Morgunblaðið - 10.11.2002, Side 18

Morgunblaðið - 10.11.2002, Side 18
18 SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HANN var sendur fimm-tán ára gamall til sum-ardvalar í bresku borg-inni Brighton árið 1963þegar bresku Bítlarnir voru að byrja að slá í gegn. Hann kol- féll fyrir drengjunum frá Liverpool þegar hann heyrði lagið Twist and Shout á lítilli 45 snúninga plötu í breskri plötubúð þar í borg. Hann keypti hana samstundis. Stuttu síðar kom út tímamótaplatan „The Beat- les“, sem upptökustjórinn George Martin tók upp á einum degi í stúdíói líkt og um tónleika væri að ræða, hráa og án nokkurra upptökubrellna. Og auðvitað varð hann að eignast þá plötu líka. „Ég lá yfir þessu algjör- lega dolfallinn. Þennan „mersey“- hljóm hafði maður aldrei heyrt áður og hann endurómaði í höfðinu á mér daginn út og inn. Þetta var svo flott að ég féll alveg kylliflatur fyrir þessu.“ Í rúllukragabol, svörtum níð- þröngum gallabuxum og með Bítla- hár kom pilturinn heim á ný um haustið og vakti talsverða athygli í vinahópnum sem einn fyrsti Bítillinn á Íslandi. Hann raulaði Bítlalögin á gítarinn sinn í menntaskólapartíun- um til að ganga í augun á stelpunum og hljóp upp Laugaveginn til að kaupa sér nýjar Bítlaplötur um leið og þær bárust sjóðheitar í Fálkann. Stuttu síðar breyttust Lög unga fólksins í hálfgerðan Bítlaþátt. Allar götur síðan hefur Bítlaáhug- inn fylgt Ingólfi Margeirssyni, rit- höfundi og fjölmiðlamanni, enda er hann ein besta alfræðiorðabók um Bítlana hér á landi sem um getur, eftir alla þá rannsóknavinnu, sem hann hefur lagt að baki um sögu Bítl- anna. „Bítlarnir voru eins og bræður mínir enda ólst ég upp með þeim. Ég var andvaka og grét heila nótt þegar John Lennon var myrtur fyrir utan heimili sitt hinn 9. desember árið 1980 og spilaði þá allar plöturnar hans. Ég grét fyrir það fyrsta vegna dauða hans og ekki síður vegna þess að þar með rann draumur Bítla- áhugamannsins út í sandinn um að fjórmenningarnir kæmu saman sem hljómsveit á ný,“ segir Ingólfur. Vildi nýta efnið meira Fyrir utan óstöðvandi Bítlaáhugann, má rekja tilurð bókarinnar til vin- sælla útvarpsþátta, sem Ingólfur gerði um Bítlana fyrir um það bil tíu árum. „Ég stakk þessari hugmynd minni að Sigurði G. Tómassyni, þá- verandi dagskrárstjóra Rásar 2, sem tók henni fagnandi, en í stað þess að þættirnir ættu í upphafi að vera að- eins fjórir talsins, urðu þeir 29 talsins þegar upp var staðið. Þessari þátta- röð var svo endurútvarpað, vegna fjölda áskorana, sumarið 1999 og bættist þá við þrítugasti þátturinn sem gerður var í kjölfar pílagríms- ferðar minnar til Liverpool vorið 1999. Þegar ég svo sat uppi með 300– 400 síðna handrit í tölvunni minni eft- ir alla þáttagerðina fór ég að hugsa með mér að gaman væri að geta nýtt allt þetta efni eitthvað meira, þar sem að ég hafði orðið var við mikinn áhuga á þáttunum, bæði hjá áheyr- endum og ekki síður hjá útgefendum, sem ýjað höfðu að því að fá að gefa efnið út á diskum. En eftir að útgef- endurnir komust að því að greiða þyrfti háar fjárhæðir fyrir höfunda- rétt laganna, hvarf sá áhugi eins og dögg fyrir sólu, en innst inni vissi ég að enginn gæti bannað mér að um- skrifa þessa útvarpsþætti yfir í bók. Ég notaði útvarpsþættina, sem ég var búinn að prufukeyra með góðum árangri, sem kjarna og prjónaði svo þétt við þá þar til úr varð 350 blað- síðna bók,“ segir Ingólfur. Ingólfur hófst handa við Bítlabók- arskrifin árið 1998 og lauk við síðasta kaflann í árslok 2001. Hann studdist