Morgunblaðið - 02.08.2002, Page 34
MINNINGAR
34 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Haukur Gíslasonfæddist á Stóru-
Reykjum í Hraun-
gerðishreppi í Ár-
nessýslu 23. des.
1920. Hann lést á
Sjúkrahúsi Suður-
lands 26. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Gísli Jóns-
son, f. 1877, d. 1960,
bóndi, oddviti og
hreppstjóri á Stóru-
Reykjum, og kona
hans María Þorláks-
ína Jónsdóttir, f.
1885, d. 1960, hús-
freyja. Systkini Hauks eru: Jón, f.
1917, d. 1995, Kristín María, f.
1918, Helga, f. 1919, d. 1987, Siggi,
f. 1922, Oddný, f. 1923, d. 1992,
Sólveig, f. 1924, Iðunn, f. 1926, og
Ingibjörg f. 1928.
Hinn 20. desember 1952 kvænt-
ist Haukur Sigurbjörgu Geirsdótt-
ur, f. 10. júlí 1932, frá Hallanda í
Hraungerðishreppi. Foreldrar
hennar voru Geir Vigfússon, f.
1900, d. 1975, bóndi, og Margrét
Þorsteinsdóttir, f. 1896, d. 1987,
húsfreyja. Börn Hauks og Sigur-
bjargar eru: 1) María Ingibjörg, f.
1953, bóndi í Geirakoti, gift Ólafi
Kristjánssyni, f. 1949, bónda
Geirakoti. Dóttir Maríu er Sigur-
yrkjufræðingur, gift Þorsteini
Erni Sigurfinnssyni, f. 1964, raf-
virkja, skilin. Börn þeirra eru
Hlynur, f. 1993, og Sólveig, f. 1998.
6) Hróðný Hanna Hauksdóttir, f.
1969, þjónustustjóri, gift Hróbjarti
Erni Eyjólfssyni, f. 1966, fanga-
verði. Börn þeirra eru Óskar Örn,
f. 1990, og Dagný Hanna, f. 1992.
Haukur ólst upp á Stóru-Reykj-
um, hann lauk barnaskólanámi í
Þingborg í Hraungerðishreppi og
vann síðan ýmis störf fram til 1950
er hann hóf búskap á Stóru-Reykj-
um með föður sínum. Haukur og
Sigurbjörg tóku alfarið við búinu
árið 1953. Árið 1985 kemur Gísli
sonur þeirra að búrekstrinum
ásamt Jónínu konu sinni. Bjuggu
þeir feðgar félagsbúi til ársins
1987. Haukur hélt áfram búskap
með sauðfé til ársins 1997. Haukur
var hreppstjóri í Hraungerðis-
hreppi frá 1961 til 1991. Einnig
var hann umboðsmaður skatt-
stjóra um árabil. Hann sat í
hreppsnefnd Hraungerðishrepps
frá 1966 til 1982, einnig sat hann í
skólanefnd og var formaður henn-
ar 1962–1970. Haukur var fulltrúi
á aðalfundum Kaupfélags Árnes-
inga um árabil og félagi í Fram-
sóknarfélagi Árnessýslu. Hann var
einn af stofnendum Sauðfjárrækt-
arfélags Hraungerðishrepps og
gjaldkeri þess í áratugi. Hann var
einnig virkur félagi í Tafl- og
bridgefélagi hreppsins.
Útför Hauks fer fram frá
Hraungerðiskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkkan 13.30.
björg Harðardóttir, f.
1971, gift Sigurði
Ingvari Ólafssyni, f.
1968. Börn þeirra eru
Björgvin Óli, f. 1990,
Davíð Logi, f. 1993, og
María Björg, f. 1998.
Dætur Maríu og Ólafs
eru Auðbjörg, f. 1979,
Kristín Björg, f. 1981,
og Guðmunda Þóra
Björg, f. 1985. 2) Mar-
grét, f. 1955, húsmóð-
ir, gift Guðna Ágústs-
syni, f. 1949, alþingis-
manni og ráðherra.
