Morgunblaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 38
FRÉTTIR
38 SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði!
FRANZ@holl.is
Hóll — Alltaf
rífandi salaAGUST@holl.is
FJÖLDI EIGNA TIL
SÖLU OG LEIGU!
Ekki hika við að hringja í
okkur félagana,
Franz, gsm 893 4284,
Ágúst gsm, 894 7230.
Fasteignamiðlun Vesturlands - sími 431 4144
Akranes
Opið hús sunnudaginn
15. sept. frá kl. 14-18
Vesturgata 160, Akranesi
231 m² einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 22 m² innb. bíl-
skúr. 5 svefnh., sólstofa og svalir við stofu. Gróinn og fallegur
garður sunnanvert við húsið. Góð eign á mun betra verði en á
höfuðborgarsvæðinu - þó einungis rúman hálftíma í burtu. Skipti
á eign í Reykjavík eða Akranesi koma til greina.
Nánari upplýsingar á mbl.is og hjá Fasteignamiðlun Vestur-
lands, fastvest@simnet.is, s. 431 4144.
Opið hús í Álakvísl 84
Glæsileg og björt 4-5 herbergja íbúð á
2 hæðum með sérinngangi ásamt bíla-
geymslu m. sérstæði (bás). Góðar inn-
réttingar, parket á gólfum.
Húsið er staðsett innst í botnlanga.
Íbúð sem vert er að skoða.
Ásett verð 16.400.000.
- Stuttur afhendingartími.
Hjördís og Valgerður taka vel á móti
ykkur með heitt á könnunni.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ehf.
Sími 562 4250, Borgartúni 31
Til hamingju Amalía 10 ára,
Viktor, 5 ára, og Aron Freyr,
2 ára, með nýju íbúðina!
Við óskum Amalíu, Viktori, Aroni, pabba
og mömmu til hamingju með nýja
húsnæðið í Stífluseli í Reykjavík.
Hátún 2, Bessastaðahreppi
Opið hús frá kl. 14-17
Glæsilegt og afar vandað 236 fm tvílyft einbýlishús með innbyggðum
bílskúr. Á neðri hæð eru stór forstofa, sjónvarpsskáli, gesta wc, afar
rúmgott eldhús með góðri borðaðstöðu, þvottaherb. m. bakútgangi,
stórar stofur og sólskáli m. hita í gólfi. Uppi 4 góð svefnherb. og glæsil.
flísal. baðherb. Suðursvalir út af hjónaherb. Vandaðar innréttingar og
gólfefni. Falleg, viðhaldslítil, ræktuð lóð. Hiti í innkeyrslu. Áhv. byggsj.
6,1 millj.
Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-17
Verið velkomin.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Vorum að fá í sölu fallega 97
fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð í
þessu fallega fjölbýli. Þrjú
svefnherbergi og rúmgóð
stofa. Yfirbyggðar ca 14 fm
svalir. Þvottahús innan
íbúðar. Sameign öll nýl.
tekin í gegn og hús klætt að
utan með viðhaldsfrýrri ál
klæðningu. GETUR LOSNAÐ FLJÓTLEGA. Verð 10,6 millj.
Guðmundur og Gréta sýna íbúðina í dag,
sunnudag, frá kl. 13.00–16.00.
OPIÐ HÚS
TORFUFELL 50 - 4ra HERB. - 3. HÆÐ
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - 570 4810
WWW.EIGNAVAL.IS
OPIÐ Í DAG MILLI KL. 12 OG 14
Einbýlis-, rað-, parhús
KJARRMÓAR 46 -
OPIÐ HÚS Í DAG
Vorum að fá í sölu sérlega fallegt og vel skipulagt
140 fm raðhús með innbyggðum bílskúr á þessum
vinsæla stað. Glæsilegar innréttingar. Parket og
flísar. Björt og góð stofa með mikilli lofthæð auk
20 fm millilofts. Nýendurnýjaður garður. Stutt í alla
þjónustu. Opið hús í dag milli kl. 14 og 17. Heimir
og Halldóra taka vel á móti ykkur. Verð 19,7 m.
(3030)
3 herbergja
SÓLTÚN
Vorum að fá glæsilega 103 fm íbúð á jarðhæð í
lyftuhúsi. Stór parketlögð stofa, borðstofa. 2 góð
svefnherbergi. Mahóní-fataskápar. Baðherbergi
flísalagt í hólf og gólf. Mahóní-eldhúsinnrétting.
