Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
L a u g a r d a g u r
14.
d e s e m b e r ˜ 2 0 0 2
2002 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
EVRÓPUBARÁTTA HAUKA OG GRÓTTU/KR/ B4
GÆTI það gerst að erkifjendurnir úr Norður-
London, Arsenal og Tottenham, myndu samein-
ast um að reisa heimavöll fyrir liðin á As-
hburton Grove? Stjórnarformaður Tottenham,
Daniel Levy, segir í viðtali við enska blaðið
Evening Standard að félagið sé að íhuga val-
kosti sem standa til boða fyrir White Hart Lane,
sem þarf að endurbyggja. Það hefur alltaf verið
erfitt fyrir stuðningsmenn liðsins að koma sér
til og frá vellinum og engar úrbætur á því sviði
í sjónmáli. „Ef félög geta nýtt betur heimavelli
sína er það mikill kostur fyrir alla aðila,“ segir
Levy, en Arsenal hefur þegar ákveðið að flytja
frá Highbury og byggja nýjan völl á Ashburton
Grove. Kostnaður við framkvæmdina hefur
aukist til muna og segir Levy að Tottenham sé
tilbúið að ræða við Arsenal um samvinnu ef
áhugi reynist fyrir hendi hjá Arsenal.
Erkifjendur með
sama heimavöll?
Johnson getur þegar í stað leik-ið með íslenska landsliðinu
eins og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu. Pettersons verður
ekki gjaldgengur með landsliðinu
fyrr en eftir um tvö ár þar hann
lék síðast með landsliði Lettlands í
byrjun þessa árs og reglur IHF,
kveða skýrt á um að þrjú ár frá
því að leikmaður sem skiptir um
ríkisfang lék fyrir sitt fyrrverandi
landslið þar til hann má leika fyrir
aðra þjóð sem hann hefur fengið
ríkisborgararétt hjá.
Vonir standa til þess að Eradze
verðir löglegur með íslenska
landsliðinu á heimsmeistaramótinu
í Portúgal í næsta mánuði. Að
sögn Guðmundar Þ. Guðmunds-
sonar landsliðþjálfara þá er verið
að kanna hver staða Eradze er um
þessar mundir. „Við höfum sent
fyrirspurn til IHF vegna Eradze
og væntum svara við því á næst-
unni. Við þurfum að fá á hreint
hvenær hann er löglegur í æfinga-
leikjum landsliðsins og nákvæm-
lega hvenær hann má leika með
landsliðinu á HM. Þessi og fleiri
atriði verður að fá að hreint áður
en kemur að því að velja Eradze í
landsliðið. Við viljum að sjálfsögðu
ekki vera í neinni óvissu vegna
þessa,“ sagði Guðmundur sem
reiknar með að velja æfingahópinn
vegna HM um miðja næstu viku.
Hvort þessi atriði verða komin á
hreint þá ræðst af því hversu fljótt
svör berast frá IHF, að sögn Guð-
mundar sem að öðru leyti vildi
ekki tjá sig um hvort Eradze verð-
ur valinn í landsliðið eða ekki.
IHF skoðar þátttöku
Eradze með landsliðinu
ÞREMUR þekktum íþróttamönnum sem eru af erlendi bergi brotnir
hefur verið veittur íslenskur ríkisborgararéttur samkvæmt tillögu
allsherjarnefndar Alþingis sem samþykkt var á þingfundi í fyrrakvöld.
Þetta eru handknattleiksmennirnir Roland Eradze, markvörður hjá
Val, Alexandrs Pettersons, leikmaður Gróttu/KR, og körfuknattleiks-
maðurinn Damon S. Johnson hjá Keflavík. HSÍ hefur þegar sent fyr-
irspurn til Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, er varðar þátt-
töku Eradze með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu.
HEIÐAR Ingi Marinósson
náði að bæta sinn fyrri árangur
í 100 m skriðsundi á EM. Heið-
ar synti á 50,70 sekúndum og
nægði sá árangur honum í 40.
sæti af 46 keppendum.
KOLBRÚN Ýr Kristjáns-
dóttir náði ekki að fylgja eftir
góðum árangri sínum í 50 m
flugsundi á EM í fyrra. Þá
komst hún í undanúrslit. Nú
hafnaði Kolbrún í 21. sæti af 26
þátttakendum á 28,55 sek, sem
er 76/100 úr sekúndu frá Ís-
landsmetinu sem hún setti á
EM í fyrra þegar hún hreppti
14. sætið.
