Morgunblaðið - 02.08.2002, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
TILBOÐ Starfsmannasjóðs SPRON
ehf. til stofnfjáreigenda sem gert var
28. júlí sl. hefur tryggt starfsmönnum
meirihluta á fyrirhuguðum fundi
stofnfjáreigenda 12. ágúst næstkom-
andi, að sögn Ara Bergmanns Ein-
arssonar, formanns stjórnar Starfs-
mannsjóðs SPRON.
Ari sagði að eigendur 44% heildar-
stofnfjár hefðu staðfest samninga við
Starfsmannasjóðinn og veitt honum
umboð til þess að fara með atkvæði
sitt þegar frestur til þess að gera
samning samkvæmt kauptilboðinu
rann út klukkan 16 í gær. Þá hefðu
eigendur 18% stofnfjárhluta jafn-
framt lofað fulltingi við áformin eða
veitt Starfsmannasjóðnum umboð til
þess að fara með atkvæði sitt á fundi
stofnfjáreigenda.
„Við vorum með fyrirvara í samn-
ingnum, annars vegar um samþykki
Fjármálaeftirlitsins og hins vegar um
að við næðum 51% eigenda heildar-
stofnfjár, að öðrum kosti áskildum við
okkur rétt til þess að hætta við til-
boðið. Með þessari útkomu sjáum við
hins vegar að þetta er fullnægjandi og
við erum þegar fallin frá ákvæðinu
um 51%,“ sagði hann.
Hann lagði áherslu á að öll nauð-
synleg fjármögnun hefði verið tryggð
og sagði að það hefði verið ljóst frá
upphafi hvaðan fjármagnið kæmi.
Bakhjarlarnir væru sparisjóðirnir í
landinu og dótturfyrirtæki þeirra.
Kaupin uppfylla ekki kröfur
stjórnarformanns SPRON
Jón Steinar Gunnlaugsson, lög-
maður fimm stofnfjáreigenda
SPRON, segir afar ólíklegt að for-
sendur skapist til þess að þau við-
skipti með stofnfé, sem starfsmanna-
sjóðurinn hefur átt í, geti gengið eftir.
„Í þessu sambandi vek ég athygli á að
Jón G. Tómasson, formaður stjórnar
SPRON, hefur stöðugt haldið því
fram að það sé ólögmætt að kaupa
stofnbréf á hærra verði en nafnverði
án þess að greiða að minnsta kosti
einhverja fjárhæð um leið inn í spari-
sjóðinn,“ segir Jón. „Það er alveg ljóst
að þessi kaup uppfylla ekki kröfu
Jóns. Þess vegna hlýtur hann og
stjórn SPRON að synja samþykki við
þessum kaupum, sem þýðir að ekkert
verður af þeim eins og ég hef sagt. Ég
geri ráð fyrir að þau atkvæði sem
starfsmannafélagið er komið með frá
seljendum stofnfjárbréfanna verði
ekki notuð til þess að samþykkja van-
traust á núverandi stjórn. Þá blasir
við sú staða, að þeir sem þegar hafa
undirritað samning um stofnfjárkaup
á genginu 5,5 munu með atkvæðum
sínum á fundinum 12. ágúst koma í
veg fyrir að þeir, þ.e. Starfsmanna-
félagið, þurfi að efna skuldbindingar
sínar samkvæmt þessum kaupsamn-
ingi.“
Starfsmenn SPRON í Starfsmannasjóðnum sendu frá sér yfirlýsingu í gær
Segjast hafa stuðning
eigenda um 62% stofnfjár
Telja/12
SEÐLABANKI Íslands hefur ákveð-
ið að lækka stýrivexti sína um 0,6%
eða niður í 7,9%. Frá byrjun apríl í ár
hafa vextir bankans lækkað um 2,2%
og frá því vextirnir náðu hámarki í
fyrra hafa þeir lækkað um 3,5%.
Birgir Ísleifur Gunnarsson, for-
maður bankastjórnar Seðlabankans,
sagði um þessa ákvörðun bankans, að
ójafnvægið sem ríkt hefur í þjóðar-
búskapnum á seinni hluta efnahags-
uppsveiflunnar væri að mestu leyti
horfið og spenna á vöru- og vinnu-
mörkuðum hefði látið undan síga. Þá
væri viðskiptahalli kominn vel inn fyr-
ir viðráðanleg mörk og verðbólga
hjaðnaði ört.
Birgir Ísleifur sagði 12 mánaða
verðbólgu í júní hafa farið inn fyrir
þolmörk verðbólgumarkmiðs Seðla-
bankans fyrir þetta ár. Þetta hefði
verið í fullu samræmi við síðustu
verðbólguspá bankans. Þá sagði Birg-
ir Ísleifur að verðbólguhorfur hefðu
batnað frá síðustu spá Seðlabankans,
aðallega vegna styrkingar krónunn-
ar, og að nú væri því spáð að verð-
bólgan færi inn fyrir markmið bank-
ans fyrir lok þessa árs. Þetta væri ári
fyrr en áður hafði verið gert ráð fyrir.
Birgir Ísleifur sagði að meiri bjart-
sýni ríkti nú varðandi verðbólgu og
stöðugleika en áður og að vextir yrðu
lækkaðir frekar á komandi mánuðum
ef verðbólguspáin gengi eftir og þró-
un eftirspurnar yrði eins og útlit væri
fyrir.
Vaxtalækkunin fagnaðarefni
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði í samtali við Morgunblaðið að
þýðingarmikið væri að Seðlabankinn
héldi sínu striki varðandi vaxtalækk-
un í samræmi við þá þróun sem orðið
hefði varðandi gengi og verðbólgu.
