Morgunblaðið - 23.08.2002, Side 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁKVEÐIÐ hefur verið að rífa húsið
að Framnesvegi 23 í Reykjavík að
kröfu byggingafulltrúans í Reykja-
vík. Fram kemur í gögnum frá lög-
reglu að húsið hafi verið tímabund-
inn staður heimilislausra auk þess
sem eldhætta er talin geta stafað af
því.
Um er að ræða lítið timburhús og
fastan ásteyptan bílskúr sem standa
á horni Framnesvegar og Öldugötu.
Segir í bréfi lögreglu til bygginga-
fulltrúa að húsnæðið sé mjög lélegt,
það skapi eldhættu og mikill sóða-
skapur sé af því. Þá er á það bent að
húsið hafi verið tímabundinn sama-
staður heimilislausra einstaklinga og
unglinga. Af útprentun úr dagbók
lögreglu má ráða að mikið hafi verið
um innbrot í húsið í gegnum tíðina
auk þess sem fjöldi útkalla hafi orðið
á staðinn vegna rúðubrota og
skemmda.
Í bréfi byggingafulltrúa til Skipu-
lags- og bygginganefndar Reykja-
víkur segir að húsið hafi staðið autt í
nokkur ár og unnið hafi verið að til-
lögugerð um byggingu á lóðinni án
þess að niðurstaða hafi fengist. Hins
vegar hafi lóðin verið til ama fyrir
nágranna „auk þess sem erfitt hefur
verið að halda útigangsfólki frá hús-
inu“.
Þrátt fyrir að sú vinnuregla sé við-
höfð að leyfa ekki niðurrif fyrr en
uppbyggingaráform liggja fyrir
samþykkti skipulags- og bygginga-
nefnd þá tillögu byggingafulltrúa að
krefjast niðurrifs hússins og hefur
eigandi þess samþykkt það.
Timburhús á horni Framnesvegar og Öldugötu rifið
Athvarf heimilislausra
sem skapar eldhættu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Húsið er sagt í niðurníðslu og til ama fyrir nágrannana en töluvert hefur verið um innbrot í það.
Vesturbær
Úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála hafa borist
þrjár kærur vegna deiliskipu-
lags Skuggahverfis sem sam-
þykkt var í borgarráði í apríl
síðastliðnum.
Um er að ræða þann hluta
hverfisins sem afmarkast af
Skúlagötu, Klapparstíg, Lind-
argötu og Frakkastíg. Er það
helst nýtingarhlutfall svæðis-
ins og hæð fyrirhugaðra
bygginga sem er gagnrýnt í
hinu nýja deiliskipulagi.
Að sögn Hjalta Steinþórs-
sonar hjá Úrskurðarnefnd
skipulags- og byggingarmála
mun nefndin í framhaldinu
afla sér frekari gagna um
málið og umsagna frá hags-
munaaðilum áður en úrskurð-
að verður. Hefur nefndin til
þess þrjá mánuði samkvæmt
reglugerð en þar sem fyrir-
liggjandi málafjöldi hjá nefnd-
inni er mikill segir Hjalti
mega búast við að afgreiðsla
málsins taki eitthvað lengri
tíma.
Deiliskipu-
lag kært
Skuggahverfi
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt tilboð Ásbergs ehf. í
gerð knattspyrnuvalla við
Fossaleyni í Grafarvogi. Upp-
hæð tilboðsins er tæpar 39
milljónir króna.
Að sögn Gísla Árna Eggerts-
sonar, aðstoðarframkvæmda-
stjóra Íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur, er um að
ræða tvö svæði við hliðina á
hinni nýju Egilshöll þar sem
hægt verði að leika knatt-
spyrnu útivið. Annars vegar
verði gerður malarvöllur í
fullri stærð og hins vegar grasi
lagt æfingasvæði.
„Þarna er verið að bæta við
íþróttasvæðið án þess þó að
vellirnir séu á vegum íþrótta-
hallarinnar sem slíkrar heldur
er þetta gert í samráði ÍTR og
Íþróttabandalags Reykjavík-
ur,“ segir Gísli. „Þetta mun
standa Fjölni og öðrum
íþróttafélögum til boða í fram-
tíðinni.“
Áformað er að framkvæmdir
við vellina verði í tveimur
áföngum en stefnt er að
lokafrágangi þeirra á næsta
ári.
Knatt-
spyrnuvell-
ir komi við
Egilshöll
Grafarvogur
BÆJARSTJÓRN Mosfells-
bæjar hefur samþykkt að
auglýsa breytingu á deili-
skipulagi svokallaðrar Kvía-
bryggju.
Um er að ræða svæði
gróðrarstöðvarinnar Mos-
skóga inni í Mosfellsdal. Að
sögn Tryggva Jónssonar bæj-
arverkfræðings hafa rekstr-
araðilar Mosskóga áhuga á að
byggja á svæðinu einnar hæð-
ar, 120 fermetra hús sem ætl-
að er undir veitingastarfsemi.
„Þeir hafa verið þarna á
sumrin með útimarkað og
þetta á að tengjast þeirri
starfsemi,“ segir Tryggvi og
bætir því við að í framtíðinni
sé með skipulaginu opnað fyr-
ir frekari uppbyggingu í
kringum gróðrarstöðina.
Veitingahús
við Mosskóga
Mosfellsbær
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
færslu á framkvæmdum í miðborg-
inni til að hraða endurgerð á hluta
Skólavörðustígs. Ekki er talið ráðlegt
að ljúka framkvæmdum við alla göt-
una á haustmánuðum.
