Morgunblaðið - 15.08.2002, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
BÚIST er við að um 60 þús-und manns sæki ráð-stefnu Sameinuðu þjóð-anna um sjálfbæra þróun
sem haldin verður í Jóhannesarborg
í Suður-Afríku dagana 26. ágúst til
4. september. Auk þjóðarleiðtoga og
annarra fulltrúa ríkja sækja hann
fulltrúar fyrirtækja og fjölmargra
samtaka. Þarna verða m.a. vísinda-
menn, sveitarstjórnarmenn, bænd-
ur, fulltrúar verkalýðsfélaga og
fulltrúar umhverfissamtaka af
margvíslegum toga. Ennfremur
munu fjölmargir blaða- og frétta-
menn fylgjast með fundinum.
Fundurinn í Jóhannesarborg er
haldinn 10 árum eftir að umhverf-
isráðstefna Sameinuðu þjóðanna í
Ríó de Janeiro var haldin. Óumdeilt
er að Ríó-fundurinn átti stóran þátt í
að vekja heimsbyggðina til vitundar
um þann vanda sem steðjar að í um-
hverfismálum. Í Ríó settu þjóðir
heims sér markmið, en ljóst er að
þau hafa ekki öll náðst. Í Jóhann-
esarborg verður staðan endurmetin,
sett ný markmið og nýjar tímasetn-
ingar. Fjölmargir fundir og ráð-
stefnur hafa verið haldnar til und-
irbúnings fundinum. Síðasti stóri
undirbúningsfundurinn var haldinn
á Bali í Indónesíu.
Stór verkefni
Hugtakið „sjálfbær þróun“ hefur
verið skilgreint sem þróun sem
mætir þörfum dagsins í dag án þess
að ganga á möguleika komandi kyn-
slóða til að mæta sínum þörfum.
Verkefni fundarins í Jóhannesar-
borg er afar stórt í sniðum. Þar
verður m.a. fjallað um fátækt í heim-
inum, aðgang að hreinu vatni, að-
gang að grundvallarhreinlætisað-
stöðu, aðgang að heilbrigðis-
þjónustu, orkumál, loftslagsmál,
ástand skóga heimsins og áhrif fá-
tæktar á umhverfi.
Eins og nærri má geta hefur á
ýmsu gengið við undirbúning fund-
arins og efasemdir hafa verið settar
fram um að hann skili þeim árangri
sem að var stefnt. Þó flestar þjóðir
heims telji að með samstilltu átaki
sé hægt að ná árangri í að bæta lífs-
skilyrði jarðarbúa eru menn ekki í
öllum tilvikum sammála um hvaða
leiðir er best að fara. Margar þjóðir
telja að skýr og afmörkuð markmið,
þar sem settur er ákveðinn tíma-
rammi, séu vænleg leið til að skila
árangri. Hins vegar er veruleg and-
staða hjá mörgum þjóðum við að
taka á sig alþjóðlegar skuldbinding-
ar í þessa veru.
Bandaríkjamenn tregir til að
taka á sig skuldbindingar
Bandaríkin eru langöflugasta ríki
heims og því skiptir afstaða banda-
rískra stjórnvalda afar miklu máli.
Margir hafa gagnrýnt Bandaríkja-
menn fyrir að sýna fundinum í Jó-
hannesarborg lítinn áhuga og fyrir
að vera ósveigjanlegir í samninga-
viðræðum um þær ályktanir sem
lagðar verða fyrir fundinn. Í síðustu
viku fór Nitin Desai, aðalritari ráð-
stefnunnar í Jóhannesarborg, til
Bandaríkjanna til að ræða við full-
trúa stjórnvalda, viðskiptalífs, sér-
fræðinga á sviði umhverfismála og
fjölmiðla um fundinn og reyna þann-
ig að afla honum stuðnings.
Halldór Þorgeirsson, skrifstofu-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, sagði
ekki hægt að neita því að Banda-
ríkjamenn hefðu verið erfiðir í þeim
samningaviðræðum sem farið hafa
fram í aðdraganda fundarins. Þeir
hefðu fyrst og fremst lagst gegn því
að sett væru skýr markmið um tíma-
setningar og aðgerðir. Þeir vildu
ekki gangast undir miklar alþjóðleg-
ar skuldbindingar á þessu sviði.
