Morgunblaðið - 06.11.2002, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.11.2002, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. AF SAMTÖLUM viðÖssur Skarphéðins-son, formann Sam-fylkingarinnar, og nokkra flokksmenn má ráða að átakalínur Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags séu enn til stað- ar innan flokksins en flestir segja þær vera hverfandi. Sam- fylkingin sé enn í mótunarferli og það taki sinn tíma að má allar fyrri flokkslínur út, en sem kunnugt er varð flokkurinn formlega til á stofnfundi vorið 2000 með samruna Alþýðu- flokksins, Alþýðubandalagsins, Kvennalistans og óháðra. Fleiri átakalínur eru sagðar uppi, sem formaður fram- kvæmdastjórnar flokksins, Stef- án Jón Hafstein, segir að merkja megi líka milli landshluta, ein- stakra flokksmanna og um ákveðin stefnumál. Það sé þó ekki veikleikamerki heldur merki um heilbrigða pólitík. Annar flokksmaður, Páll Vil- hjálmsson, fullyrðir að vegna af- stöðunnar til Evrópusambands- ins séu gamlir Alþýðu- bandalagsmenn að yfirgefa Samfylkinguna og ganga til liðs við Vinstri græna. Guðmundur Oddsson segir enn nokkur „lík í lestinni“ en þau verði vonandi horfin að loknum næstu kosn- ingum. Ummæli Gísla Þessi átök gamalla flokkslína mátti m.a. merkja í ummælum Gísla S. Einarssonar, þing- manns Samfylkingarinnar á Vesturlandi, að loknu kjör- dæmaþingi í nýju Norðvestur- kjördæmi þar sem ákveðin var uppstilling í stað prófkjörs. Sagði Gísli við DV að sig grunaði að „gamla klíkan úr Alþýðu- bandalaginu“ hefði verið að „verja sína pósta“. Sama dag dró Gísli þessi ummæli sín reyndar til baka. Gísli segir við Morgunblaðið að ummælin hafi fallið í hita leiksins og þeg- ar hann hafi farið að skoða málið betur hafi ummælin ekki átt við rök að styðjast. Vinnan í nýja kjördæminu gangi ágætlega og góð samstaða sé meðal þingmanna og annarra flokksmanna. „Það er ekkert skrítið þó að menn takist á í prófkjörum og mismunandi sjónarmið séu uppi. Þetta fer ekki eftir flokkslínum heldur miklu frekar eftir mönn- um og hvernig þeir haga sér. Ég tek sjálfan mig sem dæmi, sem var ansi bráður í mínum svörum. Það er ekkert launungarmál að þeir sem voru í Alþýðuflokkn- um, eins og ég, eru vanir opnum prófkjörum. Líklega er eini mis- munurinn fólginn í því að fólk hefur unnið eftir mismunandi línum, annaðhvort í prófkjörum eða nokkurs konar uppstill- ingu,“ segir Gísli. „Fengu óbragð í munninn“ Páll Vilhjálmsson, formaður Samfylkingarfélagsins á Sel- tjarnarnesi og stjórnarmaður í kjördæmisráði flokksins í Suð- vesturkjördæmi, segir nokkrar átakalínur vera innan flokksins, þ. á m. milli gamalla félaga Al- þýðuflokksins og Alþýðubanda- lagsins, sem birtist til dæmis í umræðunni um Evrópu- og byggðamál. Átakalínur séu einn- ig milli eldri og yngri kynslóðar flokksmanna. Hann segist hafa ritað grein á sínum tíma um tvo „kúltúra“ þessara flokka og að langan tíma tæki að sameina hefðir þeirra innan Samfylking- arinnar. Alþýðuflokkurinn hafi t.d. verið meiri prófkjörsflokkur en Alþýðubandalagið þunglama- legra með flokksstofnunum sem tekið hafi sig alvarlega. Páll telur að í dag vanti enn töluvert upp á að þessir „kúlt- úrar“ hafi náð að sameinast. Hvernig staðið hafi verið að kosningu um Evrópumálin hafi ekki verið til að liðka þar fyrir. Margir hafi fengið „óbragð í munninn“ og segir Páll að margir gaml- ir Alþýðubandalags- menn séu að segja sig úr Samfylking- unni vegna ESB- áherslu flokksforystunnar og ganga til liðs við Vinstri hreyf- inguna – grænt framboð. „Margir koma til mín og segja: „Nú er þetta búið, ég nenni þessu ekki lengur.