Morgunblaðið - 15.08.2002, Page 30

Morgunblaðið - 15.08.2002, Page 30
LISTIR 30 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í LJÓSMYNDASAFNI Reykjavík- ur, Grófarhúsi, stendur í sumar yfir sýning sem eflaust vekur áhuga flestra þeirra, sem hafa áhuga á síð- ari tíma sögu og menningu íslensku þjóðarinnar. Um er að ræða sýningu á íslenskum blaðaljósmyndum frá árunum 1965–1975, sem ljósmynd- arar landsins, þekktir sem óþekktir, tóku á sínum tíma. Gefur þar að líta helstu viðburði Íslandssögu þessa tímabils, og má segja að sýning- argestum sé óhjákvæmilegt að lifa sig inn í þá sérstæðu stemmningu er fylgdi þessu tímabili. Þarna gefur að líta túperað hár og Kristján Eldjárn forseta Íslands, hljómsveitina Hljóma og Jóhannes Kjarval með brennivínsflösku á blaðamanna- fundi, Volkswagen-Bjöllur, rauð- sokkamótmæli, lakkrísbindi og geir- fuglinn nýendurheimtan til landsins, Heimaey undir öskulagi og konur í megrunarbeltum. Guðbrandur Benediktsson sagn- fræðingur er sýningarstjóri sýning- arinnar ásamt Hönnu Guðlaugu Guðmundsdóttur, en um mynd- vinnslu sáu Donald Ingólfsson, Kristín Hauksdóttir og Sigríður Kristín Birnudóttir. „Hugmyndin hjá okkur á safninu var að taka sam- an sumarsýningu þar sem viðfangs- efnið væri alveg íslenskt, en auk þess vildum við setja saman sýningu sem væri eingöngu fengin úr okkar eigin fórum,“ segir Guðbrandur, en hann segir blaðaljósmyndir vera einn fyrirferðarmesta flokk safnsins. „Myndirnar eru mjög skemmtilegar, en oft á tíðum hafa þeim ekki verið gerð nægileg skil. Síðustu misseri höfum við lagt mikið kapp á að vinna í þessum ljósmyndum á safninu, flokka, laga filmur og svo framvegis, sem hingað til hafa verið í svolítið kaótísku ástandi í geymslum okkar. Ef svo má segja erum við að gera op- inbert það sem hefur verið að gerast inni í geymslunum,“ segir Guð- brandur og bætir við að í öllu safna- starfi sé minnsti hlutinn sýnilegur. Tímabilið sem tekið er fyrir, ’65– ’75, hefur blaðamanni alltaf þótt ein- staklega heillandi og getur ekki orða bundist er inn í salinn er komið. Guðbrandur viðurkennir að það sé að mörgu leyti sérstakt. „Það er á svolítið gráu svæði hvað varðar söguvitund fólks, liggur á mörkum þess að tilheyra því sem almenn- ingur telur sögulegt,“ segir hann. Ákveðin þemu tekin fyrir Á sýningunni eru tekin fyrir nokk- ur þemu innan blaðaljósmyndunar. Má þar nefna fréttatengda atburði, íþróttamyndir, slysamyndir, dæg- urmenningu, illviðrismyndir, dag- legt líf, frægt fólk, auk myndlist- armanna og sýninga þeirra. Guðbrandur gengur um sýninguna með blaðamanni og hefst ferðin hjá fréttatengdu myndunum. „Af frétta- tengdum atburðum á sýningunni má nefna Vestmannaeyjagosið, hina sögulega stund þegar uppstoppaði geirfuglinn kom heim eftir að Ís- lendingar höfðu fest á honum kaup á uppboði Sotheby’s, heimsmeist- araeinvígið í skák milli Fischers og Spassky og ljósmynd sem tekin var við fyrstu sjónvarpsútsendinguna,“ segir hann og bendir á mynd frá árinu 1966 sem sýnir Vilhjálm Þ. Gíslason í útsendingu. Guðbrandur heldur áfram göngu sinni um safnið og bendir á þó nokkrar mótmæla- myndir, þar sem vandamálin eru margvísleg. „Þetta tímabil var að mörgu leyti nokkuð róstusamt,“ seg- ir Guðbrandur og kímir. „Hér er verið að mótmæla Víetnamstríðinu, veru hersins, innrás Sovétmanna í Tékkóslóvakíu, þorskastríðinu. Þarna var kvennahreyfingin líka öll að koma til og blómstra.