Þessi stefna Bandaríkjanna er ekki
nýtilkomin, en Halldór sagðist telja
að þeir hefðu heldur styrkst í þess-
ari afstöðu sinni á undanförnum
misserum.
Bandaríkjamenn taka alþjóðlegar
skuldbindingar sem þeir gangast
undir mjög alvarlega. Það er fjarri
þeirra hugsun að það sé allt í lagi að
skrifa undir skuldbindingar þar sem
það skipti hvort sem er ekki öllu
máli hvort þær séu uppfylltar eða
ekki. Ein af ástæðunum fyrir því að
bandarísk stjórnvöld eru treg til að
takast á hendur alþjóðlegar skul-
bindingar er að um leið og Banda-
ríkin hafa skrifað undir og sam-
þykkt alþjóðlega samninga eru þeir
orðnir hluti af lögum landsins. Þar
með geta umhverfissamtök, sem eru
fjölmörg í Bandaríkjunum, dregið
bandarísk stjórnvöld fyrir rétt ef
þessir samningar eru hunsaðir.
Bandarísk umhverfissamtök hafa
einmitt náð miklum árangri í um-
hverfismálum með því að reka mál
fyrir dómstólum þar sem fyrirtæki
eða stjórnvöld eru sökuð um lög-
brot.
Bandalag þeirra sem vilja
Fundir Sameinuðu þjóðanna miða
að því að ná samstöðu með fulltrúum
allra þjóða sem sækja fundinn. Eins
og gefur að skilja getur oft verið erf-
itt að ná fullkominni samstöðu allra.
Niðurstaðan er því oft ærið útþynnt
eða að menn ná hreinlega ekki sam-
an.
Á fundum Sameinuðu þjóðanna,
þar sem aðildarþjóðirnar ræða um
að taka á sig nýjar skuldbindingar,
hafa allar þjóðir í reynd neitunar-
vald því ekkert er samþykkt nema
allar þátttökuþjóðirnar séu sam-
mála. Við undirbúning fundarins í
Jóhannesarborg hafa menn verið að
reyna að finna leiðir til að ná ein-
hverjum árangri þegar nánast úti-
lokað hefur reynst að ná samstöðu í
þeim úrlausnarmálum sem unnið er
að. Talsverður áhugi hefur verið á að
þróa eins konar samstarfsverkefni á
sérstökum sviðum sjálfbærrar þró-
unar. Hugmyndin er að í samstarfs-
yfirlýsingunni komi fram hvert
markmiðið er, hvað á að ger
nær og hver á að bera k
verkefninu. Verði þessi ve
veruleika munu þjóðir sem
þátt í þeim einfaldlega lýsa
um yfir og stefnt er að því
efnin verði tilkynnt á fundi
hannesarborg. Þetta samst
sem vilja koma ákveðnum
verk hefur verið kallað „co
the willing“. Reikna má
mörg þessara verkefna v
komin langt á veg á fundin
um en verði þróuð frekar
honum lýkur.
Fjármagnið flýr spill
átök og óstöðuglei
Búist er við að það mál
iðast verði að ná samstö
fundinum í Jóhannesar
hvaða leiðir eigi að fara við
úr fátækt í þróunarríkjunu
er líka það mál sem er ei
ilvægast af þeim sem lig
fundinum.
Á fundinum í Ríó var
markmið að 0,7% af la
leiðslu iðnríkjanna færu til
aðstoðar á hverju ári. Það
hefur ekki náðst og raun
hlutfallið farið lækkandi
þegar Ríó-fundurinn var h
móti kemur að fjarfestinga
arríkjunum hafa aukist
Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þ
Hvernig á að
berjast gegn
fátækt í
heiminum?
Um 18% jarðarbúa, eða
hreinu vatni. Þetta á stó
lega úr sjúkdómum ein
væri að verjast
Eitt stærsta verkefni ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem
haldin verður í Jóhannesarborg 26. ágúst
til 4. september, er að finna leiðir til að tak-
ast á við fátækt í heiminum. Egill Ólafsson
telur að margir óttist að árangur af þessu
verkefni verði ekki sá sem að var stefnt.
