Morgunblaðið - 11.12.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 11.12.2002, Síða 30
UMRÆÐAN 30 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þ að fer sennilega ekki framhjá neinum að jólin nálgast óðfluga. Það snýst nánast allt um jólin þessa dag- ana. Við förum í jólahlaðborð, kveikjum ljósin á jólatrjám, kaupum jólaföt, freistum þess að komast í jólakjólinn, tölum um jólafrí, lesum jólabækurnar og hugsum um girnilegu jólarjúp- urnar, grænlensku, sem reyndar er víst útséð um að komist á jólaborðin. Þegar þetta er skrifað eru um tvær vikur til jóla og fyrstu jóla- sveinarnir væntanlegir til byggða. Skórnir verða líklega settir út í glugga í kvöld. Að venju er eftirvæntingin senni- lega mest hjá börnunum. Þau bíða mörg hver eftir jólasvein- unum og að- fangadegi með óþreyju. Það er þó annar hópur sem ég geri ráð fyrir að hugsi einnig um jólin og aðventuna með gleði í huga; er ég þar að tala um versl- unareigendur. Þeir hafa alltént verið duglegir að minna okkur hin á hátíðina, undanfarnar vik- ur ef ekki mánuði, og að því til- efni dregið fram jólavörur, jóla- skraut, jólasöngva og jafnvel jólasveina – helst til of snemma að mínu mati. Það var a.m.k. ekkert sérstaklega spennandi að heyra jólalögin óma í verslunum s.s. í verslunarmiðstöðinni Kringlunni í byrjun nóvember eða hvenær það nú var nákvæm- lega sem stjórnendur þar á bæ settu jólalögin á fóninn. Og í október forðaðist ég vísvitandi ákveðnar verslanir sem voru búnar að ákveða, með því að stilla upp jólaskrautinu og jóla- vörunum, að jólaundirbúning- urinn væri hafinn. Í mínum huga eru það nefnilega ekki versl- unareigendur sem ákveða hve- nær ég fer í jólaskap heldur ég sjálf. (Ég reyni a.m.k. að ákveða það sjálf þrátt fyrir ítrekaðar og freklegar tilraunir verslunareig- enda.) En maður má nú kannski ekki vera of vondur við verslunareig- endur svona á aðventunni. Jólin eru væntanlega þeirra upp- skeruhátíð. (Á sama hátt og svo- nefndir konudagar og mæðra- dagar eru uppskeruhátíð blómabænda). Og sjálfsagt er það eðlilegt að þeir reyni að stjórna því hvenær neytendur hefja jólainnkaupin; því fyrr sem jólainnkaupin byrja því meiri lík- ur á því að uppskeran verði ríkuleg. Það er heldur ekki hægt að segja annað en að verslunareig- endur kunni sína iðju. Þeir standa sig nokkuð vel í því að skapa freistingar í hverju horni. Og við neytendurnir þekkjum líka okkar hlutverk; við stöndum okkur nokkuð vel í því að sjá „jóla þetta og jóla hitt“ sem nauðsynlegt virðist vera að kaupa, a.m.k. inni í búðinni sjálfri. En þegar út er komið hugsa örugglega margir: „hvað í veröldinni á ég að gera við allt þetta jóladót?“ Ég neita því ekki að ég hef oftsinnis fallið í hinar ólíklegustu freistingar, svona rétt fyrir jólin. Í fyrra keypti ég t.d. a.m.k. fjór- ar jólaseríur sem ég síðan tímdi aldrei að taka niður og prýddu því heimilið allan ársins hring. Þannig sannfærði ég líka sjálfan mig um að ég hefði með jólaser- íukaupunum gert afskaplega góð og hagnýt kaup. Það er þó ann- að mál. En talandi um jólin og jóla- undirbúninginn; ég hef nefnilega aldrei skilið það stress sem hef- ur búið um sig í mörgum mönn- um; konum og körlum, vikurnar fyrir jólin. Það virðist t.d. grípa um sig einhver óskiljanleg þörf, að mínu mati, meðal margra á því að þrífa hýbýli sín hátt og lágt. Og ótrúlega margar konur keppast um að baka ótrúlega margar sortir, þ.e. kökusortir. Ég tek þó fram að ég er ekki að gera lítið úr þeim. Satt best að segja dáist ég að þeim konum, því það eru jú aðallega konur, sem nenna að baka smákökur fyrir jólin. Og ekki finnst mér