Dætur þeirra eru
Brynja, f. 1973, maki Auðunn Sól-
berg Valsson, f. 1964, sonur
þeirra: Guðni Valur, f. 2000, sonur
Auðuns er Jökull Sólberg, f. 1986.
Agnes, f. 1976, og Sigurbjörg, f.
1984. 3) Gerður, f. 1958, þjónustu-
fulltrúi, maki Karl Bergmann, f.
1952, bifvélavirki. Börn þeirra eru
Haukur Logi, f. 1979, maki Sandra
Guðlaugsdóttir, f. 1981, Sverrir
Kári, f. 1980, og Snædís, f. 1988. 4)
Gísli, f. 1961, bóndi á Stóru-Reykj-
um, kvæntur Jónínu Einarsdóttur,
f. 1964, bónda Stóru-Reykjum.
Börn þeirra eru Haukur, f. 1986,
Geir, f. 1988, Guðrún, f. 1991, og
Gunnhildur, f. 1995. 5) Vigdís, f.
1965, blómaskreytinga- og garð-
Ef ég mætti yrkja
yrkja vildi ég jörð
sveit er sáðmanns kirkja
sáning bænagjörð.
(B.Á.)
Í dag er kvaddur hinstu kveðju frá
Hraungerðiskirkju tengdafaðir
minn, Haukur Gíslason bóndi á
Stóru-Reykjum í Flóa. Sá sem öllu
ræður setti það lögmál í upphafi, að
eitt sinn skyldi hver deyja, því kalli
hefur Haukur nú hlýtt af mikilli karl-
mennsku. Nú þegar Haukur er okk-
ur horfinn fyllumst við sem eftir
stöndum trega og söknuði, ég syrgi
hann sem tengdaföður, vin og vel-
gjörðarmann. Stóru-Reykir í Flóa
eru glæsilegt bændabýli þar sem
sama ættin hefur gert garðinn fræg-
an í yfir hundrað og sextíu ár.
Foreldrar Hauks, Gísli og María,
ráku myndarlegt menningarheimili,
voru í forystu í sinni sveit og komu
upp stórum hópi barna sem hafa
staðið sig vel í lífinu. Gísli var einn
öflugasti forystumaður Árnesinga á
síðustu öld, hann var félagslyndur
framfara- og athafnamaður sem lét
verkin tala. Í sinni sveit var hann
óskoraður leiðtogi í áratugi. Þegar
Haukur Gíslason stóð frammi fyrir
því vali sem ungur maður hvert hann
skyldi stefna sinni athafnaþrá voru
kostirnir margir og mörg ný tæki-
færi blöstu við ungu fólki. Hann var
sá bræðranna sem mestan áhuga
hafði á búskap og skepnuhirðingu, en
Haukur hleypti heimdraganum og
vann við ýmis störf sem ungur maður
og þótti bæði handtakagóður og var
eftirsóttur, bæði trúr og kappsfullur.
Þannig átti hann margra kosta völ
þegar hann tók þá ákvörðun að setj-
ast í bú með foreldrum sínum og
Hannesi frænda eins og hann var
alltaf nefndur í fjölskyldunni og gera
búskap að ævistarfi. Ég hygg reynd-
ar að hann hafi ekki eitt augnablik
efast um að hann valdi rétt, búskap
hans og lífsstarfi fylgdi gæfa.
Hauki féll margt gott í skaut.
Heppnastur var hann þó að eignast
sinn góða lífsförunaut, hana Sigur-
björgu frá Hallanda. Það var almælt
að jafnræði væri með þeim og bjart
yfir þessum ungu hjónum, enda fór
það ekki framhjá neinum að reisn
búsins hélt áfram og þau nutu álits
og vinsælda. Mikla tryggð og vináttu
sýndi Sigurbjörg gamla fólkinu á
Stóru-Reykjum, því að þar áttu þau
öll fagurt ævikvöld til loka dags.
