Morgunblaðið - 06.11.2002, Síða 33

Morgunblaðið - 06.11.2002, Síða 33
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 33 JÓHANNA Sigurðardóttir er sá stjórnmálamaður sem best veitir framkvæmdavaldinu aðhald. Hún hefur sýnt það á þingi með ótrúlegri seiglu og málafylgju en er um leið ábyrgur stjórn- málamaður, – mál- efnaleg, dugleg og skilar raunverulegum árangri með störfum sínum. Meðal þeirra mála sem Jóhanna hefur flutt á þessu þingi eru tillögur um úttekt á skipulagi löggæslumála og skilgreiningu á lágsmarksþjón- ustu vegna löggæslu, um fjárreiður stjórnmálaflokka, siðareglur þing- manna og í stjórnsýslunni, um ráð- herraábyrgð og um Landsdóm, um Rannsóknarnefnd Alþingis, um þjóðaratkvæðagreiðslu og eftirlit með skipan opinberra framkvæmda. Kjósum Jóhönnu í annað sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar, hún á að leiða annað Reykjavíkurkjör- dæmanna við hlið formannsins. Jóhanna sinnir lýðræðislegri aðhaldsskyldu Sigrún Steingrímsdóttir, starfsmaður í mötuneyti MR, skrifar: Á SÍÐUSTU árum hefur vöxtur í ferðaþjónustu verið mikill. Erlend- um gestum til landsins hefur fjölgað og við ferðast meira um eigið land. Sturla Böðvarsson hefur í ráðherratíð sinni stuðlað að vexti og framgangi íslenskr- ar ferðaþjónustu með afgerandi hætti. Áfall það sem ferðaþjónusta um all- an heim varð fyrir eftir 11. sept. í fyrra var gífurlegt. Viðbrögð stjórn- valda í kjölfar þeirra skipti miklu máli. Aukið fé til markaðssetningar og ábyrgðir vegna trygginga flug- flotans voru mikilvægar ákvarðanir. Í fjárlagafrumvarpi fyrir 2003 er undir forystu Sturlu gert ráð fyrir hækkuðum framlögum til markaðs- setningar og er það sérstakt fagn- aðarefni. Sturla hefur stuðlað að framgangi margra mála til að styrkja þær stoð- ir sem íslensk ferðaþjónusta byggist á. Margvísleg vinna á þessu sviði hefur farið fram í ráðherratíð Sturlu og skapaður grunnur stefnumótunar fyrir ferðaþjónustuna til næstu ára. Brýnt er að farsællar forystu Sturlu njóti áfram í þessu mikilvægasta verkefni. Efling ferða- þjónustu Anna G. Sverrisdóttir, rekstrarstjóri Bláa lónsins hf., skrifar: KVENFRELSISKONUR og annað gáfufólk! Á ögurstund snýr fólk bökum saman. Nú er slík stund. Strákar og karlar eru í tangarsókn gegn þeim örfáu konum á Alþingi sem vinna fyrir konur. Á þingi er ekki karla vant, þar er kvenna vant; kvenna sem vinna fyrir konur á eigin forsendum. Guðrún Ögmundsdóttir er einlæg kvenfrelsiskona komin af alþýðu- fólki í Reykjavík og margfróð um hagi þeirra sem eiga undir högg að sækja í óvægnu samfélagi. Þar nýtur hún eðlislægs innsæis, köllunar og þekkingar fljölbreyttra starfa sem yfirfélagsráðgjafi á Landspítala, sem uppeldisfulltrúi í sérdeild og handleiðari fatlaðra og aðstandenda og sem borgarfulltrúi og þingkona. Guðrún er mannasættir og þúsund- þjalasmiður í samskiptum, staðföst baráttukona í karlagerinu miðju. Við konur höfum ekki ráð á að tapa Guð- rúnu af þingi vegna þeirra sem eiga undir högg að sækja og fá í staðinn enn eitt sýnishornið af karlkyninu. Nú er að duga eða drepast. Því skora ég á fólk að tryggja Guðrúnu Ögmundsdóttur sæti áfram á Al- þingi. Tryggjum Guðrúnu sæti á Alþingi Elín