Morgunblaðið - 11.12.2002, Síða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 17
Stangaveiðihandbókin
svarar öllum helstu
spurningum veiði-
mannsins um veiðiár
og veiðivötn. Jafnt fyrir
þaulvana veiðimenn
sem byrjendur. Fjöldi
mynda og korta.
Metsö lubók sumars ins
2. prentun
Í Fátæku fólki segir
Tryggvi Emilsson
ótrúlega örlagasögu
sína.
Betri kostur –
kjötréttir geymir úrval
uppskrifta að ljúffeng-
um réttum sem allir
eru í samræmi við
manneldismarkmið
Manneldisráðs.
„Óhætt er að fullyrða
að æviminningar
Tryggva Emilssonar
séu með merkustu
ævisögum sem gefnar
hafa verið út ...“
GÁG
Sönn örlagasaga
Hollt og gott
Hálendishandbókin
hefur slegið í gegn
hjá öllu áhugafólki
um náttúru Íslands.
„Mæla má eindregið
með bók þessari
handa þeim sem vilja
kynnast öræfa-
slóðum.“
ÁHB í Mbl.
Metsö lubók!
Gjöf veiðimannsins
Bókin í jeppann
Suðurlandsbraut 10 • 108 Reykjavík
Sími 533-6010 • skerpla@skerpla.is
12. sæti á metsölulista DV
Verð 599 kr.
Aðeins í Hagkaupum!
Endurútgefin í kilju
4. prentun
HER Indónesíu kvaðst í gær hafa
hætt öllum hernaði í Aceh-héraði
eins og kveðið er á um í samningi
sem var undirritaður í fyrradag og á
að binda enda á 26 ára átök aðskiln-
aðarsinna og indónesíska stjórnar-
hersins. Samkvæmt samningnum
fær Aceh sjálfstjórn í eigin málum
en leiðtogar uppreisnarmannanna
segjast ætla að halda áfram barátt-
unni fyrir sjálfstæðu íslömsku ríki
með friðsamlegum hætti.
Uppreisnarmenn í Frelsishreyf-
ingu Aceh hafa barist fyrir því að
héraðið endurheimti sjálfstæði sitt,
en fyrsta íslamska konungsríkið í
Aceh var stofnað árið 804 og hét
Perlak. Undir stjórn soldánsins
Iskanders Muda á árunum 1607–36
var Aceh öflugasta ríkið á svæðinu í
viðskiptum og stjórnmálum en áhrif
þess minnkuðu smám saman eftir
dauða soldánsins Iskandars Thanis
árið 1641.
Aceh-búar hófu uppreisn gegn
hollenskum yfirráðum fyrir um 130
árum og henni lauk ekki fyrr en árið
1942. Aceh hefur tilheyrt Indónesíu
frá því að landið fékk sjálfstæði árið
1949.
Hasan di Tiro, afkomandi síðasta
soldánsins í Aceh, stofnaði Frelsis-
hreyfingu Aceh, Gam, í desember
1976. Hreyfingin var þá skipuð 150
uppreisnarmönnum en þeir eru nú á
þriðja þúsund. Þeir hafa þó átt við
ofurefli að etja því að í héraðinu eru
20.000 stjórnarhermenn og 8.000
lögreglumenn.
Gam hefur alltaf haldið því fram
að Aceh hafi aldrei tilheyrt Hol-
lensku Austur-Indíum formlega og
því hafi ekki átt að innlima héraðið í
Indónesíu. Aceh-búar hafi aldrei
samþykkt innlimunina.
Sakaðir um grimmdarverk
Um 12.000 manns hafa beðið bana
í uppreisninni á síðustu tíu árum,
flestir þeirra óbreyttir borgarar.
Átökin hafa kostað um 1.500 manns
lífið í ár.
Mannréttindahreyfingar hafa
sakað her Indónesíu um grimmdar-
verk og alvarleg mannréttindabrot í
Aceh, meðal annars mannrán, pynt-
ingar, morð og aftökur án dóms og
laga. Hersveitirnar eru sakaðar um
að hafa ráðist inn í mörg þorp í hér-
aðinu, kveikt í húsum, pyntað íbúa
til að fá þá til að játa aðild að Gam
og skotið marga til bana.
Frelsishreyfing Aceh hefur einnig
verið sökuð um mannréttindabrot
og morð á óbreyttum borgurum.
Hreyfingin er sögð hafa stundað
fjárkúganir og myrt marga Aceh-
búa vegna gruns um að þeir hafi
unnið með öryggissveitum Indó-
nesíu.
Margir sérfræðingar í málefnum
Aceh telja að ekki verði hægt að
koma á varanlegum friði í héraðinu
nema mannréttindabrotin verði
rannsökuð ýtarlega.
Fær að taka upp íslömsk lög
Íbúar Aceh eru rúmar 4 milljónir
og í héraðinu eru miklar olíulindir.
Héraðið hefur því verið mikilvægt
fyrir efnahag Indónesíu og önnur
ríki hafa hagsmuni af friði í Aceh því
að héraðið er við mynni Malakka-
sunds, eina af mikilvægustu sigl-
ingaleiðum heims.
