Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 39
Í DAG, föstudaginn 2. ágúst, verður
valinn í beinni útsendingu síðdeg-
isútvarps Rásar 2 fyrirmyndaröku-
maður sem hlýtur ferð fyrir tvo til
Krítar með Plúsferðum. Leitin að
fyrirmyndarökumönnum er sam-
starfsverkefni Sjóvár-Almennra,
Olís, Rásar 2 og Plúsferða en mark-
miðið er að skapa bætta umferðar-
menningu. Átakinu lýkur um versl-
unarmannahelgina en þá geta
hlustendur Rásar 2 tilnefnt öku-
menn sem hafa límmiða átaksins í
afturrúðunni. Í verðlaun verða
vandað Thermos-gasgrill, 25 þús-
und króna gjafakort í Kringlunni
sem og ferð fyrir tvo til Danmerk-
ur. Límmiða umferðarátaksins er
hægt að nálgast á öllum Olísstöðv-
um.
Þorvaldur Snæbjörnsson var valinn fyrirmyndarökumaður sl. föstudag
og hlaut að launum ferð fyrir tvo til Danmerkur. Með honum á myndinni
eru Þórarinn B. Jónsson, útibússtjóri Sjóvá-Almennra á Akureyri, og
Erlingur Níelsson, dagskrárgerðarmaður Rásar tvö á Akureyri.
Fyrirmyndar-
ökumenn tilnefndir
MESSAÐ verður í Ábæjarkirkju í
Austurdal í Skagafirði nk. sunnudag,
4. ágúst, kl. 14.00. Sóknarprestur,
séra Ólafur Þ. Hallgrímsson á Mæli-
felli, prédikar og þjónar fyrir altari.
Einsöng syngur Helga Rós Indriða-
dóttir óperusöngkona, sem nú starf-
ar við óperuna í Stuttgart í Þýska-
landi. Kirkjukór Mælifells-
prestakalls leiðir almennan söng.
Organisti er Sveinn Árnason.
Kirkjukaffi verður á Merkigili að
lokinni athöfn í boði systkina Helga
heitins Jónssonar, síðasta ábúanda
þar og síðasta sóknarbarns í Ábæj-
arsókn. Ábæjarmessan á sér langa
hefð í skagfirsku menningarlífi. Þar
hefur verið messað einu sinni á ári í
meira en 60 ár, nú hin síðari ár jafn-
an um verslunarmannahelgi. Fjöl-
menni hefur verið í messunum og
fólk komið víða að af landinu. Vegur
fram að Ábæ er seinfarinn og þarf
fólk að ætla sér góðan tíma. Þess má
geta að Ábæjarkirkja er 80 ára á
þessu ári, en hún var vígð 6. ágúst
1922. Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á kirkjunni.
Árleg messa í Ábæjar-
kirkju í Austurdal
LAUGARDAGINN 3. ágúst verður
dagskrá safnsins tileinkuð börnum.
Farið verður í leiki við Kornhúsið,
börnin kynnast leyndardómum Völ-
unnar og hægt er að leika með
stultur, húlahringi, sippubönd og
fleira. Leikfangasýningin Fyrr var
oft í koti kátt verður opin og á loft-
inu fá börnin að teikna og mála.
Teymt verður undir börnum við
Árbæinn milli kl. 13 og 15.
Sunnudaginn 4. ágúst verður
dagurinn tileinkaður íslenska hest-
inum. Póstlest fer um safnið og
húsfreyjur og húsbændur í húsun-
um fá póstinn sinn. Húsfreyjan í
Árbæ býður póstinum, ferðalöngum
og öðrum gestum upp á nýbakaðar
lummur. Hestvagn verður á ferð
um safnsvæðið og börnin geta farið
rúntinn kringum Torgið. Leiksýn-
ingin fellur niður að þessu sinni en
sýningar verða alla aðra sunnudaga
í ágúst.
Mánudaginn 5. ágúst verður fjöl-
skyldudagskrá, ratleikur verður í
boði, farið verður í gamla og góða
hópleiki og leikið með leggi og
skeljar. Hressir krakkar geta síðan
tekið þátt í kappakstri á kassabíl.
Leikföngin verða á sínum stað við
Kornhúsið og leiðsögumenn kenna
börnum að nota Völuna og fræða
börn og fullorðna um leikföng og
leiki fyrrum. Teymt verður undir
börnum við Árbæinn auk þess sem
húsdýr eru á svæðinu. Veitingasala
verður í Dillonshúsi alla dagana.
Fjölbreytt dagskrá í Ár-
bæjarsafni um helgina
UM verslunarmannahelgina
verður brugðið út af hefðbund-
inni fræðsludagskrá þjóðgarðs-
ins. Í stað gönguferða og sér-
stakrar barnafræðslu verður í
boði léttur og skemmtilegur
ratleikur fyrir alla fjölskyld-
una. Ratleikurinn verður í
gangi alla helgina, frá föstudegi
til mánudags, og er hægt að
hefja hann hvenær sem er
dagsins. Öll gögn og vísbend-
ingablöð varðandi leikinn eru
afhent í þjónustumiðstöðinni á
Leirunum. Hver fjölskylda eða
hópur sem lýkur ratleiknum og
skilar inn lausnum fær verð-
laun, Íslandskort barnanna frá
Máli og menningu. Auk þess
geta þátttakendur sett nöfn sín
í sérstakan vinningspott, sem
dregið verður úr eftir helgina.
Heppinn þátttakandi hlýtur að
launum hina veglegu bók Þing-
vallavatn, sem nýlega kom út
hjá Máli og menningu. Sunnu-
daginn 4. ágúst verður guðs-
þjónusta í Þingvallakirkju kl.
14:00.