verra að fá að koma í heimsókn til þeirra og smakka á herleg- heitunum. (Því sjálf hef ég aldrei nennt að baka smákökur). En ég skil ekki það stress sem stund- um einkennir þrifin og smáköku- baksturinn. Ég er nefnilega þeirrar skoðunar að við þurfum ekkert að þrífa óvenjuvel fyrir jólin eða baka óvenjumargar sortir – sérstaklega ekki ef við höfum ekki tíma til þess og það þýði bara stress. Það er barasta allt í lagi, ef út í það er farið, að gleðja verslunareigendurna og kaupa þessar ágætu smákökur sem fást í verslunum þeirra. (Það hefur verslunareigendunum a.m.k. tekist að telja mér trú um). Jólin verða ekkert verri fyrir vikið. En sjálfsagt reynir hver að skapa sína hefð í kringum jólin. Sumir vilja baka kökur, aðrir vilja þrífa, margir vilja lesa jóla- bækur og enn aðrir kaupa jóla- dót. Það hlýtur þó að vera í lagi að brjóta hefðina ef aðstæður knýja á um það og það hlýtur að vera mikilvægt fyrir sálartetrið að reyna að njóta aðventunnar í stað þess að gera sér erfitt fyrir með of miklum kröfum og þar með of miklu stressi. Þegar allt kemur til alls snú- ast jólin heldur varla um hinn veraldlega undirbúning eða ver- aldlega hluti á borð við jólagjaf- ir, jólaskraut, jólasmákökur og jólaföt, svo fátt eitt sé nefnt. Þau hljóta fyrst og fremst að snúast um það sem býr innra með okk- ur; um hið góða; um vænt- umþykjuna og kærleikann. Um jólin, ekki síst, ættum við að leyfa kærleikanum að koma fram þótt auðvitað ætti hann að vera til staðar alltaf – á öllum tímum. En úr því ég er orðin svona hátíðleg langar mig til að minn- ast orða Sigurbjörns Ein- arssonar biskups. Þegar blaða- maður Morgunblaðsins, Anna G. Ólafsdóttir, spurði hann, í viðtali um helgina, hvað hann myndi gefa Íslendingum í jólagjöf sagði hann: „Kyrrð, rósemi, frið, hið innra og ytra, og þetta er nátt- úrulega það sem jólin gefa og boða þar sem þau eru þegin.“ Um hvað snúast jólin? „Þegar allt kemur til alls snúast jólin heldur varla um hinn veraldlega undir- búning eða veraldlega hluti á borð við jólagjafir, jólaskraut, jólasmákökur og jólaföt, svo fátt eitt sé nefnt.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is MENTOR-VERKEFNIÐ vin- átta, sem rekið er af Velferðar- sjóði barna á Íslandi, er verkefni þar sem grunnskólabarni er gefinn kostur á að tengjast háskólanema sem verður fyrirmynd í lífi þess. Mentor-verkefnið er byggt á al- þjóðlegri fyrirmynd. Kjarni Mentor-verkefnisins vin- áttu er að háskólastúdentar veiti grunnskólabörnum stuðning og hvatningu. Áhersla er lögð á gagn- kvæman ávinning og hagsmuni samfélagsins í heild af því að börn og ungmenni kynnist og læri af að- stæðum hvers annars. Tengslin sem myndast geta bætt sjálfs- mynd barnsins sem m.a. getur komið fram í auknum námsáhuga og lífsleikni. Háskólaneminn fær hins vegar tækifæri til að verða fyrirmynd í lífi barnsins og öðlast innsýn í hugarheim barns á grunn- skólaaldri. Ísland er fjölmenningarlegt samfélag og því er þörf á að vinna að tengslum milli mismunandi menningarheima og bjóða einstak- linga af erlendum uppruna vel- komna í hið íslenska samfélag. Þar sem um helmingur barnanna í Mentor-verkefninu vináttu eru af erlendum uppruna kynnast men- torar menningu barnanna og börn- in kynnast menningu Íslendinga með öðrum hætti en ella. Mentor- verkefnið vinátta er utan við op- inbert félagslegt stuðningskerfi. Mentor-verkefnið vinátta hófst haustið 2001 og er rekið af Vel- ferðarsjóði barna á Íslandi en sjóðurinn fékk til samstarfs við sig Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands og tvo grunnskóla í Reykjavík, Austurbæjar- og