sérstaklega við eina grunnbók sem ber heitið „Revolution in the Head“, en viðaði auk þess að sér heimildum um ævisögur einstakra Bítla, sögu hljómsveitarinnar og bóka sem skrif- aðar voru á meðan Bítlarnir voru í fullu fjöri. Jafnframt kynnti hann sér viðtöl við foreldra, vini og kunningja Bítlanna svo dæmi séu tekin. „Ég gekk með handritið á milli forlaga í talsverðan tíma, byrjaði á mínu gamla forlagi, Vöku-Helgafelli, en forsvarsmönnum þar á bæ leist ekki alls kostar á hugmyndina og drógu í efa Bítlaáhugann á Íslandi. Sum önn- ur forlög töldu að efnið væri of gam- alt og úr því að ég væri búinn að gera því skil í útvarpi, þýddi ekkert að koma með það í bóka- markaðinn. Ég auðvit- að maldaði í móinn indum er, að mati Ingólfs, hversu mikið efni liggur eftir Bítlana, miðað við að blómatími hljómsveitarinnar spanni ekki yfir nema sjö ár, frá 1962–1969, enda sagði Paul McCart- ney einu sinni í viðtali að þeir fé- lagarnir hefðu aldrei átt neina æsku því hún hefði öll farið í vinnu. Eftir þá liggja tólf stórar breiðskífur auk fjölmargra minni platna og fjög- urra kvikmynda, Hard Days Night, Help, Get Back og Magical Mystery Tour. Á sama tímabili átti sér stað æskubylting í þjóð- félagshugsun, sem fæddi af sér breyttan lífsstíl og vímuefna- neyslu. Mjög greinilega kemur fram í bók Ingólfs að Bítlarnir hafi allir ver- ið á bólakafi í vímuefnum á hátindi ferils síns og er óhætt að segja að vímuefnin hafi haft geysileg áhrif á tónlistina. „Sagan segir að Bob Dyl- an hafi kennt Bítlunum að reykja hass á hótelherbergi í New York árið 1964 þegar þeir voru á tónleikaferða- lagi um Bandaríkin og héldu þá m.a. hina frægu tónleika á Shea Stadium í New York sem voru langstærstu tón- leikar, sem nokkurn tímann höfðu verið þar haldnir. Talandi um vímu- efnin, þá var rokkið líkt og brennivín- ið, kallaði á stuð og þriggja mínútna lög. Árið 1966 sendu Bítlarnir svo frá sér breiðskífuna Revolver og þá eru lögin þeirra orðin bæði flæðandi og fljótandi og allt upp í átta mínútna löng. Menn voru þá greinilega komn- ir inn í einhvers konar hassheim. Næst kom LSD fram á sjónarsviðið sem fer svo líka inn í tónlistina enda bera mörg laganna á Sgt. Pepper’s- plötunni, sem út kom 1967, keim af LSD.“ Fjögur hjól undir vagninn Írsk og amerísk áhrif voru mjög áberandi í alþjóðlegu hafnarborginni Liverpool á þessum árum og eiga reyndar bæði Lennon og McCartney rætur sínar að rekja til Írlands, líkt og allir hæfileikaríkustu listamenn Breta, segir Ingólfur. „Fjórmenn- ingarnir eiga það sameiginlegt að vera frá Liverpool og við hin svo heppin að þeir hitta hver annan og verða grúppa. John Lennon og Paul McCartney, sem báðir misstu mæð- ur sínar á unglingsaldri, ólust upp nánast í sama miðstéttarhverfi og kynntust sem strákpattar. George Harrison var ekki langt undan, en Ringo Starr kom úr fátækri verka- mannastétt og bjó annars staðar í borginni. Upphaflega bjó Lennon til strákaband með allt öðrum piltum og var að spila með hljómsveitinni sinni á vorhátíð við litla hverfiskirkju í Liverpool þegar hann sér og heyrir að Paul er að plokka gítarinn sinn í anddyri kirkjunnar. Harrison, sem fengið hafði gítar að gjöf frá ástríkri móður sinni, var búinn að leggja mikla rækt við gítarinn áður en John gafst upp á suðinu í honum og ákvað að kippa honum inn í hljómsveitina en þá var Harrison búinn að elta hann á röndum út um allan bæ. Trommuleikarann Ringo Starr hittu þremenningarnir svo á næturklúbbi í Hamborg, leist vel á færni hans og ákváðu að reka