Morgunblaðið - 06.11.2002, Page 23

Morgunblaðið - 06.11.2002, Page 23
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 23 sparaðu fé og fyrirhöfn HREGGVIÐUR Hermannsson, læknir á eftirlaunum, varð undr- andi þegar hann kom á lækn- ingastofuna sína í Keflavík í gær. Þar var þá biðröð fram á stiga- gang og sjúklingar streymdu enn að. Honum varð ljóst að hann yrði að vinna lengur en venjulega þann daginn. Hreggviður var lengi á heilsu- gæslustöðinni í Keflavík en lét af störfum vegna aldurs fyrir hálfu öðru ári. Þá opnaði hann eigin stofu og hefur verið þar um þrjá tíma á dag þrjá til fjóra daga vik- unnar. Eftir að uppsagnir heilsugæslu- lækna við Heilbrigðisstofnun Suð- urnesja tóku gildi í síðustu viku er Hreggviður eini starfandi heimilislæknirinn á Suðurnesjum. Hafa hjúkrunarfræðingar á Heil- brigðisstofnuninni vísað sjúkling- um á hann, Læknavaktina í Kópa- vogi og á sérfræðilækna og sjúkrahús í Reykjavík. Eins og á skömmtunartímanum Biðröð hafði myndast utan við húsið sem læknastofa Hreggviðs er í stundarfjórðungi áður en von var á lækninum. „Ég veit ekki á hvaða öld maður er, maður þarf að taka númer eins og á skömmt- unartímanum,“ sagði kona í hópn- um, ekki ánægð með ástandið í heilsugæslumálum svæðisins. Klukkan ellefu, þegar Hreggviður mætti, voru 22 á biðstofunni og stigaganginum og stöðugt að bæt- ast í hópinn. Hreggviður tók und- ir það að líklega yrði hann að vinna eftirvinnu í dag, varla réði hann við að sinna öllum á þremur klukkutímum. Á biðstofunni spunnust umræð- ur um stöðu mála. Flestir þeirra sem höfðu sig í frammi höfðu samúð með læknunum sem sögðu upp, þótt það bitnaði á þeim. Ein konan sagðist ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að heilsugæslulæknar gætu opnað eigin læknastofur, eins og sérfræðingar. Það væri réttlætismál. Önnur sagði að fólk borgaði í sjúkratryggingarnar og hlyti að eiga rétt á að velja sér lækni og fá þjónustuna nið- urgreidda. Ein var mjög á annarri skoðun. Taldi að læknarnir væru samviskulausir að segja upp störf- um og skilja sjúklingana eftir á köldum klaka. Þeir hefðu alveg nógu há laun. Getur ekki gengið svona Hreggviður sagðist ekki vita hvað hrjáði fólk. Þetta væri svo nýbyrjað. Á föstudaginn hefðu ekki margir komið, smotterí eins og venjulega, og hann hefði verið með lokað á mánudag. Fólkið sem beið virtist vera með mismunandi vandamál, allt frá því að þurfa að endurnýja lyf- seðil til þess að þurfa nauðsyn- lega að leita til læknis, án þess að mikið væri farið út í það þarna á biðstofunni. Fólkinu fannst ótækt að fólki væri vísað í Kópavog eða til Reykjavíkur. Það kostaði ekk- ert lítið í ferðakostnaði og vinnu- tapi og ekki víst að allir ættu kost á því vegna peningaleysis. Þá ættu ekki allir bíla. „Ég veit ekki hvað sumt fólk gerði ef Hregg- viður væri ekki með þessa stofu,“ sagði einn. Einn sjúklingurinn sagði að ástandið gæti ekki gengið svona lengi og skoraði á heilbrigð- isráðherra að leysa málið. Ekki væri hægt að bjóða 16 þúsund manna samfélagi upp á að vera án þjónustu heilsugæslulækna. Þá bætti annar við að ráðherrann svæfi væntanlega ekki vel í Kína fyrst hann hefði farið frá þessu máli óleystu. Fólkið á biðstofunni taldi að óöryggið sem læknaleysið skapaði bitnaði mest á eldra fólki. Það væri hrætt. Vissi ekki hvað það ætti að gera eða hvert það ætti að fara. „Hef þetta einfalt“ Hreggviður hefur ekki samning við Tryggingastofnun um greiðslu hluta lækniskostnaður sjúkling- anna og þarf hann því að rukka þá um kostnaðinn. Gjaldið er þó ekki hátt. „Ég hef þetta einfalt, læt alla borga þúsund krónur,“ segir Hreggviður. Læknir á eftirlaunum eini starfandi heilsugæslulæknirinn 22 manna biðröð þegar