Há- teigsskóla. Mentor-verkefnið vin- átta er rekið sem tilraunaverkefni í 3 ár frá og með árinu 2001/2002 og var gert grunnmat á verkefninu að því ári loknu. Lokamat verður svo gert í lok síðasta starfsárs 2003/2004 til að meta árangurinn. Á fyrsta starfsári tóku 35 háskóla- nemar og jafn margir grunnskóla- nemar þátt í verkefninu. Verkefn- inu var vel tekið og var ákveðið að fjölga bæði mentorum og skólum um meira en helming skólaárið 2002-2003. Skólaárið 2002-2003 stóð nemendum við Kennarahá- skóla Íslands og Háskóla Íslands aftur til boða að sækja um þátt- töku í Mentor-verkefninu vináttu. Mentorum og grunnskólabörnum var fjölgað í 72 og þrír nýir grunn- skólar bættust í hópinn, Fellaskóli, Langholtsskóli og Breiðagerðis- skóli þannig að þetta árið eru fimm grunnskólar með í verkefn- inu. Verkefnið felst í því að háskóla- stúdentar verja þremur stundum á viku yfir skólaárið (frá lok sept. til loka apríl) í samveru með einu grunnskólabarni á aldrinum 7-12 ára og koma þátttakendur sér saman um að gera eitthvað skemmtilegt. Þessar stundir þurfa ekki að vera úthugsaðar og skipu- lagðar, því návistin er talin mik- ilvægust. Einu sinni í mánuði skil- ar háskólaneminn yfirliti um samskipti sín við barnið til um- sjónarmanna verkefnisins og mæt- ir einnig í einka- eða hópviðtöl. Háskólanemarnir fá handleiðslu í gegnum allt verkefnið frá umsjón- armönnum þess. Með því að taka þátt fá nemendur háskólanna tveggja tækifæri til að verða fyr- irmynd í lífi grunnskólabarna og jákvætt afl í lífi þeirra og börnin mynda tengsl við þroskaðan, full- orðinn aðila fyrir utan fjölskyldu sína. Börnin sem taka þátt í verkefn- inu eru á aldrinum 7-12 ára og fá ákveðnir árgangar innan þessa aldurshóps send heim umsókn- areyðublöð og upplýsingar um verkefnið. Foreldrar senda síðan umsóknir með barninu til baka. Ef umsóknir verða fleiri en hægt er að anna þarf að velja úr umsækj- endum og forgangsraða í samráði við skóla. Mentorar og börn eru tryggð meðan á samveru þeirra stendur. Þátttaka barnanna í verkefninu er ókeypis en foreldrar þurfa að greiða þann kostnað sem upp kem- ur, t.d. strætisvagnafargjöld, veit- ingar o.þ.h. Mentorar fá greidd laun fyrir vinnu sína 100.000 kr. fyrir allt skólaárið (7 mánaða vinnu) og eiga kost á að fara á námskeið sem metið er til 2 ein- inga af báðum háskólunum. Framtíðarvonir vegna Mentor- verkefnisins vináttu hér á landi eru þær að það komi til með að festast í sessi í íslensku skólakerfi. Vonast er til þess að verkefnið geti staðið öllum grunnskólabörnum á aldrinum 7-12 ára til boða í sem flestum skólum. Verkefni sem þetta er jákvætt innlegg í uppeld- is- og skólastarf þar sem markmið þess er m.a. að bæta aðstöðu barna til betri lífsgæða, styrkja sjálfsmynd þeirra og kynnast nýj- um hugmyndum og möguleikum til náms. Barn jafnt sem mentor geta lært mikið á samvistum hvort við annað. Barn sem kemur út í sam- félagið með góða fyrirmynd í far- teskinu hefur forskot. Fyrirmyndarfólk Eftir Elínu Þorgeirsdóttur „Framtíð- arvonir vegna Mentor- verkefnisins vináttu hér á landi eru þær að það komi til með að festast í sessi í ís- lensku skólakerfi.