G. Ólafsdóttir skrifar: ÞAÐ er mikilvægt að stilla upp sínu sterkasta liði hverju sinni. Í Suðvesturkjördæmi efnir Samfylk- ingin til flokksvals hinn 9. nóvember næstkomandi. Þar eru 11 einstaklingar í framboði til þeirra 6 sæta sem kosið er um. Guðmundur Árni Stefánsson al- þingismaður, fyrrum ráðherra og bæj- arstjóri, sækist eftir 1. sæti listans. Ég styð hann heilshugar í þeim efn- um. Hann er baráttumaður með ótvíræða forystuhæfileika. Er fljót- ur til ákvarðana, en jafnframt yf- irvegaður; er með hjartað á réttum stað og lætur sig varða heill og hag fólks, ekki síst þess sem höllum fæti stendur. Hann hefur skýra sýn á meginatriði íslenskra stjórnmála. Samfylkingin á góð færi í komandi kosningum. Þau verðum við að nýta. Það gerum við með góðum málstað og öflugu fólki í forystusveit. Guð- mundur Árni er góður valkostur til að leiða öfluga sveit Samfylking- armanna í Suðvesturkjördæminu í kosningunum í vor. Kjósum Guð- mund Árna í 1. sætið í flokksvalinu. Guðmund Árna í 1. sætið Árni Guðmundsson formaður STH skrifar: MIG óraði ekki fyrir þeirri umræðu sem tillaga mín um að kanna orsakir háa matarverðsins hér ætti eftir að vekja. Ég fagna henni mjög. Þessi upplýsta þjóð hefur auðvitað verið meðvituð um að hún er að borga himinhátt verð fyrir nauðsynjavöru samanborið við íbúa nágrannaland- anna en það er eins og fólk hafi talið að svona yrði þetta bara að vera. En það er rangt. Samanburður innan Norðurlandanna þar sem laun eru al- mennt hærri en hér og matarverð lægra nema í Noregi og samanburður á matarverði á Norðurlöndum og Þýskalandi við meðaltalsverð 15 ESB-landa staðfestir það líka. Góðu tíðindin í þessari umræðu eru að forsætisráðherrann, Davíð Odds- son, hefur lýst því yfir að hann styðji tillögu mína um að leita orsaka hins háa matarverðs hérlendis. Umræðan Einhverjir töldu að svona tillaga frá Samfylkingunni þýddi áróður um ESB-aðild. Í Evrópusambandinu hafa menn skapað það umhverfi að matarverð hefur stórlækkað í Svíþjóð og Finnlandi eftir inngöngu þeirra. En við viljum vita hvar þarf að gera breytingar svo við getum gert þær sjálf verðum við utan ESB. Samkeppnisstofnun var gerð að blóraböggli sem er afar athyglisvert miðað við að ríkisstjórnin hefur verið treg til að veita Samkeppnisstofnun það lagaumhverfi sem til þarf svo hún geti sem best þjónað hlutverki sínu. Nú hefur samkeppnisráð sent frá sér álit um verðlagningu mjólkurvöru þar sem ráðið kemst að þeirri niðurstöðu að verðlagning verðlagsnefndar bú- vara á mjólk og mjólkurvörum fari gegn markmiðum samkeppnislaga. Enn eitt innlegg í umræðuna. Í Bændablaðinu var því haldið fram að matarverðsmunurinn væri ekki svona mikill og að við gætum aldrei borið okkur saman við verðlag í Suð- ur-Evrópu. Rétt en við erum að tala um Norðurlönd. Er orsökin samþjöppun á matvæla- markaði? Umhugsunarefni að 70% landsmanna verslar við eina verslana- keðju. Hvernig hefur slík fákeppni orðið til og hvernig á að bregðast við henni. Nýtt í umræðunni er að GJ- fjármálaráðgjöf hefur unnið skýrslu fyrir Baug og niðurstaða samkvæmt fréttum að engar vísbendingar séu um að samruni hafi valdið háu mat- arverði. Þetta stóra mál hefur margar hlið- ar og trúlega