Morgunblaðið - 11.12.2002, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SÍMHRINGINGAR og píp frá far-
símum munu ekki gera bíógestum í
Smárabíói lífið leitt í framtíðinni,
en í vikunni verður tekinn í notkun
búnaður í öllum kvikmyndasölum
bíósins sem truflar GSM-tíðnina
þannig að ekkert símasamband
næst. Segir Björn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri kvikmynda-
deildar Norðurljósa, að búnaður-
inn sé ræstur þegar kveikt er á
sýningarvélinni, en í hléi og fyrir
og eftir myndina verði símasam-
band í sölunum.
Björn segir að bíógestir hafi
kvartað mikið undan símhringing-
um og öðrum truflunum vegna
GSM-síma. Þónokkuð hafi verið
um að fólk hafi kveikt á símunum
sínum og það hiki ekki við að svara
í miðri sýningu og skemma þannig
ánægjuna fyrir öðrum. Þegar fólk
hafi greitt 800–1.800 krónur fyrir
að sjá mynd í bíói sé lágmark að
það fái að horfa á myndina óáreitt.
Björn segir að verði reynslan af
notkun tækninnar góð í Smárabíói
verði búnaðurinn einnig settur upp
í öðrum kvikmyndahúsum Norður-
ljósa. Komi eitthvað upp á og fólk
þurfi nauðsynlega að hringja geti
það farið út úr salnum, því tækið
trufli einungis GSM-tíðnina inni í
bíósalnum.
Fyrirtækið Svar hefur umboð
fyrir þessa tækni og er Smárabíó
fyrsti staðurinn á Íslandi þar sem
búnaðurinn er settur upp. „Þetta
er alveg nýtt hjá okkur, við byrj-
uðum með þetta fyrir um mánuði,“
segir Haukur Hauksson, sölu-
fulltrúi hjá Svari. Búnaðurinn
kemur frá Ísrael og er um ár frá
því hann kom fyrst á markað.
Haukur segir að búnaðurinn sé
orðinn algengur víða erlendis, t.d. í
kirkjum, fínni veitingahúsum og
bíósölum. Þá hafi lögregla og toll-
gæsla notað búnaðinn til húsleitar.
Þá sé hann notaður stefnuvirkt og
komið í veg fyrir að hægt sé að
hringja úr farsíma í húsinu meðan
á húsleit stendur.
Haukur segir að fleiri kvik-
myndahús séu að skoða að koma
sér upp þessum búnaði, einnig sé
Svar nú að kynna forsvarsmönnum
kirkna þennan möguleika. Þar hafi
komið upp neyðarleg tilvik, t.d. í
jarðarförum, þar sem síminn
hringi hjá fólki sem hafi gleymt að
slökkva á símanum sínum.
Haukur segir kostnaðinn mis-
munandi eftir því á hversu stóru
svæði tækinu sé ætlað að trufla
GSM-tíðnina. Tæki sem rugli tíðn-
ina í um 12 metra radíus kosti tæp-
lega 200 þúsund krónur.
Símasambandslaust með-
an á sýningum stendur
Smárabíó verður fyrsti staðurinn
þar sem GSM-tíðnin er rugluð
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segist ekki geta séð ann-
að en að alþjóðlegu náttúruvernd-
arsamtökin World Wide Fund for
Nature (WWF) hafi beitt sér mjög
hatrammlega, og með röngum upp-
lýsingum, gegn Kárahnjúkavirkjun
í samvinnu við aðila hér á landi.
Halldór lét þessi ummæli falla
við upphaf þingfundar í gær en til-
efnið var gagnrýni Jóhannesar
Geirs Sigurgeirssonar, stjórnarfor-
manns Landsvirkjunar, í fjölmiðl-
um, á það hvernig vísindamenn og
náttúruverndarsamtök hefðu beitt
sér gegn fyrirhugaðri virkjun.
Halldór sagði að sá málflutning-
ur, að notast við rangar upplýs-
ingar sem WWF hefði fengið á Ís-
landi, hefði sennilega haft áhrif á
það að verktakar hefðu fallið frá
því að bjóða í framkvæmdir við
Kárahnjúkavirkjun.