Gaseldavél. Þvottah. innan íbúðar. Sér hellulögð
verönd. Íbúð í hæsta klassa. Áhv. 5,8 millj. Verð
18,3 m. (3244)
2 herbergja
KLEPPSVEGUR -
LAUS - STRAX
Mjög björt og góð 38 fm 1-2 herb. íb. í stúdíó-stíl á
1. hæð. Parket og flísar á gólfum. Baðherb. flísal í
hólf og gólf m. sturtukl. Vönduð tæki. Ágæt eldh.-
innr. Áhv. 3,4 m. Verð 6,9 m. (3073)
FURUGRUND 81 -
OPIÐ HÚS Í DAG
Virkilega smekkleg 57,6 fm 2ja herb. íbúð á 2.
hæð. Parket og flísar. Góðar innréttingar. Gott
skipulag. Eign á frábærum stað alveg við Fossvogs-
dal. Opið hús í dag milli kl. 14 og 16. Sara tekur vel
á móti ykkur. Áhv. 5,3 m. Verð 9,9 m. (3108)
Hæðir
RAUÐALÆKUR 15 -
OPIÐ HÚS Í DAG
Björt og smekkleg 124 fm íbúð á efstu hæð í litlu
fjölbýli. 3 góð svefnherbergi. Tvær samliggjandi
stofur. Hátt til lofts. Rúmgott eldhús. Þvottah. inn-
an íbúðar. Góðar suðursvalir. Opið hús í dag á milli
kl. 14 og 16. Áhv. 3,9 m. Verð 15,9 m. (3020)
HEIMILI og skóli – landssamtök
foreldra – hleypa af stokkunum nú í
september stóru Evrópuverkefni
sem stendur næstu 20 mánuði.
Verkefnið fellur undir áætlun Evr-
ópusambandsins um örugga net-
notkun og fjármagnar Evrópusam-
bandið verkefnið með því að leggja
til þess 1,37 millj. evrur.
SAFT stendur fyrir Safety and
awareness for tweens og er verk-
efnið uppbyggt af tveimur megin-
þáttum: Annar er umfangsmikil
könnun á áhættuhegðun barna við
notkun Netsins og þekkingu for-
eldra á netnotkun barna sinna.
Hinn er upplýsingaherferð meðal
almennings byggð á niðurstöðum
könnunarinnar. Heimili og skóli
mun leita samstarfs við þá aðila á
Íslandi sem veita Internettengingu
til að tryggja að upplýsingar um
örugga netnotkun nái til þess mark-
hóps sem leitað er eftir, það er
þeirra sem nota Netið.
Að verkefninu standa auk Heim-
ilis og skóla stofnanir í Danmörku,
Svíþjóð, Noregi og á Írlandi. Verk-
efnið er styrkt af sjóðum Evrópu-
sambandsins sem ætlaðir eru til að
auka örugga netnotkun. Styrkur til
verkefnisins í heild nemur 1,37
millj. evrum. Ef reiknað er með
framlagi samstarfsaðilanna til við-
bótar má ætla að heildarverðmæti
verkefnisins verði um 2,7 millj. evr-
ur.
„Internettenging heimila á Ís-
landi er líklega ein sú mesta í heim-
inum. Íslendingum er því mikill
fengur að þessu verkefni og könn-
uninni sem það innifelur. Þegar nið-
urstöður úr könnuninni liggja fyrir
verður auðveldara að útbúa upplýs-
inga- og kennsluefni sem tekur á
vandanum þar sem hann raunveru-
lega er en ekki þar sem við höldum
hann vera eins og nú er gert. Það
kemur síðan í hlut Íslands og Ír-
lands, sem framlag til verkefnisins,
að útbúa kennslupakka fyrir kenn-
ara, foreldra og nemendur,“ segir í
fréttatilkynningu.
Verkefni til
að auka ör-
yggi í vef-
notkun
KRABBAMEINSFÉLAG Reykja-
víkur hefur um árabil haldið nám-
skeið í reykbindindi. Þann 23. sept-
ember hefst námskeið sem mun
standa yfir í fimm vikur. Á nám-
skeiðinu er m.a. fjallað um reyklaus
svæði, fráhvarfseinkenni, langvar-
andi afleiðingar tóbaksneyslu, orsök
tóbaksfíknar, streitu, hreyfingu og
mataræði.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er
Alda Ásgeirsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og fræðslufulltrúi hjá Krabba-
meinsfélagi Reykavíkur.
Skráning er á alda@krabb.is
Námskeið í
reykbindindi
NÁMSKEIÐ í hugrænni atferlis-
meðferð við þunglyndi og tvískauta-
röskun verður haldið þriðjudaginn
17. september kl. 9-17 í sal Norræna
hússins.
Kennarinn Ed Craighead er pró-
fessor í klíniskri sálarfræði við Uni-
versity of Colorado í Boulder og er
auk þess þekktur vísindamaður.
Hann hefur verið virkur í rannsókn-
um og skrifað fjölda greina og bóka
um viðfangsefnið sitt. Hann hefur
ásamt Eiríki Erni Arnarsyni sál-
fræðingi unnið að rannsóknum á fyr-
irbyggjandi þáttum við þunglyndi
hjá börnum og unglingum. Skráning
er á skraning@medferd.com
Námskeið í
hugrænni at-
ferlismeðferð