Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.12.2002, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ GÖTUMYND Aðalstrætis mun inn- an tíðar taka töluverðum stakka- skiptum. Tvö hótel munu rísa við götuna, í Aðalstræti 4 og 16, og Höfuðborgarstofa flytur á næst- unni í Aðalstræti 2, Geysishúsið, sem verið er að gera upp og áður hýsti Hitt húsið. Deiliskipulag fyrir Grjótaþorp, þar með talið Að- alstræti, var samþykkt í borgarráði í ágúst sl. en teikningar af hót- elunum hafa enn ekki verið teknar fyrir hjá skipulags- og bygg- inganefnd. Fyrstu teikningar af hóteli í Aðalstræti 4 eru nú til um- fjöllunar hjá byggingafulltrúa en byggingaraðili Aðalstrætis 16, þar sem byggja á yfir fornminjar, hefur ekki enn skilað teikningum. „Þessar breytingar munu hafa áhrif á núverandi götumynd Að- alstrætis, hótel verða á sitt hvoru horni götunnar og Höfuðborg- arstofa flytur í Aðalstræti 2 og hef- ur tengibygging frá húsinu og yfir í Vesturgötu verið hönnuð. Það er því mikil ferðaþjónustuuppbygging á döfinni,“ segir Salvör Jónsdóttir, sviðsstjóri skipulags- og bygg- ingasviðs Reykjavíkurborgar. „Ferlið er þannig að deiliskipulag- stillaga er unnin af svæðinu og sam- þykkt að undangengnum kynn- ingum þar sem tekið er tillit til athugasemda ef ástæða er til. Síðan þegar kemur að uppbyggingunni þurfa byggingaraðilar að skila inn teikningum til byggingafulltrúa sem gerir athugasemdir við þær ef þær eru ekki í lagi og síðan eru þær lagðar fyrir skipulags- og bygg- inganefnd þar sem um áberandi stað í borginni er að ræða. Teikn- ingar af hótelinu í Aðalstræti 4 liggja nú fyrir hjá byggingafull- trúa. Ekki hefur enn verið skilað teikningum af hótelinu í Aðalstræti 16. En hinn ytri rammi, þ.e. deili- skipulagið, gerir ráð fyrir hót- elunum og því er ekkert í skipu- lagskerfinu sem tefur málið. En það er orðið tímabært að hefjast handa við uppbygginguna. En það getur auðvitað tekið langan tíma að vinna teikningar eftir að skipulag er sam- þykkt. Síðan þarf væntanlega að semja við rekstraraðila.“ Í Geysishúsinu og nýrri tengi- byggingu sem þar verður byggð á næstunni og Hjörleifur Stefánsson hannaði, verður aðstaða til veit- ingareksturs auk Höfuðborg- arstofu sem m.a. sér um upplýs- inga- og ferðamál borgarinnar. Búið er að samþykkja deiliskipu- lagsbreytingu en byggingaleyfi verður gefið út fyrir byggingunni á næstu dögum. Mikil uppbygging ferðaþjónustu Umræða um hótelbyggingar í Aðalstræti hefur verið hávær allt frá árinu 2000 og stóð í fyrstu til að hótel í Aðalstræti 16 gæti risið næsta vor. Viðamikill fornleifaupp- gröftur varð þó m.a. til þess að seinka framkvæmdum og hug- myndir um að byggja hótel yfir fornleifarnar fæddust í kjölfarið og voru umdeildar. Samkvæmt deiliskipulagi er ráð- gert að hótelið við Aðalstræti 4, á horni Aðalstrætis og Fischersunds, verði 80 herbergja á 5 hæðum auk riss og hótelið yfir fornminjunum í Aðalstræti 16, á horni Aðalstrætis og Túngötu, verði 70–75 herbergja á þremur hæðum. Jónas Þ. Þor- valdsson, framkvæmdastjóri Fast- eignafélagsins Stoða hf. sem sér um hótelbygginguna yfir fornminj- unum, sagði í samtali við Morg- unblaðið í síðustu viku að verkefnið væri í ákveðnum farvegi og þróun- ar- og skipulagsmálin tækju sinn tíma. Reykjavíkurborg þurfi að ljúka fornleifauppgreftri á svæðinu áður en aðrar framkvæmdir hefjist, en borgin komi til með að eiga sýn- ingarskála í kjallara hótelsins. Stefnt er að því að hótelið í Að- alstræti 4 verði tilbúið næsta sumar en í Aðalstræti 16 í mars 2005. Ekki enn búið að gefa út byggingarleyfi tveggja hótela við Aðalstræti Verið er að undirbúa framkvæmdir við tengibyggingu sem mun brúa bilið milli Geysishússins og Vesturgötu, hús hefur verið rifið en annað mun rísa á næstunni. Teikningar bíða afgreiðslu. Morgunblaðið/Sverrir Hjörleifur Stefánsson hannaði tengibyggingu milli Vesturgötu og Aðalstrætis 2, Geysishúss (til vinstri), en þar verður m.a. Höfuðborgarstofa og veitingasala í framtíðinni. Búið að hanna tengibyggingu við Geysishúsið Kvosin JESÚBARNIÐ í jötunni, vitr- ingar, fjárhirðarnir og auðvitað María og Jósep voru meðal þeirra hlutverka sem leikin voru af elstu börnum leikskólans Austurborgar í helgileik sem sýndur var í Grensáskirkju í gær. Börnin höfðu undirbúið helgileikinn vel og tóku hlutverk sín alvarlega þó að skemmtun hafi sannarlega verið höfð í fyrirrúmi við und- irbúninginn. Fjölskyldum barnanna var boðið að horfa á uppfærsluna sem sló auðvitað í gegn meðal viðstaddra. Að sögn Öllu Dóru Smith að- stoðarleikskólastjóra er helgileik- urinn og heimsókn í kirkjuna ár- legur viðburður meðal elstu barna leikskólans. Saman mynda þau svokallaðan skólahóp enda þau börn sem kveðja leikskólann í vor og hefja skólagöngu í grunn- skóla næsta haust. Morgunblaðið/Árni Torfason Litlir vitringar undir blikandi jólastjörnu MIÐBÆJARNEFND Hafn- arfjarðar telur ekki tímabært að ráðast í landfyllingar við Norðurbakkann. Nefndin tel- ur þó mikilvægt að stuðla að þéttingu byggðar í miðbæn- um. Skipulags- og byggingaráð Hafnarfjarðar sendi miðbæj- arnefnd erindi þar sem óskað var eftir umsögn um tillögur Norðurbakka ehf. að breyt- ingu á uppbyggingu norður- bakka. Í umsögn nefndarinnar segir að hún telji að miðbæj- arsvæðið muni styrkjast um- talsvert við framkvæmdir í líkingu við þær sem nefndar hafa verið. Heildaruppbygging svæðis- ins, bæði á Norðurbakka og á fyrirhugaðri landfyllingu fyr- ir framan verslunarhúsið Fjörð muni vafalítið efla um- svif og mannlíf í miðbæ Hafn- arfjarðar. „Miðbæjarnefndin telur þó ekki tímabært að ráðast í kostnaðarsamar landfyllingar eins sakir standa, þar sem ekki verður séð að útlagðir fjármunir muni skila sér í bæjarsjóð fyrr en seint og um síðir. Miðbæjarnefnd telur mikilvægara að efla miðbæinn með þéttingu byggðar á van- nýttum lóðum sem úthluta má án verulegs tilkostnaðar,“ segir að lokum í umsögninni. Uppfyll- ingar við Norður- bakka ekki tímabærar Hafnarfjörður Umsögn mið- bæjarnefndar um miðbæinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.