Aceh er eitt af höfuðvígjum
heittrúaðra múslíma í Indónesíu og
margir íbúanna eru hlynntir því að
tekin verði upp íslömsk lög, eða
sharia. Indónesísk yfirvöld segja að
hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafi
reynt að mynda bandalag með
Frelsishreyfingu Aceh en ekki tekist
það. Ekki er vitað til þess að hreyf-
ingin tengist hryðjuverkahópum í
öðrum héruðum Indónesíu.
Samkvæmt friðarsamningnum
fær Aceh að taka upp sharia og
halda allt að 70% teknanna af olíu-
og gasvinnslu í héraðinu. Uppreisn-
armennirnir eiga að afvopnast og
stefnt er að því að heimastjórn verði
kosin árið 2004.
Leiðtogi Gam, Malik Mahmud,
sagði að hreyfingin myndi halda
áfram baráttunni fyrir sjálfstæði
héraðsins en lagði áherslu á að
framtíð þess myndi ráðast í kosn-
ingum, ekki átökum.
„Gleymda stríðinu“
í Aceh-héraði lokið?
Aðskilnaðarsinnar boða friðsama
baráttu fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis
!
"! # $%&'()
*# +!,
-
)
++
./
* +++ -
01
*
*+
!
2*1
" #$$%&#
'(")*+$,
,
--.'/
3 4 $%
55 !$
01 #0
+ & ,/2
65 3
,$
45,#0 4/
0
77 6#5
#0 /, 0
0
4$2#
7
#
4564$$ #5
02890#2#8
$
76 +
:22$#;
8 #
64$$ #5/#20/#+<
,
0#/#$
890#2$
#
76 78 64$$ #5
20
#,
!1+
# /%
== #
#$'
=
#20
#,64$$
:,>& ,?
788 20 /
28 5
#0
@%&0
64$$ :, 8 0
0%2$/90,#"
& ,
#5#20##$
@& A
0#0
/# #8 #0
$#
/64$$ :, /4$ 5
78 78 & ,%&8 ## A<
A## / $
,A8 $ 5
%2$/%&,+:"
:45
#5
2$ 3 $# /#5 4/0 0
@
0
0
#0#
04/
%2$/9,$
,#
! "##
$
%
Með friðarsamkomulagi
Frelsishreyfingar Aceh
og Indónesíustjórnar
hillir undir lok átaka
sem rekja má aftur til
18. aldar.
BRESKIR fjölmiðlar gera sér nú
mikinn mat úr Cherie Blair, eig-
inkonu Tony Blairs forsætisráð-
herra, en hún er sökuð um að hafa
þegið aðstoð fyrrverandi saka-
manns við kaup á tveim íbúðum.
Samkvæmt fréttum AP og AFP í
gær, hafa þingmenn Íhaldsflokksins
krafist opinberrar rannsóknar á því
hvort ríkisstjórnin hafi reynt að
flýta fyrir fyrirhuguðum nauðung-
arflutningi mannsins til Ástralíu.
Cherie Blair kom í gærkvöldi fram í
sjónvarpi, var grátklökk og sagðist
iðrast þess mjög ef málið hefði vald-
ið eiginmanni sínum pólitískum
vanda.
Sagan hófst fyrir rúmri viku þeg-
ar Daily Mail, sem er andsnúið rík-
isstjórn Blairs, sagði, að Peter Fost-
er, sem hefur verið dæmdur fyrir
svik og er kunnastur fyrir falskar
megrunarpillur, hefði hjálpað Cher-
ie við að kaupa tvær íbúðir í Bristol
með góðum afslætti. Foster hefur
verið neitað um dval-
arleyfi í Bretlandi og til
stendur að flytja hann
til síns heimalands,
Ástralíu, 18. desember.
Þetta liðsinni Fost-
ers kom til af því, að
vinkona hans, Carole
Caplin, fyrrverandi
fyrirsæta, er mikil vin-
kona Cherie. Cherie
heldur því fram, að hún
hafi ekkert vitað um
fortíð Fosters en hann
segist aldrei hafa reynt
að dylja hana.
Fóru í sturtu saman!
Fjölmiðlarnir reyna að finna nýj-
an flöt á málinu daglega og News of
the World sló því upp í gær, að
Cherie og Carole hefðu farið í
sturtu saman í líkamsræktarstöð,
sem þær sækja. „Ég sá þær báðar
naktar í sturtunni,“ sagði kona að
nafni Sue Harris í við-
tali við blaðið. Hvað
fréttnæmt er við það
skilja líklega aðeins
lesendur breskra slúð-
urfréttablaða.
Enginn hefur haldið
því fram, að Cherie
hafi aðhafst eitthvað
ólöglegt en Verka-
mannaflokkurinn hef-
ur samt áhyggjur af
málinu. Í gær reyndi
ráðherrann að af-
greiða málið sem
hvert annað ómerki-
legt fjölmiðlafár en
sagt er, að uppákoman
hafi samt haft lamandi áhrif á störf
stjórnarinnar.
Íhaldsmenn krefjast þess, að
kannað verði hvort ríkisstjórnin
hafi reynt að flýta fyrir brottvísun
Fosters eftir að samband hans og
Cherie komst í hámæli.
Fjölmiðlafár út af
„Cheriegate“
Cherie Blair