Unnið er að endurgerð neðri hluta
Skólavörðustígs og í bréfi borgar-
verkfræðings til borgarráðs kemur
fram að gert sé ráð fyrir að fram-
kvæmdunum, sem ná upp að Týsgötu,
ljúki 15. september. Kemur fram í
bréfinu að óskað hafi verið eftir því að
endurgerð á ofanverðum Skólavörðu-
stíg upp að Skólavörðuholti yrði hrað-
að þannig að henni yrði lokið í haust.
Bent er á að áætlaður kostnaður
við slíka framkvæmd yrði 130–160
milljónir króna og að hún tæki 5–6
mánuði. Óheppilegt sé að vinna við yf-
irborðsfrágang í nóvember og desem-
ber og því sé ekki ráðlagt að fara í
framkvæmdina í heild á þessum tíma.
Dregið úr kostnaði
annars staðar
„Hins vegar væri mögulegt að taka
fyrir lítinn áfanga sem næði yfir
gatnamótin við Týsgötu. Slíkt verk
væri unnt að hefja eftir u.þ.b. 2 vikur
og stæði verkið í 3–4 vikur,“ segir í
bréfinu sem dagsett er 20. ágúst síð-
astliðinn.
Kemur fram að draga þyrfti úr
framkvæmdum annars staðar, t.d. á
Skólavörðuholtinu, yrði þetta ákveðið
til að heildarkostnaður miðborgar-
framkvæmda yrði ekki hærri en gert
er ráð fyrir í þriggja ára áætlun. Mælt
er með því að það sé gert og hefur
borgarráð sem fyrr segir samþykkt
það.
Endurgerð
á hluta
Skólavörðu-
stígs hraðað
Miðborg
FRÁGANGUR á endurbættu
Hafnarstræti í Reykjavík stendur
yfir og þessir fílefldu karlmenn
voru við kantsteinalögn er ljós-
myndari átti þar leið hjá. Vissara
er að hafa hallamál við höndina
og fleiri tól til að verkið heppnist
sem best.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hallamælt í Hafnarstræti
Miðborg
SKÓLASTJÓRI Selásskóla hefur
aflýst allri kennslu við skólann þar
til á miðvikudag í næstu viku sökum
þess að ekki hefur tekist að ljúka
gerð viðbyggingar við skólann sem
átti að vera lokið. Örn Halldórsson
skólastjóri segist harma mjög þessa
ákvörðun en við þessu hafi ekkert
verið að gera.
Í gær voru nemendur og foreldr-
ar boðaðir í skólann samkvæmt áður
auglýstri dagskrá þar sem ákvörð-
unin var tilkynnt. Örn segir að nem-
endur og foreldrar hafi sýnt skilning
á frestun á skólastarfi og að hann
hafi ekki heyrt neinar óánægjuradd-
ir hingað til. Börnin voru send heim
með miða frá skólanum þar sem
þeim er gert að mæta í skólann sam-
kvæmt stundatöflu nk. miðvikudag.
„Ég hafði spurnir af því að það
hefði mælst frekar illa fyrir þar sem
skólastarfi var frestað um dag og
dag. Þarna ákvað ég að taka skrefið
þetta langt og þá getur fólk gert
ráðstafanir fram að þeim tíma,“ seg-
ir Örn. Hann segir að kennsla muni
hefjast á miðvikudag, sama hvernig
ástandið verður.
Að hans sögn hefur legið í loftinu
um nokkra hríð að fresta yrði
kennslu um einhverja daga en hóp-
ur iðnaðarmanna er enn að störfum
í skólanum og á eftir að ljúka við
frágang á ýmsum lögnum og minni-
háttar smíðavinnu, auk þess sem
eftir er að þrífa skólann, að sögn
Arnar.
Í fyrradag skoðaði Gerður G.
Óskarsdóttir fræðslustjóri skólann
og í framhaldinu var haldinn fundur
með kennurum og starfsfólki skól-
ans þar sem sú ákvörðun var til-
kynnt að skólastarfi yrði frestað.
Eldri byggingin full
af kennslugögnum
Selásskóli verður einsetinn í
fyrsta sinn í vetur og er nýbygg-
ingin liður í einsetningu skólans.
Byggingin sem um ræðir er rúmir
1.500 m² að stærð en þar verður
kennslurými fyrir níu bekki, sam-
tals tæplega 200 nemendur, ásamt
skólasafni og tölvustofu.
Í skólanum eru alls 411 nemendur
en mikið af gögnum, sem nota á við
kennslu og voru í færanlegum
kennslustofum sem verða nú teknar
úr notkun að hluta, er sem stendur í
gömlu byggingunni, sem er yfirfull.
Til viðbótar er töluvert magn af nýj-
um húsgögnum, sem nota á í nýju
viðbyggingunni, geymt í gömlu
byggingunni.
Framkvæmdir við nýju skóla-
bygginguna hafa staðið í eitt ár og
segir Örn aðspurður að ýmsar dag-
setningar hafi verið nefndar um
hugsanleg verklok. Verkinu hafi
upphaflega átt að vera lokið í lok
júlí, þá um verslunarmannahelgi og
loks 15. ágúst.
Að sögn Arnar hefur verkið geng-
ið hraðar fyrir sig að undanförnu og
segir hann að loks sjái fyrir endann
á framkvæmdum. Örn segist bjart-
sýnn á að verkinu verði að fullu lokið
áður en nemendur mæta í skólann í
næstu viku.
Öllu skólastarfi í Selásskóla hefur
verið frestað fram á miðvikudag
Hópur iðnaðar-
manna enn að störf-
um í skólanum
Seláshverfi