Morgunblaðið - 02.08.2002, Side 27

Morgunblaðið - 02.08.2002, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 27 VEGFARENDUR semundanfarin ár hafa ekiðgegnum Vík í Mýrdal oglagt lykkju á leið sína nið- ur að Hjörleifshöfða hafa tekið eftir því að ætihvönn verður stöðugt meira áberandi í landslaginu. Fyrir nokkrum árum var svæðið í nágrenni Víkur afgirt og friðað fyrir ágangi sauðfjár. Hvönn og fleiri lækninga- jurtir eins og burnirót hafa ekki náð útbreiðslu þar sem sauðfé er beitt því fé sækir mjög í þessar jurtir og heldur útbreiðslu jurtanna niðri. Er það mál manna sem þekkja til, að þar sem sauðfé var beitt á æti- hvönn eins og í Breiðafjarðareyjum hafi verið heilbrigðustu og kraft- mestu dilkarnir að hausti. Nú er víða að verða breyting á með minnkandi sauðfjárstofni. Mál hafa þróast þannig að ætihvönn er víða að vera gróðurfarslegt vandamál því hún breiðir úr sér og yfirtekur allan gróður þar sem hún nær að dafna. Í Vík hefur undanfarin ár verið reynt að halda hvönn niðri innan bæjarmarkanna en með takmörkuð- um árangri. Nú er útlit fyrir að hjálp berist ef áætlanir fyrirtækisins Sagamedica-Heilsujurta ehf. ganga eftir. Nú í júlí fengu starfsmenn fyr- irtækisins aðstoð ungs fólks úr Vinnuskóla Mýrdalshrepps við að skera hvannalauf við Hjörleifshöfða og undir Víkurhömrum og gekk sú tilraun mjög vel í góðu samstarfi við Karítas Heiðbrá Harðardóttur flokksstjóra. Að sögn Þráins Þor- valdssonar, framkvæmdastjóra Sagamedica-Heilsujurta ehf., var þessi laufaskurður liður í hráefnis- öflun fyrirtækisins fyrir framleiðslu á komandi vetri. Virkni hvannar misjöfn eftir landshlutum „Á undanförnum tveimur árum höfum við verið að kanna landið og hvar hvönn er aðgengilegust og virk- ust,“ segir Þráinn. „Niðurstöður mælinga þeirra Sigmundar Guð- bjarnasonar prófessors og Steinþórs Sigurðssonar líffræðings á virkni ætihvannar sýnir að virknin er mis- jöfn eftir landsvæðum. Einnig þarf að vera auðvelt að koma hráefninu fljótt í þurrk.“ Þráinn segir að í vetur verði gerðar mælingar á virkni hvannarinnar í kringum Vík. Þráinn segir Sagamedica – Heilsujurtir verða í góðu sambandi við Mýrdælinga um þessa söfnun. Þórir Kjartansson og systkini hans, sem eru eigendur Hjörleifshöfða, hafa veitt leyfi fyrir því að taka hvönn við höfðann og einnig hefur fengist leyfi frá Mýrdalshreppi til að taka hvönn út með Víkurhömrunum. „Við erum einnig að gera tilraun með nýja aðferð við þurrkun og höf- um fengið lánuð útihús hjá þeim hjónum Sólveigu og Jóhannesi á Höfðabrekku til þessarar tilraunar,“ segir Þráinn. Hann segir íbúa afar hjálplega við að koma þessari vinnslu af stað. Þráinn segir Vík og nágrenni vera kjörið svæði fyrir vöxt hvannarinn- ar. Jarðvegur undir björgunum er frjósamur vegna fuglsins í björgun- um. Hvönnin við Vík kemur fyrr til en annars staðar á landinu og líklega munar viku til hálfum mánuði. – Hvaða hlutar plöntunnar eru svo nýttir? „Við settum fyrstu afurðina úr ætihvönn á markað í janúar sl. sem við nefndum Angelica sem er hluti latneska heitis plöntunnar, Angelica arcangelica og þýðir í raun engils- jurt. Þetta er jurtaveig framleidd úr ætihvannafræjum. Nú erum við að þróa tvær nýjar vörur úr hvönn, svo nefndar mixtúrur, aðra fyrir maga- kvilla og hina fyrir kvef og hósta. Þessar vörur verða m.a. unnar úr ætihvannalaufi en komið hefur í ljós við rannsóknir að ætihvannalauf hef- ur aðra virkni en ætihvannafræ,“ segir Þráinn. „Efni í laufunum eru virkust í júní og júlí og síðan kemur fræjatíminn í ágúst og september.