Haukur naut ekki langrar skóla-
göngu fremur en margir af hans kyn-
slóð, en hann aflaði sér haldgóðrar
þekkingar og var vel að sér um
marga hluti. Allt það sem hann tók
að sér fyrir sveitunga sína og hérað
gerði hann af vandvirkni. Þessi hóg-
væri og í rauninni hlédrægi maður
vann sín embættisverk af miklu ör-
yggi og þekkingu og minnist ég þess
ekki að efast væri um hæfni hans.
Þannig varð hann sérfræðingur á
þeim sviðum þar sem hann hafði
skyldur, hvort það var hreppstjórinn
að stýra kjörfundi eða að bjóða upp
óskilahross. Í hreppsnefndinni var
hann tillögugóður maður, talsmaður
framkvæmda og faglegra vinnu-
bragða, öruggur og traustur félagi
þegar stefna hafði verið mörkuð og
hvikaði ekki frá sannfæringu sinni.
Hann studdi Framsóknarflokkinn og
tók þátt í starfi hans alla tíð, sat með-
al annars fyrsta kjördæmisþing í
nýju Suðurkjördæmi í Vík í fyrra-
haust. Allt var af öryggi og festu
gert. Mér fannst að Haukur nyti þess
í öllum sínum störfum að hann vann
þau með svo hógværum hætti og af
slíkri prúðmennsku að allir undu vel
við hans framgöngu. Hann fann aldr-
ei til þess að hann væri maður valds-
ins, miklu heldur hógvær vinur að
sinna skyldu sinni. Um langt skeið
var hann umboðsmaður skattstjóra
og annaðist gerð skattaskýrslna fyrir
sveitunga sína, þá sat þar talnag-
löggur og reikningsfær maður sem
hafði af alúð sett sig inn í þau mál.
Reikningur og rökhyggja lá mjög vel
við Hauki og var í raun sterkt svið í
hans áhugamálum. Hann var öflugur
skákmaður og góður bridsspilari til
æviloka. Veðurfræði og gangur him-
intungla var áhugamál og máttu veð-
urfræðingarnir í sjónvarpinu oft vara
sig. Ennfremur kunni hann margt úr
spámannsgáfu gamla fólksins.
Ógleymanlegt er mér sumarið 1984
þegar hann sagði það fyrir, að nú
færi í hönd eitt mesta rigningasumar
á öldinni, og gekk það eftir. Urðu
fleiri vitni að þessum spádómi. En
fyrst og fremst var hann bóndi sem
lagði alúð við að rækta sinn bústofn
og sína jörð. Um Hauk og Siggu var
ekki hægt að segja að þau vildu strita
fyrir lífinu, í rauninni lifðu þau fyrir
starfið og vildu vinna verkin létt og
tóku við vélum og tækni með opnum
huga. Ég undraðist oft hvað Haukur
var fljótur að átta sig á nýjungum.
Ég nefni sem dæmi að hann var klár
strax á því að rúllutæknin og plöstun
heys væri bylting sem myndi bæta
heyfeng, en ekki síst létta störf
bænda.
Um miðbik ævinnar glímdi Hauk-
ur við nokkurn heilsubrest og vissu-
lega setti það mark sitt á starf hans
en um lyktir sigraðist hann á þessum
sjúkdómi og minnumst við Margrét
þess þegar hann heimsótti okkur al-
bata á ný fullur af eldmóði og sagðist
ætla að ráðast í að byggja jörðina
upp svo hún færi ekki í eyði. Þetta
gerðu þau hjónin svo á tveimur árum
með yngstu börnum sínum. Engu
var hann svo jafn glaður yfir og þeg-
ar Gísli sonur hans vildi gerast bóndi
með þeim hjónum og takast á við lífs-
ins starf á Stóru-Reykjum, fimmti
ættliður í beinan karllegg sem situr
höfuðbólið af rausn og myndarskap.
Gísli og Jónína kona hans byggðu svo
myndarlegt hús fyrir sig.
