Morgunblaðið - 02.08.2002, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Kyndill kemur í dag.
Sava Hill og Libra fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Greda María kom í gær.
Ontika fór í gær. Sig-
hvatur Bjarnason kem-
ur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl 14 bingó.
Félagsvist fellur niður
mánudaginn 5. ágúst.
Verslunarferð í Hag-
kaup Skeifunni fimmtu-
daginn 8. ágúst, lagt af
stað frá Aflagranda kl.
10 með viðkomu á
Grandavegi 47. Skrán-
ing í afgreiðslu sími
562 2577.
Árskógar 4. Bingó
verður næst spilað 9.
ágúst kl. 13.30. Púttvöll-
urinn er opin kl. 10–16
alla daga. Allar upplýs-
ingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Verslunarferð annan
hvern föstudag kl. 10–
11.30. Þriðjudaginn 20.
ágúst kl. 8 verður farin
skoðunarferð um Vík og
nágrenni. Ekið upp í
Heiðardal og um Reyn-
ishverfið. Súpa og brauð
í Vík. Kvöldverður í
Drangshlíð austur undir
Eyjafjöllum. Leið-
sögumaður Hólmfríður
Gísladóttir. Skráning og
greiðsla í síðasta lagi
þriðjudaginn 13. ágúst.
Allir velkomnir. Uppl.
og skráning í síma
568 5052.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Ferð á vegum FEBK
verður farin fimmtudag-
inn 8. ágúst um upp-
sveitir Árnessýslu og
Landsveit undir leið-
sögn þjóðsagnasafn-
arans Bjarna Harð-
arsonar. Skoðaður
verður hellirinn að
Hellum og fleiri staðir í
Landssveit. Síðan verð-
ur farið á Sprengisands-
veg að Sultartangavirkj-
un þar sem lón og
stíflumannvirki verða
skoðuð ofan af Sandfelli.
Næsti áfangastaður
verður Hólaskógur, þar
er ætlunin að borða
nestið.(Þáttakendur hafi
með sér nestisbita). Ef
rútufært er verður ekið
að Háafossi, síðan niður
í Þjórsárdal þar sem
Búrfellsvirkjun verður
heimsótt – einnig þjóð-
veldisbærinn, Stöng og
Hjálparfoss. Kaffihlað-
borð verður í Félags-
heimilinu Árnesi. Heim
verður haldið niður
Skeiðaveg. Áætluð
heimkoma kl 19
Lagt verður af stað frá
Gjábakka kl. 10 og frá
Gullsmára kl. 10.15
Þátttökulistar liggja
frammi í Gjábakka –
einnig í Gullsmára 7 , 9
og 11. Ferðanefndin
Bogi Þór s: 554 0233 og
Þráinn s: 554 0999
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13.
„Opið hús“ spilað á spil.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Púttað á
Hrafnistuvelli kl. 14–16.
Á morgun morg-
ungangan kl. 10 frá
Hraunseli. Rúta frá
Firðinum kl. 9.50. Fé-
lagsheimilið Hraunsel
verður lokað vegna
sumarleyfis starfsfólks
til 11. ágúst. Orlofs-
ferðir að Hrafnagili við
Eyjafjörð 19.–23. ágúst,
greiða þarf gíróseðlana
sem fyrst. Orlofsferð að
Höfðabrekku 10.–13.
sept. Skráning og upp-
lýsingar milli kl. 19 og
21, s. 555 1703, 555 2484
eða 555 3220.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Félagið
hefur opnað heimasíðu
www.feb.is. Hringferð
um Norðausturland 17.
– 24. ágúst. Uppselt.
Farið verður í Land-
mannalaugar 6. ágúst
nk. Ekið inn Dómadal
niður hjá Sigöldu. Leið-
sögumaður Tómas Ein-
arsson. Brottför frá
Glæsibæ kl. 8. Munið
hádegisnestispakka.
Fræðslu- og menning-
arferð í Skálholt 9.
ágúst. Leiðsögumaður
Pálína Jónsdóttir.
Skráning hafin á skrif-
stofu FEB. Fyrirhug-
aðar eru ferðir til Portú-
gals 10. september í 3
vikur og til Tyrklands 1.
október í 10 daga fyrir
félagsmenn FEB,
skráning er hafin, tak-
markaður fjöldi. Skrán-
ing hafin á skrifstofunni
í Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
í s. 588 2111. Skrifstofa
félagsins er flutt í Faxa-
fen 12, sama símanúmer
og áður. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9.30 göngu-
hópur, kl. 14 brids.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa, opnað aftur
þriðjudaginn 13. ágúst.
