Morgunblaðið - 15.08.2002, Síða 4

Morgunblaðið - 15.08.2002, Síða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ LANDSVIRKJUN hefur áhuga á að byggja 8–10 metra háa stíflu í Laxá í Aðaldal í tengslum við Lax- árstöðvar. Við þetta myndi orkugeta stöðvanna aukast um 50-60 GWst á ári, en í dag er framleiðslan 180 GWst á ári. Segir Þorsteinn Hilm- arsson, upplýsingafulltrúi Lands- virkjunar, að lykilatriðið sé þó að efla öryggi í rekstri stöðvarinnar auk þess sem þetta sé talið jákvætt fyrir lífríki Laxár vegna mikils sand- burðar frá Kráká sem fellur inn í Laxá við Mývatn. Gert sé ráð fyrir því að stofnkostnaður vegna fram- kvæmdarinnar yrði um 300 milljónir króna. „Sandurinn berst niður eftir allri ánni og er að margra áliti að skaða hrygningarsvæði laxins niður í Að- aldal. Menn hafa verið nokkuð ná- lægt því að ná samkomulagi um að fara saman fram og biðja um þessa stíflu. Það hefði það í för með sér að vatn kæmi inn í lónið og sandurinn settist til þannig að hann bærist ekki niður eftir ánni. Það væri jákvætt fyrir lífríki árinnar í Aðaldal að áliti margra en Landsvirkjun mun ekki sækjast eftir þessu nema þá í sam- vinnu við heimamenn.“ Þorsteinn segir að skoðanir þeirra hafi verið skiptar en að veiðiréttareigendur og landeigendur hafi töluverðan áhuga á framkvæmdinni. Segir hann nauð- synlegt að skera úr um það með rannsóknum hvort hækkun stíflunn- ar hefði góð áhrif fyrir umhverfið í för með sér. Vélabúnaður í stöðinni liggur undir skemmdum „Þetta er lykilatriði til að reka stöðina með sæmilegu öryggi. Véla- búnaður í stöðinni liggur undir skemmdum út af frumstæðum inn- taksmannvirkjum. Það berst þarna inn ís og krapi og grjót að vetri. Það er nauðsynlegt að hafa meira dýpi við inntakið til að geta tekið vatn undan ís frekar en að taka ísinn inn með grjóti og öllu föstu við inn í vél- arnar.“ Þorsteinn bætir við að Landsvirkjun hafi tekið við Laxár- virkjun árið 1983 og um 10 árum síð- ar hafi vatnshjólið í nýjasta stöðv- arhúsinu, sem var byggt á áttunda áratugnum, verið ónýtt. „Við þurft- um að leggja í verulegar fjárfest- ingar við að setja nýtt hjól þarna og nú liggur það aftur undir skemmd- um. Það er með ólíkindum hvað það fer mikið af sandi og grjóti þarna í gegn.“ Með tilkomu 8–10 metra hárrar stíflu yrði flatarmál lónsins um 0,6 ferkílómetrar, að sögn Þorsteins. Í dag er lónið um 0,2 ferkílómetrar. Þorsteinn segir að þetta hefði áhrif á vatnsborð árinnar nokkur hundruð metra upp með gilinu. Lónið yrði nánast eins og lítil tjörn. „Laxár- stöðvarnar liggja í gili þar sem áin rennur út úr Laxárdalnum og niður í Aðaldal. Stíflan yrði þannig að lónið væri þarna í gilinu, það myndi ekki fara upp í Laxárdal eins og gömlu hugmyndirnar gerðu ráð fyrir, það var 5–6 sinnum hærri stífla,“ segir Þorsteinn og vísar þar til Laxárdeil- unnar svokölluðu á áttunda áratugn- um en þá stóð til að reisa 56 metra háa stíflu ofar í gljúfrinu. Segir Þorsteinn að einnig sé það hagkvæmur kostur að reisa þarna nýja og hærri stíflu. „Þetta væri t.d. alveg rakið ef það væri eitthvað lítið iðnaðarfyrirtæki að koma þarna inn sem þyrfti mikla orku. Þetta væri nú sennilega einhver ódýrasta orkuöfl- unaraðgerð sem sögur fara af. Þetta er lítil fjárfesting miðað við þá orku sem hún gefur.