Morgunblaðið - 23.08.2002, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2002 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir þokka og leysir
flesta hluti vel. Einbeitnin
færir þér frama og gerir þér
kleift að afla fjár. Árið fram-
undan verður eitt það besta
sem þú hefur lifað.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú gætir lent í rifrildi við ást-
vin í dag. Það er freistandi að
sleppa skapinu lausu en
reyndu að hafa hemil á þér, af-
leiðingarnar yrðu ekki góðar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér finnst heimilisfólkið setja
þér skorður í dag. Þú vilt ekki
láta aðra segja þér fyrir verk-
um og þú þrjóskast því við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gættu þess að bregðast ekki
hvatskeytislega við þótt þér
finnist einhverjir tefja för
þína í dag. Það kynni að vera
að þú viljir undir niðri sleppa
við skyldur sem þér hafa verið
settar á herðar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert í uppreisnarhug og
kannt því að vilja eyða pen-
ingum aðeins til að sýna fram
á sjálfstæði þitt. En gættu
þess að fara ekki yfir strikið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér gæti tekist að losa þig við
ákveðnar hömlur í dag. En
með því kynnir þú að fá ein-
hvern upp á móti þér. Þú skalt
því vega og meta afleiðingarn-
ar vel.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Bilanir og tafir í vinnunni
valda þér erfiðleikum en þú
verður að læra að sætta þig
við óhöpp af þessu tagi, þau
eru óhjákvæmileg.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Viljir þú fara þínu fram gætir
þú átt von á umtalsverðri and-
stöðu. Einhverjir í kringum
þig eru líka í baráttuskapi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ef þú stendur uppi í hárinu á
valdamiklu fólki í dag getur
það haft afleiðingar eftir hálft
ár eða svo. Hugsaðu þig því
tvisvar um.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú vilt þróa líf þitt áfram með
einhverjum hætti. Þú sættir
þig ekki við hefðbundar að-
ferðir eða hugsun sem setur
þér og skoðunum þínum
skorður.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú færð ekki eitthvað sem þú
biður um í dag, peninga, hluti
eða aðstoð. Ekki reiðast og
sýndu yfirvegun í viðbrögð-
um.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir reiðst einhverjum
nákomnum. En þú skalt skoða
hug þinn og velta því fyrir þér
hvort reiðin hafi nokkurn til-
gang.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú verður að sætta þig við að
ekki gengur allt í dag eins og
þú vilt að það gangi. Hindr-
anir og rifrildi reyna verulega
á samningahæfileika þína.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
50 ára afmæli. Í dag,föstudaginn 23.
ágúst, er fimmtug Margrét
I. Jónsdóttir, Arnarhrauni
37, Hafnarfirði. Hún verð-
ur með boð fyrir vini og
vandamenn í Stjörnuheim-
ilinu, Garðabæ, laugardag-
inn 24. ágúst frá kl. 20.
GULL-
BRÚÐKAUP.
Í dag, föstudag-
inn 23. ágúst, eiga
fimmtíu ára brúð-
kaupsafmæli Einar
Guðnason og
Guðný Kristín
Guðnadóttir, Aðal-
götu 3, Suðureyri.
Þau verða að heim-
an.
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5
4. d4 Rf6 5. dxc5 Dxc5 6. Ra3
Bd7 7. Be3 Da5 8. Db3 Rc6 9.
0–0–0 e6 10. Rc4 Dc7 11. Rf3
Rg4 12. Rd4 Rxd4 13. Bxd4
b5 14. Re3 Rxe3 15. Bxe3
Hb8 16. Be2 Bc6 17. Bd4 a6
18. Hhe1 Be7 19. Bd3 0–0 20.
Be5 Da5 21. Bxb8 Hxb8
Staðan kom upp á kvenna-
móti sem lauk fyrir skömmu
í Stokkhólmi.
Christin Anders-
son (2.140) hafði
hvítt gegn Oks-
ana Vovk (2.077).
22. Hxe6! fxe6 23.
Dxe6+ Kf8 24.
Bxh7 Bf6 25.
Dg8+ Ke7 26.
Dxb8 Bxc3 27.
Dd6+ og svartur
gafst upp. Loka-
staða mótsins
varð þessi: 1.
Irina Tetenkina 7
v. af 9 mögu-
legum. 2. Dana
Reizniece 6½ v.
3.-4. Agnieszka Matras og
Ellen Hagesæther 6 v. 5.-6.
Anneli Dalmau og Oksana
Vovk 5 v. 7.-8. Eva Jiretorn
og Viktoria Johansson 4½ v.
9.-10. Christin Andersson og
Emilia Horn 4 v. 11.-12.