“ Tilraunir með ræktun Þráinn segist búast við að hvanna- skurður við Vík geti farið vaxandi á næstu árum. Tilraunir með ræktun hvannar eru gerðar bæði við Land- búnaðarháskólann á Hvanneyri og hjá Ingólfi Guðnasyni, garðyrkju- bónda í Biskupstungum, og hafa þær tilraunir gengið vel. Höfuðjurtirnar sem verða nýttar verða allar rækt- anlegar og verða í framtíðinni tíndar jöfnum höndum í náttúrunni og ræktaðar. „Viðtökur á innlendum markaði hafa verið mjög góðar og nú erum við að kanna möguleika á út- flutningi,“ segir Þráinn. „Við höfum kynnt þessa vörulínu okkar úr æti- hvönn líklegum innflutningsaðilum í Svíþjóð og Danmörku og lofa und- irtektir góðu. Í þessum fyrstu kynningum höf- um við fundið hvað uppruni hráefnis á Íslandi skiptir miklu máli í mark- aðssetningunni og að jurtin hefur verið rannsökuð af viðurkenndum vísindamönnum. Frumskilyrði þess að innflutn- ingsfyrirtæki vilji taka nýjar nátt- úruvörur í dreifingu er að þær hafi verið rannsakaðar af vísindamönn- um. Verði viðtökur góðar á erlendum mörkuðum verður vaxandi þörf fyrir hráefnið héðan úr Vík.“ Þráinn segir að uppruni hráefnis- ins skipti orðið vaxandi máli í fram- leiðslu og markaðssetningu náttúru- vara. Mikið af hráefni til framleiðslu náttúruvara kemur frá Austurlönd- um og í ljós hafa komið of mörg til- felli þar sem gæði hráefnisins hafa engan veginn reynst fullnægjandi. Þráinn segist í viðtölum við erlenda kaupendur og neytendur verða var við sterka tiltrú á því að það sem vaxi á Íslandi sé hollt og gott. Afla þarf alþjóðlegrar viðurkenningar „Engin hefð er fyrir framleiðslu þróaðra náttúruvara á Íslandi og því þurfum við að afla okkur viðkenn- ingar á alþjóðlegum mörkuðum sem slíkir framleiðendur. Það er ekki nóg að hafa ímynd sem gott hráefnis- land,“ segir Þráinn. „Heimsmarkað- ur fyrir náttúruvörur úr jurtum er stór og mikil leit á sér stað að nýjum vörum. Það er draumur okkar að ís- lenskar náttúruvörur geti orðið hluti af þessari náttúruvöruflóru heims- ins.“ Þráinn telur ætihvönnina hafa alla möguleika á því að verða viðurkennd lækningajurt á alþjóðlegum mörkuð- um með uppruna sinn á norðlægum slóðum. Hann segir Sigmund Guð- bjarnason prófessor spá því að lyfja- fyrirtækin muni á næstu árum í vax- andi mæli leita að efnum úr lækningajurtum á harðbýlum nor- rænum slóðum en ekki aðeins í hita- beltisskógum eins og nú er gert. Á víkingatímanum voru þurrkaðar hvannarætur viðurkennd verslunar- vara og jafnvel notaðar sem gjald- miðill því norrænar hvannarætur þóttu virkari en hvannarætur sem uxu sunnar í álfu. Þráinn segir það skemmtilegt að niðurstöður rann- sókna Sigmundar og Steinþórs styðji þetta. Hér kemur til hart veðurfar á Íslandi og hægur vöxtur yfir sum- arið. – Hver er svo virkni hvannarinn- ar? Þráinn segir hvönnina vera eina af elstu lækningajurtum á Íslandi. Hefð hennar sem lækningajurtar kom með landsnámsmönnum frá Norðurlöndum þar sem hefðin nær mun lengra aftur. Hvönnin var fyrsta ræktaða grænmetið á Norð- urlöndum og nafnið æti-hvönn segir sína sögu um notkunina. Hann segir að dregið hafi úr notkun ætihvannar eins og á öðrum lækningajurtum þegar nútímalyf komu til sögunnar fyrir rúmum 100 árum en nú sé þessi áhugi að vakna aftur með hjálp nú- tímavísinda. Reynslan söm og trú forfeðranna Þráinn segir það ánægjulegt að notkun á jurtaveig úr ætihvanna- fræjum í tvö og hálft ár styðji það sem stendur í gömlum lækningabók- um og rannsakað hefur verið af vís- indamönnum. Vegna þess að hér er um að ræða náttúruvöru og ekki hafa farið fram klínískar rannsóknir má ekkert fullyrða um virknina utan að hún eykur fólki kraft og vellíðan. Um aðra virkni segir Þráinn að ekki megi fullyrða þótt aldalöng reynsla sé að baki. Því verði að vísa í jurtalækn- ingabækur eins og „Íslenskar lækn- ingajurtir“ en þar er talað um ýmiss konar áhrif ætihvannar. „Vitnis- burðir sem við erum að fá frá þeim hópi fólks sem tekur Angelicu reglu- lega sýnir að trú forfeðra okkar á notagildi ætihvannar kemur heim og saman við reynslu nútímamanna,“ segir Þráinn að lokum. Hver veit nema ætihvönnin frá Vík í Mýrdal eigi eftir að verða hrá- efni í útflutningsvörur ekki síður en Kötluvikurinn af Mýrdalssandi. Verður ætihvönnin í Mýrdalnum nýtanleg auðlind? Útflutningur hvanna- afurða lofar góðu Ætihvönn hefur verið talin búa yfir lækningamætti og standa nú yfir tilraunir með ræktun hennar og nýtingu. Hefur hvönn verið tínd í Vík og við Hjör- leifshöfða í sumar. Jónas Erlendsson, fréttaritari Morgunblaðsins, kynnti sér málið. