Morgunblaðið - 23.08.2002, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 23.08.2002, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Austur-Skaftfellingar vígjaá morgun nýja miðstöðþekkingar, náms, rann-sókna og nýsköpunar í 2.400 fermetra húsi sem ber nafnið Nýheimar. Fjöldi iðnaðarmanna og starfsmanna stofnana sem verða með aðsetur í húsinu hafa lagt nótt við dag við að ljúka frágangi í hús- inu sem hefur risið frá grunni á um einu og hálfu ári. Nýheimar eru einhver stærsta bygging í Austur-Skaftafellssýslu. Framhaldsskólinn í Austur- Skaftafellssýslu fær alla efri hæð- ina í sinn hlut og teygir sig einnig niður á neðri hæðina. Á neðri hæð- inni er kaffistofa, matsalur og stór samkomusalur, sameinað bókasafn framhaldsskólans og almennings- bókasafn Austur-Skaftfellinga og frumkvöðlasetrið Nýheimabúðir. Þeim sem stunda rannsóknir, hyggja á nýsköpun eða eru með ómótaðar hugmyndir um nýja framleiðslu sem þeir þurfa aðstoð við að koma af stað, er boðið að sækja um pláss í Nýheimabúðum. Í boði er niðurgreitt skrifstofu- húsnæði, afnot af sameiginlegri fundaraðstöðu, kaffistofu og mat- sal. Frumkvöðlarnir munu geta sótt styrk og ráðgjöf frá Austur- landssetri Háskóla Íslands sem verður með aðsetur á neðri hæð- inni og hjá Þróunarstofu Austur- lands sem tekur þar til starfa á næstunni ásamt útibúi Hafrann- sóknastofnunar. Ætlunin er að skapa samfélag þar sem kennarar, nemendur, vísindamenn og frum- kvöðlar geta unnið saman og skipst á skoðunum. Eflir kraft og bjartsýni „Ég held að bygging Nýheima hafi mikla þýðingu fyrir byggð- arlagið. Í fyrsta lagi fer framhalds- skólinn í nýtt og rúmgott húsnæði en hann hefur verið í bráðabirgða- húsnæði allt frá stofnun. Í öðru lagi fær bókasafnið góða aðstöðu og þar verður jafnframt nútímalegt upplýsingaver. Loks verður Há- skóli Íslands með háskólasetur í Nýheimum sem og fleiri rannsókn- arstofnanir og síðast en ekki síst verður þar frumkvöðlasetur sem við bindum miklar vonir við,“ segir Albert Eymundsson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Hornafjar Framhaldsskólinn í Aust Skaftafellssýslu var áður í sem eru um 8 km fyrir utan ina á Höfn. Húsnæðið var l orðið ófullnægjandi og me flytja starfsemina inn í kja byggðarinnar er vonast til sæki þangað en áður. Albe óhugsandi annað en að skó muni eflast í nýju og betra Austur-Skaftfellingar vígja Nýheima sem hýsa Morgunblaðið/Sigu Hver hillan af annarri varð þéttskipuð bókum eftir að þær Ásdís Marteinsdóttir og Ragnhildur Guðm dóttir höfðu látið til sín taka á bókasafninu í vikunni. Albert Eymundsson Nýta verður mög ÞÓRIR Kolbeinsson, for-maður Félags íslenskraheimilislækna, segir aðskorts á heilsugæslulækn- um verði nú alls staðar vart og þó- nokkrir heilsugæslulæknar hafi sagt upp störfum. „Það vantar greinilega lækna á nokkra staði á landinu. Í Hafnarfirði hafa allir heilsugæslu- læknar sagt upp frá 1. júní og í Keflavík frá 1. maí. Þessir læknar vinna nú á uppsagnarfresti, sem bú- ið er að framlengja á báðum stöð- um,“ segir Þórir. Ragnheiður Haraldsdóttir, skrif- stofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, segir að búast megi við því að á næstu dögum og vikum hefjist við- ræður milli ráðuneytisins og heilsu- gæslulækna. Viðræður hafi legið niðri að und- anförnu vegna sumarleyfa, en nefnd sem skipuð hafi verið til að fara yfir allar hliðar málsins muni skila tillög- um til ráðherra mjög fljótlega í haust. Í framhaldi af því muni ráð- herra eflaust taka ákvörðun um hvort einhverjar breytingar verði gerðar á því kerfi sem við búum við. Þórir Kolbeinsson segir að fleiri læknar séu að fara í löng frí og þá sé alltaf sú hætta fyrir hendi að menn komi ekki til baka. Þórir segir að ekkert