Morgunblaðið - 15.08.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 9
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsala
Verðhrun
3 dagar eftir
Laugavegi 56, sími 552 2201
P.s. meiri lækkun á útsölu. .
Útigallar
sem virka
Flísfóðraðir,
vatns- og
vindþéttir,
mjúkir og hlýjir,
fallegir litir.
Kringlunni, sími 588 1680,
iðunn
tískuverslun
Í tilefni
15 ára
afmælis
Kringlunnar
15%
afsláttur af
nýjum
drögtum
frá
Marcona
Kópavogsbúar fyrr og síðar!
Hvernig var þetta á árum áður í Kópavogi? Var ekki allt í kalda
koli, fátækt og basl og þrætugjarnir valdhafar? Eða skólarnir
- Svarti skóli, Græni skóli, Marbakkaskóli? Hvar voru þeir
og hvers konar skólar voru þetta eiginlega? Og börnin sem
gengu í þessa skóla, hvar eru þau núna?
36-árgangurinn á svör við þessu öllu og mörgu fleiru um
mannlíf og menningu í Kópavogi um miðja síðustu öld.
Bókin okkar - Sveitin mín, Kópavogur -
er væntanleg í október.
Skemmtileg bók og fróðleg. Takmarkað upplag.
Þeir sem vilja tryggja sér eintak og/eða fá nafn sitt skráð í
heillaóskaskrá, hafi sem fyrst samband við ritstjóra:
Helgu Sigurjónsdóttur,
Meðalbraut 14, 200 Kópavogi.
Sími og fax: 554 2337.
helgasd@simnet.is
Sprengitilboð v/breytinga
Tveir fyrir einn
Handskorin massív húsgögn, fatnaður, pelsar, leðurvörur og
öðruvísi gjafavara.
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugard. 10. ágúst frá kl. 11-16,
sunnud. 11. ágúst frá kl. 13-18
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Afmælistilboð
15% afsláttur af glösum
og matarstellum
Vandaðar heimilis- og gjafavörur
Kringlunni 4-12 - sími 533 1322
ÚTSALA 2 fyrir 1
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Rúskinnspils 5.900 1.900 + ein frí
Herrapeysa stutterma 5.900 1.900 + ein frí
Sumarbuxur 3.400 900 + ein frí
Dömubelti 2.600 900 + ein frí
Kápa 6.600 1.900 + ein frí
Dömublazer 5.700 1.900 + ein frí
Sítt pils 3.900 900 + ein frí
Stuttermabolur 3.300 900 + ein frí
Jakkapeysa 5.700 1.900 + ein frí
Slinky-bolur 2.100 900 + ein frí
...og margt margt fleira
60—90%
afsláttur
Síðumúla 13, sími 568 2870,
108 Reykjavík.
Opið frá kl.10.00-18.00
FÉ HEFUR valdið stórtjóni á ung-
plöntum í Esjuhlíðum þar sem Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur gróður-
setti 20 þúsund plöntur í sumar.
Vignir Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri félagsins, segir að á annað
hundrað fjár hafi gengið inn á skóg-
ræktarsvæðin og bitið ofan af ösp,
víði og birki og kippt plöntunum upp
úr holum sínum. Plönturnar voru
gróðursettar með liðstyrk Vinnu-
skóla Reykjavíkur og unglinga á
vegum Landsvirkjunar.
„Stór hluti starfs þessa hóps er
ónýtur, fyrir utan plönturnar. Okkur
finnst þetta álitshnekkir fyrir skóg-
ræktina, við erum að fá ungt fólk til
starfa við skógrækt og látum síðan
svona lagað yfir okkur ganga. Þetta
er bara svo móðgandi við börnin og
unglingana. Þetta er geysilegt tjón.“
Vignir segir einnig að fé hafi eyði-
lagt tilraunareiti Skógræktar ríkis-
ins og gróður á einkalóðum.
Að sögn Vignis á vandamálið sér
rætur í því þegar sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu sameinuðust
um að halda svæðum sínum fjárlaus-
um í tengslum við uppgræðslu á svo-
kölluðum Grænum trefli, sem nær
frá Straumsvík upp í Esju. Sett var
upp svokölluð ofanbyggðagirðing og
innan hennar átti engin lausaganga
að eiga sér stað. „Vegna ofan-
byggðagirðingarinnar var viðhaldi
girðinga innan marka hennar hætt,
enda ekki eyðandi háum fjárhæðum
í girðingar sem ekki áttu að vera
nauðsynlegar. Þegar ofanbyggða-
girðingin var orðin léleg var tekin
ákvörðun um að girða af tvö stór
beitarhólf í stað þess að endurnýja
hana. Í beitarhólfið myndu bændur
fá heimild til að sleppa fé sínu. Með
þessari breytingu þurfti að setja
nýja búfjársamþykkt um lausa-
göngu búfjár. Það var hins vegar
aldrei klárað og málið er í patt-
stöðu.“
Sauðfé í Esjuhlíðum bítur ofan af trjáplöntum
Stór hluti skógræktar-
starfsins er ónýtur
BÍLVELTA varð á Útnesvegi á
móts við Hnausahraun um fimmleyt-
ið í fyrradag. Tveir menn voru fluttir
á heilsugæslustöðina í Ólafsvík, að
sögn lögreglunnar í Stykkishólmi, en
meiðsl þeirra voru ekki alvarleg.
Ökumaður bifreiðarinnar missti
stjórn á henni með fyrrgreindum af-
leiðingum og er bifreiðin ónýt.
Bílvelta fyrir
utan Ólafsvík