Morgunblaðið - 11.12.2002, Qupperneq 38
FRÉTTIR
38 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavíkurdeild RKÍ gengst fyr-
ir tveggja kvölda námskeiði um
öryggismál sumarbústaða, á morg-
un, fimmtudaginn 12. desember,
og mánudaginn 16. desember kl.
19–23 báða dagana. Fyrra kvöldið
verður farið yfir fyrstu viðbrögð
ef slys verða eða veikindi. Seinna
kvöldið verður fjallað um skipulag
umhverfis sumarbústaða og að
meta hættur sem geta verið í um-
hverfinu. Einnig um aðkomu að
bústöðum, eldvarnir og hvenær
kalla á til sjúkrabíl og þyrlu.
Námskeiðið er haldið í Fákafeni
11, 2. hæð. Skráning hjá Reykja-
víkurdeild RKÍ.
Jólafundur Kvenréttindafélags
Íslands verður haldinn á morgun,
fimmtudaginn 12. desember, kl.
20, í fundarsal Hallveigarstaða,
Túngötu 14. Guðný Hallgríms-
dóttir flytur jólahugvekju, Guðjón
Friðriksson les úr bók sinni um
Jón Sigurðsson forseta, Margrét
I. Jónsdóttir og Eyrún Ingadóttir
lesa kafla úr bókinni Konur með
einn í útvíkkun fá enga samúð,
Vigdís Grímsdóttir les úr skáld-
sögu sinni Hjarta tungl og bláir
fuglar og Reynir Traustason segir
frá lífi og leyndardómum Sonju W.
Benjamínsson de Zorilla. Alda
Heiða Jónsdóttir leikur á píanó.
Einnig verður happdrætti.
Þjóðmenningarhús Viðar Hreins-
son les úr bók sinni um Stephan
G. Stephansson í bókasal kl.
12.10–12.40 á morgun. Einnig seg-
ir hann frá skáldinu og svarar fyr-
irspurnum. Í bókasal er sýning á
eiginhandritum og bréfum Steph-
ans G. í tengslum við kynningu
Landsbókasafns á bókmenntum
Vestur-Íslendinga.
Aðgangur er ókeypis.
Á MORGUN
Á NÆSTUNNI
Ferðaskrifstofan Bjarmaland
heldur kynningu á ferðum til
Moskvu og Pétursborgar í sal-
arkynnum félagsins MÍR (Menn-
ingartengsl Íslands og Rússlands)
Vatnsstíg 10 Reykjavík laugardag-
inn 14. desember kl. 16. Farið
verður í tvær Rússlandsferðir
sumarið 2003. Haukur Hauksson
aðalfararstjóri, sér um ferðakynn-
inguna og svarar spurningum.
Kaffiveitingar.
Í Heilsustofnun NLFÍ, Hvera-
gerði, eru haldin fjögurra vikna
námskeið reglulega fyrir svo-
nefndan verkjahóp. Meginmark-
miðið er að hjálpa fólki að finna
jafnvægi milli hreyfingar og slök-
unar, efla líkamsvitund sína og
beitingu líkamans. Næsta nám-
skeið verður haldið 15. janúar til
9. febrúar 2003.
Kínakynning Kínaklúbbs Unnar
verður í dag, miðvikudaginn 11. des-
ember kl. 20 í húsi klúbbsins á Njáls-
götu 33. Kynnt verður 23 daga Kína-
ferð sem farin verður dagana 8.–30.
maí, á ári Geitarinnar, skv. kín-
verska almanakinu. Þetta er 18.
ferðin sem Unnur Guðjónsdóttir
skipuleggur og leiðir um Kína. Farið
verður t.d. í siglningu um gljúfrin
þrjú, á Jangteze fljótinu. Nánari
upplýsingar eru á vefsíðu Kína-
blúbbsins: www.simnet.is/kina-
klubbur.
