Morgunblaðið - 10.11.2002, Síða 39

Morgunblaðið - 10.11.2002, Síða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 39 ✝ RagnheiðurEsther Einars- dóttir fæddist á Kárastíg 8 í Reykja- vík hinn 31. október 1916. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans á Landakoti 5. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Einar Þórð- arson, afgreiðslu- maður í Reykjavík, f. 15. júlí 1880, d. 7. ágúst 1966, og Guð- ríður Eiríksdóttir, f. 22. nóvember 1883, d. 14. janúar 1966. Systkini Ragn- heiðar Estherar voru sjö talsins, þar af er ein á lífi: Ólafur Hafsteinn, kennari, f. 1.8. 1908, d., maki Gréta Guðjónsdóttir, húsmóðir, f. 4.11. 1910, d.; Kristinn Jóhann, f. 1.12. 1910, d. 1911; Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi ríkisins, f. 23.11. 1911, d., maki Ásdís Jesdóttir, hús- móðir, f. 29.8. 1911, d.; Sigríður Hulda, húsmóðir, f. 22.12. 1913, d., maki Þorbjörn Jóhannesson, kaup- maður, Kjötb. Borg, f. 10.3. 1912, d.; Ragnheiður, f. 13.10. 1915, d. 15.10. 1915; Guðríður Ingibjörg, f. 28.3. 1919, maki Þórhallur Þorláks- son, heildsali, f. 10.1. 1920; Hrafn- hildur Margrét, húsmóðir, f. 14.8. 1927, d. 9.10. 1964, maki Hermann Bridde bakarameistari, f. 16.5. 1927. Hinn 16. nóvember 1947 giftist Esther Sigfúsi Sigurðssyni, inn- kaupa- og verslunarstjóra Kaup- félags Árnesinga á Selfossi og síðar kaupfélagsstjóra í Stykkishólmi, f. 19.2. 1922, d. 21.8. 1999. Foreldrar hans voru Sigurður Kristjánsson, stjórnarkennari og forstöðumaður tilraunaeldhúss Osta- og smjörsöl- unnar SF., Reykjavík. 5) María Kristín, starfskona Landspítalan- um, maki Kristbjörn Theodórsson vaktstjóri. Dóttir Maríu og Valdi- mars Briem, sálfræðings er Ragn- heiður Esther Briem, nemi, maki Jóhann Friðgeirsson, verktaki. Barn Sylvía Lind. 6) Sigurður, markaðsfulltrúi hjá SÍF á Ítalíu, maki Sjöfn Björnsdóttir. Börn þeirra eru Emelía Björg, Katrín Erla, Sigurður Kristinn og Elín Edda. Esther lærði hárgreiðslu og tók meistarapróf í þeirri grein. Hún tók þátt í réttindabaráttu hárgreiðsl- unema og síðan stofnun Félags hár- greiðslunema. Hún stofnaði og rak hárgreiðslustofuna Lotus, sem stóð við Austurvöll í mörg ár, var um- svifamikil og þótti með bestu stof- um bæjarins. Esther flutti á Selfoss 1946 og hóf þar rekstur hár- greiðslustofu og starfaði óslitið sem eina hágreiðslukonan á Suðurlandi í u.þ.b. tvo áratugi. Einnig annaðist hún hárgeiðslu, aðstoðaði við bún- inga og förðun leikara Leikfélags Selfoss í áraraðir. Sýndi hún þeirri starfsemi ætíð áhuga. Hún rak ásamt eiginmanni sínum og börnum veitingastaðinn Þrast- arlund 1966–1970, sem þá var op- inn aðeins yfir sumartímann og var í eigu UMFÍ. Árið 1971 fluttust svo Esther og Sigfús í Stykkishólm, þar sem Sigfús, eiginmaður hennar, tók við starfi Kaupfélagsstjóra Kaup- félags Stykkishólms. Útför Ragnheiðar Estherar fer fram frá Selfosskirkju á morgun, mánudaginn 11. nóvember, og hefst athöfnin klukkan 13.30. bóndi í Hrísdal í Mikla- holtshreppi á Snæfells- nesi, f. 5. 10. 1888, d. 19. 9. 1969, og Margrét Hjörleifsdóttir, f. 27.9. 1899, d. 9.8. 1985. Esther og Sigfús bjuggu á Selfossi til 1971 og þar eftir í Stykkishólmi til ársins 1993, er þau fluttu til Reykjavíkur. Börn Estherar og Sigfúsar eru sex, talin í aldurs- röð: 1) Guðríður Haug- en, kaupmaður, Nor- egi, maki Thormod Haugen, kaupmaður. Börn Guðríð- ar frá fyrra hjónabandi eru Christ- ian, sölumaður og Helena Hylde- toft. Barn Guðríðar og Thormods er Kjartan, verslunarmaður. Börn Christians eru Maria Antonett, Ida og Hilmar Andri. Barn Kjartans er óskírður drengur. 