1,2 milljarðar manna ha
við dollar (85 krónur) ti
færslu á dag og um helm
jarðarbúa hefur innan v
dollara á dag til framfæ
Um 1,1 milljarður mann
kost á hreinu drykkjarv
Um 2,4 milljarðar jarða
eiga ekki kost á fullnæg
hreinlætisaðstöðu.
Nærri 800 milljónir man
ekki að lifa eðlilegu hei
lífi vegna vannæringar.
Yfir 850 milljónir mann
ólæsar og óskrifandi.
Næstum 325 milljónir b
ekki í skóla.
Um 11 milljónir barna u
fimm ára aldri deyja ár
orsökum sem hægt er a
ast.
Um 36 milljónir manna
alnæmi.
Um 120 milljónir para s
nota getnaðarvarnir ha
aðgang að þeim.
HEILSUFARSLEGIR
HAGSMUNIR HEILDARINNAR
Samnorræn rannsókn á mataræðiÍslendinga, sem Manneldisráðsá um og fjallað var um í Morg-
unblaðinu í gær, leiðir í ljós að ein-
ungis einn af hverjum tíu Íslendingum
borðar grænmeti tvisvar á dag eða
oftar og hlutfall þeirra sem borða þá
fimm skammta af grænmeti og ávöxt-
um á dag sem eru hollustumarkmið
Manneldisráðs er jafnlágt. Könnunin
miðaði að því að kanna neyslu græn-
metis, ávaxta og fisks meðal Norður-
landabúa og Eystrasaltsþjóða, þar
sem nú er lögð áhersla á að auka
neyslu þeirra í öllum þessum löndum
af heilbrigðisástæðum.
Niðurstöður könnunarinnar benda
til þess að þó grænmetisneysla Íslend-
inga hafi aukist sé hún engan veginn
nógu mikil. Morgunblaðið hefur ítrek-
að lýst þeirri skoðun að hátt grænmet-
isverð á Íslandi hafi vegið þungt við að
draga úr grænmetisneyslu. Rannsókn
Manneldisráðs leiðir í ljós að neysla á
ávöxtum einkennist af áþekkum
áhrifaþáttum og neysla grænmetis að
því undanskildu að tekjur hafa ekki
áhrif – þeir sem eru tekjulægstir
borða ekki síður ávexti en þeir tekju-
hærri. Sú staðreynd er mjög athygl-
isverð í ljósi verðkönnunar ASÍ frá 19.
júní sl. þar sem borið var saman verð á
ávöxtum og grænmeti hér og í Eng-
landi, en könnunin leiddi í ljós að verð-
munur á algengum ávöxtum hér og er-
lends er mun minni en á grænmeti
sem í tíu tilfellum var meira en 200%
dýrara hér. Hátt verð á grænmeti
virðist því hafa letjandi áhrif á neyt-
endur og því er það mikilvægt hags-
munamál fyrir almenning að verð á
grænmeti hér verði sambærilegt við
það sem gerist í nágrannalöndunum.
Fábreytni í úrvali á grænmeti, nán-
ast engin hefð fyrir neyslu þess auk
þekkingarleysis á möguleikum þess í
matargerð eru einnig þættir sem leitt
hafa til þess að Íslendingar neyta
grænmetis í svo litlum mæli. Sú nið-
urstaða Manneldisráðs að langskóla-
gengnir og fólk á höfuðborgarsvæðinu
borði meira grænmeti en aðrir rennir
stoðum undir þessa kenningu, því
leiða má líkur að því að stærri hluti
langskólagengins fólk hafi verið lang-
dvölum erlendis og þannig kynnst
meiri fjölbreytni í mataræði en þeir
sem minni menntun hafa, auk þess
sem úrvalið af grænmeti er mun meira
á höfuðborgarsvæðinu en úti á lands-
byggðinni.