Í DAG
Kjördæmisráð Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs í Suður-
kjördæmi mun fjalla um tillögu að
framboðslista flokksins fyrir alþing-
iskosningarnar á fundi 18. janúar
nk. Aðalfundur kjördæmisráðsins,
sem haldinn var í Tryggvaskála á
Selfossi 1. desember, fól stjórn kjör-
dæmissambandsins að vinna áfram
að því að stilla upp á listann.
Á fundinum var kosin stjórn Kjör-
dæmisráðsins. Hana skipa Þor-
steinn Ólafsson, Selfossi, formaður,
Þorvaldur Örn Árnason, Vogum, rit-
ari, Jóhanna Njálsdóttir, Vest-
mannaeyjum, gjaldkeri, Ragnheiður
Jónasdóttir, Hellu, og Þorkell Kol-
beins, Höfn, meðstjórnendur.
STJÓRNMÁL
ÍSLENSKU jólasveinarnir koma
ekki til byggða fyrr en þrettán dög-
um fyrir jól og þá einn í einu.
Okkar sveinar eru forvitnir pöru-
piltar sem eiga dálítið erfitt með að
átta sig á tæknivæddri nútímaver-
öld.
Fötin þeirra eru íslensk yst sem
innst.
Fyrir nokkrum árum rann vel-
unnurum þeirra til rifja hvað þeir
voru illa til fara og með aðstoð ís-
lenskra hönnuða og handverksfólks
fengu þeir og foreldrar þeirra nýjan
alklæðnað frá hvirfli til ilja, úr vað-
máli, gærum, flóka og íslenskri ull.
Eins og undanfarin ár munu jóla-
sveinarnir koma við í Ráðhúsi
Reykjavíkur í boði Þjóðminjasafns
Íslands. Stekkjarstaur kemur fyrst-
ur, fimmtudaginn 12. desember kl.
10.30, og svo einn af öðrum klukkan
10.30 á virkum dögum en kl. 14 um
helgar. Sunnudaginn 15. desember
kl. 14 koma Grýla og Leppalúði við í
Ráðhúsinu til að líta eftir Þvöru-
sleiki.
Aðgangur að jólasveinadags-
kránni er ókeypis og allir velkomn-
ir, segir í fréttatilkynningu frá
Þjóðminjasafni Íslands.
Stekkjastaur
Íslensku
jólasvein-
arnir koma
til byggða
YFIR eitt þúsund níundubekkingar
í grunnskólum landsins taka í vetur
þátt í norrænu stærðfræðikeppninni
KappAbel.
Keppnin er í nokkrum lotum. Sú
fyrsta er í nóvember og þar leysa
nemendur í hópum nokkrar stærð-
fræðiþrautir þar sem þeir nýta allt
sem að gagni getur komið en auðvit-
að án þess að leita aðstoðar út fyrir
bekkinn. Þarna reynir á hugkvæmni
og samvinnu. Síðan þarf bekkurinn í
heild að komast að samkomulagi um
lausnirnar sem skila skal inn og þar
reynir á rökstuðning og glögg-
skyggni. Að lokum er farið á Netið
og lausnum skilað í gagnagrunninn
við Háskólann í Þrándheimi.
Önnur lota er í janúar og er sams
konar. Síðan tekur við bekkjarverk-
efnið sem í fyrra var um stærðfræði
og íþróttir. Vinnan við það dreifist á
tvo til þrjá mánuði. Sá bekkur sem
sigrar í fyrstu tveimur lotunum hér
heima sendir fulltrúa sína til Nor-
egs í undanúrslit um vorið og þar
ráða árangur í bekkjarverkefninu
og undanúrslitum því hverjir keppa
um efstu sætin. Lokakeppnin á sér
stað í kvikmyndahúsi fyrir fullum
áhorfendasal og verkefnin eru sýnd
á skjá til þess að áhorfendur geti
líka skemmt sér við að taka þátt.