2) Margrét Dóróthea, skólastjóri Húsmæðra- skóla Reykjavíkur, maki Sigurður Petersen skipstjóri. Börn þeirra eru Esther Ágústa Berg, yfirtölvu- endurskoðandi, Deloitte & Touche, Bandaríkjunum, maki Bala Kam- allakharan, yfirtölvuráðgjafi,Cap Gemini Ernst & Young, í Banda- ríkjunum, og Sigfús Sigurðsson, handboltamaður, Magdeburg. Barn Sigfúsar og Anastasiu Pav- lovu er Alexander Sigurður. 3) Ein- ar, kaupmaður, Reykjavík, maki Anna Kristín Sigþórsdóttir, kaup- maður. Sonur þeirra er Sigþór, rekstrarhagfræðingur hjá Flug- leiðum. Eiginkona Sigþórs er Sig- rún Guðmundsdóttir arkitekt og synir þeirra eru Sveinn Þór og Arn- ar Óli. 4) Dómhildur Arndís, hús- Glæsileg föðursystir hefur nú siglt úr sjónmáli seglum þöndum. Esther og þær dætur af Kárastígnum hafa ætíð verið einar flottustu dömur í bænum – skonnortur sem fagur- segldar hafa farið fyrir á fullu stími. Þau fengu vænan heimanmund systkinin – greind, glaðsinna og fal- leg á fæti. Þeim var ætlað að mennt- ast og mennast og sigla fullum byri fram á veg – til stjarnanna. Esther, hárgreiðslumeistari var áræðin dugnaðarkona sem ung stofnaði eina fínustu hárgreiðslustofu bæjarins, Lotus. Forkur og skartkona með ljósan makkann sem meginskart. Margar skemmtisögur fóru af Esthu, sumar færðar í stílinn. Mynd- arskap hennar og rausn var þó ekki unnt að ýkja, gestrisnin var slík að engum vörnum varð við komið. Þótt fjölskyldur okkar bönkuðu óvænt upp á hjá Esthu og hennar heittelsk- aða Sigfúsi kom hún til dyra í háhæl- uðum bandaskóm, fallega klædd og greidd og hann fagnandi. Aldrei var hún gripin ótilhöfð konan sú. Eins og hendi væri veifað biðu gesta veiting- ar, heitt súkkulaði og meðlæti eða veislumatur. Húsmóðirin á Selfossi, í Silfurgötu í Stykkishólmi og Reykja- vík opnaði faðm sinn og hús ætíð upp á gátt. Aldrei varð lát á rausn eða reisn Esther frænku. Myndarleiki og glæst framkoma einkenna og hennar stóru fjölskyldu sem nú sér á bak heittelskaðri ættmóður. Á æðri sviðum bíða Esthu nú án efa hlaðin borð og útbreiddir faðmar. Far í friði, flotta frænka. Elín, Edda, Katrín og Guð- jón Ólafs- og Grétubörn. „Ert þetta þú, Gulli minn,“ sagði hún og horfði á mig með þessum stóru, fallegu og blíðu augum. „Og ertu með rós handa mér?“ Ég tók í hönd hennar og við horfumst í augu og þögðum langa stund. Á kortinu sem fylgdi rósinni stóð: Til fyrstu konunnar sem ég varð skotinn í. Þetta var í síðasta sinn sem ég sá Esther Einarsdóttur áður en hún dó áttatíu og sex ára gömul. Esther kom til Selfoss árið 1946 en þá var ég átta ára. Hún vakti strax athygli fyrir glæsileika. Hún var ekki aðeins falleg heldur bar hún af í klæðaburði og framkomu. Hún var nýkomin frá Bandaríkjunum og hafði því fas heimskonunnar. Esther varð fljótt vinkona móður minnar og systra hennar en þær voru oft kall- aðar systurnar í Tryggvaskála vegna þess að afi minn og amma ráku þar gistihús og veitingasölu. Esther setti síðan upp hárgreiðslustofu í húsinu Ingólfi sem foreldrar mínir áttu þá. Ég man að fljótlega eftir að hún kom til Selfoss báðu foreldrar mínir hana um að passa mig eitt kvöld. Ég var svo feiminn við hana því að án þess að ég skildi það þá varð ég „skotinn“ í henni þótt ég væri bara smápolli. Hún var svo falleg og blíð en það var þessi innri fegurð sem ég skynjaði og það hefur án efa heillað mig mest. Þessa ótrúlegu blíðu, glæsileik og innri fegurð bar hún til æviloka. Esther fór síðan að vera með átrúnaðargoði okkar strákanna á Selfossi, Sigfúsi Sigurðssyni. Sigfús var íþróttakappi, kastaði kúlu og kringlu lengra en aðrir menn á Ís- landi í þá daga og þótt víðar væri leitað. Hann fór á Ólympíuleikana 1948 og var stolt okkar og fyrir- mynd. Þau voru glæsilegt par, Esth- er og Sigfús, og settu vissulega svip á þorpsbraginn á Selfossi og vöktu ávallt mikla athygli hvar sem þau fóru. Ég fluttist frá Selfossi þegar ég var ellefu ára svo að má segja að ég hafi