Á vegum Íþrótta- og
tómstundaráðs eru sund
og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug kl. 9.30
mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga. Umsjón
Brynjólfur Björnsson
íþróttakennari.
Gjábakki. Hárgreiðslu-
stofan er lokuð til 6.
ágúst.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9-17
fótaaðgerð, kl. 13-14
pútt. Í dag verður spilað
bingó kl. 14. Allir vel-
komnir. Kaffiveitingar.
Miðvikudaginn 7. ágúst
verður farið í Þórsmörk.
Lagt af stað frá
Hraunbæ kl. 10:30.
Súpa og brauð á Hlíð-
arenda á Hvolsvelli. Í
Þórsmörk verður farið í
stuttar eða langar
gönguferðir. Hafa þarf
með með gönguskó og
nesti. Leiðsögumaður :
Hólmfríður Gísladóttir.
Skráning á skrifstofu
eða í síma: 587 2888.
Hvassaleiti 56–58. .
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofur lokaðar fram í
ágúst. Hárgreiðsla lok-
uð vegna sumarleyfa frá
16. júlí til 13. ágúst.
Ganga kl. 10.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15
handavinna, handa-
vinnustofan opin án
leiðbeinanda fram í
miðjan ágúst. , kl. 14.30
kaffi.
Vitatorg. Kl. 9.30 morg-
unstund, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt Húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16 - 25 ára) að mæta
með börnin sín á laug-
ard. kl.15–17 á Geysi,
Kakóbar, Aðalstræti 2
(Gengið inn Vesturgötu-
megin). Opið hús og
kaffi á könnunni, djús,
leikföng og dýnur fyrir
börnin.
Félag kennara á eft-
irlaunum. Hin árlega
sumarferð FKE verður
farin þriðjudaginn 20.
ágúst n.k. Nánar upp-
lýsingar verða í bréfi til
félagsmanna fyrir 10.
ágúst.
Minningarkort
Minningarkort, Félags
eldri borgara Selfossi.
eru afgreidd á skrifstof-
unni Grænumörk 5,
miðvikudaga kl. 13–15.
Einnig hjá Guðmundi
Geir í Grænumörk 5,
sími 482-1134, og versl-
unni Írisi í Miðgarði.
Slysavarnarfélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S. 570
5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s. 568-
8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562-1581 og hjá Kristínu
Gísladóttur, s. 551-7193
og Elínu Snorradóttur,
s. 561-5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags Íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16, Reykja-
vík. Opið virka daga kl.
9–17. S. 553-9494.
Í dag er föstudagur 2. ágúst, 214.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Fjarlægt er það, sem er, og djúpt, já
djúpt. Hver getur fundið það?
(Préd. 7, 24.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 andstaða, 4 frá Svíþjóð,
7 ávinningur, 8 heiðurs-
merki, 9 lík, 11 kvendýr,
13 þvertré í húsi, 14
mikla, 15 gaffal, 17 klúr-
yrði, 20 duft, 22 stjórn-
um, 23 bál, 24 út, 25 fram-
leiðsluvara.
LÓÐRÉTT:
1 lausagrjót, 2 pytturinn,
3 gamall, 4 innyfli úr
fiski, 5 afkomandi, 6
staði, 10 svipað, 12 ílát,
13 hryggur, 15 viðburð-
arás, 16 talan, 18 hug-
leysingja, 19 efnuð, 20
skömm, 21 megna.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 víðlendur, 8 stund, 9 illur, 10 dót, 11 riðla, 13
asnar, 15 Gláms, 18 slota, 21 kát, 22 slaga, 23 alurt, 24
ólifnaður.
Lóðrétt: 2 íburð, 3 ledda, 4 neita, 5 uglan, 6 ósar, 7 grær,
12 lem, 14 sól, 15 gust, 16 áfall, 17 skarf, 18 staka, 19 ot-
uðu, 20 autt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI rak nýlega augun íauglýsingu um byssur í einu
dagblaðanna. Ekki mundi Víkverji
eftir því að hafa áður séð byssur aug-
lýstar, en kannski er það bara af því
að auglýsingarnar hafa ekki höfðað
til hans. Víkverja fannst hins vegar
merkilegt að það mætti auglýsa í
blaði jafnhættulegan varning og
byssur, en ekki vöru eins og bjór
(þ.e. ef hann er sterkari en 2,25%).