hafi gerst í samningaviðræð- um milli heilsugæslulækna og heil- brigðisráðuneytisins síðan í seinni hluta júní. „Félagsfundur í félagi íslenskra heimilislækna samþykkti í vor að skilyrði fyrir því að félagið tæki þátt í því að vinna að úrlausn í heilsu- gæslumálum með ráðuneytinu væri að ráðuneytið opnaði möguleika á að sérfræðingar í heimilislækningum fengju að starfa á sama hátt og aðrir sérfræðingar, samkvæmt gjald- skrársamingi. Þetta þýðir að menn gætu sett á stofn stofu og unnið eins og aðrir sérfræðingar, samkvæmt þeirra reikningsskilum og greiðslu- fyrirkomulagi,“ segir Þórir. Í framhaldinu hafi heilbrigðisráð- herra sent félaginu bréf og lýst því yfir að hann væri tilbúinn að beita sér fyrir ýmsum úrbótum til þess að efla stöðu heilsugæslunnar, þótt hann gengi ekki svo langt að sam- þykkja að gerðir yrðu gjaldskrár- samningar við heilsugæslulækna. Nokkrir fundir hafi verið haldnir eft- ir að bréf ráðherra var sent og hafi félagið að þeim loknum talið að búið væri að kynna vel óskir þess og að málið væri í höndum ráðuneytisins. Síðan þá hafi hins vegar ekkert gerst en nauðsynlegt sé að heilbrigðisráð- herra geri sér grein fyrir því að starfskjör heilsugæslulækna þurfi að vera sambærileg við kjör annarra sérfræðinga. „Við viljum alls ekki að heilsu- gæslustöðvar verði lagðar teljum að til þess að það ker í dag geti þrifist þurfi að ve leikar fyrir sérfræðinga í lækningum á að vinna bæði gæslustöðvum og að þeir kjósa geti jafnframt unnið s stæðir sérfræðingar. Þanni visst aðhald fyrir ríkið, þar höfum verið óánægðir m kjör á heilsugæslustöðvun vinnuskilyrði og launakjö Þórir. Höfum ekki áhug á einkarekstri Emil Sigurðsson, y heilsugæslunnar á Sólvang arfirði, segir að staðan heilsugæslulækna í Hafnar allir hafa sagt upp störfum uppsagnarfrestur læknan verið lengdur um þrjá m renni út í lok nóvember. E ræður hafi átt sér stað við r ið, en læknarnir hafi aug húsnæði í Hafnarfirði o nokkur tilboð sem verið sé a „Í næstu viku höfum við fundar með bæjarstjóra Viðræður heilsugæslulækna og heilbr Alls staðar á heilsug TENGSLIN VIÐ FÆREYJAR OG GRÆNLAND Tengsl okkar við Færeyjar ogGrænland eru mikilvæg. DavíðOddsson forsætisráðherra hef- ur undanfarna daga verið í Færeyjum. Í gær hófst opinber heimsókn hans þangað en á miðvikudag ræddi hann við Anfinn Kallsberg, lögmann Fær- eyja, og Jonathan Motzfeldt, formann grænlensku heimastjórnarinnar, í Þórshöfn um ýmis sameiginleg hags- munamál, þar á meðal nauðsyn þess að efla samgöngur milli Færeyja, Grænlands og Íslands, tolla, skatta- mál, Evrópumál og hvalveiðar. Í viðræðunum kom fram vandi Fær- eyinga og Grænlendinga á alþjóða- vettvangi. Hvorug þjóðin lítur svo á að hún geti gengið í Evrópusambandið á meðan fiskveiðistefna þess er óbreytt, þótt þær eigi þess kost þar sem þær heyra undir Dani, en þær geta hins vegar ekki gengið í EFTA vegna þess að þær eru ekki sjálfstæðar. Í máli Motzfeldts kom fram að hann teldi að mikilvægt væri fyrir löndin þrjú að standa saman gagnvart Evr- ópusambandinu, sem alltaf yrði stærra og stærra. „Við viljum ekki gleymast hér í Norður-Atlantshafinu,“ var haft eftir Motzfeldt í Morgunblaðinu í gær. Hluti af þeirri viðleitni að minna á eylöndin í Norður-Atlantshafi er hið fyrirhugaða vestnorræna menningar- setur Færeyja, Grænlands og Íslands, sem nú er verið að innrétta í gömlu pakkhúsi í Kaupmannahöfn, sem framvegis mun bera heitið Norður- bryggja. Auk þess að hýsa sendiráð Íslands og skrifstofur Færeyja og Grænlands verður í þessu gamla húsi frá 1776, þar sem skip í Grænlands- og Íslandssiglingum skipuðu upp til langs tíma, fjölbreytt menningarstarf- semi. Vigdís Finnbogadóttir, formað- ur stjórnar A.P. Møller-sjóðsins, sem hefur haft umsjón með fjármögnun verkefnisins, kynnti forystumönnum landanna þriggja hvar verkefnið er statt fyrir fund þeirra í Þórshöfn í Færeyjum á miðvikudagskvöld. „Þetta hús verður stolt Norður-Atl- antshafsins í Kaupmannahöfn,“ sagði Vigdís í samtali við Morgunblaðið. „Húsið mun skila því að menn verða miklu fróðari um þessi lönd, sjá að þau hafa sinn sjálfstæða karakter og eru spennandi.