Sauðféð var yndi Hauks og var
hann í fremstu röð ræktunarmanna
og átti marga verðlaunahrúta og var
glöggur á gott fé. Ekki minnkaði
gleði gamla mannsins þegar ungu
hjónin vildu einnig taka við og búa
með sauðféð og héldu áfram að ógna
nágrönnunum með fallegum hrútum
og góðum fallþunga dilka að hausti.
Það var kannski táknrænt að á síð-
asta hausti stóðu tveir lambhrútar
vænir í krónni, annar vel hvítur og
brúsandi á ullina. Þá stakk Haukur
upp á því að hann héti Bjartur. Þetta
var lýsandi fyrir þá gleði sem hann
hafði af góðum búskap sonarins og
tengdadótturinnar.
Haukur var mikið prúðmenni og
fór vel með mikið skap þótt hann
gæti reiðst og ef það gerðist stóð
reiðin stutt. Langrækni og lunta átti
hann ekki til, nokkuð var hann seinn í
viðkynningu en þeim mun tryggari
þegar vinskapur myndaðist. Ef
skarst í odda vildi hann ekki vera sá
sem hafði sig mest í frammi en gat
laumað inn setningum sem á einni
andrá leystu málið sem um var rætt.
Hann var gleðimaður, ekki síst í
þröngum hópi vina, og bjó yfir góðri
kímni sem gladdi viðstadda. Engar
stundir voru jafn skemmtilegar í
stofunni á Stóru-Reykjum eins og
þegar tekið var í spil. Ég minnist
þeirra bræðra, Hauks, Jóns og
Sigga, yfir brids við fjórða mann og
harka færðist í leikinn, þá flugu
ódauðlegar setningar, eða þegar
hann spilaði félagsvist við unga fólkið
og sagði heila og hálfa á ævintýraleg
spil og stóðst sögnina, – þá var blik í
auga og glatt á hjalla.
Fáa menn hef ég þekkt sem voru
jafn glöggir að greina manngerð
manna við fyrstu sýn. Oft hafði ég
unun af því þegar hann hafði fylgst
með alþingismönnunum í ræðustól
Alþingis í gegnum sjónvarpið og
felldi um þá palladóma sem mér
fannst alltaf nærri sanni út frá mín-
um kynnum af viðkomandi einstak-
lingum.
Þegar búskap var hætt og hægðist
um átti hann rólegt ævikvöld, sem
var friðsælt og fagurt eins og sólroð-
ið ský. Þótt hann fengi nokkra skelli
frá ellikerlingu bugaðist hann aldrei,
reis upp hress og lífsglaður á ný. Þau
hjón ferðuðust og tóku þátt í manna-
mótum með vinum og félögum sín-
um. Með þeim var gaman að vera,
hann varð mildur og hlýr í garð
manna og málefna, jafnvel svolítið
viðkvæmur og meyr, sem er prýði
öldungsins og hins sátta manns.
Það er bjart yfir minningu þessa
manns, að honum er sjónarsviptir og
söknuður hjá fjölskyldu, sveitungum
og vinum. Sorgin mun víkja og lífs-
gleðin taka við á ný og minningar um
heilsteyptan og góðan mann verma
sjóð minninganna. Hann kvaddi
þetta líf sáttur við allt og alla og
þreyttur líkami er hvíldinni feginn.
Hann skynjaði í veikindum sínum að
ferðalaginu var að ljúka á þessari
jörð. Þannig er gott fyrir eiginkonu
og fjölskyldu að kveðja ástvin sinn.
Megi margur hamingjudagur fylgja
sveit hans og fjölskyldu um alla
framtíð.
Blessuð sé minning Hauks Gísla-
sonar.
Guðni Ágústsson.
Mikið var það eftir honum afa mín-
um að þegar sveitin hans skartaði
sínu fegursta skyldi hann kveðja
þetta líf.
Afi minn var stórbrotinn persónu-
leiki. Hann var einstaklega framsýnn
og fljótur að tileinka sér nýjungar,
ófeiminn að segja sínar skoðanir þótt
aðrir hefðu allt aðra sýn á málefnin.
