Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 20

Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 20
SUÐURNES 20 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ STEFNT er að því að fyrsta skóflu- stungan að fyrsta áfanga tvöföldunar Reykjanesbrautar sunnan Hafnar- fjarðar verði tekin 11. janúar næst- komandi. Verður þetta fyrsti fjög- urra akgreina þjóðvegurinn utan þéttbýlis hér á landi. Í gær var skrif- að undir samning Vegagerðarinnar og lægstbjóðenda í verkið en hann hljóðar upp á 616 milljónir. „Það er mikill áfangi að fram- kvæmdir við tvöföldunina skuli vera hafnar, sérstaklega á þessum erfiða kafla,“ segir Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra en hann var við- staddur undirritun verksamningsins í gær ásamt fulltrúum áhugahóps um tvöföldunina. Jarðvinnuverktakarnir Háfell ehf. og Jarðvélar sf. og byggingafélagið Eykt ehf. áttu lægsta tilboðið og fengu verkið. Eiður Haraldsson, framkvæmdastjóri Háfells, segir að stórvirk tæki verði notuð við verkið og það auðveldi vinnuna að hægt verði að vinna fjarri umferð um brautina. Vinna hefst í byrjun næsta árs og verður með vaxandi þunga næstu mánuði en mesti krafturinn verður í framkvæmdunum næsta sumar. Auk lagningar nýs tveggja akgreina vegar við hlið hins gamla á rúmlega átta kílómetra kafla frá Hvassahrauni um Afstapahraun og Kúagerði og upp á Strandarheiði verða byggð tvenn mislæg gatnamót, annars vegar í Hvassahrauni og hins vegar við Vatnsleysustrandarveg. Framkvæmdunum á að ljúka eigi síðar en 1. nóvember 2004 en Eiður Haraldsson vonast til þess að þeim ljúki tveim mánuðum fyrr enda fái fyrirtækin flýtifé ef það takist. Forsvarsmenn áhugahóps um tvö- földun Reykjanesbrautar áttu fund með samgönguráðherra eftir undir- ritunina í gær til að fá upplýsingar um framhald verksins. Sturla Böðv- arsson segir að ákvarðanir um fram- hald tvöföldunar Reykjanesbrautar suður á bóginn verði teknar við gerð vegaáætlunar í vetur. Hann segir að þetta sé stórt verkefni og ekki hægt að gera ráð fyrir öðru en að það taki töluverðan tíma og vekur jafnframt athygli á miklum framkvæmdum sem standi fyrir dyrum við Reykja- nesbrautina í mesta þéttbýlinu á höf- uðborgarsvæðinu og mislæg gatna- mót á þeirri leið. Verktakar hefja framkvæmd- ir við tvöföldun í janúar Morgunblaðið/Jim Smart Sturla Böðvarsson samgönguráðherra óskar Eiði Haraldssyni, eiganda Háfells, til hamingju eftir undirritun samninga við Vegagerðina. Reykjanesbraut KANADÍSKA leiguflugfélagið HMY Airways er að hefja viku- legt flug milli Vancouver og Calgary í Kanada og Manchest- er á Englandi, með viðkomu á Keflavíkurflugvelli. Fyrsta vélin kemur næstkom- andi mánudag. Stefnt er að flugi fimm til átta sinnum í viku í sumar til fleiri viðkomustaða í Evrópu og vesturströnd Kan- ada. Steinþór Jónsson, hótelstjóri Hótel Keflavíkur, er umboðs- maður kanadíska flugfélagsins en hann var einnig umboðsmað- ur Canada 3000 þegar það félag hóf að millilenda hér á landi. Eftir að Canada 3000 hætti hef- ur hann unnið að því að fá önn- ur félög til að taka upp þráðinn. Nú er HMY Airways að hefja flug og enn á hann í viðræðum við stjórnendur Canada West en þeir hafa hug á flugi milli Kan- ada og áfangastaða í Austur- Evrópu. Segir Steinþór að ef fjármögnun gengur vel sé möuglegt að það félagi hefji einnig flug hér um í sumar. HMY Airways notar 757-200 þotur í þessu flugi. Félagið flýg- ur nú þegar frá Kanada til ýmssa borga í Bandaríkjunum og Mexíkó. Lægri þjónustugjöld Steinþór hefur samið við Vall- arvini um að afgreiða vélarnar. Þá hefur hann óskað eftir leyfi íslenskra samgönguyfirvalda um að flugfélagið fái leyfi til að flytja farþega milli Íslands og Kanada, eins og Canada 3000 gerði á sínum tíma. Vegna hárra þjónustugjalda voru farþegar aðeins teknir hér einu sinni í viku en Steinþór segir að með aukinni samkeppni í þessari þjónustu hafi þjónustugjöldin lækkað mjög og það skapi betri grundvöll til innritunar farþega hér. Kanadískar vélar milli- lenda á Íslandi Keflavíkurflugvöllur HÚSNÆÐISNEFND Grindavíkur leggur til að dregið verði úr hækk- unum á húsaleigu, sem tilkynntar hafa verið, á sjö félagslegum íbúðum af átján sem Grindavíkurbær á. Áformað var að hækka leigu á um- ræddum íbúðum um 18-19 þúsund á mánuði en leigan hækkar um 8.000 til 10.600 krónur, verði tillaga nefndarinnar samþykkt. Framkvæmdastjóri húsnæðis- nefndar Grindavíkur tilkynnti