Morgunblaðið - 02.08.2002, Page 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÓVISSUSÝNING KL. 12.10. EFTIR MIÐNÆTTI
SÆLUDAGAR í Vatnaskógi eru haldnir nú enn og
aftur um verslunarmannahelgina en hátíðin er
haldin á vegum KFUM og KFUK.
Dagskrá hátíðarinnar, sem er áfengislaus fjöl-
skylduhátíð, er með fjölbreyttasta móti og meðal
þeirra sem stíga á pall má nefna KK og Ellen Krist-
jáns, Ómar Ragnarsson og trúðinn Döðlu. Gestum
verður boðið upp á fræðslustundir, varðeld og
flugelda, báta og vatnafjör svo fátt eitt sé nefnt.
Íþróttavöllur er í Vatnaskógi þar sem leikin
verður knattspyrna og Sæludagaleikarnir fara
fram. Á leikunum verða margvíslegar íþróttir við
allra hæfi í boði.
Í íþróttahúsinu fara fram hæfileika- og söngva-
keppni, fjölskylduguðsþjónusta með léttu sniði,
harmónikkudansleikur, tónleikar og kvöldvökur.
Í Gamla skála verða morgunstundir barnanna
með sögum, föndri og söng og eftir hádegið verð-
ur Café Lindarjóður starfrækt í skálanum. Stein-
unn Jóhannesdóttir rithöfundur mun halda erindi
um Guðríði Símonardóttur og Hallgrím Pét-
ursson og sr. Gunnar Sigurjónsson mun fjalla um
tengsl kvikmyndarinnar Matrix og Lúkasarguð-
spjalls.
Hátíðin hefur verið haldin tíu sinnum en í fyrra
sóttu hana rúmlega 1.400 manns. Aðgangseyrir er
3.000 krónur en hver fjölskylda greiðir aldrei
meira en 7.000 krónur.
Morgunblaðið/Sverrir
Gleðigjafinn Ómar Ragnarsson skemmtir sjálfum
sér og öðrum í Vatnaskógi um helgina.
Sæludagar í Vatnaskógi
Helgarfrí
(15 Aout / Weekend Break)
Gamanmynd
Frakkland, 2001. Góðar stundir VHS. (92
mín) Öllum leyfð. Leikstjórn: Patrick
Alessandrin. Aðalhlutverk: Richard
Berry, Charles Berling og Jean-Pierre
Darroussin.
HÉR er komin út á myndbandi úr-
valsgamanmynd sem enginn ætti að
láta framhjá sér fara. Myndin kemur
frá franska leikstjóranum Patrick
Alessandrin og hefur verið sýnd á þó
nokkrum kvik-
myndahátíðum í
Evrópu við góð-
ar viðtökur. Þar
segir frá þremur
eiginmönnum
sem halda til
sumarleyfisdval-
ar í húsi sem fjöl-
skyldurnar hafa
tekið á leigu saman í La Baule. Eig-
inmennirnir koma nokkuð á eftir eig-
inkonunum sem dvalið höfðu einar í
húsinu með krakka- og gæludýra-
skaranum, á meðan karlarnir voru
að sinna misnauðsynlegum erindum
heima fyrir. Þegar þeir Max, Raoul
og Vincent koma á staðinn eitt rign-
ingarkvöld blasir óvænt staða við.
Eiginkonurnar eru bak og burt en
eftir sitja börnin og nágrannakona
sem afhendir þremenningunum
skilaboð á blaði. Þar segir: „Við eig-
um skilið að fá alvöru sumarfrí. Ís-
skápurinn er tómur og krakkarnir
sofandi – eins og stendur.“ Við tekur
kostulegt ferli þar sem karlarnir
læra hvað það er að taka fulla ábyrgð
á börnunum, heimilishaldi og eigin
tilfinningalífi. Vel gerð kvikmynd,
sem býr yfir lúmskum og gráglettn-
um húmor í anda Frakka. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Alvöru
sumarfrí
About a Boy
Hugh Grant fer fyrir einstökum leikhópi og
myndin er undur vel gerð og skrifuð. Frábær
skemmtun. (S.V.) Háskólabíó, Sambíóin.
The Mothman Prophecies
Vönduð mynd og áhrifarík sem byggist laus-
lega á sönnum yfirnáttúrulegum atburðum.
Góðir leikarar njóta sín vel og áhorfandinn er
á taugum allan tímann. (H.L.) Sambíóin, Háskólabíó.
Skrímsli hf.
Raddsett tölvuteiknuð barna- og fjölskyldu-
mynd um skrímslin í skápnum sem reynast
jafnvel hræddari við börn en börn við þau.
(S.V.) Sambíóin.
Árás klónanna
Næstsíðasti kafli Stjörnustríðsins er skref í
rétta átt, hreinræktað ævintýri og þrjúbíó þótt
nokkuð vanti upp á seið fyrstu myndanna.
(S.V.) Regnboginn.
Murder by Numbers
Í anda Rope eftir Hitchcock og vinnubrögð
Barbets Schroeder eru öll hin fagmannleg-
ustu. Morðsagan sjálf er hins vegar fullfyr-
irsjáanleg. Ungu leikararnir standa sig best.
(S.V.) ½
Sambíóin
Kóngulóarmaðurinn
Ný og flott mynd um Kóngulóarmanninn í
gamaldags hasarblaðastíl, í bland við
straumlínulagað tölvugrafíkútlit. (H.J.)