“ Höfundur er umsjónarmaður Mentor-verkefnisins vináttu. Í LEIÐARA Morgunblaðsins 5. des. sl. er talað um að sérkenni- legar umræður hafi átt sér stað í utandagskrárumræðu á Alþingi 3. des. í tilefni af skuldbindingu rík- isstjórnarinnar um að kosta loft- flutninga á vegum NATO. Í sjálfri utandagskrárumræðunni var einn- ig lýst undrun á undarlegum um- ræðum hér á landi varðandi fram- lag Íslendinga í þessum efnum. Umræðan er sögð hafa einkennst af rangfærslum og því að gera tor- tryggileg þau áform íslenskra stjórnvalda að íslenskar flugvélar verði til taks ef hætta skapast. Í ofangreindum leiðara Morg- unblaðsins segir einnig að það liggi fullkomlega í augum uppi hvað er átt við með loftflutning- unum og því sé það merkilegt að heila utandagskrárumræðu þurfi til að útskýra það fyrir þingmönn- um. Hvers vegna er það svona merkilegt? Það er ekki langt síðan heilmikil umfjöllun var um efnið í Morg- unblaðinu, meðal annars á mið- opnu blaðsins, 22. nóv. sl. Þar segir í grein Ólafs Þ. Steph- ensen, aðstoðarritstjóra Morgun- blaðsins, sem skrifar frá leiðtoga- fundi NATO í Prag að: „Meðal annars verður þörf á mikilli flutn- ingagetu til að koma liðsmönnum og hergögnum hins nýja hraðliðs NATO á áfangastað, hugsanlega um langan veg. Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja af mörkum flutningagetu vegna aðgerða NATO, í formi þess að íslensk flugfélög fljúgi með lið eða her- gögn til átakasvæða.“ Eins segir að „þegar hafi verið gengið frá rammasamningum við flugfélögin Atlanta og Flugleiðir, sem gera stjórnvöldum kleift að óska aðstoð- ar þeirra með litlum fyrirvara og taka flugvélar á leigu.“ Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra furðar sig á því að „hug- takið hernaður hafi verið notað hér í þessari umræðu (þingumræð- unni 3. des.) skipti eftir skipti“. Eins vill ráðherrann meina að túlkun fjölmiðla á þessum efnum sé á algjörum villigötum.“ (Mbl. 4. des., bls.10.) Utanríkisráðherra gefur til kynna að hugtakið hernaður sé óviðeigandi, Sigríður A. Þórðar- dóttir þingmaður segir í þingum- ræðunni að íslenskar flugvélar verði aldrei þátttakendur í beinum hernaðaraðgerðum en Morgun- blaðið segir 22. nóv. að það eigi að flytja hergögn til átakasvæða og í leiðaranum 5. des. er talað um að með störfum friðargæslu séum við þátttakendur í hernaðarlegri að- gerð, sem lýtur stjórn her- manna …“ Eins segir þar að þátt- taka Íslands í loftflutningum yrði væntanlega af sama toga og frið- argæslan á Balkanskaga: farþega- og flutningavélar yrðu notaðar þar sem þær kæmu að gagni …“. (Væntanlega þýðir hugsanlega. Sem sagt, ekki örugglega.) Ef túlkun fjölmiðla á þessum efnum, sbr. Halldór Ásgrímsson, er á villigötum, hví ætti það að liggja svona „fullkomlega í augum uppi“ hvað hér er um að ræða? Eiga menn bara að lesa eitthvað annað úr greinum aðstoðarrit- stjóra Morgunblaðsins, en það sem þar stendur? Það segir skýrt í Morgunblaðinu 22. nóv. (m.a.s. feitletrað), að rík- isstjórnin hafi samþykkt að leggja af mörkum flutningagetu vegna aðgerða NATO, í formi þess að ís- lensk flugfélög fljúgi með lið eða hergögn til átakasvæða.“ Hergögn í almennum málskilningi eru „tæki notuð í hernað til árása og varna, vopn, skotfæri.“ En nú er hlut- unum hagrætt og talað er um frið- argæslu og borgaralegar aðgerðir í sama blaðinu með 2ja vikna milli- bili. (Fjallað er í blaðinu 22. nóv. um loftflutninga annars vegar, og friðargæslu hins vegar.) En umræðurnar þykir starfs- mönnum Morgunblaðins hinar sér- kennilegustu þegar þeir virðast ekki einu sinni vita sjálfir um hvað þeir eru að tala, og utanríkisráð- herra segir að fjölmiðlar séu á villigötum hvað efnið varðar. Er það sem sagt ekki rétt að íslenska ríkisstjórnin hafi samþykkt að leggja af mörkum flutningagetu vegna aðgerða NATO, í formi þess að íslensk flugfélög fljúgi með lið eða hergögn til átakasvæða? Mogginn og NATO Frá Þórdísi B. Sigurþórsdóttur „Talað er um friðargæslu og borg- aralegar að- gerðir í sama blaðinu.“ Höfundur er viðskiptafræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.