Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 31
Jólagjafir
vinnufatnaður
www.icestart.is - sími 588 3060
Hamraborg 1-3 - 200 Kópavogur
Merkjum fatnað og vörur
eftir þínum óskum
Hitabrúsi
Flísteppi
fyrir fyrirtæki
til starfsmanna og viðskiptavina
UNDANFARIÐ ár hefur maður
varla heyrt Tómas R. Einarsson
stórtónskáld og bassaleikara nema
leikandi mambóa og aðra Karabíu-
dansa uppá kúbönsku, svo erfitt
hefur verið að stilla sig um að taka
sporið. Margur hefði haldið að
dansgleðin myndi ríkja í Norræna
húsinu á fyrstu Háskólatónleikum
vetrarins er hann lék sex valsa um
ástina með kvartetti sínum. Í það
minnsta þeir sem mundu Tómas
ungan þenjandi nikkuna á sund-
laugarböllunum í Sælingsdal forð-
um. En við sem höfum fylgst
grannt með tónskáldskap hans viss-
um að valsar hans eru oftar en ekki
markaðir fegurð ljóðsins og nor-
rænum trega og alls óskyldir þeim
völsum er Jóhann Strauss fram-
reiddi í Vínarborg þegar hinum þrí-
skipta takti er sleppt eða völsum
þeim er djassleikarar léku undir
dansi fyir daga boppsins. Þeir eru
skyldari þeim perlum er Bill Evans
skóp í þrískiptum takti – svosem
Very Early.
Það voru sex valsar á dagskránni
á Háskólatónleikunum. Þrír gamlir
og þrír nýir. Þeir gömlu voru allir
hljóðritaðir í bland við Dani. Jens
Winther blés á Nýjum tóni þarsem
Vangadans er að finna og Undir 4
þarsem Maínóttin ríkir, Eyþór lék á
báðum þeim diskum og Jóel þeim
seinni. Ástarvísan er svo Á góðum
degi þarsem Jacob Fischer sló gít-
arinn. Kannski er hún einn fegursti
vals Tómasar og minnir suma á
Dalina sænsku en mig á andblæinn
í þjóðlaginu sem gjarnan er sungið
við Sortnar þú ský. Jóel var ein-
staklega mjúktóna og melódískur í
saxafónleik sínum þar og samleikur
Eyþórs og Tómasar fínn. Jóel blés í
tenór í öllum völsunum nema tveim-
ur þarsem hann þandi kontrabassa-
klarinettið: hinu einfalda Gili og
Hófi þarsem höfundur plokkaði
bassann varfærnislega. Þriðji vals-
inn nýskrifaði, Skrið, var annars
eðlis; sterkur og dramatískur og
strauk höfundur þar boga um
strengi. Hápunkturinn þar var þó
píanósóló Eyþórs, hreinn og klár.
Matthías M. D. Hemstock notaði
bursta á trommurnar og átti ekki
minnstan þátt í að skapað innileik-
ann er einkenndi tónlistina þenna
hálftíma í hádeginu í Norræna hús-
inu.
Vernharður Linnet
Ástartregi
DJASS
Norræna húsið
Jóel Pálsson tenórsaxófón og kontra-
bassaklarinett, Eyþór Gunnarsson píanó,
Tóma R. Einarsson bassa og Matthías M.
D. Hemstock trommur. Miðvikudagur 6.
nóvember.
KVARTETT TÓMASAR R. EINARSSONAR
SÓMALSKA fyrirsætan Waris
Dirie og höfundur Eyðimerk-
urblómsins hlaut hin virtu al-
þjóðlegu bókmenntaverðlaun
Corine fyrir nýja bók sína,
Eyðimerkurdögun, sem komin
er út í íslenskri þýðingu hjá
JPV útgáfu.
Corine-verðlaunin eru þýsk
að uppruna en hróður þeirra
nær víða; þau hafa ekki einung-
is mikið gildi í Þýskalandi held-
ur um alla Evrópu og á alþjóða-
vísu. Þetta er í annað skipti
sem þeim er úthlutað og eru
þau talin einhver þýðingar-
mestu verðlaun sem veitt eru
fyrir bækur.
Eyðimerkurdögun er önnur
bók hennar og þar segir hún
frá þrá sinni eftir heimahögun-
um í Sómalíu sem hún flúði
barnung, ævintýralegri ferð
sinni þangað fyrir aðeins
tveimur árum og endurfundum
við fjölskyldu sína sem hún
vissi ekki hvort var lífs eða liðin
eftir alvarleg stríðsátök í land-
inu.
Meðal höfunda sem einnig
hlutu Corine-verðlaunin í ár
var Sigfried Lenz sem hlaut
sérstök heiðursverðlaun og
einnig var Astrid Lindgren
sem lést fyrr á árinu heiðruð
fyrir höfundarverk sitt á sviði
barnabókmennta.
Waris Di-
rie hreppir
Corine-
verðlaunin
Eftir þögn hef-
ur að geyma
13 lög þeirra
Óskars Guð-
jónssonar og
Skúla Sverr-
issonar. Lögin
á plötunni
heita Friður,
Hvítar, Hún, Amedeo, Koma, Mamm-
amma, Dimmalimm, Okkar á milli,
Anna kveður, Höfnun, Sættir, Systur,
Món ró og Nafni.
Óskar spilar á tenórsaxafón og
Skúli á bassagítar. Þorsteinn Jónsson
sá um upptökur og hljóðblöndun. Ívar
Bragason tók tvö lög upp í Salnum í
desember 2002.
Útgefandi er Ómi.
Djass