Morgunblaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BYKO opnaði nýtt 7.000 fermetra
verslunarhúsnæði í Breiddinni í
Kópavogi í gær. Með tilkomu versl-
unarinnar er heildargólfflötur
BYKO í Breiddinni orðinn um 20
þúsund fermetrar og segir í frétta-
tilkynningu að um stærstu bygg-
ingavöruverslun landsins sé að
ræða.
Timburverslun BYKO er á um 10
þúsund fermetrum er er nánast allt
byggingarefni undir þaki þar sem
viðskiptavinir geta ekið inn og í
gegn á bílum sínum og afgreitt sig
sjálfir en einnig er hægt að fá að-
stoð frá afgreiðslufólki verslunar-
innar.
Þá verður vöruúrval í versluninni
aukið, afgreiðslutími lengdur, við-
skiptavinir geta keypt léttar veit-
ingar í nýrri kaffiteríu, sér-
inngangur verður fyrir
iðnaðarmenn með betra aðgengi
fyrir þá og komið hefur verið fyrir í
versluninni barnahorni með leik-
tækjum.
Morgunblaðið/Sverrir
Horft yfir hluta nýju verslunarinnar en Byko er nú með 20 þúsund fermetra verslunarhúsnæðis í Breiddinni.
Ný verslun
hjá BYKO
Hér má sjá Þórð Magnússon stjórnarmann, Jón Helga Guðmundsson
forstjóra, Sæmund Guðmundsson, sem var einn fyrsti viðskiptavinurinn
þegar BYKO opnaði fyrst í Kópavogi árið 1962, og Eggert Kristinsson
verslunarstjóra skoða bækling sem gefinn var út í tilefni af opnuninni.
Morgunblaðið/Sverrir
Það nýmæli er að viðskiptavinir geta ekið í gegn um timburverslunina og afgreitt sig sjálfir en einnig geta þeir
fengið aðstoð afgreiðslufólks. Þessir viðskiptavinir hafa hins vegar valið að bera timbrið út í kerru.
GUÐMUNDUR Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsugæslunnar í
Reykjavík, HR, tekur í meginatrið-
um undir niðurstöðu stjórnsýsluút-
tektar Ríkisendurskoðunar á HR,
þess efnis að núverandi fastlauna-
kerfi heilsugæslulækna sé talið
óheppilegt. Guðmundur gerir þó at-
hugasemdir við útreikning Ríkisend-
urskoðunar á einingaverði þjónustu
HR sem hann telur of hátt.
„Við erum að sjálfsögðu ánægðir
með að Ríkisendurskoðun skuli
óbeint leggja blessun sína yfir þá
stefnu sem gilt hefur í rekstri HR að
lokinni viðamikilli stefnumótun,“
segir Guðmundur. „Ríkisendurskoð-
un tekur í raun undir hugmyndir
okkar um hvernig eigi að yfirvinna
þá erfiðleika sem heilsugæslan sem
hefur átt við að etja undanfarna
mánuði og eru tilkomnir vegna fast-
launakerfisins.
Það gætir hins vegar misskilnings
hjá Ríkisendurskoðun hvað snertir
kostnaðarþróunina hjá HR. Það
vantar töluvert upp á að skýrsla Rík-
isendurskoðunar sýni rétta mynd af
henni, þar sem mörg verkefni hafa
flust til okkar frá öðrum stofnunum
milli 1997 og 2001. Við höfum m.a.
tekið yfir verkefni frá Landspítalan-
um, Tryggingastofnun ríkisins og
heilbrigðisráðuneytinu. Kostnaðar-
aukning okkar af aukinni starfsemi
er ekki nema um 15% en ekki 38% á
þessu tímabili. Inn í 15% kostnaðar-
aukninguna reiknast þrjár nýjar
heilsugæslustöðvar og aukning í
heilsuvernd og hjúkrun.“
Ríkisendurskoðun kemst að þeirri
niðurstöðu að einingaverð þjónustu
HR hafi hækkað á umræddu tímabíli
og sé nú 3.000–3.500 krónur auk þess
sem biðtími hafi lengst, m.a. vegna
aukins frítökuréttar lækna og minni
tíma sem þeir verji í að sinna al-
mennri móttöku sjúklinga en áður.