Eins og segir í greinargerð Mann-
eldisráðs um þessa hollustukönnun
eru „fáir stórtækir í neyslunni en að-
eins einn af hverjum tíu borðar græn-
meti tvisvar á dag eða oftar“. Þar seg-
ir einnig að það veki athygli að „hrátt
grænmetissalat verður oftar fyrir val-
inu en soðið eða matreitt grænmeti“,
sem bendir eindregið til þess að sú
hefðbundna neysla grænmetis sem er
svo ríkur þáttur í matarmenningu
annarra þjóða sé enn ekki þáttur í
neysluvenjum fólks hér á landi. Ef
veruleg aukning á að verða í græn-
metisneyslu þarf því ekki einungis að
gefa íslenskum neytendum kost á
ódýrara grænmeti heldur einnig um-
talsvert meiri fjölbreytni.
Íslensk matarmenning var vægast
sagt fábrotin allt fram á síðustu ár og
það skýtur mjög skökku við að á með-
an ekki hefur tekist að skapa aðstæð-
ur til þess að hin fjölskrúðuga mat-
argerð sem tengist grænmetisneyslu
annarra þjóða nái hér fótfestu, er
neysla á skyndibitafæði orðin
áhyggjuefni. Í frétt hér í blaðinu í
október í fyrra var greint frá því að ís-
lenskar fjölskyldur eyða nú meiru í
sælgæti en grænmeti, sem einnig seg-
ir sína sögu.
Þær niðurfellingar á tollum sem
urðu að veruleika fyrr á árinu virðast
ekki hafa haft jafnafgerandi áhrif og
vonir stóðu til því þó verð hafi lækkað
á allra algengustu tegundum hefur
vöruúrvalið – og þar með samkeppnin
– nánast ekkert aukist. Er ekki kom-
inn tími til að skapa þær markaðsað-
stæður innanlands sem leiða til þess
að heilsufarslegir hagsmunir í neyslu-
venjum heildarinnar nái fram að
ganga?
RÚSSNESK FLOTAHEIMSÓKN
Heimsókn rússneska tundurspill-isins Chabanenko og birgða-
skipsins Sergey Ocipov til Íslands er
táknræn fyrir þau miklu umskipti
sem orðið hafa í samskiptum Rúss-
lands við Vesturlönd á síðastliðnum
árum. Þrátt fyrir að Rússar hafi lengi
verið eitt mesta flotaveldi Norður-
Atlantshafsins er þetta einungis í
þriðja skipti sem rússnesk herskip
heimsækja íslenska höfn.
Áður hafa rússnesk herskip komið
hingað til lands 1871 og 1969.
Á meðan á heimsókninni stóð
skemmtu rússneskir sjóliðar Reyk-
víkingum með glæsilegum söng á
Ingólfstorgi. Þá léku áhafnir skip-
anna knattspyrnuleik við bandaríska
hermenn á Keflavíkurflugvelli og
Vladímír Dobroskochenko, vísiaðmí-
ráll og næstæðsti yfirmaður rúss-
neska Norðurflotans, átti þar einnig
fund með yfirmönnum bandaríska
varnarliðsins.
Þetta hefðu þótt tíðindi fyrir
nokkrum árum þar sem eitt af helstu
verkefnum varnarliðsins frá upphafi
hefur verið að fylgjast með ferðum
rússneska flotans og þá ekki síst
rússneskum kafbátum.
Á fundi með blaðamönnum í tund-
urspillinum lögðu þeir Alexander
Rannikh, sendiherra Rússa á Íslandi,
og Dobrokochenko áherslu á að
markmiðið með heimsókninni væri að
styrkja böndin milli Íslands og Rúss-
lands. Rannikh sagði heimsókn rúss-
neska vísiaðmírálsins á Keflavíkur-
flugvöll táknræna fyrir breytta
heimsmynd þar sem Bandaríkin og
Rússland störfuðu nú saman í barátt-
unni gegn alþjóðlegum hryðjuverk-
um.
Sú tíð er sem betur fer liðin að
Vesturlönd líti á Rússland sem ógn.
Nú þykir jafnsjálfsagt að rússneskt
herskip heimsæki Reykjavík og skip
frá einhverju NATO-ríkjanna.