Pete Best frá trommusettinu þegar kom að því að taka upp fyrstu plötuna enda var Ringo afburða trommuleikari, fullur af nýjungum og tækni. Þar með var fjórði maðurinn kominn til sögunnar. Skipan hljómsveitarinnar vafðist þó talsvert fyrir upptökustjóranum George Martin þegar þeir komu fyrst inn í stúdíóð til hans og spurði hver ætlaði að vera aðalstjarnan. Allt í einu sló þeirri hugsun niður hjá honum að allir væru þeir svo sjarm- erandi að allir gætu þeir verið stjörn- ur, hver á sinn hátt. Þá gæti líka hver aðdáandi samsamað sig sínum manni.“ Hugsuður og baráttujaxl „Minn maður var lengi vel Paul McCartney. Á síðari stigum breyttist minn maður yfir í að verða John Lennon. Mér fannst Lennon miklu áhugaverðari persóna en McCartney þó að hinn síðarnefndi væri miklu betri tónlistarmaður og lagasmiður. Lennon var hins vegar ekkert sér- lega góður tónlistarmaður, að mínu mati, en í honum bjó svo mikill hugs- uður og baráttujaxl fyrir ýmsum þjóðþrifamálum,“ segir Ingólfur. Hápunkturinn á ferli Bítlanna tel- ur Ingólfur að allir geti verið sam- mála um að hafi verið útgáfa Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band árið 1967, tveim árum áður en sveitin leystist upp. Þegar rithöfundurinn og Bítla- aðdáandinn er spurður hvaða diskar úr Bítlasafninu lendi oftast á fónin- um, svarar hann því til að líklega séu það Revolver og Sgt. Pepper’s og lögin A Day in the Life og Blackbird væru í sérstöku uppáhaldi. „Annars hlusta ég á allt mögulegt nú til dags. Mér finnast hljómsveitir á borð við Travis og Coldplay mjög góðar auk þess sem ég hlusta mikið á djass og klassík. Mozart er í miklu uppáhaldi vegna þess að mér finnst hann svo líkur Paul McCartney. Ef þeir tveir hefðu verið uppi á sama tíma, hefðu þeir örugglega samið mjög áþekk verk.“ Óumflýjanleg upplausn Upplausn hljómsveitarinnar var óumflýjanleg eftir að bera fór á miklu ósætti og átökum innan henn- ar. „Fyrsta alvarlega krísa hljóm- sveitarinnar varð þegar umboðsmað- Fáir hafa jafnbrjálaða Bítlabakteríu og Ingólfur Margeirsson sem gert hefur þrjátíu útvarpsþætti og er nú að gefa út veglega bók um sögu Bítlanna, fjórmenninganna frá Liverpool, sem lögðu heims- byggðina að fótum sér á sjöunda áratugnum. Jóhanna Ingvarsdóttir sá bara Bítlastjörnur í aug- unum á Ingólfi þegar hann rifjaði upp „gamla“ tíma og dró fram hvern diskinn af öðrum. Brjálaður Bítlamaður Fjórmenning arnir frá Live rpool: Paul McCartney, John Lenno n, Ringo Sta r og George H arrison. og sagði að þetta væri tónlist allra kynslóða, eins og satt var. Ég hafði fengið mjög sterk viðbrögð við þátt- unum frá unglingum nútímans, sem voru að upptötva Bítlana, og fannst þeim þeir miklu merkilegri en sveitir á borð við Travis og Coldplay. Mér þótti einkar ánægjulegt að geta fært þennan „kúltúr“ aftur á bak og yfir til nýrrar kynslóðar. Það var ekki fyrr en að hún Sigrún Halldórsdóttir hjá PP-forlaginu kveikti almennilega að hlutirnir fóru að ganga. Ég sendi henni nokkra kafla úr bókinni og hvatti hún mig til að ljúka verkinu.“ Á bólakafi í neyslu Þrátt fyrir að hafa byrjað að spila saman á árunum 1957–1958, slógu Bítlarnir ekki í gegn að ráði fyrr en síðar. Þeir fóru til Hamborgar þar sem þeir spiluðu á knæpum allt upp í tólf tíma á sólarhring og þjálfuðust þar upp sem hljómsveit. Með ólík- Bresku Bítlarnir á hátindi ferils síns árið 1964. Morgunblaðið/Jim SmartIngólfur Margeirsson, rithöfundur, með nýju bókina sína, Byltingu Bítlanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.