Morgunblaðið - 15.08.2002, Page 29

Morgunblaðið - 15.08.2002, Page 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 29 K O R T E R LEIT að gröf hins fræga Mong- ólahöfðingja Ghengis Khans hefur verið stöðvuð en kunnur stjórn- málamaður í Mongólíu hefur sakað fornleifafræðinga um að vanhelga fornar grafir. Lengi hefur verið leitað að gröf Ghengis Khans en sagan segir, að þeir, sem voru í líkfylgdinni, hafi drepið alla, sem á vegi þeirra urðu, til að leyna því hvar hann væri grafinn. Hópur Bandaríkjamanna og Mongóla hóf að leita grafarinnar í fyrrasumar og tilkynnti fljótlega, að hann hefði fundið líklegan stað. Dashiin Byambasuren, fyrrverandi forsætisráðherra Mongólíu, skrif- aði hins vegar nú í sumar núver- andi forsætisráðherra og sagði, að fornleifafræðingarnir hefðu van- helgað heilagan stað með því að aka bílum yfir hann og reisa á honum byggingar. Hefðu þeir einnig rótað við gömlum beinum og hvatti til, að þeir yrðu reknir burt. Sagði hann, að fjárhagslegur gróði væri eini tilgangur uppgraft- arins. Ghengis Khan réð stórum hluta Asíu er hann lést árið 1227 og var frægur fyrir grimmd og fjölda- morð. Í Mongólíu er hann aftur hetja. Prýðir mynd af honum gjaldmiðil ríkisins og risastór mynd af honum hangir uppi í utan- ríkisráðuneytinu. Grafið hefur verið á stað, sem er í 322 km fjarlægð frá höfuðborg- inni, Ulan Bator, en þótt engi gröf hafi fundist, þá þykja fórnarleifar, dýra- og mannabein, benda til, að þar hafi eitthvert stórmenni verið lagt til hinstu hvílu. Maury Kravitz, leiðtogi leiðang- ursins, hefur leitað að gröf Gheng- is Khans í 40 ár og hefur til þess leyfi mongólskra stjórnvalda. Jap- anskir fornleifafræðingar hafa líka leitað hennar en hættu því 1993 þegar skoðanakönnun í Ulan Bator sýndi, að meirihluti íbúanna var á móti því. Mongólsk þjóðsaga segir, að hundruðum hrossa hafi hleypt yfir grafarstaðinn til að afmá allt, sem benti til þess, að þar hefði verið grafið. Margir Mongólar trúa því líka, að andar forfeðranna standi vörð um gröfina og því sé betra að láta hana í friði. Vilja stöðva leit að gröf Ghengis Khans Ulan Bator. AP. LÍTIÐ lát er á flóðunum á Norðaustur-Indlandi og nú er talið, að um 800 manns hafi far- ist þar og annars staðar í Suð- ur-Asíu. Hafa milljónir manna á Indlandi, Nepal og Bangla- desh misst heimili sín vegna vatnagangsins en í sumum öðr- um hlutum Indlands hefur ekki verið meiri þurrkur í 15 ár. Verst er ástandið í ríkjunum Bihar og Assam og vatnsborðið í fljótinu Brahmaputra var enn að hækka í gær. Leitað að Karadzic NATO-hermenn hófu í gær um- fangsmikla leit að Radovan Karadzic, sem er eftirlýstur fyrir stríðs- glæpi, í af- skekktu héraði í Serbneska lýðveldinu, einum hluta Bosníu. Hafa þeir áður gert tvær árang- urslausar tilraunir til að hafa hendur í hári hans. Karadzic, fyrrver- andi leiðtogi Bosníu-Serba í Bosníustríðinu 1992 til 1995, er sakaður um að bera mikla ábyrgð á þjóðarmorði og stríðs- glæpum gegn múslímum og Króötum. Leitað var í gær við þorpið Celebici við landamæri Svartfjallalands og var það girt af með gaddavír. Var það einnig tilgangur leitarinnar að sögn að ná þeim, sem hafa aðstoðað Ka- radzic við að fara huldu höfði. Viðræður milli Kóreuríkja STJÓRNVÖLD í Norður- og Suður-Kóreu samþykktu í gær að hefja viðræður um hermál til að greiða fyrir samningum um að opna megi lestarteina á milli landanna en þeir hafa verið lok- aðir í hálfa öld. Ákveðið var einnig, að heimila aftur endur- fundi fjölskyldna og taka aftur upp viðræður um efnahagsmál. Fyrirhugaðar viðræður um hermálin hafa ekki verið tíma- settar enn og ríkin komu sér ekki saman um eina yfirlýsingu um aðgerðir til að draga úr spennu á milli þeirra. Norður- Kóreustjórn hefur tilkynnt, að rætt verði við Japani síðar í mánuðinum um stjórnmála- samband en Japanir saka N- Kóreumenn um að hafa rænt að minnsta kosti 11 japönskum borgurum á síðustu árum. Því neitar N-Kóreustjórn en hefur þó boðist til að leita þeirra í landinu. Auðjöfurinn Arafat? LEYNIÞJÓNUSTA ísraelska hersins heldur því fram, að Yasser Arafat, leiðtogi Palest- ínumanna, hafi sankað að sér fé, sem svari til 110 milljarða ísl. kr. Vísar palestínska heima- stjórnin því á bug sem lygi og tilraun til að sverta Arafat en Ísraelar segja, að féð hafi hann ætlað að nota ef hann yrði rek- inn frá landi sínu. STUTT Meira en 800 farast í flóðum Karadzic

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.