hafa allir þessir fram- angreindu þættir áhrif en mun fleira kemur til. Nefna má tilhögun inn- kaupa erlendis, einokun í flutningum, lagaumhverfi innflutnings og verslun- ar, skilyrði innlendrar framleiðslu og gjaldtöku og skattheimtu ríkisins á ólíkum sviðum matvælaframleiðslu og innflutnings. Allt þetta þarf að skoða. Matarverðið Eftir Rannveigu Guðmundsdóttur Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. „Davíð Oddsson hefur lýst því yfir að hann styðji tillögu mína um að leita orsaka hins háa mat- arverðs.“ Í utandagskrárumræðu á Al- þingi nú í vikunni vildi fjármála- ráðherra ekki ræða það hvort hann myndi beita sér fyrir því að lækka tekjuskatta á launafólk og afnema skatta á tekjur og lífeyri undir lágmarkslaunum. Hann hirti heldur ekki um að svara því hvort eðlilegt væri að lífeyrir úr lífeyr- issjóðum bæri 10% skatt eins og aðrar fjármagnstekjur, en ekki 38% eins og nú er. Misréttið í skattlagningunni Í hnotskurn sýnir skattastefna ríkisstjórnarinnar skattpíningu á launafólki með meðaltekjurnar og þeim sem minnsta hafa og síðan andstæðuna, skattparadís efna- manna og stórfyrirtækjanna. Fólk með lágar og meðaltekjur hefur greitt fyrir skattalækkanir efna- manna með minni persónuafslætti, skerðingu á skattleysismörkum, lækkun barnabóta og aukinni kostnaðarþátttöku í heilbrigðis- kerfinu. Lítil og meðalstór fyrir- tæki hafa líka staðið undir tekju- skattslækkun stóru fyrirtækjanna úr 30% í 18%, með mikilli hækkun á tryggingagjöldum eða um 2,4 milljarða króna. Neysluskattar eru næsthæstir hér á landi af öllum OECD-löndunum og tekjuskattar einstaklinga eru yfir meðaltal OECD-ríkjanna Á sama tíma eru tekjuskattar á fyrirtæki og fjár- magnstekjuskattur hvergi lægri en á Íslandi. Staðgreiðsluskattar hafa hækkað í tíð ríkisstjórnarinnar um 107% að meðalatali á hvern skatt- greiðanda en launin um 63%, eða langt umfram það sem launabreyt- ingar gefa tilefni til. Skattbyrði aukist mest á lágtekjufólki Skattbyrði fólks með 400.000 kr. mánaðartekjur og hærri hafa auk- ist miklu minna en skattbyrði þeirra sem eru með tekjur undir 400 þúsund krónum. Sláandi dæmi er að skattbyrði verkamannsins hefur í tíð þessarar ríkisstjórnar aukist um 109 þúsund krónur en skattbyrði þeirra sem eru með 350 þúsund krónur einungis aukist um 29 þúsund. Lækkun á tekjuskattshlutfalli einstaklinga úr 42% í um 38% hef- ur fyrst og fremst skilað sér til þeirra efnameiri, vegna þess hve persónuafslátturinn hefur verið skertur, en hann er nú 26 þúsund í stað 40 þúsunda ef hann hefði haldið í við vísitöluþróun. Þessi aukning á skattbyrði hefur ekki síst bitnað harkalega á lágtekju- fólki, lífeyrisþegum og atvinnu- lausum, sem greiddu um 1 milljarð í skatt á sl. ári, en greiddu engan tekjuskatt á árinu 1995. Skatta- stefna stjórnarflokkanna er stefna sérhagsmuna gegn almannahags- munum. Ég býð mig fram til að leiða annað Reykjavíkurkjördæm- anna fyrir Samfylkinguna – m.a. til að koma á sanngjarnri og rétt- látri skattastefnu. Hverjir borga brúsann? Eftir Jóhönnu Sigurðardóttur „Skatta- stefna stjórnar- flokkanna er stefna sér- hagsmuna gegn al- mannahagsmunum.“ Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.