Skemmdarstarf
„Auðvitað er þetta skemmdar-
starf,“ sagði Halldór og tók síðar
fram: „Til að forðast allan mis-
skilning þá mega náttúruverndar-
samtök og aðrir að sjálfsögðu
halda fram sínum málstað […] en
ég tel það ekki rétt, hvorki af slík-
um samtökum né öðrum, að beita
sér með röngum upplýsingum
gagnvart verktökum og þeim sem
hafa hugsað sér að taka að sér verk
í slíku máli.“
Halldór sagði einnig að deilan
um Kárahnjúkavirkjun hefði því
miður verið mjög hatrömm í þjóð-
félaginu og að vonandi færi henni
að linna. Hann sagði að það væri
rétt sem fram hefði komið að
ákveðið hefði verið að fara út í
Kárahnjúkavirkjun reyndist hún
arðbær.
Halldór Ásgrímsson um málflutning WWF
Röngum upplýsing-
um beitt gegn virkjun
Vilja að/10
SIGURÐUR Gústafsson arkitekt
hefur teiknað stórt menningar-
mannvirki inn í Arnarhól, þar sem
hann gerir ráð fyrir kvikmynda-
húsi með fimm sölum sem gætu
rúmað allt að 2.200 manns í sæti.
„Þetta er nú bara persónulegt
gæluverkefni mitt,“ segir Sigurður
um hugmynd sína. Samstarfsmaður
Sigurðar, Harpa Stefánsdóttir arki-
tekt, átti hugmyndina að því að Ís-
lenska óperan gæti átt heima í
stærsta salnum, sem rúmar um
800–1.000 manns. Stendur styttan
af Ingólfi Arnarsyni beint yfir óp-
erusviðinu.
Óperusvið í Arnarhóli?
Ingólfsbíó/23
„ÁGÆTI ökumaður. Við viljum
minna á að það er brotist inn í
fjölda bíla á hverjum degi. Ef verð-
mæti eru sjáanleg í bílnum er hann
líklegri til að verða valinn.“ Þannig
hljóðar upphaf viðvörunar lögregl-
unnar í Reykjavík til bifreiðaeig-
enda sem mega búast við miða lög-
reglunnar á framrúðuna hjá sér á
næstunni. Hefur lögreglan gripið
til þessa ráðs til að gera þjófum,
sem stela jólagjöfum og öðru úr bíl-
um, erfiðara fyrir. „Því eru það til-
mæli okkar til þín að skilja ekki eft-
ir nein sýnileg verðmæti í bílnum,“
segir áfram í miðanum. Aðgerðir
lögreglunnar eru af ærnu tilefni, en
frá því í byrjun desember hafa um
ellefu þjófnaðarmál verið kærð til
lögreglunnar – á dag. Alls 113 mál
á einni og hálfri viku. Í desember í
fyrra var tilkynnt um 260 þjófnaði
og fann lögreglan þá fyrir aukinni
ásókn þjófa í verðmæti í bílum. Des-
ember árið 2000 var óvenjuslæmur,
en þá voru hvorki fleiri né færri en
340 þjófnaðarmál tilkynnt. Með
sama áframhaldi í þessum mánuði
stefnir í annað metár og vill lög-
reglan því brýna fyrir fólki að var-
ast þjófana.
Morgunblaðið/Júlíus
Katrín Eva Erlarsdóttir lögreglumaður setti viðvörunarmiða á fjölda bíla við Kringluna síðdegis í gær.
Jóla-
pakkarn-
ir eru líka
í hættu SAMKVÆMT heimildum Morgun-blaðsins eru samningar að nást um
að Aco-Tæknival selji verslunarþátt
sinn, þ.e. BT-
verslanirnar, sem
fyrirtækið á og
rekur, Office One,
Apple og Sony-
setrið. Bjarni
Ákason, forsvars-
maður verslunarþáttarins, fer fyrir
hópi fjárfesta í því að kaupa þennan
hluta með þátttöku Búnaðarbank-
ans, stærsta hluthafa Aco-Tækni-
vals.
Starfsfólk Aco-Tæknivals var í
gær boðað á fund þar sem skýrt var
frá því að breytingar væru í nánd, án
þess að tekið væri nákvæmlega fram
í hverju þær fælust.
Rekstur Aco-Tæknivals hefur ver-
ið í járnum. Á fyrstu níu mánuðum
ársins var 188 milljóna króna tap á
rekstri fyrirtækisins en á sama tíma-
bili í fyrra var tap þess 861 milljón
króna. Eigið fé var neikvætt um 140
milljónir króna í lok september.
Rætt um
sölu á versl-
unum Aco-
Tæknivals