Þá sé hverjum sjúklingi ætlaður
lengri viðtalstími en áður sem skýri
að hluta hækkandi einingaverð. „Ég
hef athugasemdir við útreikning
Ríkisendurskoðunar á einingaverð-
inu og tel það um 500–1.000 krónum
of hátt. Ef ég beiti einingaverði rík-
isendurskoðunar á einstakar heilsu-
gæslustöðvar, fæ ég út hærri heild-
arrekstrarkostnað en í reynd hefur
kostað að reka þær og það getur ekki
passað.“
Framkvæmdastjóri Heilsugæslu
Reykjavíkur um stjórnsýsluúttekt
Sammála Ríkis-
endurskoðun en
telur einingaverð
of hátt reiknað
HREYFILSEINVÍGI þeirra Tomas
Orals og Stefáns Kristjánssonar
hófst í gær í Þjóðarbókhlöðunni.
Oral stýrði hvítu mönnunum í
fyrstu skákinni og lék Svavar Guð-
mundsson, formaður taflfélags
Hreyfils, fyrsta leikinn fyrir hann.
Tefldar verða sex skákir í einvíg-
inu sem lýkur 19. september. Önn-
ur skákin hefst klukkan 12 í dag og
á morgun verður teflt klukkan 16.
Stefán Kristjánsson er yngsti al-
þjóðameistari Íslands í skák og
Tomas Oral er sigurvegari
Símaskámótsins – minningarmóts
Dans Hanssonar.
Morgunblaðið/Sverrir
Stefán Kristjánsson (t.h.) og Tomas Oral tilbúnir í fyrstu skákina. Svav-
ar Guðmundsson, formaður Taflfélags Hreyfils, leikur hér fyrsta leik-
inn að viðstöddum Hrafni Jökulssyni (t.v.) og Einari S. Einarssyni.
Hreyfilseinvígið hafið
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra segir ekki þjóna tilgangi sín-
um að lögfesta hámarksbiðtíma
sjúklinga eftir læknisaðgerðum ef
ekki sé búið að útvega nauðsynlega
fjármuni til að hrinda því í fram-
kvæmd. Hann segist vilja vinna að
því að útvega fé til að stytta biðlista
en kveðst ekki vilja standa að löggjöf
um hámarksbið ef hann geti ekki
staðið við hana vegna fjárskorts.
Eins og fram hefur komið í blaðinu
telur Ásta R. Jóhannesdóttir alþing-
ismaður að lögfesta beri hámarksbið
sjúklinga eftir læknisaðgerðum og
Jónína Bjartmarz alþingismaður
sagði í Morgunblaðinu í gær að í heil-
brigðisáætlun sem Alþingi sam-
þykkti á síðasta ári kæmi fram að
setja skyldi reglur um biðlista sjúk-
linga og biðtíma með að markmiði að
hámarksbið yrði ekki lengri en 3–6
mánuðir. Hún sagði að stöðugt væri
unnið að því að stytta alla bið eftir
heilbrigðisþjónustu.
Jón Kristjánsson segir mikilvægt
að gleyma því ekki að engir biðlistar
séu í dag vegna hjarta- eða krabba-
meinsaðgerða. ,,Engu að síður eru
erfiðir biðlistar m.a. vegna bæklun-
arlækninga, en þeir hafa styst,“ seg-
ir hann. ,,Ef ætti hins vegar að lög-
binda t.d. þriggja mánaða
hámarksbiðtíma er það spurning um
fjármuni. Við höfum mikla afkasta-
getu, ágætan mannskap og góð tæki
og auðvitað væri æskilegt að geta
nýtt skurðstofurnar til hins ýtrasta
en það er ekki hægt að horfa framhjá
því að við þurfum meiri fjármuni til
að leysa þennan vanda. Þar stendur
hnífurinn í kúnni. Ég vil vinna að því
að reyna að fá í þetta peninga en vil
ekki setja löggjöf nema ég sjái fram
á að ég geti staðið við hana.“
Þýðingarlaust að setja lög
nema fjármunir fáist
Heilbrigðisráðherra um hámarksbiðtíma sjúklinga
ÞAÐ var mikið um
að vera í Grafarvog-
inum í gær þegar
íbúar þar héldu
hverfishátíð sína.
Þetta var í fimmta
sinn sem Graf-
arvogsdagurinn er
haldinn hátíðlegur.
Meðal þess sem var
á dagskrá dagsins
var opið hús í Borg-
arholtsskóla þar sem
listamenn, félög og
fyrirtæki í hverfinu
kynntu starfsemi
sína en hér er það
Helena Einarsdóttir
sem greiðir Lísu
Rún Kjartansdóttur
í tilefni dagsins.
Greitt á Grafarvogsdegi
Morgunblaðið/Jón Svavarsson