Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 8

Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 19 65 3 1 2/ 20 02 Höggborvél, DWT, 500w 3.995 kr. Moulinex blandari Verð frá 3.690 kr. Flís teppi 120x200 sm Vínrautt, rautt og blátt. Electrolux hrærivél/ matvinnsluvél m/stálskál og stálhakkavél Sú öflugasta - 3 ára ábyrgð Verð frá 39.999 kr. Bora og bitasett, 112 stk. 3.995 kr. Jólakúlur í miklu úrvali Mjúk gjöf Verð 1.990 kr. Harðir pakkar í Húsasmiðjunni Vonandi verður fyrsta hershöfðingja lýðveldisins sýndur sá sómi að fá að tróna á stalli við hlið Nonna Boy. Félag fagfólks gegn offitu Hratt vaxandi heimsvandi STOFNFUNDURFélags fagfólksgegn offitu verður á morgun, fimmtudaginn 12. desember, á Grand hóteli, Galleríi klukkan 17. Lud- vig Guðmundsson yfir- læknir hæfingar- og nær- ingarsviða á Reykjalundi er í forsvari fyrir félagið og svaraði hann nokkrum spurningum Morgun- blaðsins. – Hver eru tildrögin að stofnun þessa félags? „Ástæður fyrir stofnun félagsins eru margvísleg- ar. Offita er hratt vaxandi heilbrigðisvandamál um allan heim, svo mjög að hægt er að tala um offitu- faraldur. Alþjóða heil- brigðisstofnunin hefur skilgreint offitu sem sjúkdóm og er hann talinn annar stærsti heil- brigðisvandi heimsins, næst á eft- ir tóbaksreykingum. Verði frek- ari aukning á offitu stefnir hún í að verða stærsta heilsufarsvanda- mál heimsins á næstu áratugum. Ísland hefur ekki farið varhluta af þessari þróun. Vísbendingar eru um að við séum að komast í hóp þeirra þjóða sem verst eru settar, a.m.k. hvað varðar offitu barna, en einnig meðal fullorð- inna. Faraldsfræðirannsóknir sem lýsa nánar umfangi vandans hér á landi skortir þó sárlega. Of- fita hefur mjög víðtæk áhrif á heilsu manna til hins verra. Hún eykur verulega hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, meðal annars með því að valda gríðarlegri aukningu í sykursýki og skertu sykurþoli. Kæfisvefn er verulega aukinn meðal feitra. Krabbamein í brjóstum, legi og eggjastokkum er aukið, og hjá körlum krabba- mein frá endaþarmi og sennilega blöðruhálskirtli. Verkir frá stoðkerfi, slitgigt, þá einkum í neðri útlimum og baki og jafnvel bólgusjúkdómar frá liðum aukast. Ekki minnst hefur offita slæm áhrif á andlega líðan með þunglyndi, skertu sjálfs- trausti og vanmetakennd. Þá eru offeitir oft fórnarlömb eineltis og félagslegrar einangrunar. Margt fleira mætti telja. Heilbrigðisþjónustan ræður yf- ir fáum úrræðum til að fást við þennan mikla heilsufarsvanda. Honum hefur því ekki verið sinnt sem skyldi. Þessu þarf að breyta.“ – Hver er tilgangur félagsins og helstu markmið þess? „Tilgangur félagsins er að skapa sameiginlegan vettvang fyrir fagfólk í heilbrigðisþjónustu með áhuga á offitumálum. Það mun vinna að aukinni þekkingu og fræðslu á sviði offitu meðal fé- lagsmanna og miðla henni til ann- arra. Einnig mun það beita sér fyrir auknum rannsóknum sem varða offitu. Það mun hvetja til fyrirbyggjandi aðgerða gegn of- fitu. Þá mun það vinna að fram- gangi offituvarna og meðferðar innan heilbrigðisþjón- ustunnar. Loks mun það gerast aðili að al- þjóðlegu starfi á sviði offitumála.“ – Á hvaða hátt hyggst félagið beita sér? „Félagið er þverfagleg samtök heilbrigðisstarfsfólks. Það mun beita sér fyrir aukinni samvinnu og samstöðu þeirra sem að offitu- málum koma, bæði innan og utan heilbrigðisþjónustunnar, með það fyrir augum að bæta árangur í baráttunni gegn offitu. Það mun láta sig varða aðgerðir gegn of- fitu á öllum stigum forvarna og meðferðar fyrir alla aldurshópa. Félagið hefur enn ekki hafið störf og ákvarðanir um vinnu- brögð og leiðir í starfi því ekki mótaðar.“ – Hversu brýn er þörfin fyrir svona fagfélag? „Það er mikil þörf fyrir fag- félag um offitu. Eins og að fram- an greinir er um gríðarlegan og hratt vaxandi vanda að etja. Inn- an heilbrigðisþjónustunnar hefur þessu ekki verið nægilega sinnt. Það þarf að efla umræðu og þekkingu á þessu sviði. Einnig þarf að auka samstarf þeirra sem fást við offitu og samræma vinnu þeirra. Þörf er á meðferðarstefnu og meðferðarráðleggingum með það fyrir augum að bæta árang- ur. Nýjar leiðir í meðferð þarf að þróa. Forvarnarvinnu þarf að stórauka og þar gegnir öflugt fagfélag mikilvægu hlutverki.“ – Hvernig ætlið þið að byggja félagið upp? „Félagið verður opið öllu fag- fólki innan heilbrigðisþjónustunn- ar sem hefur áhuga á málefninu og vill leggja því lið. Settir verða á stofn starfshópar um tiltekin verkefni, svo sem fræðslu, rann- sóknir, kynningu og áróður, er- lend samskipti, samskipti við aðra aðila hérlendis um baráttu gegn offitunni.“ – Hverjir verða á stofnfundin- um og hverjir mega vera þar? „Á stofnfundinn er öllu fagfólki sem vill gerast stofnfélagar boðið. Fyrir stofnfund- inn verður haldið stutt málþing um stöðu offitumála. Landlæknir, Sigurður Guðmundsson, ávarpar fundinn. Laufey Steingrímsdóttir hjá Manneldisráði heldur erindi sem hún nefnir „Offita vex og vex – hvað er eiginlega að gerast?“ Ég verð síðan með erindi sem hefur yfirskriftina „Offita – kem- ur hún heilbrigðisþjónustunni við?“ Ludvig Guðmundsson  Ludvig Guðmundsson er yf- irlæknir hæfingar- og næring- arsviða á Reykjalundi. Fæddur 4. október 1947 á Ísafirði. Lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1974, sérfræðinámi í heim- ilislækningum í Svíþjóð 1980 og hlaut sérfræðiviðurkenningu í endurhæfingarlækningum 1996. Heilsugæslulæknir á Klaustri 1980–84, á Seltjarnarnesi 1984– 93 og á Reykjalundi – endurhæf- ingarmiðstöð frá 1993. Eig- inkona er Jóna Björg Jónsdóttir bankastarfsmaður og eiga þau fjögur börn, sem eru Guðmundur Jón, Guðbjörg Kristín, Sig- urbjörg Jóna og Njörður. Sex barnabörn. Nýjar leiðir í meðferð þarf að þróa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.