Regnboginn.
Reign of Fire/
Eldríkið
Gamli góði B-vísindahrollurinn kominn aftur í
fullu fjöri. Hrá, grá og notalega vitlaus. (S.V.)
½
Laugarásbíó, Regnboginn
Bad Company
Hopkins og Rock eru furðulegt par sem venst
vel í annars stundum fyndinni en alltof langri
og ófrumlegri spennumynd. (H.L.) Sambíóin, Háskólabíó.
Pétur Pan 2:
Aftur til Hvergilands
Pétur Pan berst enn við Kaftein Krók og nú
með hjálp Jónu dóttur hennar Vöndu. Ósköp
sæt mynd en heldur tíðindalítil og ófrumleg.
(H.J.) Sambíóin, Háskólabíó.
Big Fat Liar
Atburðarásin leiðist úr sæmilegri sögu um
dreng sem þarf að læra að ljúga minna í
dæmigerða sadíska hefndarmynd í anda
Home Alone. Þessi tilraun er allmisheppnuð.
(H.J.) ½
Sambíóin
Scooby Doo
Fjallar um krakkana og hundinn í Ráðgátum
hf. sem lenda nú á draugaeyju. Ósköp svip-
uð sjónvarpsþáttunum, með álíka lélegum
húmor, en þó ekki jafn fyrirsjáanleg. Og
krakkarnir skemmta sér vel. (H.L.) ½
Háskólabíó
Van Wilder Party Liaison
Einhver alversta mynd sem rekið hefur á
fjörur íslenskra kvikmyndahúsagesta í lang-
an tíma. (H.J.) 0 Regnboginn.
The New Guy/Nýi gaurinn
Lengi getur vont versnað en hér er botninum
náð í heimsku og hugmyndaleysi. Aular í öll-
um hlutverkum framan sem aftan við töku-
vélarnar. (S.V.) 0
Regnboginn, Laugarásbíó
„Góðir leikarar njóta sín vel og áhorfandinn er á taugum allan tímann,“ segir
Hildur Loftsdóttir meðal annars um kvikmyndina The Mothman Prophecies.
Richard Gere og Laura Linney í hlutverkum sínum.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Eftirmyndin
(Mimic 2)
Hrollvekja
Bandaríkin 2001. Skífan VHS. (90 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Jean de
Segonzac. Aðalhlutverk Alix Koromzay,
Bruno Campos, Edward Albert.
MAÐUR SÁ svo sem ekki í hendi
sér eftir að hafa séð fyrri myndina að
hún væri það góð eða vinsæl að hún
ætti eftir að geta af sér framhalds-
myndir. En þegar beint-á-mynd-
band-bransinn er annars vegar, er
ekkert óhugsandi. Ekki datt mér
heldur í hug að það ætti eftir að
koma framhald af hinni vafasömu
Poison Ivy eða From Dusk Till
Dawn, hvað þá stórslysamyndinni – í
orðsins fyllstu merkingu – Turbu-
lence. En hvað veit maður. Nú eru
Turbulence-myndirnar orðnar þrjár
og hér er mætt, hvort sem maður
bjóst við því eða ekki, Mimic 2.
Hún er svo sem engin hörmung.
Bara alveg jafngóð og mynd um risa-
vaxið moðsjúkt skrímsli sem er hálf-
ur maður og hálfur kakkalakki getur
orðið. Og nú er kakkalakkamaðurinn
búinn að uppgötva ástina er hann
fellur fyrir, jú hverri annarri en
nördalegri ungsnót sem er skordýra-
fræðingur og á auðveldara með að
bindast pöddum tilfinningaböndum
en mannfólkinu. Og auðvitað verður
stóra paddan afbrýðisöm út í alla
karlmenn sem koma nálægt henni.
Sem sagt, alveg voðalega girnileg
og góðlynd mynd fyrir alla fjölskyld-
una…
Ekki alveg. Skarphéðinn Guðmundsson
Ástfanginn
risakakka-
lakki
SVO virðist sem heims-
byggðin styðji ekki beint við
bakið á George Michael og
mótmælum hans við stjórnar-
hætti forsætisráðherra
Breta, Tonys Blair. Eins og
kunnugt er er hárbeittum
texta og myndbandi við nýj-
asta lag Michaels, „Shoot the
Dog“, beint að Blair og hann
sýndur sem kjölturakki
George W. Bush Bandaríkja-
forseta. Þeir félagar eru
einnig sýndir sem elskendur
í umræddu myndbandi.
Í vikunni kom lagið svo út
á smáskífu í Bandaríkjunum
en seldist einungis í þrjú
þúsund eintökum fyrsta dag
sinn í sölu, en það þykir ekki
til að státa af.
Tóm vandræði hafa verið á
Michael síðan lagið kom fyr-
ir augu og eyru almennings.
Hann segist meðal annars
hafa neyðst til þess að yf-
irgefa bandaríska grund
vegna ofsókna og hótana
sem sér hafi borist í kjölfar
lagasmíðarinnar. Þetta er
hið versta mál fyrir Michael
því að auk þess að stóla á
Bandaríkjamarkað fyrir tón-
list sína er unnusti hans bú-
settur þar vestra.
Goggi í
vondum
málum
George Michael
hugsar sitt ráð.
AP