Morgunblaðið - 15.08.2002, Page 27

Morgunblaðið - 15.08.2002, Page 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 27 Einkaumboð Fæst í öllum helstu sport- og veiðivöruverslunum landsins og Bensínstöðvum Esso um land allt 10 63 B / TA K T ÍK 19 .6 ´0 2 Nælon lína Stangveiðisett hannað fyrir íslenskar aðstæður Flugubox Dropasökkur Klippur IG-síld ALBERTO Fujimori, fyrrum forseti Perú, vill snúa aftur til föðurlandsins og bjóða sig fram til embættis þjóð- höfðingja á ný. Fujimori upplýsti þetta í viðtali við japanska dagblaðið Mainichi Shimb- un en hann býr nú í Japan eftir að hafa flúið Perú í nóvembermánuði ár- ið 2000. Þá lauk tíu ára valdaskeiði Fujimori er upplýst var um umfangs- mikla spillingu forsetans og undir- sáta hans. Fujimori hefur nú fengið japansk- an ríkisborgararétt á grundvelli þess að hann er afkomandi Japana sem kusu á sínum tíma að yfirgefa fóst- urjörðina. Vilja að Fujimori verði framseldur Stjórnvöld í Perú hafa farið fram á að Fujimori verði framseldur en hann er auk spillingar sakaður um fjár- drátt. Þá er fullyrt að dauðasveit hafi starfað á hans vegum í Perú. Japönsk stjórnvöld hafa neitað því að framselja Fujimori og sjálfur kveðst hann aldrei hafa komið nálægt glæpaverkum dauðasveitarinnar. „Brátt mun almenningur í Perú gera sér ljóst að ásakanir um að ég hafi gerst sekur um glæpaverk fá ekki staðist. Þá myndi ég vilja snúa aftur og bjóða mig fram til forseta,“ sagði Fujimori. Vísaði forsetinn fyrr- verandi til skoðanakannana sem sýna að eftirmaður hans, Alejandro To- ledo, nýtur síminnkandi vinsælda enda stjórn hans talin ófær um að leysa gríðarlegan efnahagsvanda Perú. „Færu kosningar nú fram fengi [Alan] Garcia, fyrrum forseti, mest fylgi en ég yrði í öðru sæti,“ sagði Fujimori. Garcia flúði land árið 1992 og komst þannig hjá handtöku en hann var sakaður um grófa spillingu. Garcia sneri aftur til Perú árið 2001 og bauð sig fram gegn Toledo. Vangaveltur um hugsanlega end- urkomu Fujimori hafa magnast mjög að undanförnu í Perú. Í júlímánuði opnaði fyrrum aðstoðarmaður hans skrifstofu í landinu til að vinna að því að Fujimori fái að bjóða sig fram er forsetakosningar fara næst fram árið 2006. Fujimori vill snúa aftur til Perú Tókýó. AP. TORGIÐ fræga í Brussel, Grand Place, var í gær ekki minna augnayndi en endranær en þá var það lagt að hluta undir 1.800 fer- metra stórt blómateppi. Er fyrir því gömul hefð en alls fóru um 700.000 begóníur í skreytinguna að þessu sinni. Reuters Blómskrúð í Brussel

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.