leigj- endum félagslegra íbúða um veru- legar hækkanir á húsaleigu. Áttu þær að taka gildi um áramót. Viðmiðunarstuðull hækkar Framkvæmdastjórinn, Kjartan F. Adólfsson, segir að húsaleigan hafi verið reiknuð upp á nýtt og sam- ræmd samkvæmt viðmiðunar- reglum Íbúðarlánasjóðs. Útreiknuð leigufjárhæð miðast við framreiknað verð íbúðanna og þann stuðul sem Íbúðarlánasjóður gefur út sem há- mark við útreikning á leigu. Fyrr á þessu ári hækkaði Íbúðarlánasjóður þennan hámarksstuðul úr 5,27% í 6,9% og segir Kjartan að það hafi verið gert til að færa húsaleigu nær raunverulegum kostnaði. Kjartan getur þess jafnframt að leigan hafi ekki verið hækkuð um síðustu ára- mót og að leigutekjurnar dugi ekki fyrir afborgunum og vöxtum og öðr- um kostnaði við rekstur íbúðanna og viðhald. Leiða þessir útreikningar til þess að leiga á íbúðum í Heiðarhrauni 30 hækkar um 6-8 þúsund eftir stærð, eða um 19 til 39%. Þó eru dæmi um meiri hækkanir á einstökum íbúð- um, eða allt upp í 11 þúsund en Kjartan segir að það sé vegna sam- ræmingar á leigu íbúðanna í húsinu. Mánaðarleg leiga með gjaldi í hús- sjóð verður 28 til 37 þúsund krónur á mánuði. Útreikningurinn leiðir til enn meiri hækkunar á leigu íbúða í Heiðarhrauni 32 og á Ásvöllum, eða 18-19 þúsund á mánuði sem gerir 42-73% hækkun. Framkvæmdastjórinn tilkynnti leigjendunum þessar hækkanir án þess að leggja þær fyrir húsnæð- isnefnd bæjarins. Kjartan segir að ekki hafi verið venja að leggja slíka útreikninga fyrir nefndina. Húsnæðisnefndin tók málið síðar fyrir og hefur nú lagt til við bæj- arstjórn að dregið verði úr hækk- unum átta af þessum ellefu íbúðum, það er að segja íbúðunum í Heið- arhrauni 32 og Ásvöllum. Vill nefnd- in að leigan þar hækki um 8 til 10.600 krónur eða um 25–30%. Verði breytingin samþykkt munu leigj- endur í Heiðarhrauni 32 greiða 34– 43 þúsund krónur í leigu mánuði og er hússjóðsgjald innifalið. Þess ber að geta að leigjendur geta átt kost á húsaleigubótum sem eru tekjutengdar en geta numið allt að helmingi leigufjárhæðar. Bæjarráð hefur óskað eftir grein- argerð frá fjármálastjóra bæjarins um þessar hækkanir og vísað málinu til bæjarstjórnar. Búist er við af- greiðslu þess á fundi í vikunni. Húsnæðisnefnd vill draga úr hækkun Grindavík Leiga félagslegra íbúða hækkuð STJÓRN Læknafélags Íslands segist hafa fullan skilning á tregðu fyrrver- andi heilsugæslulækna á Suðurnesj- um til að ráða sig til baka á heilsu- gæslustöðvar þar. Kemur þetta fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í gær. Þar er þess jafnframt getið að stjórnin styður við- leitni læknanna við að finna sér ný störf, þar sem vinnuumhverfi og við- mót stjórnenda virðist í heilbrigðara fari, eins og það er orðað. Til rökstuðnings þessari niður- stöðu vísar stjórnin meðal annars til upplýsinga um að fækka eigi heim- ilislæknum á Suðurnesjum og að ekki eigi að ráða alla til baka og að lækn- unum hafi verið boðin lakari kjör en þeir höfðu áður en þeir hættu störfum eftir uppsögn. Styðja læknana í því að fá sér önnur störf Keflavík NÝJASTA skip íslenska kaupskipaflotans heitir Björg- vin, eftir föður og afa eigenda þess, Björgvins frá Há- teigi í Garði. Skipið verður notað til að flytja inn þorsk- hausa fyrir fiskverkunina Háteig í Garði auk annars tilfallandi flutnings. Skipið kom í fyrsta skipti til landsins seint á laugar- dagskvöldið með um 60 tonn af hausum frá Skotlandi sem landað var í Sandgerði og var áætlað að það færi þaðan aftur í dag. Feðgarnir Magnús Björgvinsson og Matthías Magnússon notuðu tímann til að útbúa skipið þannig að hægt væri að skrá það á íslenska skipaskrá. Áformað er að skipið fari þrjár ferðir í mánuði til Skotlands til að sækja þorskhausa fyrir Háteig. Vonast feðgarnir eftir því að fá annan flutning enda skipið ágætlega útbúið til að flytja frystan og ferskan fisk. Ekki liggur fyrir hvort Björgvin kemur við í Færeyjum eins og komið hefur til tals. Skipið er 50 metra langt. Það er 24 ára gamalt en hefur verið endurbyggt sem frystiskip. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Flutningaskipið Björgvin kom til hafnar í Sandgerði um helgina, í fyrsta skipti. Þar var skipað upp hausum. Í fyrsta skipti í heimahöfn Sandgerði Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Feðgarnir Matthías Magnússon og Magnús Björg- vinsson í Háteigi í Garði eru eigendur Björgvins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.