læknirinn kom á stofuna Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Mikið var skrafað í þétt setinni biðstofu eina heilsugæslulæknisins á Suðurnesjum. Keflavík BETRI menntun, aðbúnaður og ör- yggi heimilanna verður forgangs- verkefni bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í Reykjanesbæ á kjörtímabilinu. Bæjarstjórn sam- þykkti á fundi sínum í gærkvöldi til- lögu sjálfstæðismanna um framtíðar- sýn, stefnu og meginverkefni á árunum 2002 til 2006. Fulltrúar minnihlutans sögðust geta tekið und- ir margt í stefnunni en sátu hjá við af- greiðslu hennar. Sú framtíðarsýn sem fram kemur í tillögu Sjálfstæðisflokksins byggist á stefnumörkun fyrri bæjarstjórnar. Stefna og helstu verkefni næstu ára grundvallast hins vegar á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar. Hún var sett fram undir kjörorðinu „Við fær- um orð í efndir“ eins og Árni Sigfús- son bæjarstjóri vakti athygli á þegar hann mælti fyrir tillögunni í gær. Nefna má að fram koma áætlanir um framkvæmd hugmyndarinnar um orkugarð, markaðssetningu atvinnu- svæðisins við Helguvík, uppbyggingu skólastarfs í grunnskólum, undirbún- ingur að listamiðstöð, aðstöðu fyrir víkingaskipið Íslending, byggingu innisundlaugar og uppbyggingu nýrra byggingarsvæða. Árni segist ekki vita til þess að svo ítarleg stefna og verkefnaáætlun hafi verið lögð fyrir í nokkru sveitarfélagi við upphaf kjörtímabils. „Það er ætl- un okkar að vera í forystu nútíma- legra starfshátta í íslenskum sveitar- félögum og ég tel að hér sé vissulega sterkt merki þess,“ sagði Árni. Bent á fjármögnunarleiðir en kostnaður ekki tilgreindur Í stefnuplagginu er farið yfir helstu málaflokka, verkefnum raðað í verk- þætti, settar tímaáætlanir fyrir þá og tilgreint hver ber ábyrgð á að fram- kvæma þá. Í sumum tilvikum er kveð- ið á um að kallaður verði til sérstakur verkefnisstjóri sem annist það verk. Þá er getið fjármögnunarleiða en kostnaður ekki áætlaður. Segir Árni að með því færist áherslan á að mörg verkefni geti orðið samstarfsverkefni við aðra, ekki þurfi að draga allt fjár- magn af skattfé almennings. Við gerð fjárhagsáætlunar og endurskoðun þriggja ára áætlunar verður kostn- aður tilgreindur. Segir hann þetta gert til að leggja áherslu á að Reykja- nesbær muni ávallt sníða sér stakk eftir vexti en um leið leita tækifæra í samstarfi um fjármögnun. Árni segir að stefnan sé metnaðar- full og sérstök því hún fjalli að stærst- um hluta um virkjun mannauðsins í Reykjanesbæ. Aðeins um 15% þeirra meginþátta sem fjallað er um tengist verklegum framkvæmdum. Hins veg- ar séu 85% þeirra verkefna sem nefnd eru í stefnunni tengd skilgrein- ingu verkþátta sem miða að bættu forvarnarstarfi, fræðslu, íþróttaiðk- un, félagslegri þjónustu, umhverfis- vernd og forsendum til öflugrar at- vinnuuppbyggingar. Árni rakti nokkur dæmi um þetta og sagði meðal annars: „Betri mennt- un, aðbúnaður og öryggi heimilanna verður því forgangsverkefni okkar sjálfstæðismanna, og ég vona for- gangsverkefni okkar bæjarfulltrúa allra á þessu kjörtímabili,“ sagði Árni. Minnihlutinn situr hjá Fulltrúar Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins sem skipa minnihluta bæjarstjórnar sátu hjá við afgreiðslu málsins. Þeir sögðust þó geta getið undir margt af því sem þar kæmi fram enda hefðu mörg málin verið á stefnuskrám tveggja eða allra flokkanna fyrir síðustu bæjarstjórn- arkosningar. Þá hrósuðu þeir meiri- hlutanum fyrir að leggja þetta plagg fyrir, það yrði ágætt tæki fyrir þá í aðhaldshlutverki minnihlutans. Stefna Sjálfstæðisflokksins um helstu verkefni kjörtímabilsins samþykkt Betri menntun og aðbúnaður heimila í forgang Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.