“ Ég er ekki í þeirri stöðu að segja fólki að bíða því sjálfur er ég hund- fúll,“ segir Páll. Aðspurður setur Páll stórt spurningarmerki við það hvern- ig Samfylkingunni takist að sætta ólík sjónarmið innan flokksins, ekki síst í Evrópumál- um. Ef flokkurinn muni t.d. setja ESB-aðild á oddinn í sinni kosn- ingabaráttu þá muni ekki gróa um heilt um langa hríð. Annað hvort myndist stór og óánægður minnihluti eða að fólk yfirgefi flokkinn, sem þegar sé farið að gerast. Össur Skarphéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar, segir að áhrifa Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags innan flokksins gæti lítið og í æ minna mæli. Hann kannast heldur ekki við það að fólk sé að yfirgefa Sam- fylkinguna vegna Evrópuum- ræðunnar og ganga til liðs við Vinstri græna. Össur segir að í dreifbýlinu, þar sem Samfylk- ingin sé borin upp af nýstofnuð- um félögum, gæti þessa í engum mæli. Þar sé Samfylkingin orðin ein heild. Hann segist m.a. hafa orðið var við þetta í fundaferð sinni um landið þar sem jafnvel gamlir Alþýðubandalagsmenn hafi sýnt Evrópumálum mikinn áhuga. Össur segir mikinn og vaxandi vilja vera til staðar inn- an flokksins til þess að leggja af gömul flokkslandamæri. „Aðall góðra flokka er að menn takist á með rökum en ekki persónulega. Þess vegna er Samfylkingin að styrkjast. Auð- vitað er það þannig að þegar prófkjör eru haldin taka sig upp gömul tengsl og vináttubönd. Menn hjálpa gömlum baráttu- félögum og sökum uppruna Samfylkingarinnar lágu þessi vináttubönd oft saman í þessum sérstöku flokkum. Ég held að hvergi í dag sé hægt að finna prófkjörsátök þar sem beinlínis takast á Alþýðuflokkur og Al- þýðubandalag. Hér í Reykjavík nýt ég þess að sitja á friðarstóli þar sem enginn keppir við mig um fyrsta sætið. Bryndís Hlöð- versdóttir og Jóhanna Sigurðar- dóttir takast á um 2. sætið en það eru ekki hefðbundin flokka- átök sem eiga sér stað þar. Mér sýnist til dæmis að margir sem eiga uppruna sinn í Alþýðu- bandalaginu styðji Jóhönnu og hið sama er að segja um Bryn- dísi. Það styðja hana margir Al- Leifar Alþýðuflokks og Alþýðubandalags Átakalínur en ar en sagðar h Nú þegar tími prófkjara fer í hönd hjá Samfylkingunni hafa vísbendingar komið fram um átakalínur innan flokksins milli gam- alla Alþýðuflokks- manna og Alþýðu- bandalagsmanna. Björn Jóhann Björnsson kannaði málið og komst að því að þetta á við nokkur rök að styðjast. Samfylkingin varð til úr þremur flokkum. Hér eru fulltrúar þeirra í Kvennalistans, Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins, Gömul vina- bönd koma upp í prófkjörum SKATTAR OG EINSTAKLINGAR Það var mikið framfaraskref semstigið var á síðasta ári er tekju-skattur lögaðila var lækkaður úr 30% í 18%. Þessi breyting styrkti sam- keppnisstöðu Íslands og íslenskra fyr- irtækja verulega. Þessi breyting hefur einnig haft