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Frá vinstri: Karítas Heiðbrá Harðardóttir, verkstjóri vinnuskólans, Guðni Páll Pálsson, Finnur Bárðarson, Magnús Orri Sveinsson, Einar Sigurður Jónsson, Brynjar Ögmundsson, Þorgils Gíslason, Elín G. Óskarsdóttir og Þráinn Þorvaldsson í hvannaakri sunnan undir Hjörleifshöfða. Hvannarfræja-mixtúran Angelica hefur verið sett á glös. Þráinn Þorvaldsson og Elín G. Óskarsdóttir skoða hálfþurrt hvannalauf á Höfðabrekku, en laufið var tínt við Vík og Hjörleifshöfða í sumar. fagradalsbleikja@isholf.is t- a að m,“ a lf an á er nna í rri en a að verði bátum að eti gðin vá- é að nd ðunni felist í a mun- deila ríkj- Sví- afa öll öndin í að r vað eru oðum t.d. peningamál er það þá þannig að Malta, eða Ísland ef út í það er farið, geti ákveðið vexti algerlega óháð þróuninni í Evrópu?“ Segir Bonnici að auðvitað sé það ekki þannig. Menn komist ekki hjá því að skoða þróun í Evrópu er þeir ákvarða vexti. Hið sama eigi við um ýmis viðmið- unarmörk, sem notuð eru í við- skiptum með vörur og þjónustu. „Spurningin verður því sú hvort þú viljir einfaldlega sætta þig við þær ákvarðanir [sem teknar eru á vettvangi ESB] án þess að hafa neitt um þær að segja, eða hvort þú viljir taka þátt í mótun þeirra. Sé um mál að ræða, sem skipta tilteknar þjóðir miklu máli, virðist reynslan vera sú að hlýtt sé á málflutning þeirra [á vettvangi ESB] og við honum brugðist. Ekki skiptir máli hvort um stærri ríki eða þau minni er að ræða; raunar bendir ýmislegt til að vandamál minni ríkjanna hljóti úrlausn hraðar en þeirra stærri.“ Bonnici er spurður að því hvort Möltubúar stefni að því að taka upp evruna, sameiginlegan gjald- miðil ESB. Hann segir nýtt aðild- arland þurfa að hafa verið tvö ár í sambandinu áður en slíkt sé mögulegt. Staðreyndin sé hins vegar sú að gengi gjaldmiðils Möltu, maltnesku lírunnar, sé nú þegar tengt gjaldmiðlum ESB-ríkjanna. „Evran hefði ýmiss konar áhrif; í fyrsta lagi yrði hún til þess að draga úr kostnaði í ferða- mannaiðnaðinum. Þá myndi evran líklega þýða að við gætum lækk- að vexti. Í þriðja lagi þyrftum við ekki á hverjum tíma að eiga jafn mikinn gjaldeyr- isforða og nú reynist nauðsyn til að standa vörð um okkar gjald- miðil,“ segir Bonnici. Þá segir hann það tryggja stöð- ugleika í pen- ingamálum, þeg- ar notast er við einn gjaldmiðil á svo stóru svæði, og minni hætta sé á því að verð- bólga fari úr böndunum. Vaxandi stuðningur við aðild Stefnt er að því á vettvangi ESB að ljúka aðildarviðræðum við tíu umsóknarríki fyrir árslok. Því má gera ráð fyrir að ríkis- stjórn Möltu boði til þjóðar- atkvæðagreiðslu um aðild ein- hvern tíma á næsta ári. „Skoðanakannanir benda til að stuðningur við aðild fari vaxandi,“ segir Bonnici. „Síðasta könnunin sýndi að um 53% eru fylgjandi aðild en um 35% eru á móti. Aðrir eru óákveðnir. Að meira en helm- ingur þjóðarinnar styðji aðild nú þegar er góð vísbending, tel ég, um að aðild fáist samþykkt í at- kvæðagreiðslu. Jafnvel þó að allir þeir, sem ekki hafa gert upp hug sinn, gerist andstæðingar aðildar – sem varla er sennilegt – er staðan góð.“ Bonnici kveðst ferðast mikið um Möltu í tengslum við starf sitt og hann ráði af samtölum sínum við borgarana að margir af eldri kynslóðinni, sem e.t.v. eru engir sérstakir áhugamenn um ESB- aðild, telji að framtíð barna þeirra sé bet- ur borgið innan ESB. „Margir líta svo á að ESB tryggi æsku landsins betri tækifæri í framtíðinni, ef ekki þeim sjálfum. Og þetta er nokkuð sem ég tel að muni skipta sköp- um þegar á hólminn er komið,“ segir hann. Morgunblaðið/Jim Smart n utanríkisráðherra. d gir í æður ki ki. david@mbl.is eta takmarkað jölda erlends verkafólks

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.