Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 19
NÝ kapella var tekin í notkun í
Glerárkirkju við hátíðarmessu á
sunnudag, á 10 ára vígsluafmæli
kirkjunnar. Það var herra Karl
Sigurbjörnsson biskup sem vígði
kapelluna.
Síðustu vikur hafa staðið yfir
framkvæmdir við suðurálmu Gler-
árkirkju, en hún var áður leigð
Síðuskóla. Þar er nú þjónustuálma,
skrifstofur starfsfólks, aðstaða fyr-
ir Kór Glerárkirkju, umsjónar-
menn ýmissa þátta kirkjustarfsins,
fundaaðstaða, kaffistofa auk kap-
ellunnar. Þessum viðamiklu breyt-
ingum tókst að ljúka í einum
áfanga, en þar kemur einkum til
veglegur stuðningur sóknarbarns,
Ásrúnar Pálsdóttur, sem ánafnaði
kirkjunni hluta af dánarbúi sínu.
Konur úr Kvenfélaginu Baldursbrá
afhentu kirkjunni að gjöf glerlista-
verk í glugga eftir Leif Breiðfjörð:
Hafa kvenfélagskonur safnað fyrir
glugganum síðustu 8 ár. „Það má
hafa mörg orð um stuðning og vel-
vild kvenfélagskvenna til kirkju og
sóknar allt frá stofnun prestakalls-
ins en hér er sannarlega brotið
blað,“ skrifar Jónas Karlesson, for-
maður sóknarnefndar, í Safnaðar-
blað Glerárkirkju. „Seint verður
fullþakkaður sá hugur sem kven-
félagskonur hafa sýnt kirkjunni
allt frá upphafi og fáheyrt um slíkt
framtak sem þetta.“
Sóknarbörnum hefur fjölgað
mjög á undanförnum árum og hef-
ur sóknin um langa tíð verið meðal
þeirra stærstu á landinu þegar
miðað er við fjölda sóknarbarna á
hvern prest. Í undirbúningi er að
ráða djákna til starfa með áherslu
á aukið barna- og unglingastarf.
Ráðning djákna þykir löngu orðin
tímabær en þröngur fjárhagur hef-
ur ekki leyft hana fyrr. Þá hefur
þess einnig verið beðið að unnt
yrði að ráða aðstoðarprest til
starfa í sókninni og eru líkur tald-
ar á að sá draumur rætist innan
tíðar.
Þjónustuálma og kapella tekin í notkun á 10 ára afmæli Glerárkirkju
Kvenfélagskon-
ur gáfu steind-
an glugga
Kvenfélagið Baldursbrá afhenti Glerárkirkju að gjöf glerlistaverk í glugga
eftir Leif Breiðfjörð. Á myndinni eru Sigurveig S. Bergsteinsdóttir, for-
maður Kvenfélagsins Baldursbrár, og Jónas Karlesson, formaður sókn-
arnefndar Lögmannshlíðarsóknar. Fyrir aftan þau situr séra Pétur Þór-
arinsson, prestur í Laufási.
Morgunblaðið/Kristján
Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, vígir nýja kapellu Glerárkirkju.
F.v. Sigríður Jóhannsdóttir, Jónas Karlesson, séra Gunnlaugur Garðarsson,
séra Sigurður Guðmundsson, herra Karl Sigurbjörnsson, séra Birgir Snæ-
björnsson, séra Pálmi Matthíasson og Sigurveig S. Bergsteinsdóttir.
Skákfélag Akureyrar heldur í sam-
vinnu við Jón sprett svonefnt Pizzu-
mót. Laugardaginn 14. desember kl.
13.30 er mót fyrir börn og unglinga,
15 ára og yngri, og eru pítsur frá
Jóni spretti í verðlaun. Auk þess
verður einn keppandi dreginn út og
fær sá einnig vegleg pítsuverðlaun,
óháð árangri. Daginn eftir, sunnu-
dag, kl. 14, fer svo fram sams konar
mót fyrir 16 ára og eldri.