Í fyrra tóku um 25 íslenskir bekk-
ir þátt í KappAbel og sá sem sigraði
hér í fyrstu lotunum, 9.F í Digra-
nesskóla í Kópavogi, tók þátt í und-
anúrslitum í Noregi og stóð sig
mjög vel. Bekkir frá Egilsstöðum og
Höfn í Hornafirði fengu einnig við-
urkenningu hér heima fyrir góðan
árangur.
Í vetur hafa um 30 bekkir frá
Danmörku og Svíþjóð bæst í hóp
keppenda og stefnt er að því að öll
Norðurlöndin verði með næsta ár. Á
Íslandi hafa viðbrögð við kynningu
til skólanna verið einstök og þátt-
taka hefur tvöfaldast frá því í fyrra
og 49 bekkir taka þátt. Þar þýðir að
hér taka hlutfallslega fleiri bekkir
þátt í keppninni en jafnvel í heima-
landinu Noregi.
Nú er lokið úrvinnslu úr fyrstu
lotu og liggja verkefni og fregnir af
keppninni frammi á vefnum Stærð-
fræðin hrífur (http://staerdfraedin-
hrifur.khi.is), en þar á KappAbel
heimahaga á Íslandi og er ritstjór-
inn, Anna Kristjánsdóttir prófessor,
umsjónarmaður keppninnar hér.
Góð þátttaka í norrænni
stærðfræðikeppni
Önnum kafnir nemendur í KappAbel. Myndin er úr Varmárskóla.
GESTAFJÖLDI í Kringlunni í
nóvember var 4,9% meiri en á
sama tíma í fyrra. Þessi aukna að-
sókn í nóvember er í samræmi við
þróun síðustu mánaða. Frá því á
miðju ári hafa mælingar á gesta-
fjölda sýnt aukningu frá því árið
áður.
Mest jókst aðsóknin í október
síðastliðnum, eða um 8%. „Fjöldi
gesta í nóvember styður ennfrem-
ur þá skoðun kaupmanna í Kringl-
unni að jólaverslun fari mjög vel af
stað,“ segir í frétt frá Kringlunni.
Aðsókn að
Kringlunni
hefur aukist
KJARTAN Jóhannsson sendiherra
afhenti mánudaginn 24. nóvember sl.
Romani Prodi, forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins, trún-
aðarbréf sitt sem sendiherra Íslands
hjá Evrópusambandinu.
Afhenti
trúnaðarbréf
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að því þegar ekið var á
rauða Nissan Almera-fólksbifreið,
KO-349, þar sem hún stóð við Holts-
götu seinnipart sunnudags og að-
faranótt mánudags. Tjónvaldur ók af
vettvangi án þess að tilkynna um at-
vikið.
Vitni að atvikinu eru beðin um að
hafa samband við lögregluna í
Reykjavík, umferðardeild, s. 569
9014 og 569 9131.
Lýst eftir
vitnum
RÁÐGJAFAFYRIRTÆKIÐ Netið
markaðs- og rekstrarráðgjöf hélt
veislu á dögunum á efri hæð
Gauks á Stöng fyrir starfsmenn
hótela, gistiheimila, upplýs-
ingaþjónusta, ferðaskrifstofa auk
viðskiptavina.
Í tengslum við hófið stóð fyr-
irtækið fyrir markaðskönnun með-
al starfsmanna á hótelum, gisti-
heimilum og upplýsingaþjónustum
í nóvember vegna Markaðsnetsins
(Netid-info), sem er ferðaþjón-
ustusvið fyrirtækisins. Svarendur
fóru í pott þar sem dregið var um
fyrsta vinning um kvöldið. Páll
Óskar dró nafn vinningshafans, sú
heppna var Bryndís Grétarsdóttir
starfsmaður á Radisson – Hótel
Sögu. Fyrsti vinningur var m.a.
flugmiði til áfangastaðar að eigin
vali með Flugleiðum. Á myndinni
sést, auk Páls Óskars, Hákon Þór
Sindrason framkvæmdastjóri Net-
ið markaðs- & rekstrarráðgjöf og
Sólrún Svandal frá Radisson Sögu
taka við vinningnum. Hófið var
haldið í samvinnu við Lækjar-
brekku, Gauk á Stöng og Tapas-
barinn. Starfsmenn geta enn sent
inn spurningablöð en dregið verð-
ur um vinning 2–5 seinnipart des-
embermánaðar, segir í frétta-
tilkynningu.