“ Mikilvægt fyrir Húsvíkinga og nærsveitarmenn Þorsteinn segir það einnig skipta miklu máli fyrir Húsavík og ná- grannabyggðir að Laxárvirkjun geti framleitt rafmagn. „Þetta svæði fær rafmagn frá Laxárstöð og það er einungis gamla línan frá virkjunni til Akureyrar sem tengist landskerf- inu. Sú lína bilar stundum og ef það kæmi saman að hún bilaði og raf- orkuframleiðslan félli niður í Laxá, sem hún gerir við og við út af þess- um aðstæðum, þá gætu Húsavík og nærsveitir verið illa staddar að vetri og jafnvel verið rafmagnslausar í lengri tíma,“ segir Þorsteinn. Hann bendir á að það geti verið flókið mál að fá leyfi fyrir byggingu hærri stíflu þar sem sérlög séu í gildi um lífríki Mývatns og Laxár sem geri málin mjög flókin. Landsvirkjun hafi mikinn áhuga á þessum kosti og ekki stæði á fyrirtækinu ef samstaða næðist meðal heimamanna um að óska eftir leyfi til að reisa stífluna. Landsvirkjun vill reisa 8–10 m háa stíflu í Laxá UNDIRBÚNINGUR fyrir Reykja- víkurmaraþonið stendur sem hæst en það fer fram á laugardag. Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Reykjavíkurmarþons, segir að end- anlegar tölur yfir fjölda þátttak- enda komi ekki í ljós fyrr en á föstudag, en skráningu lýkur í dag. Hann telur að um þúsund manns hafi þegar skráð sig, þar af hátt í 400 útlendingar. „Þeir skrá sig alltaf fyrst og eru búnir að því í byrjun ágúst,“ bætir hann við. Hann segir að aðstand- endur hlaupsins búist við um 3.000 manns en það er svipað og und- anfarin ár. Rás og endamark hlaupsins eru í Lækjargötu og segir Ágúst að það hefjist klukkan 11 á maraþoni. Að sögn hans er auk 42 km maraþons boðið upp á 21 km hálfmaraþon, 10 km hlaup, 10 km línuskautahlaup og loks 7 km og 3 km skemmti- skokk. Hann segir að línu- skautahlaupið hafi fyrst farið fram fyrir um tveimur árum og þátt- takan í því hafi aukist lítillega á þeim tíma. „Þetta stendur yfir í tæpa sex tíma og hlaupinu lýkur um fimm- leytið. Verðlaunaafhending verður eftir hlaupið klukkan hálfsjö í Ráð- húsinu og svo nýtum við okkur menningarnóttina,“ bendir hann á þegar hann er inntur eftir hvort einhver dagskrá verði í tengslum við hlaupið. „Það fá allir verðlauna- pening og bol og síðan verða nokkr- ir vinningar dregnir út og loks eru sérverðlaun fyrir þá sem eru í fyrstu þremur sætunum,“ bætir hann við. Reykjavíkurmaraþonið þekkt erlendis Ágúst leggur áherslu á að þátt- takendur séu á öllum aldri, allt frá smábörnum, sem taki þátt í 3 km skemmtiskokki, upp í rúmlega sjö- tugt fólk. Hann segir dæmi þess að foreldrar hlaupi með kerrurnar og stundum séu jafnvel heilu fjölskyld- urnar meðal þátttakenda. Á 5 km millibili eru drykkjar- stöðvar, að sögn hans, þar sem boð- ið verður upp á orkudrykki og vatn. Læknar og hjúkrunarlið verða til reiðu meðan á hlaupinu stendur og til aðstoðar er hlauparar koma í mark. Hann segir hlaupið nú í 19. sinn. „Reykjavíkurmaraþonið er orðið tiltölulega þekkt erlendis og þess vegna fáum við alla þessa útlend- inga. Þetta eru almennt útlend- ingar sem stunda maraþon og fara jafnvel á milli hlaupa til að safna hlaupum,“ segir hann. Ágúst bend- ir á að undirbúningur hlaupsins standi yfir allan ársins hring. Í fyrstu felist hann mest í að