Morgunblaðið - 15.08.2002, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.08.2002, Qupperneq 22
LANDIÐ 22 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ertu að f ara í frí ? Panta›u Frífljónustu Morgunbla›sins á e›a í síma 569 1122 FYRIR skömmu gekkst Ung- mennafélagið í Öræfum fyrir gönguferð að Breiðamerkurfjalli, en þangað er ekki hægt að komast nema að fara á báti yfir Breiðá. Þátttaka var góð, tæplega 30 manns á öllum aldri. Staðnæmdist hópurinn við vörðu með minnismerki sem er inn með fjallinu að austan til minningar um að Sigurður Björnsson á Kvískerj- um bjargaðist þar úr snjóflóði í nóv- ember 1936 eftir að hafa legið graf- inn undir því í rúman sólarhring, en hann var þar þá við annan mann í fjárleit. Það ánægjulegasta við göngu- ferðina nú var að Sigurður skyldi sjá sér fært að koma með nú 85 ára og rifja upp þennan liðna atburð og lýsa staðháttum þá en þeir hafa breyst mikið síðan við hop jökulsins. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Gönguferð að Breiðamerkurfjalli Skaftafell EINN af þeim atburðum sem hafa fest sig í sessi á Neistaflugshátíðinni í Neskaupstað um verslunarmanna- helgina er svonefnt Barðsneshlaup en þar er hlaupin 27 km leið frá eyði- býlinu Barðsnesi sem stendur á samnefndu nesi sunnan Norðfjarð- arflóa og endað í miðbæ Neskaup- staðar. Leiðin sem hlaupin er þykir mjög skemmtileg og falleg en jafnframt nokkuð erfið. Hlaupið er inn og út firðina þrjá, Viðfjörð, Hellisfjörð og Norðfjörð, og þarf að vaða yfir þrjár ár í botni fjarðanna. Þátttaka í hlaupinu hefur aukist ár frá ári og nú um verslunarmannahelgina, þeg- ar Barðsneshlaupið var hlaupið í sjötta sinn, voru þátttakendur um þrjátíu víðs vegar að af landinu. Sig- urvegari í ár var Þorbergur Ingi Jónsson frá Neskaupstað en hann sigraði einnig í síðasta hlaupi. Þess má geta að Þorbergur á ættir sínar að rekja til Barðsness. Fyrst í mark af konunum sem þátt tóku í hlaupinu var Hjálmdís Zoëga, einnig frá Nes- kaupstað. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Hluti þátttakenda ferjaður á báti yfir að Barðsnesi fyrir hlaupið. Barðsnes- hlaup 2002 Neskaupstaður FÉLAG hjartasjúklinga á Vest- urlandi stóð fyrir hjartagöngu sl. laugardag. Þátttakendur hittust við Snorrastaði í Hnappadal klukkan 14 þaðan sem gengið var á Eldborg. Um fjörutíu manns á öllum aldri tóku þátt í göngunni en yngst var Elísabet Kristjáns- dóttir rétt tæpra sjö mánaða. Gangan tók um þrjá tíma og veitti Sigurður Helgason bóndi í Hraunholti leiðsögn. Veðrið var þægilegt, þurrt og sólskin öðru hverju. Að lokinni göngu var grillað saman á Snorrastöðum. Um 200 manns eru í Félagi hjartasjúklinga á Vesturlandi og er formaður Magnús Þorgríms- son. Morgunblaðið/Guðrún Vala Hjartaganga á Eldborg Borgarnes KVÖLD eitt nú fyrir skemmstu kom nokkur hópur fólks saman í fjallaskálanum Árbúðum sem er nokkru innan Hvítárvatns á Biskupstungnaafrétti. Meðal gesta var landbúnaðarráðherra og eigin- kona hans, sveitarstjórnarmenn og framámenn ferðamála úr hinni nýju Bláskógabyggð og fleiri gest- ir. Tilefnið var að minnast þess að nú í sumar eru tveir áratugir liðnir frá því að Íshestar hófu sumarferð- ir á hestum yfir Kjöl. Svipað hóf var haldið við Galtará á Eyvind- arstaðaheiði í vikunni áður er hóp- ur var á norðurleið. Sveitarstjórn- armenn ásamt hinum landskunnu Álftagerðisbræðrum brugðu sér á heiðina sína, sem þeir hafa marg- sinnis smalað, og sungu fyrir gesti. Í Árbúðum var fyrir hópur fólks sem var að koma að norðan, á þriðja tug farþega ásamt aðstoð- arfólki, og var það áttunda Kjal- ferðin í sumar. Hjalti Gunnarsson í Fossnesi ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Bjarnadóttur og syninum Bjarna hafa annast allar ferðirnar á þessu sumri. Þau eru meðal átta verktaka hjá Íshestum sem annast hestaferðir á vegum fyrirtækisins víðsvegar um landið. Að auki á fyr- irtækið glæsilega ferðamiðstöð í Hafnarfirði. Í ávarpi lýsti fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, Einar Bollason, stofnun þessa hestaleigu- fyrirtækis en auk hans voru stofn- endur Guðmundur Birkir Þorkels- son og Árni Björgvinsson. Nú eru eignaraðilar margir að Íshestum ehf. Einar Bollason sagði að farþegar í Kjalferðum á þessum tuttugu árum væru nú orðnir um 2.800, þar af hefðu allmargir farið oftar en einu sinni og sumir marg- sinnis. „Hestaferðirnar yfir Kjöl eru afar vinsælar og seljast alltaf upp,“ sagði Einar. Hann vildi sér- staklega þakka ánægjulegt og frá- bært samstarf við sveitaryfirvöld í Biskupstungum og forsvarsmenn Upprekstrarfélags Eyvindarstaða- heiðar. Einar sagði aldrei hafa bor- ið nokkurn skugga á þau samskipti. Margeir Ingólfsson, varaoddviti Bláskógabyggðar, minntist Gísla heitins Einarssonar í Kjarnholtum en ósk hans var að sem flestir gætu notið öræfanna en hann var frum- kvöðull í uppbyggingu skála á Kjal- vegi. Hann þakkaði farsælt og gott samstarf við Íshesta og færði fram- kvæmdastjóranum gjöf frá sveitar- félaginu. Guðni Ágústsson þakkaði í ávarpi þá framsýni og dugnað sem Íshestar hefðu sýnt með framtaki sínu að kynna landið með nýjum hætti og hinn einstaka íslenska hest fyrir erlendum gestum. Það væri þrennt sem hefði einkennt fé- lagsskapinn: framsýni, lífsgleði og umhyggja. Í samtali við fréttaritara kom fram hjá farþegum Íshesta að fólk- ið er mjög heillað af hinni miklu víðáttu sem landið býr yfir sem og tign og fegurð öræfanna. Þá ekki síður af íslenska hestinum með all- an sinn dugnað og ganghæfileika. Kjartan Ragnarsson leikari sem hefur á stundum verið fararstjóri hjá Íshestum sló létt á strengi gít- arsins og það var sungið og spaug- að eins og venja er í fjallaskálum hjá Íshestum. Þá má geta þess að Íshestar eru núverandi handhafar umhverfis- verðlauna Ferðamálaráðs og sagði Einar að afar mikilvægt væri að ganga vel um landið í hvívetna. Í tengslum við töfra landsins í 20 ár Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Margeir Ingólfsson, varaoddviti Bláskógabyggðar, afhendir Einari Bollasyni gjöf í tilefni Kjalferða í 20 ár. Hrunamannahreppur Skólavörðustíg 21, sími 551 4050. Viskustykki Til í níu munstrum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.