Á NÆSTUNNI
Ljóðakvöld verður í Húsi skáldsins
á Sigurhæðum í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 11. desember. Og rétt eins og
annars staðar í þjóðlífinu eru það jól-
in sem ráða þegar Erlingur Sigurð-
arson flytur gestum gamlan jafnt sem
nýlegan kveðskap um það efni. Allir
eru velkomnir á þetta ljóðakvöld sem
að líkindum verður hið síðasta. Dag-
skráin hefst kl. 20.30 en húsið verður
opið frá kl. 20 og heitt á könnunni.
Í DAG
AKUREYRARMÓT grunn-
skólasveita í skák, yngri og
eldri flokkur, fór fram um
liðna helgi.
Í yngri flokki, 1.–7. bekk,
tóku 6 sveitir þátt frá 4 skól-
um og vann A-sveit Lund-
arskóla glæsilegan sigur,
vann allar skákir sínar og
fékk því 20 vinninga af 20
mögulegum.
Ekki er víst að mótið hafi
nokkru sinni unnist með fullu
húsi. Lið
Lundarskóla skipuðu þeir
Jón Heiðar Sigurðsson, Aron
Skúlason, Aron Hjalti Björns-
son og Eyþór Gylfason. Allir
urður þeir Íslandsmeistarar
með skóla sínum í vor og
tefldu fyrir hönd skólans á
Norðurlandamótinu nú í
haust.
Í eldri flokki mættu ein-
ungis 2 sveitir til leiks og
lagði sveit Brekkuskóla lið
Lundarskóla nokkuð örugg-
lega, samtals 6–2. Sveitir
Lundarskóla í yngri flokki og
Brekkuskóla í eldri flokki
keppa því á Íslandsmóti í vor
fyrir hönd Akureyrar.
Góður
sigur
Lundar-
skóla
VEÐRIÐ hefur leikið við landsmenn nú í upphafi aðventu. Það kemur
sér vel fyrir þá sem þurfa að skjótast milli staða í jólaönnum. Þessir
ungu drengir í Brekkuskóla notuðu hins vegar tækifærið og léku knatt-
spyrnu á skólalóðinni – undir vökulu auga frelsarans, sem prýðir
glugga skólans.
Undir vökulu auga
Morgunblaðið/Kristján
Jólastemmning á fótboltavellinum.
KVINTETT Sunnu Gunnlaugs
verður með aðventudjass á
Græna hattinum (undir Bláu
könnunni) á vegum Jazzklúbbs
Akureyrar í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 11. desember, kl. 21.15.
Kvintettinn skipa: Kristjana
Stefánsdóttir, söngur, Sigurður
Flosason, saxófón, Sunna Gunn-
laugs, píanó, Gunnar Hrafnsson,
bassi, Scott McLemore, trommur.
Kvintettinn mun leika efni af
nýútkomnum diski, Fagra veröld,
í bland við léttdjössuð jólalög. Á
disknum Fagra veröld er að finna
lög Sunnu við ljóð Tómasar Guð-
mundssonar, Steins Steinarr,
Sigurbjargar Þrastardóttur og
fleiri. Diskurinn hefur verið til-
nefndur til íslensku tónlistarverð-
launanna sem besti djassdiskur
ársins.
Kvintett Sunnu Gunn-
laugs í Græna hattinum
er staðsett í miðborg Reykjavíkur á Spítalastíg 1. Þar
er boðið upp á lúxus 2ja manna herbergi með sér-
setustofu, eldunaraðstöðu og sjónvarpi. Einnig 3ja
herbergja íbúðir (2 svefnherbergi, 4 rúm). Bílastæði
fyrir gesti. Kjörin staðsetning og gott verð hvort heldur
sem þú ert í viðskiptaerindum eða vilt njóta menning-
arlífs höfuðborgarinnar. Myndir á vefsíðu. Hafðu sam-
band og þú sérð ekki eftir því.
Sími 511 2800. Fax 511 2801.
Netfang luna@luna.is. Vefsíða www.luna.is
Geymið auglýsinguna.
Gistihúsið Luna