Hvort tveggja, byssur og bjór, er
mjög hættulegt ef það er notað vit-
laust en til gagns og ánægju ef það er
notað rétt. Víkverji kíkti í vopnalögin
og fann ekkert um að ekki mætti
auglýsa byssur. En af hverju er þá
bannað að auglýsa bjór?
x x x
Í EINFELDNI sinni hélt Víkverjiað hann myndi eiga frið fyrir
símasölufólki eftir að nýja símaskrá-
in kom út. Þar er merki við síma-
númer Víkverja um að ekki megi
hringja í hann í þeim tilgangi að selja
eða markaðssetja eitthvað. Nú
bregður hins vegar svo við að eftir
útkomu símaskrárinnar fær Víkverji
fleiri hringingar frá sölufólki en áð-
ur! Þegar Víkverji gerir athuga-
semdir við að hringt sé í hann þrátt
fyrir bannmerkið er viðkvæðið iðu-
lega að sölumanninum hafi „yfirsézt“
merkið. Niðurstaða Víkverja er sú
að sölumennirnir séu hvergi af baki
dottnir og láti nú reyna á það hversu
langt þeir komast, þrátt fyrir að þús-
undir símnotenda hafi beðizt undan
ónæðinu af hringingum þeirra. Hvað
á þá að taka til bragðs?
x x x
VÍKVERJI er gamall aðdáandibrezku rokksveitarinnar El-
ectric Light Orchestra, sem gerði
garðinn frægan á áttunda og níunda
áratugnum. Sjaldan heyrist til sveit-
arinnar núorðið á öldum ljósvakans,
þannig að Víkverja hlýnaði um
hjartarætur þegar hann kveikti á út-
varpinu í bílnum stuttu eftir hádegið
einn daginn í vikunni og verið var að
leika gamalt ELO-lag í Popplandi
Rásar 2.
Það spillti þó heldur fyrir ánægj-
unni þegar umsjónarmaður þáttar-
ins skrúfaði niður í laginu til að út-
lista skoðanir sínar á tónlistinni, sem
hann sagði ekki hafa elzt vel. Vík-
verji getur út af fyrir sig ekkert ver-
ið að æsa sig yfir því; tónlistar-
smekkur manna er misjafn og allir
eiga rétt á sinni skoðun. Tónlistin
hefur reyndar ekki þótt eldast verr
en það að nýlega kom út tvöföld
hljómplata þar sem ýmsir yngri tón-
listarmenn flytja sínar útgáfur af
gömlum lögum Jeffs Lynne, leiðtoga
ELO, þar á meðal af umræddu lagi,
Do Ya. (Kannski mætti spila það í
Popplandi.)
Hins vegar var Víkverji hissa á að
heyra umsjónarmanninn lýsa því yf-
ir að ELO hefði notazt við „þessar
strengjavélar, hljóðgervla sem líkja
eftir sinfóníuhljómsveit“. Víkverji
hefur borið virðingu fyrir umsjónar-
mönnum Popplands og Rokklands á
Rás 2 vegna þess að þeir hafa alla
jafna vitað um hvað þeir eru að tala
og haft sögulegar staðreyndir á
hreinu í hinum vönduðu þáttum sín-
um. Þetta með „strengjavélarnar“ er
hins vegar hin mesta firra, enda not-
aðist ELO við 30–40 manna
strengjasveitir í öllum sínum plötu-
upptökum frá 1974, sem var eitt af
því sem gerði hljóm sveitarinnar ein-
stakan. Rétt skal vera rétt!
Mjólk og
mjólkurmatur
RANNSÓKNIR sem gerð-
ar hafa verið í Bandaríkj-
unum benda til að mjólk og
mjólkurmatur sé besta
fæðan og um leið sú holl-
asta til að léttast eða forð-
ast að fitna. Kalkið í mjólk-
inni virðist þarna gegna
lykilatriði.
Til að ná góðum árangri
er mælt með að nota mjólk
eða mjólkurmat með öllum
mat, svo sem eins og mjólk
út á morgunkornið og ost á
kexið milli mála. Mjólk og
ost með hádegis- eða kvöld-
mat og jógúrt með ávöxtum
í eftirmat.