Oftar en ekki kom í ljós að hans skoð-
un var sú rétta þegar upp var staðið.
Einn af hans bestu eiginleikum
fannst mér hversu ótrúlegur húmor-
isti hann var, því hann sá spaugilegu
hliðarnar á mönnum og málefnum.
Það verður skrýtið að koma að
Stóru-Reykjum að heimsækja ömmu
og sjá afa ekki spila við barnabörnin
eða sitja í stólnum sínum og skjóta
inn hnyttnum athugasemdum í um-
ræðurnar. Hans verður sárt saknað.
Minning hans lifir í hjarta mínu um
ókomna tíð og ég er rík að hafa átt
hann sem afa.
Agnes Guðnadóttir.
Það var á föstudaginn sem ég var á
leiðinni í útilegu og ég var rétt nýbú-
inn að keyra framhjá Stóru-Reykj-
um, að pabbi hringdi í mig og sagði
mér að þú værir dáinn. Það rifjuðust
upp fyrir mér allar góðu stundirnar
sem við áttum saman í sveitinni. Mér
fannst alltaf svo gott að vera hjá þér
og ömmu. Ég var ekki nema sjö eða
átta ára þegar ég kom fyrst til ykkar
og dvaldi hjá ykkur öll sumur til 15
ára aldurs. Þú varst alltaf til í smá
spil eða rabb á kvöldin. Ég man alltaf
þegar þú baðst mig eitt kvöldið um
að koma með þér í fjárhúsið. Það var
í sauðburðinum og dálítið kalt úti. Ég
var treg að koma með þér í fyrstu en
þú gekkst hart að mér að koma með
þér. Þegar í fjárhúsið var komið
sýndirðu mér svarta gimbur sem
hafði fæðst fyrr um daginn. Þetta var
fyrsta svarta lambið þarna um vorið
og þú gafst mér það. Ég var svo upp
með mér að hafa eignast svo stóra
gjöf. Við áttum svo vel skap saman
og vorum svo miklir vinir. Ég vil
þakka þér fyrir stundirnar okkar
saman og bið góðan Guð um að
geyma þig, elsku afi minn.
Brynja.
Hann afi uppi er dáinn. Þegar ég
var lítill átti ég heima í kjallaranum
hjá afa og ömmu. Þótt ég sé löngu
fluttur úr kjallaranum kallaði ég afa
ekkert annað en afa uppi. Það var
gaman að búa þar því við afi bröll-
uðum oft margt skemmtilegt saman.
Afi var alltaf svo skemmtilegur við
mig en hann vildi oftast hafa mig með
sér í hinu og þessu braski. Á kvöldin
var ég oftast tilbúinn í stígvélunum
og öllu saman við útidyrahurðina en
þá fórum við afi út í fjós að gefa kálf-
unum mjólk. Ferðirnar út í fjós
gengu nú ekki alltaf vel því á veturna
var oft mikill snjór og bylur. Það lá
við að við þyrftum stundum að skríða
á fjórum fótum að fjósdyrunum en
þar myndaðist oft stærðar skafl.
Einn daginn vildi ekki betur til en að
ég og afi ultum niður skaflinn og end-
uðum á maganum á fjósgólfinu.
Dugnaðurinn var líka mikill í afa,
hann þurfti sífellt að vera að gera
eitthvað. Og ef ég minnist á hörkuna
þá var hún svakaleg og ekki vantaði
sjálfstraustið, ég skil ekki ennþá af-
hverju hann brotnaði ekki margsinn-
is í öllum sínum áhættuatriðum. Eitt
það besta sem afi kenndi mér var að
spila. Hann kenndi mér ótrúlega
mörg spil enda ófáar stundirnar sem
við spiluðum saman við eldhúsborðið.
Elsku afi takk fyrir allt sem þú
gerðir fyrir mig og kenndir mér, það
á eftir að nýtast mér um alla ævi. Ég
sakna þín sárt en það er gott að eiga
góðar minningar um þig. Guð geymi
þig.
