Morgunblaðið - 06.11.2002, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.11.2002, Qupperneq 14
FRÉTTIR 14 MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ örugg stýring viðskiptakrafna KLÚBBURINN Geysir flutti um helgina í nýtt húsnæði í Skipholti 29 sem er um helmingi stærra, alls um 400 fermetrar, en það sem klúbburinn var í á Ægisgötunni. „Þetta er algjör bylting fyrir okkur. Húsnæðið á Ægisgötunni var orðið of lítið miðað við umfang og eins bauð það ekki upp á þá möguleika sem við sjáum fram á hér í Skipholtinu, þ.e. að geta sinnt fleiri einstaklingum og verið með fjölbreyttari verkefni,“ segir Anna S. Valdemarsdóttir hjá Geysi. „Klúbburinn er þriggja og hálfs árs og félagafjöldinn hefur margfald- ast sem sýnir þörfina á úrræði sem þessu. Það eru bara þrír launaðir starfsmenn sem vinna í klúbbnum, í byrjun voru félagar tíu en nú eru þeir 140 talsins.“ Geysir er úrræði fyrir fólk sem er að ná sér eftir geð- ræn veikindi og Anna segir að klúbburinn sé eins konar brú út í samfélagið fyrir þetta fólk. „Þegar fólk hefur verið lengi í öruggu um- hverfi eða inni á stofnun er ekki nóg að fara einfaldlega heim með lyf. Fólk þarf stuðning þegar út í samfélagið er komið. Þetta er ein- angraður hópur og það tekur oft langan tíma að brjóta þessa ein- angrun og við erum að hjálpa fólki til þess.“ Anna segir að með nýju húsnæði sjái menn fram á að geta sinnt bet- ur og komið til móts við fleiri félaga þar sem vinnan í klúbbnum verði fjölbreyttari. „Með stærra húsnæði getum við í framtíðinni boðið upp á margs konar námskeið og nám, það er mikil þörf fyrir það.“ Anna segir að í Geysi komi fólk af eigin hvötum og vinni við það sem það velur sér og hefur getu til. „Þetta eru sjálfhjálparsamtök sem hafa að markmiði að veita félögum stuðning og hjálp við að ná mark- miðum sínum. „Fólk kemur á morgnana og vel- ur sér starf, það er einhver í mót- tökunni, það þarf að svara síman- um, vinna á skrifstofunni, svara bréfum, gefa út blað og kynning- arefni, fara út og kynna starfsem- ina, elda mat og sjá um viðhald. Þetta eru sjálfshjálparsamtök þannig að fólk kemur hingað til þess að hjálpa bæði sjálfu sér og öðrum.“ Klúbburinn Geysir flytur í nýtt húsnæði „Erum brú út í samfélagið“ Morgunblaðið/Jim Smart Það er nóg að gera hjá félögum í klúbbnum Geysi vegna flutninganna í nýja húsnæðið við Skipholt 29. VIÐSKIPTI EIMSKIP er með tvö skip í Am- eríkuflutningum, annars vegar Skógarfoss, og hins vegar leiguskip- ið Hanseduo. Erlendur Hjaltason, framkvæmdastjóri utanlandssviðs Eimskips, segir að siglingar Han- seduo fyrir Eimskip hafi hafist fyrir rúmum mánuði, en þá hafi skip í eigu félagsins, sem sigldi á þessari leið, verið selt. Flestir í áhöfn Hanseduo eru útlendingar. Erlendur segir að breytingar á þessu fyrirkomulagi séu ekki á döf- inni. Áætlanir taki hins vegar mið af flutningsmagni á hverjum tíma en staðan nú sé þannig að þessi tvö skip þurfi til að anna flutningum. Hann segir að Eimskip hafi oft verið með svipaða skiptingu og nú, þ.e. eitt eigið skip og eitt leiguskip. Þar sem magn sé breytilegt frá ein- um tíma til annars þurfi félagið að hafa sveigjanleika og geta stjórnað flutningum eftir magni. Þessi skipt- ing sé því heppileg. Íslensk kjör Jónas Garðarsson, formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur, segir að munur sé á þessu máli, annars veg- ar, og tilfelli Atlantsskipa, hins veg- ar, því 3-4 Íslendingar séu í áhöfn- inni hjá Eimskipi en enginn hjá Atlantsskipum. Félagið sé ekki endilega að hamra á því að Íslend- ingar séu í áhöfn heldur að kjör sjó- mannanna taki mið af því. Svo sé hjá Eimskip. Ameríkusiglingar Eimskips Eitt eigið skip og eitt leiguskip ÍSLAND hefur heimild til að veiða 30 tonn af túnfiski árið 2003 sam- kvæmt þeim fjögurra ára stjórn- unarráðstöfununum sem nú hafa verið samþykktar innan Atlantshafs túnfiskráðsins. Það er nokkuð meira en íslenzk skip hafa mest veitt á einu ári. Aflaheimildir Íslands munu svo tvöfaldast á umræddum fjórum árum. Árið 2004 verður hlut- ur Íslands þannig 40 tonn, 50 tonn árið 2005 og 60 tonn árið 2006. Tvö íslenzk skip, Byr og Guðni Ólafsson hafa stundað túnfiskveiðar með tak- mörkuðum árangri. Ísland gerðist nýlega aðildarríki að Atlantshafstúnfiskveiðiráðinu (International Commission for the Conservation of Atlantic Tunas, ICCAT). Ársfundi ICCAT lauk síð- astliðinn mánudag í Bilbao á Spáni. Ísland hefur sótt fundi ráðsins