Hann sagði þróunina hafa verið í sam-
ræmi við mat ríkisstjórnarinnar á
vordögum þegar menn hefðu þóst sjá
að rauð strik myndu halda. „Þetta er
því fagnaðarefni og það er full ástæða
fyrir bankann til að halda áfram á
þessari braut og vera ekki að gera sér
rellu út af virkjunaráformum fyrr en
menn sjá hilla undir þau, því þau fara
hægt af stað og það er þegar orðinn
töluverður samdráttur í þjóðfélaginu
sem eðlilegt er að menn mæti við
þetta verðbólgustig með því að beina
vöxtunum í lækkandi farveg,“ sagði
Davíð Oddsson.
Samkvæmt upplýsingum frá Ís-
landsbanka, Búnaðarbanka og spari-
sjóðunum munu þessar innlánsstofn-
anir lækka vexti.
Seðlabankinn lækk-
ar vexti um 0,6% TVÆR andarnefjur rak nýlega áfjörur Öræfinga. Annað dýrið rak
á Mýrafjöru austan við Ingólfs-
höfða. Hitt kom upp á Breiða-
merkurfjöru við Breiðárós. Á
myndinni sést Hálfdán Björnsson á
Kvískerjum við mælingar á dýrinu
á Breiðamerkurfjöru. Reyndist
það 7,25 metra langt og því nær
fullvaxið. Andarnefjan á Mýra-
fjöru mun vera heldur stærri.
Að sögn Hálfdáns er heldur
sjaldgæft að andarnefjur reki á
þessar fjörur. Man hann aðeins
eftir fjórum dýrum og því telst
það til tíðinda að tvö þeirra reki á
sama tíma. Hálfdán sagði að
Hvalamiðstöðinni á Húsavík hefði
verið gert viðvart um hvalrekann.
Átti hann von á að hvalskurðar-
maður kæmi til að bjarga beina-
grindinni úr að minnsta kosti öðr-
um hvalnum fyrir hvalasafnið
nyrðra.
Í baksýn eru Hrútárjökull, Ær-
fjall og Fjallsjökull.
Hvalreki
í Öræfum
Morgunblaðið/RAX
Verðbólgan/20
LANDSSÍMINN breytti gjald-
skrám sínum umtalsvert í gær og er
þar bæði um lækkanir og hækkanir
að ræða. Samkvæmt útreikningum
Landssímans hækkar meðalsím-
reikningur heimila sem nota talsíma-
þjónustu eingöngu um 5,9%, reikn-
ingur heimila með einn GSM-síma
og heimasíma um 4,1% og heimila
með tvo GSM-síma auk heimasíma
um 3,3%. Einnig er boðuð hækkun á
afnotagjöldum talsímans eftir 1.
september en þá hyggst Síminn
hækka heimtaugargjald í heildsölu
um 16%.
Meðal annarra breytinga má
nefna, að í farsímakerfinu mun kosta
minna að hringja úr GSM-síma í
heimasíma, en meira að hringja úr
farsíma frá Landssímanum í farsíma
frá Tali og Íslandssíma. Segir Sím-
inn þessi fyrirtæki hafa hækkað verð
fyrir tengingu í sínu kerfi og að Sím-
inn sé nú að bregðast við þeim hækk-
unum. Dagtaxti símtals úr GSM-
síma frá Landssímanum í GSM-síma
frá Tali eða Íslandssíma hækkar úr
21,90 kr. á mínútu í 23,90 kr., eða um
9,1%. Fyrirtækið lækkar hins vegar
verð á ADSL-þjónustu.
Meðalsím-
reikningur
hækkar
um 5,9%
Boða hækkun/10
RAFMAGNSVEITA ríkisins,
Orkuveita Reykjavíkur og Orkubú
Vestfjarða hækkuðu verðskrá sína
um 3% í gær, 1. ágúst. Hækkunin
er til samræmis við hækkun orku-
verðs Landsvirkjunar, sem boðaði
hækkun sína snemma í júní og tók
hún gildi 1. ágúst.
Ástæður hækkunar verðskrár
Landsvirkjunar eru kostnaðar-
verðshækkanir. Að sögn Arnar
Marínóssonar, framkvæmdastjóra
á fjármálasviði hjá Landsvirkjun,
hefur orðið raunlækkun á gjald-
skrá miðað við verðlag þrátt fyrir
hækkunina nú og gjaldskráin
lækkað um 5% að raungildi síðast-
liðin tvö ár.
Rafmagn
hækkar um 3%
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
EINS hreyfils flugvél af Skyhawk-
gerð, með fjóra innanborðs, lenti
utan flugbrautar í lendingu í Vest-
mannaeyjum klukkan rúmlega 22 í
gærkvöld. Breytileg vindátt var á
flugvellinum, og virðist sem vind-
hviða hafi feykt vélinni út af flug-
brautinni í lendingu, í grjóturð og
möl sem næst henni er.
Engin slys urðu á fólki, vélin
hélst á hjólum og virtist ekki mikið
skemmd að sjá. Von er á rann-
sóknarnefnd flugslysa til Vest-
mannaeyja í dag til að rannsaka
atvikið.
Flugvél lenti
utan brautar
í lendingu
BÍLVELTA varð á Sprengisands-
leið við Vatnsfell um þrjúleytið í
gærdag. Þrír Þjóðverjar voru á ferð
í bílaleigubíl og sluppu þeir ómeidd-
ir. Bíllinn er aftur á móti stór-
skemmdur, að sögn lögreglu á
Hvolsvelli. Ferðalangarnir voru
sóttir á slysstað og fluttir í Vatns-
fell. Talið er að ökumaður bílsins
hafi misst stjórn á honum í lausa-
möl. Önnur bílvelta varð í sömu
beygju fyrir nokkrum vikum.
Bílvelta við
Vatnsfell