Vann
ferð til
útlanda
Í SAMSTARFI við Hjálparstarf
kirkjunnar ætlar Kaffitár sem rekur
kaffihús í Bankastræti, Kringlunni og
í versluninni Sautján við Laugaveg að
bjóða gestum sínum að setja 30 kr. í
bauk þegar þeir fá sér annars ókeypis
vatn í glas.
Því sem safnast mun Hjálparstarf
kirkjunnar verja til þess að útvega
fólki í Mósambík hreint drykkjarvatn.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur á
undanförnum 10 árum kostað um 20
brunna á ári sem sjá nálægt 200.000
manns fyrir hreinu vatni, segir í
fréttatilkynningu frá Hjálparstarfi
kirkjunnar.
Borgað fyrir
ókeypis vatn
HELGI Ágústsson sendiherra af-
henti 9. desember sl. George W.
Bush forseta Bandaríkjanna trúnað-
arbréf sitt sem sendiherra Íslands í
Bandaríkjunum.
Afhenti
trúnaðarbréf
LÖGREGLAN í Keflavík lýsir enn
eftir bifreiðinni SA-584 sem er dökk-
grænn Ford Escort, árgerð 1997,
fimm dyra hlaðbakur. Framstuðari
bílsins er grænn og brotinn en aft-
urstuðarinn er svartur. Þá eru fram-
ljós bifreiðarinnar brotin og bifreiðin
er eineygð að framan.
Bílnum var stolið við afgreiðslu
SBK í Grófinni í Keflavík föstudaginn
22. nóvember sl. klukkan 19.29.
Þeir sem hafa einhverjar upplýs-
ingar um bifreiðina eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við lögregl-
una í Keflavík í síma 420 2400 eða 112.
Lýst eftir stoln-
um Ford Escort
NEMENDUR Margmiðlunarskól-
ans í Iðnskólanum í Reykjavík sem
eru að fara að útskrifast af öðru ári,
kynna lokaverkefni sín föstudaginn
13. desember kl. 16–18 í húsnæði
Margmiðlunarskólans í Iðnskólan-
um í Reykjavík og eru allir vel-
komnir.
Námið, sem þessir nemendur eru
að ljúka, inniheldur m.a. áfanga í
grafískri hönnun, prentverki, vef-
smíðagerð, samsetningu margmiðl-
unardiska, hreyfimyndagerð, hljóð-
vinnslu, þrívíddarhönnun, hug-
myndavinnu, verkstjórnun og
eftirvinnslu.
Nemendurnir sem kynna verk-
efni sín eru: Elvar Ingi Helgason,
Erling Valur Ingason, Eyþór Ás-
mundsson, Guðmundur Rúnar
Árnason, Hafþór Rafn Benedikts-
son, Halldór Steinsson, Helgi Páll
Þórisson, Hermann Hjartarson,
Hörður Jónsson, Ingi Freyr Atla-
son, Jóhann Ólafur Kjartansson,
Pétur Jóhann Einarsson, Saku Pet-
teri Pekonmaki, Stefán Benedikt
Vilhelmsson, Vermundur Victor
Jónsson, Þyri Ásta Hafsteinsdóttir.
Umsjón með lokaverkefni nemenda
hafa Ari Knörr, þrívíddarhönnuður,
og Gestur Friðrik Gestsson, mynd-
listarmaður, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Lifandi hreyfi-
myndagerð