Sandra de Blecourt og Harpa
Ingólfsdóttir 3½ v. 13. Sus-
anne Berg 2½ v. 14. Adriana
Krzymowska 1 v. 4. umferð
Skákþings Íslands, landsliðs-
flokki, hefst í dag, 23. ágúst,
kl. 17.00 í íþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
ÚTI Á VÍÐAVANGI
Nú er það svo lífgandi að láta sig dreyma
um ljósið og vordegið heillandi bjart.
Hugurinn flýgur um fjarlæga heima
og forðast nú allt, sem er rotið og svart,
hann má sig ei binda við mannlífsins skugga
né myrkrið á rúmsins og tímanna glugga.
Í kvöldroðans glitrandi, gullfögru rósum
sjást glampar af dýrðinni úr ókunnum heim;
þeir renna frá ljósvakans óminnisósum,
ég ann þeirra fegurð – ég töfrast af þeim,
en get ekki lesið þær guðlegu rúnir,
sem geislarnir rita á skýjanna brúnir.
- - -
Guðmundur Gíslason Hagalín
MUNURINN á sveita-
keppni og tvímenningi end-
urspeglast í spilum af þess-
um toga:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ K108
♥ G95
♦ DG4
♣ÁK102
Suður
♠ ÁG9
♥ Á4
♦ Á1098
♣DG93
Suður vekur á einu grandi
og norður hækkar í þrjú slík.
Vestur kemur út með hjarta-
þrist, fjórða hæsta, nían úr
blindum, en austur lætur
tíuna. Það var og.
Sagnhafi horfir á 8–12
slagi eftir því hvernig landið
liggur. Það er sjálfsagt að
dúkka fyrsta hjartaslaginn
og austur spilar þá hjarta-
kóngi, en vestur fylgir með
tvistinum. Hvernig myndi
lesandinn nú spila, annars
vegar í tvímenningi og hins
vegar í sveitakeppni?
Ef austur á tígulkóng eru
11 slagir öryggir og sá tólfti
líklegur með því að finna
spaðadrottninguna í enda-
stöðunni. Í tvímenningi kem-
ur því ekki annað til greina
en að svína í tígli. Og taka því
með jafnaðargeði þegar spil-
ið tapast í svona legu:
Norður
♠ K108
♥ G95
♦ DG4
♣ÁK102
Vestur Austur
♠ 765 ♠ D432
♥ D8732 ♥ K106
♦ K3 ♦ 7652
♣865 ♣74
Suður
♠ ÁG9
♥ Á4
♦ Á1098
♣DG93
Á hinn bóginn er til væn-
leg leið að níu slögum án
þess að svína spili. Suður
tekur þrjá slagi á lauf og
geymir ásinn í borði. Spilar
sér svo út á hjartagosa og
lætur vestur taka þrjá slagi á
litinn. Úr blindum fara tveir
tíglar, en heima hendir sagn-
hafi tveimur tíglum og ein-
um spaða. Vestur þarf að
spila frá tígulkóng eða finna
spaðadrottninguna. Þannig
ætti að spila í sveitakeppni.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Námskeið um hvernig má bæta samskipti í
sambúð, á vinnustað og í fjölskyldunni verður
haldið laugardaginn 31. ágúst á Hótel Loftleið-
um í fundarherbergi Flóa
á 4. hæð kl. 13.30—17.30
Frekari uppl. og skráning í síma 533 6325.
Rúnar Guðbjartsson, sálfræðingur.
Mannleg samskipti
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 8.557 kr. til styrktar Rauða
krossi Íslands. Þær heita Inga Rán, Gerður og Sunna Mjöll.
Ef sunnudagsblaðið stækk-
ar meira verður Jónas að fá
sér stærri hund!
BANDARÍSKU spilararnir
Becky Rogers og Jeff Meckstroth
unnu heimsmeistaramótið í para-
keppni sem fór fram í Montreal í
Kanada í byrjun vikunnar. Frakk-
arnir Babette Hugon og Jean Jac-
ques Palau enduðu í 2. sæti og Dan-
irnir Jens og Sabine
Auken í þriðja sæti.
Meckstroth er marg-
faldur heimsmeistari í
brids en þetta er fjórða
keppnisformið sem
hann hreppir heims-
meistaratitil í. Áður
hefur hann orðið heims-
meistari og ólympíu-
meistari í sveitakeppni
og heimsmeistari í opn-
um flokki í tvímenningi.
Sveitarfélagi hans til
margra ára, Bobby
Wolff, hefur þó náð
betri árangri því hann
hefur unnið HM í fimm
mismunandi keppnis-
formum. HM og ólymp-
íumót í sveitakeppni, HM í tvímenn-
ingi, HM í parasveitakeppni og HM í
sveitakeppni öldunga.