“ Við færum okkur yfir að vegg íþróttaljósmyndunar, sem án efa er einn stærsti flokkur blaðaljósmynd- unar. Virðist sem svo hafi verið jafnt fyrir þessum þrjátíu árum sem nú. „Í mörgum íþróttamyndum tekst ljósmyndurum að fanga augnablikið nokkuð vel,“ segir Guðbrandur og blaðamaður tekur heilshugar undir það er hann horfir á svipbrigði fót- boltamannanna og frjálsíþrótta- menn sem staðnæmast í loftinu. Á næsta vegg getur að líta ýmsar slysafréttamyndir, þó engar sem misbjóða áhorfandanum. Sumar þeirra koma jafnvel fram nettu brosi, eins og sú sem sýnir öskubíl og flugvél sem hafa rekist saman. „Ljósmyndarar eins og Sveinn Þor- móðsson sérhæfðu sig í slysamynd- um,“ útskýrir Guðbrandur. „Hann vann bæði á Morgunblaðinu og DV, og sagt er að hann hafi sofið með lögregluskanna á koddanum. Hann rauk þá alltaf af stað þegar lög- reglan eða slökkviliðið fór af stað. Oft á tíðum var hann víst kominn á svæðið á undan löggunni.“ Við hliðina á slysamyndunum get- ur að líta fegurðarmyndir ýmiskon- ar, sem sýna bæði íslenskar fegurð- ardrottningar sem og ýmsar aðferðir sem konur sjöunda og átt- unda áratugarins notuðust við sér til útlitsbóta. Konurnar á myndunum skarta megrunarbeltum og sundbol- um, liggja í ljósabekkjum og sitja krýndar kórónum á hásætum. Þá taka ýmsar óveðursmyndir úr Reykjavík við. Það er greinilegt að veðrið hefur alltaf verið misjafnlega gott í borginni, rétt eins og í sumar. Tískumyndir með stuttum pilsum og köflóttum jakkafötum hressa blaða- mann nokkuð við eftir kuldalegar storm-myndir. „Tískan gefur manni alltaf ákveðna tilfinningu fyrir tíð- arandanum, eins og hárið og skegg- ið,“ segir Guðbrandur og bendir á síðhærðan, alskeggjaðan karlmann á tískusýningu. „Svo er líka gaman að sjá hvernig tískan fer í hringi, eins og maður sér að vissu marki ef mað- ur ber myndirnar saman við tískuna í dag.“ Mynd af karlmanni að gægjast í gegn um þar til gerð göt á rúðu vek- ur athygli blaðamanns. Skyldi þetta vera einhvers konar „peep-show“? „Við vitum það í raun og veru ekki,“ svarar Guðbrandur. „Það eina sem við höfum um þessa mynd er að hún er tekin 1967 af Sveini Þormóðs- syni.“ Blaðamaður lítur nú ýmsa þekkta menn og konur á myndum, sem tilheyra ýmsum flokkum sýn- ingarinnar. Þarna er Ella Fitzgerald í Háskólabíó og Örnólfur Thorlacius rektor Menntaskólans við Hamra- hlíð, Jón Baldvin Hannibalsson og Kjarval í djúpum samræðum við blaðamann. Á eftir Kjarval kemur heill veggur þar sem aðrir íslenskir myndlistarmenn sitja fyrir. Allt frá Gunnlaugi Scheving til SÚM- aranna. „Þú kannast sennilega við einhverja af þessum,“ segir Guð- brandur og bendir á mynd af Braga Ásgeirssyni, myndlistargagnrýn- anda Morgunblaðsins, í köflóttum jakkafötum á sýningu sinni. Í dagblaðastíl Ljósmyndasafnið leggur á það áherslu á sýningunni að birta mynd- irnar í því formi sem þær birtast á filmunum. Þær hafa ekki verið til- sniðnar við