gunnar Hrafnsson.
Þá mun saxófónleikarinn Haukur
Gröndal bætast í hópinn í hluta efn-
isskrárinnar. Ragnheiður hlaut í
vor styrk fyrir óvenjulega efnilega
nemendur við Tónlistarskóla FÍH,
en sá heiður hlotnast aðeins einum
nemanda á ári.
Tónleikarnir standa til kl. 18.
Leikið verður utandyra á Jóm-
frúrtorginu ef veður leyfir, en ann-
ars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er
ókeypis.
Kvartett
Ragnheiðar
Gröndal á
Jómfrúnni
Morgunblaðið/Ásdís
Ragnheiður Gröndal