Morgunblaðið - 15.08.2002, Síða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 23
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I
Y
D
D
A
•
N
M
0
7
0
1
3
•
sia
.is
Glæsileg tilbo› í
verslun okkar í Kringlunni
Ef flú kaupir Doro 8075 e›a Doro 8085
síma fylgir stóll e›a hengirúm me›*
Gildir í verslun Símans í Kringlunni 15.- 25. ágúst.
Doro 8075
Doro 8085
Léttkaup
Léttkaup
980 kr.
Léttkaupsútborgun
1.250 kr. næstu 12 mánu›i.
Færist á símreikning.
tilbo›sver›: 15.980 kr.
980 kr.
Léttkaupsútborgun
1.250 kr. næstu 12 mánu›i.
Færist á símreikning.
tilbo›sver›: 15.980 kr.
*Á me›an birg›ir endast
Bor›hle›slutæki og handfrjáls
búna›ur me› svarhnappi fylgir me›.
Heimsmeistarinn!
blandarinn,
sá öflugasti og
ímynd þess besta!
Fæst í ýmsum litum. Verð
frá kr. 13.965 stgr.
Gullverðlaunahafar íslenska
landsliðsins í matreiðslu
nota eingöngu KitchenAid
blandara og hrærivélar.
Gerðu líka kröfur
- veldu KitchenAid!
BÆNDUR hér í sveit byrjuðu slátt
uppúr miðjum júlí og að fullu um
þann tuttugusta. Vegna vorkulda
spruttu tún seint, en það lagaðist
með góðviðri, góðum hita og skúr-
um í byrjun júlí.
Bændur hér verka mestallt hey í
rúllur nema nokkrir sem setja í
venjulegt vothey. Sexmenningarnir
svokölluðu sem fengu sér fyrstir
rúllugræjur keyptu sér aðra sam-
stæðu, rúlluvél og pökkunarvél, í
lok heyskapar og gátu æft sig til
undirbúnings fyrir næsta sumar.
En eins og einn bóndi sagði við
fréttaritara verða menn að vera
snöggir að koma heyjum í rúllur og
plast á milli skúra þegar þannig
viðrar, enda fengu menn misblautt
hey í sumar.
Það eru þannig þrjár vélar hér í
sveit hjá átta bændum sem verka í
rúllur. Það þykir sennilega mikið í
svo fámennu bændasamfélagi. Hey-
skap lauk í Árneshreppi fimmtu-
daginn 8. ágúst.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Á flestum bæjum er heyið verkað í rúllur.
Heyskap lokið
í Árneshreppi
Árneshreppur
DÝRFINNA Torfadóttir gullsmið-
ur opnaði sýningu á sérhönnuðum
módelskartgripum úr náttúrustein-
um í Norska húsinu í Stykkishólmi
laugardaginn 10. ágúst. Fjölmenni
var við opnun sýningarinnar og al-
mennt gerður góður rómur að þeim
gripum sem Dýrfinna sýnir. Auk
skartgripanna sýnir hún lágmyndir
unnar úr silfri, kopar og messing og
kertastjaka unna úr náttúrustein-
um og kopar.
Dýrfinna lærði fag sitt á Akur-
eyri og í Valdres í Noregi og lauk
meistaraprófi í gullsmíði árið 1983.
Sama ár opnaði hún vinnustofu og
verslun á Ísafirði sem hún starf-
rækir enn þótt hún hafi sjálf nýver-
ið flutt á Akranes þar sem núver-
andi vinnustofa hennar er.
Jafnframt gullsmíðinni er Dýrfinna
menntuð sem sjóntækjafræðingur
og sjónfræðingur og hefur veitt
þjónustu á því sviði samhliða skart-
gripagerð.
Dýrfinna hefur tekið þátt í fjölda
sýninga, bæði einkasýninga og
samsýninga, og hlotið margvísleg
verðlaun og viðurkenningar. Meðal
annars hlaut hún 1. verðlaun fyrir
tískuskartgrip ársins árin 1997,
1998 og 1999. Sýning Dýrfinnu
stendur til loka ágúst og gestir
Danskra daga í Hólminum um
næstu helgi, svo og aðrir sem leið
eiga um Hólminn fram að mánaða-
mótum, geta því notið þess að skoða
frumlega og eftirtektarverða skart-
gripahönnun.
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Dýrfinna Torfadóttir gullsmið-
ur við opnun sýningarinnar.
Dýrfinna
sýnir í
Hólminum
Hellnar