framköllun, skornar til og þar frameftir götum, þó skemmd- ir í myndunum hafi verið lagaðar. Að sögn Guðbrands tók það starfsmenn safnsins nokkurn tíma að velja sam- an myndir á sýninguna. „Þó tel ég að okkur hafi tekist að mynda ákveðna heild á sýningunni, þrátt fyrir að myndirnar komi úr svo ólíkum átt- um sem raunin er,“ segir hann. Sýningarskráin, sem Guðrún Katla Henrysdóttir hefur hannað, er í einskonar dagblaðastíl. Hún er í dagblaðsstærð og í henni eru raktir helstu atburðir Íslandssögunnar á árunum ’65–’75, auk þess sem þar í stuttu máli gerð grein fyrir sögu blaðaljósmyndunar á Íslandi og til- urð filmusafnanna, sem myndirnar á sýningunni eru fengnar úr. Auk þess hanga á súlum í salnum miðjum úr- klippur úr nokkrum blaðanna, sem myndin sýningarinnar birtust í. Hins vegar er enginn texti sem fylgir ljósmyndunum sem hanga á veggjum, einungis höfundur, ár og viðfangsefni. „Samband blaða- ljósmynda og frétta er mjög náið. Þegar ákveðinn atburður gerist er honum yfirleitt lýst jafnhliða í máli og mynd í dagblöðum,“ segir Guð- brandur. „Á sýningunni má greina ákveðna viðleitni til að skera á þessi tengsl, með því að birta myndirnar textalausar. Við gerum þetta til þess að fá fólk til að horfa á myndirnar án þess að velta fyrir sér textanum, sem ljósmyndaverk.“ Margir ljósmyndaranna sem eiga myndir á sýningunni eru með þekkt- ustu ljósmyndurum Íslendinga. Má þar til dæmis nefna Bjarnleif Bjarn- leifsson og Svein Þormóðsson, sem báðir störfuðu um árabil á stærstu dagblöðum landsins. Aðrir eru minna þekktir, eða jafnvel óþekktir, eins og lesa má í sýningarskrá. „Filmu- og myndasöfnin sem við höfum fengið í hendur hér á Ljós- myndasafninu hafa verið í misjöfnu ástandi. Oft á tíðum hafa myndir verið ómerktar, án höfundar eða ár- tals,“ segir Guðbrandur. „En við höfum kosið að sýna hér myndir sem við erum nokkuð viss um að séu inn- an rétta tímabilsins og látum þær einfaldlega tala sínu máli.“ Ljósmyndasafn Reykjavíkur er til húsa í Grófarhúsi við Tryggvagötu. Sýningin Íslenskar blaðaljósmyndir ’65–’75 er opin virka daga kl. 12–18 og um helgar kl. 13–17. Henni lýkur 1. september. Ljósmynd/Guðgeir Magnússon Fjölmörg hús hurfu undir öskulag í Heimaey í gosinu árið 1973. Af túperuðu hári og geirfuglum Blaðaljósmyndir gefa oft á tíðum skýra mynd af samtíma sínum. Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur gefur að líta slíkar myndir frá ár- unum ’65–’75, og varð Inga María Leifsdóttir margs vísari þegar hún skoðaði sýninguna með Guðbrandi Benedikts- syni sýningarstjóra. ingamaria@mbl.is Ljósmynd/Jóhann Vilberg Jóhannes Kjarval á blaðamannafundi með kaffi og tilheyrandi. Ljósmynd/Gunnar Heiðdal Nokkrir af helstu ljósmyndurum Íslands ’65–’75: Bjarnleifur Bjarn- leifsson, Guðjón Einarsson, Runólfur Elintínusson og Sveinn Þor- móðsson. Fleiri nafnkunnir ljósmyndarar komu mikið við sögu. Ljósmynd/Gunnar Heiðdal Fegrunaraðgerðir kvenna hafa verið að mörgu leyti svipaðar undanfarin 30 ár. Kona í ljósabekk árið 1970. Ljósmyndari óþekktur Kristján Eldjárn og Magnús Jónsson frá Mel skoða langþráðan geirfuglinn árið1971.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.