Þinn nafni
Haukur Gíslason.
Á köldum vetrarmorgni stígur
eldri maður í marrandi snjóinn og
gengur þungum skrefum að rauðri
Massey Ferguson-dráttarvél, stígur
upp í hana og setur í gang. Hann er í
stórum stígvélum, slitinni kuldaúlpu
og með derhúfu á höfði. Hann kallar
á tvo litla snáða að koma upp í. Þeir
troða sér inn í þröngt stýrishúsið,
annar á gólfið hægra megin en hinn
sest á lærið á manninum. Síðan er
haldið af stað, og sá er á lærinu situr
fær að stýra með gamla manninum.
Leiðin liggur að fjárhúsunum sem
standa nokkurn spöl frá íbúðarhús-
inu, um torfæra leið er að fara og því
eins gott að týna ekki slóðinni frá
deginum áður. Gamli maðurinn gríp-
ur við og við í stýrið þegar strákurinn
missir einbeitinguna. Í fjárhúsinu er
margt að gera og vinnur gamli mað-
urinn þau verk í senn af natni og
vana. Drengirnir taka þátt í störfun-
um og bera ilmandi töðuna fyrir
kindurnar af miklu kappi en eru þó
ekki hálfdrættingar á við þann
gamla. Á leiðinni til baka fær sá að
stýra sem stóð á gólfinu hina leiðina.
Heima bíður heitur grauturinn
ásamt ýmsu meðlæti sem húsfreyjan
hefur tiltekið meðan á gegningunum
stóð. Spilastokkurinn er ekki langt
undan og strax og grauturinn er
kláraður tekur gamli maðurinn upp
spilin og gefur í Manna.
Svona munum við eftir afa þegar
við bræðurnir komum í heimsókn til
hans og ömmu einhverja páskana
þegar við áttum heima fyrir norðan.
Þetta eru góðar minningar sem
munu halda áfram að vera lifandi í
kollinum á okkur þó að afi sé ekki
lengur á meðal okkar.
Haukur Logi og Sverrir Kári.
Mig langar að minnast afa míns á
Stóru-Reykjum í fáeinum orðum.
Þegar ég hugsa um afa var hann
fyrst og fremst bóndi af lífi og sál,
sem alltaf hafði nóg að gera. Ég sé
hann fyrir mér í heyskapnum, fjósinu
og að stússast í fénu. Ég hafði alltaf
gaman af því að fara með honum á
fjárhúsin þar sem hann þekkti allar
kindurnar með nafni. Ég var mikið í
sveitinni hjá afa og ömmu þegar ég
var lítil stelpa og þar vildi ég helst
alltaf vera og var ekki alltaf auðvelt
að fá mig til að koma heim þegar
heimsóknum lauk og oft fékk ég leyfi
hjá ömmu og afa til að verða eftir og
gista.
Ég átti margar góðar stundir með
afa, t.d. í eldhúsinu að borða hafra-
graut og slátur á morgnana og taka
lýsið með, sem var alveg ómissandi.
Þetta voru hversdagslegar en dýr-
mætar stundir.
Það eru ótal fleiri góðar minningar
og sögur sem ég á um afa, sem ég
geymi með mér og kem til með að
segja börnunum mínum í framtíð-
inni.
Nú á seinni árum hefur afi verið
misjafnlega heilsuhraustur en alltaf
var hann vel inni í öllu sem var að
gerast hvort sem var í þjóðfélaginu
eða hjá fjölskyldunni. Honum þótti
gaman að hitta fjölskylduna saman
og spjallaði þá alltaf mikið við yngstu
fjölskyldumeðlimina og fylgdist vel
með hvað allir höfðu fyrir stafni.
En nú er komið að kveðjustund og
ég kveð afa með þakklæti í huga fyrir
öll árin sem ég hef fengið að eiga með
honum.
Guð veri með þér, elsku afi.
Sigurbjörg Harðardóttir.
HAUKUR
GÍSLASON
Fleiri minningargreinar
um Hauk Gíslason bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.