Í frásögn af þessum
rannsóknum er tekið fram
að fólk geti ekki stundað
ofát og hreyfingarleysi með
mjólkurmatnum, en ef fólk
vill grennast og lætur
mjólkina vanta er það að
fara rangt að, segir í nið-
urlagi greinarinnar.
(Heim.: Readers Digest,
júlí 2002.)
Við þetta má bæta, að við
Íslendingar eigum senni-
lega heimsins bestu mjólk.
Sveinn Indriðason.
Kanínurnar
yndisauki
TVISVAR til þrisvar í viku
förum við, ég og maðurinn
minn, upp í Öskjuhlíð með
barnabörnin og höfum með
okkur gulrætur til að gefa
kanínunum. Ein þeirra
borðar yfirleitt úr lófanum
á okkur og bæði við gömlu
hjónin og barnabörnin er-
um himinlifandi.
Þetta er svo mikill yndis-
auki að hafa þessi dýr
þarna að það trúir því eng-
inn sem ekki hefur reynt
það.
Að ganga þarna í skóg-
inum og sjá alla fuglana og
þessar dásamlegu kanínur
er toppurinn á tilverunni.
Ef þær leita upp í kirkju-
garð, hvað um það? Þegar
kemur að mér (ég á nú
pláss þar) yrði ég bara
ánægð með það að allt um
kring mætti sjá þessi ynd-
islegu dýr hlaupa um, og
jafnvel þótt þau stælu sér
nokkrum blómum öðru
hvoru, eins og Dýravinur
segir í sinni grein 31. júlí,
þá endast þessi blóm svo
stutt hvort sem er.
Ég held að ég yrði meira
að segja mjög ánægð með
ef einhver þeirra vildi veita
mér þá virðingu að búa sér
til býli við kistuna mína, því
ég veit að mér þætti það
ánægjulegt.
Elskurnar mínar, látið
kanínurnar í Öskjuhlíðinni
vera í friði, því að svo ótal
margir hafa ómælda
ánægju af þeim.
Þóra Stefánsdóttir.
Kosning um
Kárahnjúka
MÉR finnst að ætti að
halda þjóðaratkvæða-
greiðslu um Kárahnjúka-
virkjun. Ekki er hægt að
láta einhverja örfáa póli-
tíska menn ráða örlögum
Íslands, framtíð barnanna
okkar í óþökk. Ég skora á
alla Íslendinga að standa
saman sem sjálfstæð þjóð
og ekki láta drekkja okkur í
forarpytti fyrir einhverja
smáhagsmuni líðandi
stundar.
Soffía S. Haraldsdóttir,
Brekkubyggð 91.
Saknar sápunnar
ÉG var að fá sjónvarpsdag-
skrána fyrir ágúst og sá að
Leiðarljós er ekki á dag-
skrá þann mánuðinn. Það
var búið að auglýsa að sýn-
ingar á Leiðarljósi ættu að
hefjast í ágúst en reyndin
virðist vera önnur. Þess í
stað eru auglýstar í dag-
skránni endursýningar á
öðrum þætti. Því vil ég
spyrja: Hvenær byrja sýn-
ingar á Leiðarljósi aftur?
Eldri kona.
Þakkir til
vinnuskólans
MIG langar að koma á
framfæri þökkum til ung-
mennanna í Vinnuskóla
Reykjavíkur. Þau hafa ver-
ið dugleg að mála yfir
veggjakrot á gæsluvelli við
Kleppsveginn þar sem ég
bý.
Það er mér áhyggjuefni
að hvert sem farið er um
bæinn má sjá veggjakrot
og tyggigúmmí, svo maður
örvæntir um velferð þeirra
sem að baki standa.
Huga mætti betur að því
að stemma stigu við þessu.
Kona við Kleppsveginn.
Tapað/fundið
Gleraugu fundust
SMÁGERÐ rauðbleik gler-
augu, hugsanlega barna-
gleraugu, fundust í Foss-
vogsdal sl. sunnudags-
kvöld. Eigandi getur vitjað
gleraugnanna í síma
867 5980.
Saknarðu
barnakápu?
BARNAREGNKÁPA
fannst 21. júlí við stoppi-
stöð SVR, fyrir utan Vest-
urgötu 53. Upplýsingar í
síma 552 0271.
Dýrahald
Fimm fallegir
og fjörugir
FIMM kettlingar, fjórir
högnar og ein læða, eru að
leita að góðu heimili. Eru
kassavanir og miklar keli-
rófur. Áugasamir hafi sam-
band í síma 696 9979.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is