“ Forsætisráðherra bauð í gær Ís- lendingum búsettum í Færeyjum til móttöku og komu um 50 Íslendingar, en alls munu um 180 íslenskir ríkis- borgarar vera búsettir þar. Þessi tala ber vitni þeim nánu tengslum sem eru milli Færeyja og Íslands, en á Íslandi búa einnig margir Færeyingar og fjöldi Íslendinga er með færeyskt blóð í æðum. Þá má ekki gleyma hinum miklu tengslum þjóðanna í aldanna rás gegnum sjávarútveginn. Davíð Oddsson sagði í Morgun- blaðinu í gær að hann teldi að sam- starf Færeyja, Grænlands og Íslands myndi aukast á næstu árum og bætti við: „Ég held að það sé nauðsynlegt að það aukist og að skilningur samstarfs- landa okkar í Norðurlandasamstarfi aukist.“ Hagsmunir Norðurlandanna í Norður-Atlantshafi fara að mörgu leyti saman og því ber að leggja rækt við tengslin milli þeirra. ÖRYGGI Í UMFERÐINNI Kvöldið áður en umferðarátakiðSlysalaus dagur hófst varð sá sorglegi atburður að þrjár eldri kon- ur létust í hörðum árekstri í Rang- árvallasýslu. Þar með hafa 24 týnt líf- inu í umferðinni á þessu ári en það eru jafnmargir og létust í banaslys- um á öllu síðasta ári. Á fyrri hluta ársins létust 17 í umferðinni, sem eru fleiri en nokkru sinni fyrr á sama tímabili. Á síðastliðnum tíu árum (1992– 2001) létu 204 lífið í umferðarslysum. Árið 2000 voru skráð 8.000 umferð- arslys og óhöpp, þar af um 200 mjög alvarleg slys. Við þetta bætist gífur- legt eignatjón vegna umferðar- óhappa. Þótt einhverjar breytingar séu á tölum milli ára er sá tollur sem um- ferðin tekur til sín árlega alltof hár. Enginn getur breytt því nema öku- menn sjálfir. Átak lögreglunnar um slysalausan dag er góð áminning til ökumanna um að sýna aðgát við akstur. Þess er ekki síst þörf nú þegar skólar eru að hefj- ast á nýjan leik að loknu sumarfríi og þúsundir barna, mörg þeirra óvön umferðinni, fara að ganga eða hjóla í skólann. Á sama tíma eykst umferð til muna og þar með fjölgar einnig umferðaróhöppum. Þótt enn hafi ekki tekist að ná markmiðinu um slysalausan dag tekst þó vonandi að vekja ökumenn til umhugsunar um mikilvægi þess að fara varlega. Enda skiptir mestu máli að breyta hegðun ökumanna til lengri tíma litið. Tölfræðilegar upplýsingar um um- ferðarslys sýna fram á það með óyggjandi hætti að yfirgnæfandi meirihluti umferðarslysa verður vegna hegðunar ökumanna. Oftast er hraðakstri um að kenna en einnig má nefna ölvun við akstur, svefn og þreytu sem algengar orsakir alvar- legra slysa. Sláandi er hversu mikið er um að ungir og óreyndir ökumenn valdi slysum. Þá er það sorgleg stað- reynd að enn virðist það ekki vera ófrávíkjanleg regla að ökumenn og farþegar spenni bílbeltin þegar þeir setjast upp í bifreið. Í skýrslu Rann- sóknarnefndar umferðarslysa vegna banaslysa í umferðinni árið 2001 kemur fram að við mat á gögnum ár- anna 1998–2001 séu verulegar líkur á að 23 einstaklingar hefðu lifað slys af, jafnvel með litla áverka, ef þeir hefðu notað bílbelti. Við verðum að hafa það hugfast að í hvert skipti sem við setjumst upp í bifreið berum við ekki einungis ábyrgð á eigin öryggi og öryggi far- þega okkar heldur allra í umferðinni í kringum okkur. Umferðarslysum verður því miður aldrei útrýmt. Hins vegar getum við með hegðun okkar í umferðinni lagt okkar af mörkum til að fækka þeim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.