Hin nýja fræðslumiðstöð
þjóðgarðsins er opin alla daga
frá kl: 9:00–20:00. Þátttaka í
dagskrá þjóðgarðsins er ókeyp-
is og allir velkomnir. Allar nán-
ari upplýsingar eru veittar í
þjónustumiðstöð og á heima-
síðu þjóðgarðsins, www.thing-
vellir.is.
Fjölbreytt
dagskrá á
Þingvöllum
um helgina
FJÖLBREYTT dagskrá verður í
boði á Sólheimum í Grímsnesi um
næstu helgi. Ókeypis aðgangur er á
skemmtanir um helgina.
Á laugardag verður m.a. boðið
upp á staðarskoðun og sögukynn-
ingu kl. 14 en áður leikur Halldór
Hermannsson á harmonikku á
Grænu könnunni. Klukkan 16 verð-
ur leiksýning Leikfélags Sólheima
um ævi og störf Sesselju Hreindísar
Sigmundsdóttur, stofnanda Sól-
heima.
Svipuð dagskrá er á sunnudag en
kl. 16 flytur leikfélagið lög úr söng-
leiknum Hárinu okkar og tveir gest-
ir verða með óvænta uppákomu.
Um helgina verður einnig hopp-
kastali fyrir börnin, myndlistarsýn-
ing, kaffihúsið Græna kannan verð-
ur opið og skógræktarstöðin Ölur
svo nokkuð sé nefnt.
Leiklist á dagskránni á
Sólheimum um helgina
EFTIR fimm vikna veiði, 19. júní til
24. júlí, voru komnir 8.386 silungar
á land úr Veiðivötnum á Land-
mannaafrétti, samkvæmt Veiðivat-
navefnum. Það gera 240 fiskar á
degi hverjum og miðað við 80 stang-
ir sem leyfðar eru þar á degi hverj-
um er meðalveiði á stöng 3 fiskar.
Langmest er þetta urriðinn sem
vötnin eru svo fræg fyrir, en nokk-
ur hundruð bleikjur hafa einnig
veiðst, mest 638 stykki í Skyggn-
isvatni. Besta vatnið er Litlisjór
sem hafði gefið 3.459 urriða, þann
stærsta 8,6 punda. Meðalþyngdin
þar er hins vegar 2,6 pund. Næst-
aflahæsta vatnið var Skyggnisvatn
með 1.098 fiska, en rúmlega helm-
ingurinn þar er bleikja eins og áður
var getið. Næst er Stóra-Fossvatn,
þar sem aðeins er leyfð fluguveiði,
en 630 voru veiddir þar, upp í 7
pund, og þarnæst er að nefna
Hraunsvötn með 536 stykki, allt
urriða. Þar er stærsti fiskur sum-
arsins til þessa, 11,6 pund. Pyttlur
höfðu gefið 321 urriða, Grænavatn
288 og Snjóölduvatn 211 fiska, þeir
stærstu 7,5 til 8 punda. Einnig hafa
veiðst 8 punda fiskar í Litla-Breiða-
vatni og Ónefndavatni.
Morgunblaðið/Golli
Mikið um að vera við aðgerðarborðið í Veiðivötnum.
Feiknaveiði hefur
verið í Veiðivötnum
Rúnar veiðivörður í Veiðivötn-
um vegur vænan urriða.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
NÝVERIÐ voru alþjóðleg verðlaun
fyrir list á frímerkjum veitt, en þau
afhenti Asiago International Prize
for Philatelic Art. Íslandspóstur var
einn þeirra aðila sem voru verðlaun-
aðir, en í umsögn um Evrópumerkið
frá 2001, 80,00 kr., segir:
„Eftir ýtarlega áframhaldandi
rannsókn á fallegasta frímerkinu úr
„náttúrunni“ og í ljósi þess að þetta
ár, 2002, hefir sérstaklega beinst að
mikilvægi vatnsins, hinnar náttúr-
legu auðlindar, og vandamálum
varðandi varðveislu þess, hefir dóm-
nefndin veitt íslensku póstþjónust-
unni, Íslandspósti, þessi verðlaun,
fyrir áttatíu króna Evrópufrímerkið,
sem sýnir tengdar hendur, sem taka
á móti vatni, hinni náttúrlegu auð-
lind, í formi bylgjufaldsins, sem
myndast á brimöldunni, við fjöruna.
Það flæðir fram frá hinum eilífu jökl-
um, fjársjóður sem þarf að varðveita
og ábending um að spilla ekki þess-
ari dýrmætu frumgjöf og auðlind
náttúrunnar.“
Þannig hljóðar úrskurður dóm-
nefndarinnar um verðlaunaveit-
inguna. Ummæli viðskiptavina voru
m.a. svo hljóðandi:
„...Það er alltaf ánægjulegt, að
móttaka frímerkin og aðrar vörur
tengdar þeim, frá Íslandi. Þið eruð
með bestu hönnun allra Norður-
landanna, en ég safna þeim öllum.“
Viðkomandi er doktor frá Tennessee
í Bandaríkjunum.
Hvaða Íslendingur, sem hefur
eitthvað farið um sveitir eða öræfi
landsins, þekkir ekki tilfinninguna
við að kasta sér niður á lækjarbakka
og svolgra að sér tært vatnið, súpa
það úr íhvelfdum lófum sér eða baða
sveitt andlit af göngunni úr því?
Frímerkið kom út 17. maí 2001 og
er hannað af Hany Hadaya. Það er
litprentað í offset hjá Cartor S/A og
er upplag þess aðeins 150 þúsund.
List á íslensku frí-
merki verðlaunuð
Morgunblaðið/SHÞ
Evrópufrímerki Hanya Hadaya,
með hinum ýmsu myndum og
formum í umhverfi vatnsins.