ekki hitt Esther og Sigfús aftur fyrr en ég kynntist Einari syni þeirra og Önnu konu hans mörgum árum síðar. Einar og Anna bjuggu þá í Stykkishólmi en þangað höfðu Esther og Sigfús flutt þegar Sigfús tók við kaupfélagsstjórastöðu þar. Þegar ég og konan mín, Guðrún, fór- um í okkar fyrstu heimsókn til Ein- ars og Önnu var okkur boðið heim til Estherar og Sigfúsar. Þau bjuggu í einu af þessum stórglæsilegu gömlu húsum sem prýða Stykkishólm. Þar fengum við þvílíkar móttökur að þeim mun seint gleymt. Veislumatur og drykkir og þessi glæsileiki yfir öllu. Ég fann þá aftur fyrir þessari þægilegu tilfinningu sem fylgdi því að vera í návist Estherar. Þessi blíða og umhyggja, glæsileiki og innri og ytri fegurð sem einkenndu þessa konu alla tíð. Heimsóknir til þeirra hjóna urðu margar, því oft nutum við gestrisni Einars og Önnu í Stykk- ishólmi og ávallt var farið til Esth- erar og Sigfúsar líka. Einar hefur erft marga af bestu eiginleikum móður sinnar og föður svo vinskapur við hann varð dýpri og sterkari þess vegna. Eftir að Einar og Anna fluttu frá Stykkishólmi fórum við hjónin í mörg ár með þeim til rjúpna í ná- grenni Stykkishólms. Þá gistum við í Hólminum og nutum ávallt þessarar einstöku gestrisni þeirra hjóna Estherar og Sigfúsar. Mér finnst það mikil forréttindi að hafa fengið að kynnast Esther og Sigfúsi og nú eru þessi glæsihjón saman á ný. Ég votta Einari og Önnu samúð okkar hjóna svo og öðrum að- standendum Estherar Einarsdóttur. Esther mín, takk fyrir að hafa ver- ið ein af stóru konunum í lífi mínu. Ég hlakka til að hitta þig þegar ég kem heim aftur. Guðlaugur Bergmann, Sólbrekku, Hellnum. RAGNHEIÐUR ESTHER EINARSDÓTTIR Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR ESTHER EINARSDÓTTIR hárgreiðslumeistari, Snorrabraut 56, Reykjavík, áður Stykkishólmi og Selfossi, sem lést þriðjudaginn 5. nóvember, verður jarð- sungin frá Selfosskirkju mánudaginn 11. nóv- ember kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Guðríður Sigfúsdóttir, Thormod Haugen, Margrét D. Sigfúsdóttir, Sigurður Petersen, Einar Sigfússon, Anna K. Sigþórsdóttir, Dómhildur A. Sigfúsdóttir, María K. Sigfúsdóttir, Kristbjörn Theódórsson, Sigurður Sigfússon, Sjöfn Björnsdóttir, Ragnheiður Esther Briem, Jóhann Friðgeirsson. RÖGNVALDUR RÖGNVALDSSON bifreiðarstjóri, Víghólastíg 17, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju mánu- daginn 11. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta MS-félagið eða Sjálfsbjörg njóta þess. Fyrir hönd barna okkar og barnabarna, Guðrún Albertsdóttir. Okkar ástkæra JÓNA A. SVEINSDÓTTIR, Hverfisgötu 49, Reykjavík, sem lést á Sólvangi Hafnarfirði þriðjudaginn 5. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogs- kapellu þriðjudaginn 12. nóvember kl. 13.30 Fyrir hönd aðstandenda, Helga Aðalsteinsdóttir og fjölskylda, Sigurður V. Gunnarsson og fjölskylda. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SIGURÐSSON fyrrverandi kaupmaður í Straumnesi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ miðvikudaginn 6. nóvember, verður jarðsung- inn frá Langholtskirkju miðvikudaginn 13. nóvember kl. 13.30. Kristín Sigtryggsdóttir, Sigtryggur Jónsson, Lína Margrét Þórðardóttir, Sigurður Jónsson, Jófríður Halldórsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Róbert Melax, Ágústa Jónsdóttir, Helgi Baldvinsson, Steingrímur Jónsson, Ásta Davíðsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarþel vegna fráfalls ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, HUGBORGAR BENEDIKTSDÓTTUR, Lækjartúni, Ölfusi. Ólafur Jónsson, Jón Ólafsson, Sigurborg Valdimarsdóttir, Benedikt Ólafsson, Ásta Hallsdóttir, Kjartan Ólafsson, Arna Hjaltadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.