Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 1
UPPBLÁSNUM sönd- um Íslands, sem líkt hef- ur verið við landslag á tunglinu, má umbreyta í risastóra lúpínu- eða byggakra sem gætu orð- ið uppistaðan í algerlega nýjum iðnaði hér á landi, framleiðslu á svokölluð- um lífmassa, og hefur Evrópusambandið nú veitt 60 milljóna króna styrk til rannsóknarverkefnis sem Íslenska lífmassafélagið hf. leiðir. Mark- miðið er að framleiða á arðbæran hátt um- hverfisvænar afurðir. Jarðgufa eða endurnýjanleg orka yrði notuð til þess að framleiða lífmassann en úr honum má t.d. framleiða efni til notkunar í lífefnaiðnaði og til efnaframleiðslu, það er hægt að vinna úr honum etanól, fóður og vistvæn leysiefni. Íslenska lífmassafélagið hefur haft frumkvæði að því að setja saman afar öflugan rannsóknarhóp en í honum eru auk félagsins sjálfs RALA, Beltra Forestry á Írlandi Ltd., háskólinn í Heidelberg, Bio- Refinery og BIOPOS í Þýskalandi, tetra Ingenieure GmbH og Institut für Agrar- technik Bornim. Heildarkostnaður verk- efnisins, þ.e. undirbúningsrannsóknir næstu tvö árin, er áætlaður um 110 millj- ónir en þann tíma á að nota til þess að rann- saka sýnishorn á lífmassa, meta nýtingu í afurðir og þróa og aðlaga vinnsluferla fyrir lífmassaverksmiðju. Vistvæn efni úr lúpínu ESB ákveður að styrkja verkefnið Reuters ALLT að tíu íbúðarhús brunnu í gær til kaldra kola í skógareldi í smáþorpinu Willow Vale, um 100 km suðvestan við Sydney í Ástralíu. Þykkan reykjarmökk lagði yfir nálæga bæi og íbúarnir reyndu að verja hús sín með því að sprauta vatni á þau. Um 3.000 slökkviliðsmenn berjast við nær hundrað skógarelda sem geisa í Ástralíu en slökkvistarfið hefur gengið illa vegna þurrka og hvassviðris. Hús verða skógareldi að bráð STOFNAÐ 1913 264. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 mbl.is Brjálaður bítill Ingólfur Margeirsson skrifar sögu Bítlanna 18 Charlotta Bøving verður hin smyrjandi jómfrú í Iðnó 10 Þau eru venjuleg Natalía Chow með styrktartón- leika fyrir einhverf börn 20 LIÐSMAÐUR illræmds bylt- ingarhóps í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn í Suð- ur-Afríku eftir að hafa verið á flótta í 27 ár. Þar með hafa all- ir liðsmenn hópsins verið handteknir. James Kilgore, einn af helstu liðsmönnum bylting- arhópsins, var handtekinn í Höfðaborg á föstudag. Hóp- urinn rændi Patty Hearst, son- ardóttur auðkýfingsins Will- iams Randolphs Hearst, árið 1974 og hún gekk seinna til liðs við hópinn. Kilgore á yfir höfði sér ákæru fyrir morð og vopnað rán í Bandaríkjunum. Hann hefur búið í Höfða- borg í fimm ár, notað nafnið Charles Pape og starfað við rannsóknarstofnun háskóla í borginni. Bandarísk yfirvöld höfðu látið vinna mynd af hon- um eins og talið var að hann liti út 27 árum eftir að hann flúði. Myndin var sýnd í sjón- varpsþætti og varð til þess að Kilgore fannst. Handtek- inn eftir 27 ára flótta Los Angeles. AFP, AP. ÍRAKAR sögðu í gær að skilmálar nýrrar ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnaeft- irlit í Írak væru „ósanngjarnir“ og „órökstuddir“. Þeir ýjuðu þó að því að Saddam Hussein kynni að fallast á ályktunina til að Banda- ríkjastjórn fengi ekki „tækifæri til að ráðast á Írak“. Stjórnin í Bagdad er að „gaum- gæfa þessa slæmu og ósanngjörnu ályktun í rólegheitum og ætlar að svara henni á næstu dögum“, að því er íraska fréttastofan INA hafði eftir háttsettum embættis- manni í Írak. Naji Sabri, utanríkisráðherra landsins, sagði að með því að sam- þykkja ályktunina hefði öryggis- ráðið „hindrað þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar að beita Íraka valdi“ og „hafnað röksemdum rík- isstjórnar hins illa og geðveikis- legri stríðslöngun hennar“. Málgögn írösku stjórnarinnar, Al-Jumhuriya og Al-Qadissiya, sögðu að ályktunin væri „órök- studd“. Dagblaðið Babel, sem er undir stjórn sonar Saddams, Udays, ýj- aði hins vegar að því að stjórnin kynni að fallast á skilmála álykt- unarinnar. Írakar fengu vikufrest til að svara ályktuninni. Fréttastofan AFP hafði eftir tveimur íröskum embættismönnum, sem vildu ekki láta nafns síns getið, að ekki væri ólíklegt að stjórnin myndi sam- þykkja ályktunina. Stjórnarskipti ekki nauðsyn- leg hlíti Írakar skilmálunum Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði seint á föstudagskvöld að Bandaríkja- stjórn myndi ekki lengur krefjast stjórnarskipta í Bagdad ef Írakar létu öll gereyðingarvopn sín af hendi og hindruðu ekki vopnaeft- irlitið. Sendiherra Bretlands hjá Sam- einuðu þjóðunum, Jeremy Green- stock, sagði í viðtali við BBC í gær að öryggisráðið kynni að þurfa að samþykkja nýja ályktun ef Írakar heimiluðu ekki eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna að leita að gereyðingarvopnum. Segja skilmála SÞ ósanngjarna Írakar ýja að því að þeir kunni að fallast á ályktunina AP Íraki hlustar á útvarpsfréttir af ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á götu í Bagdad í gær. Bagdad. AFP. ÍSLENSKIR popptónlistarmenn eru víða í eldlínunni erlendis um þessar mundir. Ný plata Sigur Rósar, ( ), er á sölulistum í 19 löndum, Björk gaf á mánudag út safnplötu og safnkassa og plötur hljómsveitanna múm og Quarashi seljast jafnt og þétt. Sigur Rós er í efsta sæti íslenska vin- sældalistans, 6. sæti þess norska, 13. sæti í Portúgal, fer beint í 49. sæti þess breska og 51. sæti á Billboard-listanum banda- ríska. Plata Sigur Rósar hafði selst í 250 þúsund eintökum í forsölu. Rapprokksveitin Quarashi hefur selt 220 þúsund eintök af plötunni Jinx og raf- poppsveitin múm hefur selt 75 þúsund ein- tök af nýrri plötu, sem á ensku nefnist Fin- ally we are no one. Sigur Rós er á sölulistum í 19 löndum. Íslenskt popp selst vel erlendis  Sigur Rós/61 Ástin flytur fólk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.