Mótið í Montreal er opið heims-
meistaramót og er keppt í para-
keppni þar sem karl og kona spila
saman, opnum flokki og kvenna-
flokki í tvímenningi og sveitakeppni,
ungmennakeppni og einnig sérstakri
þrautakeppni þar sem 20 valdir spil-
arar glíma við ýmsar spilaþrautir.
Enginn keppandi er frá Íslandi en
Hjördís Eyþórsdóttir, sem býr í
Bandaríkjunum og er þar atvinnu-
maður í brids, spilaði í parakeppn-
inni ásamt eiginmanni sínum, Curtis
Cheek, og þau enduðu í 50. sæti af
434 pörum.
Vörnin er erfið
Þetta spil réð nokkru um lokaröð-
ina í parakeppninni:
Vestur gefur, AV á hættu
Norður
♠ 65
♥ K9742
♦ G5
♣ÁG85
Vestur Austur
♠ – ♠ ÁD107
♥ G53 ♥ ÁD106
♦ 1043 ♦ D987
♣KD109732 ♣6
Suður
♠ KG98432
♥ 8
♦ ÁK62
♣4
Við eitt borðið sátu Meckstroth og
Rogers NS og Aukenhjónin AV. Þar
opnaði Jens í vestur á 3 laufum sem
norður og austur pössuðu en
Meckstroth í suður stökk í 4 spaða.
Þá doblaði Sabine í austur skiljan-
lega.
Vestur spilaði út laufakóng sem
Meckstroth tók með ás. Hann spilaði
spaða á níuna og síðan hjartaáttunni
sem austur fékk á tíuna. Sabine tók
nú spaðaásinn og reyndi hjartaás.
Meckstroth trompaði, tók spaða-
kóng og spilaði meiri spaða sem Sab-
ine fékk á drottninguna.
Hún varð nú að gefa blindum slag
og hefði getað hnekkt spilinu með
því að spila litlu hjarta
á kóng blinds. Sagn-
hafi hefði orðið að gefa
tígulslag í lokin. En
hún spilaði þess í stað
tígli sem Meckstroth
gat hleypt á gosann og
hent síðasta tíglinum í
hjartakóng. 590 til NS
og mikið af stigum.
En þó ekki öll því
Frakkarnir Hugon og
Palau unnu einnig 4
spaða doblaða. Útspilið
var það sama en Palau
trompaði lauf í öðrum
slag og tók næst ÁK í
tígli og trompaði tígul í
blindum. Enn kom lauf
og ef austur hendir
tíguldrottningunni tapar sagnhafi
spilinu. En austur tímdi ekki drottn-
ingunni og henti hjarta í staðinn. Nú
gat Palau trompað síðasta tígulinn í
borði og trompað enn eitt lauf heim.
Hann spilaði sig út á hjarta og aust-
ur fékk slaginn og spilaði meira
hjarta. Það trompaði sagnhafi, sem
var hans 9. slagur og hann átti nú
eftir KG9 í trompi og hlaut að fá 10.
slaginn á spaða.
Bill Gates í eldlínunni
Það hefur að vonum vakið athygli í
Montreal að Bill Gates, stjórnarfor-
maður bandaríska hugbúnaðarfram-
leiðandans Microsoft, tók þátt í
paramótinu ásamt bandarísku lands-
liðskonunni Sharon Osberg. Þau
urðu í 213. sæti í undankeppninni og
komust ekki í úrslit.
Gates hefur mjög gaman af að
spila og spilar oft við Osberg, kan-
adíska spilarann Fred Gitelman og
bandaríska kaupsýslumanninn
Warren Buffett.
Gates hélt m.a. blaðamannafund á
mótsstað ásamt José Damiani, for-
seta Alþjóðabridssambandsins. Á
blaðamannafundinum sagðist Gates
taka brids mjög alvarlega og hefði
gaman af að spila á móti meisturum.
„Þegar ég spila spil vel er það
ánægjulegt og örvandi. Ég ætla mér
að bæta mig í spilinu á næstu árum
og vonast til að verða góður spilari á
mælikvarða áhugamanna,“ sagði
Gates.
Meckstroth með
enn einn heims-
meistaratitilinn
Brids
Opna heimsmeistaramótið í brids er hald-
ið í Montreal dagana 16.–31. ágúst.
Heimasíða mótsins er á slóðinni http://
www.worldbridge.org/tourn/
Montreal.02/Montreal.htm
Guðm. Sv. Hermannsson
Bill Gates við spila-
borðið í Montreal.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 20. júlí sl. af Séra Knut Kal-
destad, í Sandane í Noregi, þau Margunn Rauset og Örn
Markússon. Heimili þeirra er í Bergen.
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Stretchbuxur kr. 2.90
Konubux r frá kr. 1.790
ragtir, kjólar,
blús ur og pils.
Ódýr nát fatnaMoggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
Hlutavelta