þjónusta útlendinga, öflun samstarfsaðila og fleira. Hann segir að margir sinni þessum undirbúningi og um 200 manns starfi við maraþonið sjálft. Undirbúningur Reykjavíkurmaraþonsins stendur sem hæst Morgunblaðið/Jim Smart Tveir starfsmenn Reykjavíkurmaraþonsins mála merkingar vítt og breitt um borgina fyrir hlaupið sem verður á laugardaginn kemur. Á fjórða hundrað útlendinga meðal þátttakenda STARFSLAUN listamanna Reykja- víkurborgar, sem úthlutað er árlega, hækka úr 127 þúsund krónum á mán- uði í 181 þúsund krónur. Í frétt frá menningarmálanefnd Reykjavíkur kemur fram að einhugur hafi verið um það innan nefndarinnar að launin hafi verið of lág enda hafi þau ekki fylgt launa- og verðlagsþró- un. Eftir hækkun eru þau samsvar- andi starfslaunum listamanna hjá rík- inu. Hækkunin var staðfest í borgarráði í fyrradag. Þá segir að útgjöld borgarinnar vegna málaflokksins aukist ekki, enda bundin í fjárhagsáætlun, því starfs- launamánuðum verði fækkað tilsvar- andi. Tilkynnt verður á menningarnótt, samkvæmt upplýsingum frá menn- ingarmálanefnd, hverjir hljóta starfs- laun í ár. Fyrirsjáanlegt er að vegna launahækkunarinnar verði úthlutað 37 starfsmánuðum næst, vegna ársins 2004, nema komi til aukin framlög. Til úthlutunar fyrir árin 2002 og 2003 koma 49 starfsmánuðir. Þá er menningarmálanefnd jafn- framt þeirrar skoðunar að leitast beri við að lengja starfstímabil þeirra sem hljóta starfslaun og verður því ekki færri en þremur mánuðum úthlutað í hverju tilviki. Á laugardaginn verður úthlutað starfslaunum til 13 lista- manna í þrjá til sex mánuði. Laun lista- manna Reykjavík- urborgar hækka BIFREIÐ skemmdist talsvert eftir að hafa lent á vegg í Vestfjarðagöng- unum um kl. 23 í fyrrakvöld. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði var bifreiðin á leið frá Önundarfirði til Ísafjarðar þegar ökumaðurinn missti stjórn á henni í Breiðadalslegg ganganna með þeim afleiðingum að hún lenti á vegg. Ekki urðu slys á fólki við áreksturinn, en tveir farþegar voru í bifreiðinni ásamt ökumanni, sem er á átjánda aldursári. Bifreiðin er óöku- fær eftir áreksturinn. Lögreglan á Ísafirði, segir aug- ljóst að ekið hafi verið nokkuð ógæti- lega þegar slysið varð. Ók á vegg í Vestfjarða- göngunum MINNIHÁTTAR eldur kom upp í Sementsverksmiðjunni á Akranesi í gærmorgun og var slökkvilið bæjar- ins kallað út um ellefuleytið. Að sögn lögreglunnar á Akranesi tók skamma stund að slökkva eldinn, sem olli smá- vægilegum skemmdum, þar á meðal reykskemmdum og smávægilegum skemmdum í vél í húsinu. Talið er að kviknað hafi í olíu í leðjudælu með fyrrgreindum afleiðingum. Eldur í Sements- verksmjðu Akraness INNBROTSÞJÓFUR var handtek- inn aðfaranótt þriðjudags eftir að hafa verið staðinn að verki við inn- brot í Fella- og Hólakirkju. Örygg- isverðir urðu hans varir, en hann hafði farið inn um þakglugga og stol- ið tveimur slökkvitækjum. Hann lagði á flótta er hann varð öryggis- varðanna var en fannst skömmu síð- ar í runna í nágrenni kirkjunnar. Lögreglan í Reykjavík færði hann á lögreglustöð til yfirheyrslu, en um er að ræða 23 ára gamlan mann sem hefur komið við sögu lögreglu vegna ýmissa sakamála. Braust inn í kirkju ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.