ann- ars konar áhrif. Nú er mun hagstæðara en áður fyrir einstaklinga að stofna einkahlutafélag utan um rekstur sinn í stað þess að telja fram í eigin nafni. Þeir sem eiga þess kost að nýta sér þetta form eru einstaklingar sem ekki sinna hefðbundinni launavinnu heldur hafa tekjur sínar af sjálfstæðum atvinnu- rekstri. Þetta á við um margar stéttir er vinna sjálfstætt að miklu leyti og má nefna lögmenn, lækna, iðnaðarmenn og verktaka af ýmsu tagi sem dæmi. Einn- ig bændur en það færist nú í vöxt að þeir stundi búrekstur í formi einka- hlutafélags. Það sem af er þessu ári hafa um 2.750 ný einkahlutafélög verið skráð hjá Hag- stofu Íslands. Á öllu árinu 2001 var hins vegar skráð 1.871 nýtt einkahlutafélag. Það virðist því greinilegt að þeim fjölg- ar stöðugt sem nýta sér kosti þessa rekstrarforms. Alls eru nú skráð um 18 þúsund einkahlutafélög á Íslandi. Það er skiljanlegt að einstaklingar jafnt sem fyrirtæki nýti sér þær leiðir sem til staðar eru í skattkerfinu. Tekju- skattsprósenta einstaklinga er nú á bilinu 39–45% en sé stofnað hlutafélag í kringum rekstur einstaklings er skattprósentan 26,2%. Þá er átt við þau 18%, sem einkahlutafélagið greiðir og 10% skattgreiðslu af arði, sem eigandi einkahlutafélagsins borgar hugsanlega sjálfum sér. Það er því ekkert annað en eðlileg sjálfsbjargarviðleitni að fara þá leið. Ef menn eiga þess kost að lækka skattgreiðslur sínar með löglegum hætti er varla við öðru að búast en að þeir velji þann kost. Þess ber þó að geta að þeir sem hafa rekstur sinn í þessu formi verða að greiða sjálfum sér laun, samkvæmt reglum frá Ríkisskattstjóra, er taka mið af því sem telst eðlilegt á vinnumarkaðinum. Þessi laun falla und- ir sömu skattareglur og önnur laun ein- staklinga. Það er einungis ef tekjur manna eru verulega umfram viðmið um reiknað endurgjald og eru greidd út sem hagnaður að verulegur mismunur fer að koma í ljós. Það skiptir hins vegar miklu að skattayfirvöld tryggi að regl- urnar um reiknað endurgjald endur- spegli raunveruleikann á vinnumark- aðnum og að þeim sé framfylgt af festu. Ef sú verður raunin má segja að það geti beinlínis verið æskilegt að rekstur einstaklinga flytjist yfir í hlutafélaga- formið. Þetta er þróaðasta rekstrar- form sem völ er á, með skýrum laga- legum ramma, og með því næst mikilvægur aðskilnaður á persónuleg- um fjárhag og atvinnustarfsemi. Ein- staklingar sem nýta sér þetta form í tengslum við atvinnurekstur þurfa því ekki lengur að leggja fjárhag fjölskyld- unnar undir þegar ráðist er í fjárfest- ingar í tengslum við reksturinn. Hluta- félagaformið getur einnig liðkað fyrir eigendaskiptum á rekstri og auðveldað mönnum að taka nýja aðila inn í rekst- urinn. Hin aukna ásókn einstaklinga í einka- hlutafélagsformið bitnar hins vegar illa á sveitarfélögum. Þeirra helsti tekju- stofn er útsvar einstaklinga. Þau eiga ekki hlutdeild í gjöldum lögaðila. Tals- menn sveitarfélaga hafa lýst því yfir að líklegt sé að sveitarfélögin verði af rúm- um milljarði króna í tekjum á þessu ári vegna þess að einstaklingsrekstur flyst yfir í einkahlutafélög. Hvað alvarlegast er þetta fyrir sveitarfélög þar sem mik- ið er um einyrkja, t.d. í smábátaútgerð. Á sama tíma og sveitarfélög eru að