Morgunblaðið - 06.11.2002, Page 6

Morgunblaðið - 06.11.2002, Page 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í samningnum við Vaðhorn er kveðið á um að fyrirtækið tvöfaldi í með- förum sínum þann byggðakvóta sem það fær til ráðstöfunar. Meirihluti sveitarstjórnarinnar telur nú að Vað- horn hafi ekki uppfyllt þau skilyrði sem kveðið var á um varðandi nýt- ingu byggðakvótans, enda aðeins unnið úr um 205 tonnum af fiski á síð- asta ári. Því hefur sveitarstjórnin farið fram á það við Byggðastofnun að samningnum við Vaðhorn verði sagt upp og að kvótinn verði auglýst- ur til umsóknar á ný. Klárlega uppfyllt skilyrði Þóra Kristjánsdóttir, einn eigenda Vaðhorns, segir að fyrirtækið hafi klárlega uppfyllt þau skilyrði sem gerð voru um meðferð byggðakvót- ans. Fyrirtækið hafi tekið á móti tæpum 238 tonnum af fiski á síðasta fiskveiðiári en þar af hafi um 30 tonn af undirmálsfiski og steinbít farið á fiskmarkað, enda ráði fyrirtækið ekki við að vinna smáfisk. Jafnframt eigi eftir að vinna um 80 tonn af ufsa í skreið en tíðarfar og aflabrögð hafi verið óhagstæð á liðnu hausti til slíkrar verkunar. Búið sé að undirrita samning við útgerð á Seyð- isfirði um að leggja til það hráefni sem þarf til verkunarinnar og muni það berast vinnslunni á næstu vikum. Það fari þó vitanlega eftir gæftum og hagstæðu veðurfari til skreiðarverk- unar. Þar með sé búið að uppfylla þau skilyrði sem samningurinn kveði á um. Hún segir að Byggðastofnun hafi verið gerð grein fyrir þessu og stofnunin hafi ekki gert athugasemd- ir við þessa skipan mála. Þóra segir að starfsemi félagsins skapi 8 til 12 manns atvinnu á Fá- skrúðsfirði. „Okkur er óskiljanlegt hvers vegna forráðamenn sveitarfé- lagsins gera þessi mál ítrekað að þrætuepli. Við höfum klárlega staðið við okkar hluta samningsins og mun- um gera það áfram,“ segir Þóra. Deilt um meðferð umsókna Deilurnar um byggðakvótann á Fáskrúðsfirði hófust strax við fyrstu úthlutun kvótans vegna meðferðar á þeim fjórum umsóknum sem bárust innan tilskilins umsóknarfrests. Fjórum dögum eftir að umsóknar- fresti lauk tók sveitarstjóri Búða- hrepps við fimmtu umsókninni og meirihluti sveitarstjórnar, ásamt sveitarstjóra, mat hana jafngilda öðrum umsóknum. Þetta vakti hörð viðbrögð annarra umsækjenda sem kváðust hafa opinberað öll sín gögn í trausti þess að umsóknarfrestur væri liðinn. Sveitarstjórninni var sent mótmælabréf, undirritað af þeim fjórum aðilum sem skilað höfðu inn umsóknum á réttum tíma. Meiri- hluti sveitarstjórnar úthlutaði Loðnuvinnslunni hf. og Skútuklöpp ehf. kvótanum. Byggðastofnun gerði athugasemd við þá úthlutun og í framhaldi af því valdi meirihlutinn sér óvilhallan ráðgjafa til að taka út umsóknirnar. Í framhaldi af þeirri ráðgjöf var Vaðhorni úthlutað kvót- anum. Ekki gert ráð fyrir miklum breytingum Stefán Þórarinsson, hjá ráðgjafa- fyrirtækinu Nýsi, hefur veitt Byggðastofnun ráðgjöf við úthlutun byggðakvótans. Hann segir að enn sé verið að vinna að úthlutun kvótans fyrir yfirstandandi fiskveiðiár, enda sé úthlutunin í stöðugri endurskoðun og gögn um nýtingu kvótans liggi yf- irleitt ekki fyrir fyrr en í nóvember. Hann gerir þó ekki ráð fyrir að mikl- ar breytingar verði á úthlutuninni frá fyrra fiskveiðiári. „Það eru alltaf ein- hverjar smávægilegar breytingar á úthlutuninni. Í nokkrum tilvikum er kvótanum úthlutað til fiskvinnslufyr- irtækja sem aftur ráðstafa honum á tiltekna báta.“ Þegar hefur verið gengið frá út- hlutun byggðakvótans á Bíldudal, Stöðvarfirði, að hluta til á Borgar- firði eystra og á Seyðisfirði en Stefán gerir ráð fyrir að búið verði að af- greiða allar úthlutanir í næstu viku. Þá sé væntanleg ítarleg skýrsla frá Byggðastofnun um stöðu og meðferð byggðakvótans í desember nk. Deilt um byggðakvóta á Fáskrúðsfirði Sveitarstjórn vill rifta samningi                   !   ! "  ! #$ %  ! "! &  !   & "             SVEITARSTJÓRN Búðahrepps samþykkti á aukafundi í fyrrakvöld að fara þess á leit við Byggðastofnun að samningi við fiskvinnslufyrirtækið Vaðhorn ehf. um nýtingu byggðakvóta Fáskrúðsfjarðar verði rift. Byggðakvótanum var fyrst úthlutað fiskveiðiárið 1999/2000 og var úthlut- unin til fimm ára. Gert var ráð fyrir árlegri endurskoðun til að tryggja að farið yrði að settum reglum um meðferð kvótans. Búðahreppur fær ár- lega úthlutað 113 tonna byggðakvóta sem hefur frá upphafi verið upp- spretta töluverðra deilna á Fáskrúðsfirði. Fiskvinnslan Vaðhorn ehf. hef- ur fengið byggðakvótanum úthlutað frá upphafi, þrátt fyrir að meirihluti sveitarstjórnar Búðahrepps hafi lagst gegn því. VERKFRÆÐISTOFA Sigurðar Thoroddsen hefur að undanförnu haft með höndum nokkuð óvenju- legt verkefni sem er að teikna sumarhús sem á ættir sínar að rekja til Síberíu, nánar tiltekið Jakútíu. Einar B. Jónsson, verkfræð- ingur hjá VST, hefur haft umsjón með verkinu fyrir hönd verk- fræðistofunnar en vinna við smíði á bústaðnum er hafin á Neðrahálsi í Kjós. Um arkitektúr hússins sá Snorri Hauksson arkitekt og studdist hann meðal annars við teikningar og ljósmyndir af sams- konar húsum í Jakútíu. Eigandi þess er Kjuregej Alexandra Arg- unova, myndlistarkona og leikari frá Jakútíu, sem hefur verið bú- sett hér á landi um nokkurra ára- tuga skeið. Sumarhúsið sem um ræðir er nokkuð óvenjulegt í lögun, burð- arvirki þess er allt úr timbri og bjálkum sem eru sagaðir langsum og síðan raðað upp þannig að þeir hallast inn að ofan og snýr börk- urinn sömuleiðis inn. Að sögn Einars komu tveir frændur myndlistarkonunnar hingað til lands í haust frá Jakútíu og kenndu íslensku smiðunum undirstöðuatriðin við byggingu slíkra húsa. Húsið er einangrað með steinull og múrað yfir og þakið einangrað og tyrft yfir. Vinnan við teikningu hússins er nokkuð frábrugðin þeim verk- efnum sem Einar hefur fengist við hingað til „enda af allt annarri stærðargráðu“, eins og hann segir sjálfur. Meðal verkefna sem hann hefur komið að er hönnun Hraun- eyjafossvirkjunar og Sult- artangavirkjunar, auk þess sem hann var viðloðamdi vinnu í tengslum við Kvíslaveitur og Fljótsdalsvirkjun og nú síðast hönnun Kárahnjúkavirkjunar. Þá kom Einar að uppbyggingu í Súða- vík eftir snjóflóðin og hefur unnið að tjónamati eftir stóru jarð- skjálftana á Suðurlandi. En hvernig skyldi það vera að hanna virkjanir einn daginn og sumarhús þann næsta? „Ætli þetta sé ekki bara fyrst og fremst skemmtileg tilbreyting,“ segir Einar. Eiga að þola 60 gráða frost Að sögn Kjuregej Alexöndru er húsið eftirlíking af húsum eins og byggð voru í Jakútíu til forna og enn í dag eru dæmi þess að slík hús séu byggð. Þau eiga að þola 60 gráða frost og 40 gráða hita. Timbrið sem notað er í húsið var flutt inn frá Jakútíu fyrir nokkr- um árum, m.a. með stuðningi þar- lendra stjórnvalda, en nokkrir ættingjar Kjuregej sáu um að höggva það niður. Þá hafa ýmsir aðilar lagt hönd á plóginn og með- al annars greiddi hún fyrir jörðina og teikningar af sumarhúsinu með listaverkum. Ætlunin er að húsið verði menningarsumarhús og þar fari fram menningartengd starf- semi í tengslum við Ísjaka, vin- áttufélag Íslendinga og Jakúta. Að sögn Kjuregej Alexöndru er ráðgert að taka húsið í notkun næsta sumar. Morgunblaðið/Þorkell Einar B. Jónsson verkfræðingur og Kjuregej við nýja húsið í Kjósinni sem meðal annars á að nýtast undir menn- ingarstarfsemi Ísjaka, vináttufélags Íslendinga og Jakúta. Sumarhús samkvæmt fyrirmynd frá Jakútíu byggt í Kjós Timbr- ið flutt inn frá Síberíu Morgunblaðið/RAX Í Jakútíu eru húsin einangruð að utan með leir en til forna var notast við mykju. Myndin var tekin árið 1993 í þorpinu Bjutejdjak þar sem Kjuregej Alexandra Argunova ólst upp fram á unglingsár. EKKERT aldurstakmark verður á sýningu áhugamanna í hnefaleikum frá Minnesota í Bandaríkjunum og Reykjanesbæ í Laugardalshöll um miðjan mánuðinn og áréttað er að um sýningu er að ræða en ekki keppni eða landskeppni. Frá þessu var gengið á fundi for- svarsmanna sýningarinnar og full- trúa Íþrótta- og ólympíusambands Íslands í gær. Í auglýsingum hafði komið fram að um keppni eða lands- keppni yrði að ræða en það er óheim- ilt enn sem komið er, samkvæmt reglum ÍSÍ. Eins hafði verið auglýst 18 ára aldurstakmark. Hnefaleikafélag Reykjanesbæjar stendur að sýningunni undir nafninu BAG og hefur samið við sérstakt fyr- irtæki, Sextándann, um kynningu og markaðssetningu. Fimm kappar frá Hnefaleikafélagi Reykjanesbæjar etja kappi við jafnmarga bandaríska áhugahnefaleikara. Sýning og ekkert aldurstakmark

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.