und- anfarin ár sem áheyrnaraðili en tók nú þátt í fyrsta sinn sem fullgilt að- ildarríki. Misjafn árangur ICCAT stjórnar veiðum á ýmsum tegundum túnfisks um allt Atlants- haf. Einn túnfiskstofn (Austur- Atlantshafstúnfiskur, e. East Atl- antic Bluefin Tuna) gengur inn í ís- lenzka lögsögu og á undanförnum árum hafa verið gerðar tilraunir til að þróa túnfiskveiðar við Ísland. Um er að ræða einhverja verðmæt- ustu sjávarafurð sem til er. Japanir hafa stundað túnfisk- veiðar innan íslenzku lögsögunnar frá árinu 1996 með misjöfnum ár- angri enda misjafnt í hve miklum mæli fiskurinn gengur inn í lögsög- una. Einnig hefur sóknin ekki verið jöfn. Mestur varð afli þeirra 1997, 180 tonn, 9,5 fiskar að meðaltali á dag, en í fyrra var hann aðeins 12,5 tonn, rúmlega fiskur á dag. Veið- arnar í ár hafa gengið betur en í fyrra en afli liggur ekki fyrir enn. Íslenzku skipin voru í raun að veiða í óþökk túnfiskveiðiráðsins, en með þessari samþykkt geta þau bæði stundað veiðarnar innan lög- sögunnar og á alþjóðlegum haf- svæðum utan hennar. Veiðarnar eru stundaðar á sérhönnuðum frysti- skipum sem veiða á um 100 kíló- metra langa línu, sem lögð er og dregin einu sinni á sólarhring. Veiðitímabilið er stutt, eða frá því í september og fram í nóvember. Byr VE reyndi fyrir sér í hitti- fyrra og hafði lítið upp úr krafsinu, enda að reyna fyrir sér í fyrsta sinn. Skipið stundaði engar veiðar í fyrra og er nú á túnfiskveiðum við Brasilíu. Guðni Ólafsson VE hóf veiðar í haust og hefur veiðin verið dræm. Það eru um 20 þjóðir sem stunda veiðar á þessari tegund tún- fisks á Atlantshafi og fer aflinn nán- ast allur á markað í Japan. Fisk- urinn er mjög dýr og geta fengizt hundruð þúsunda króna fyrir hvern fisk, enda getur hann orðið afar stór. Morgunblaðið/Golli Túnfiski landað í Reykjavík. Fiskurinn er heilfrystur um borð og seldur til Japans. Þar geta fengizt hundruð þúsunda króna fyrir hvern fisk. 30 tonna tún- fiskkvóti kemur í hlut Íslands ÚT eru komnar þrjár bækur um lög- fræði eftir dr. Gunnar G. Schram pró- fessor emeritus við lagadeild Háskóla Íslands. Í fréttatilkynningu segir: „Fyrsta ritið er Hafréttur, 318 bls. að stærð. Bókin er sú fyrsta sinnar tegundar og fjallar um það hvaða lög og reglur gilda á hafinu. Nær helmingur heims- hafanna er frjálst svæði þar sem öll- um ríkjum eru heimilar fiskveiðar. Um það er m.a. fjallað í ritinu, auk þess sem rætt er hvaða réttinda Ís- lendingar njóta til fiskveiða og ann- arra þátta innan landhelgi Íslands og efnahagslögsögu. Í bókinni eru birt kort sem sýna landgrunnskröfur Ís- lendinga sem ná suður fyrir Írland og jafnframt kröfur Breta, Íra og Dana til þessa sama svæðis. Í öðru ritinu, Sustainable Utilizat- ion of High Seas Fisheries in Inter- national Law sem gefið er út á ensku, er fjallað um sjálfbæra nýtingu fiski- stofna úthafsins og reglur þjóðarétt- arins um slíka nýtingu. Ritið er 429 bls. Þáttur Íslands kemur þar allvíða fram en bókinni lýkur á annarri haf- réttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna árið 1960. Þriðja ritið er Dómar úr stjórnskip- unarrétti 1991–2001. Þar er birt ágrip allra dóma Hæstaréttar síðustu 10 ár- in sem að einhverju leyti snerta stjórnarskrána. Bókin veitir yfirlit yf- ir sögu þessara mála og er því auðvelt fyrir alla þá sem áhuga hafa á því hvernig Hæstiréttur túlkar stjónar- skrána að kynna sér það í þessari bók án mikillar fyrirhafnar. Dómarnir eru 199 talsins og fylgir ítarleg dómaskrá sem gerir leitina auðveldari.“ Bækur þessar eru gefnar út af Há- skólaútgáfunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gunnar G. Schram afhendir Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra rit um hafréttarmál en Háskólaútgáfan hefur gefið út þrjár bækur eftir Gunnar. Þrjú ný lögfræði- rit eftir Gunnar Sigrún Gren- dal tónlistar- kennari og for- maður Félags tónlistarskóla- kennara hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5.–6. sæti í flokksvali Sam- fylkingarinnar í Reykjavík sem fer fram laugardaginn 9. nóv- ember. Sigrún starfar fyrir Félag tónlistarskólakennara í Kenn- arasambandi Íslands ásamt því að sinna tónlistarkennslu við Tónlist- arskóla Kópavogs og Nýja söng- skólann Hjartansmál. Hægt er að lesa um stefnumál, áherslur og bakgrunn Sigrúnar á nýrri vefsíðu sem hún opnaði í tilefni flokks- valsins. Slóðin er www.sigr- ungrendal.is. Í DAG STJÓRNMÁL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.