verða af verulegum tekjum með þessum hætti hafa stór og kostnaðarsöm verk- efni verið að færast yfir til þeirra. Má nefna rekstur grunnskólanna í því sam- bandi. Ef niðurstaða þessara breytinga er sú að sveitarfélög verða fyrir miklum tekjumissi er líklegt að þau krefjist þess að fá hlutdeild í sköttum lögaðila í framtíðinni. Því má svo ekki gleyma að flestir Ís- lendingar hafa ekki tök á því að nýta sér einkahlutafélagsformið. Þeir þiggja hefðbundnar launagreiðslur frá fyrir- tækjum eða stofnunum. Launþegar eiga ekki annarra kosta völ en að greiða fulla skatta af sínum tekjum í skatta án þess að eiga nokkra frádráttarmögu- leika. Á móti má segja að allir greiði sambærilega skatta af launum þótt ein- staklingar í rekstri njóti góðs af því er reksturinn skilar arði. Rekstur getur hins vegar einnig gengið illa líkt og fjöldi gjaldþrota er til marks um. Eftir stendur að á síðustu árum hefur verið gengið langt í að draga úr skatt- byrði lögaðila. Og ekki má gleyma því að þeir, sem hafa tekjur af fjármagni eða öðrum eignum borga einungis 10% skatt. Það hlýtur því að vera eðlileg krafa einstaklinga að næsta verkefni stjórnvalda í skattamálum verði að taka skref til að koma til móts við einstak- linga sem greiða 38%–45% skatt af tekjum sínum vegna þess, að um launa- tekjur er að ræða. Ástæður þess að skattar lögaðila voru lækkaðir voru gildar og jafnvel hafa verið færð rök fyrir því að þessi skattalækkun muni þegar upp er staðið ekki leiða til tekjumissis fyrir ríkissjóð. Sömuleiðis voru ákveðin rök fyrir því í upphafi að skattur af fjármagns- eða öðrum eignatekjum yrði ekki hærri en 10%. Það má hins vegar spyrja hvort ekki sé að sama skapi þarft að lækka tekju- skatta einstaklinga. Það myndi draga úr því misræmi sem nú er til staðar er særir réttlætiskennd margra skatt- borgara. Lækkun tekjuskatts einstak- linga myndi auka ráðstöfunartekjur al- mennings. Slíkt ætti að öllu jöfnu að auka sparnað í landinu, sem kemur at- vinnulífi og einstaklingum til góða í lækkun fjármagnskostnaðar. Auknar ráðstöfunartekjur þýða jafnframt óhjá- kvæmilega aukningu einkaneyslu. Það ýtir undir hagvöxt og skilar ríkinu tekjum í formi veltuskatta. Ríkisfjármál eru viðkvæmur línu- dans. Einstaklingar jafnt sem fyrirtæki hljóta að eiga kröfu til þess að fá að halda eftir sem mestum hluta af tekjum sínum. Að sama skapi verða tekjur ríkis og sveitarfélaga að standa undir þeim mikilvægu málaflokkum, sem eru í þeirra verkahring. Við viljum gott heil- brigðiskerfi og menntakerfi. Við gerum kröfu til þess að samgöngur séu greiðar og öruggar. Síðast en ekki síst verða skatt- greiðslur að byggjast á samræmi og sanngirni. Tekjuskattur fyrirtækja hef- ur verið að lækka, fyrst úr 50% í 30% og nú síðast í 18%. Tekjuskattur einstak- linga hefur hins vegar hækkað töluvert frá því að staðgreiðsla skatta var tekin upp á sínum tíma. Síðan hefur að vísu verið unnið markvisst að því að lækka þennan skatt. Með hækkun skattapró- sentunnar fyrir allmörgum árum og upptöku hátekjuskatts annars vegar og skattalækkunum á öðrum sviðum hins vegar hefur skapast ákveðið misræmi í skattlagningu. Það er tímabært að snúa þeirri þróun við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.