ÍRIS Edda Heimisdóttir náði
sér ekki á strik í 200 m bringu-
sundinu í gær frekar en í 50 m
bringusundinu í fyrradag. Íris
rak lestina í hópi átján kepp-
enda á 2.36,26 mín. Það er rúm-
lega 2,5 sekúndum frá hennar
besta og um 4 sekúndum frá 13
ára gömlu Íslandsmeti Ragn-
heiðar Runólfsdóttur.
Örn var aðeins 8/100 úr sekúndufrá bronsverðlaunum í bak-
sundinu. Heimsmethafinn Thomas
Rupprath frá Þýskalandi vann
örugglega á 23,66 og annar varð
landi hans Stev Theoloke á 24,29.
Bronsverðlaunin vann Darius
Grigalonis frá Grikklandi á 24,62.
Allir keppendurnir í úrslitunum
syntu á skemmri tíma en 25 sek-
úndum, sá sem varð áttundi kom í
mark á 24,90 sem sýnir vel hversu
jafnt og gott sundið var.
Aðeins leið rúmlega hálftími frá
því að Örn keppti í undanúrslitum
100 m skriðsundsins og þangað til
hann var kominn í eldlínuna á ný í
úrslitum í 50 m baksundi. Í 100 m
skriðsundinu var hann nærri því að
komast í úrslitin sem fram fara í
dag. Örn náði þriðja besta tímanum
í undanrásum í 100 m skriðsundi í
gærmorgun á 48,59 sekúndum og
bætti eigið Íslandsmet um leið um
97/100 úr sekúndu. Fyrra metið
setti Örn á Íslandsmeistaramótinu
innanhúss í Vestmannaeyjum fyrir
nærri þremur árum.
Áður en að undanúrslitasundinu í
100 m skriðsundi kom um miðjan
dag í gær tryggði hann sér sæti í
úrslitum í 50 m baksundi með því
að ná fimmta besta tímanum í und-
anúrslitum á 24,87 sekúndum. Síð-
an leið rúmur hálftími og komið var
að undanrásum 100 m í skriðsundi.
Örn var á fjórðu braut, náði ekki
góðu viðbragði og átti á brattann
að sækja. Millitími hans eftir 25
metra var 23,37 og var hann fimmti
í sínum riðli. Því sæti hélt hann allt
til enda og kom í mark á 48,57. Til
þess að komast í átta manna úrslit-
in í dag þurfti að synda á 48,50
þannig að Örn var mjög nærri sæti
í úrslitum.
Það gafst hins vegar lítill tími til
að kasta mæðinni því eftir skrið-
sundið kom röðin að úrslitum í 50 m
baksundi. Þar hafnaði Örn í fjórða
sæti eftir gríðarlega keppni við
Grikkjann Grigalionis um bronsið
en Þjóðverjarnir voru í sérflokki og
hirtu gull- og silfurverðlaunin.
Örn heldur áfram keppni á EM í
dag. Þá verður hann í eldlínunni í
100 m baksundi, grein sem hann
vann á EM fyrir tveimur árum. Ár-
degis syndir hann í undanrásum og
væntanlega í milliriðlum um miðjan
dag. Úrslit í 100 m baksundi fara
fram á morgun.
Örn Arnarson var hársbreidd frá verðlaunasæti í 50 m baksundi á EM í Riesa
Morgunblaðið/Sverrir
Örn Arnarson, sem hér bragðar vatnið, var ekki langt frá því að
komast á verðlaunapall í 50 m baksundi á EM.
Setti þrjú
Íslandsmet
ÖRN Arnarson varð í fjórða sæti í 50 m baksundi á Evrópumeist-
aramótinu í 25 m laug í Riesa í austurhluta Þýskalands í gær. Hann
synti á 24,70 sekúndum og bætti fyrra Íslandsmet sitt um 9/100 úr
sekúndu en það setti Örn þegar hann vann til silfurverðlauna í
þessari grein á EM í Valencia fyrir tveimur árum. Þá varð Örn í 9.
sæti í undanúrslitum í 100 m skriðsundi í gær á 48,57 sekúndum og
bætti met sitt frá því fyrr í gær. Alls setti Örn því þrjú Íslandsmet í
gær, þar af tvö á innan við einni klukkustund.
Heiðar Ingi
bætti sig
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 52/58
Viðskipti 15/16 Kirkjustarf 60/63
Erlent 18/24 Úr Vesturheimi 64
Höfuðborgin 28 Íslenskt mál 74
Akureyri 32/35 Staksteinar 78
Árborg 34 Myndasögur 80
Suðurnes 35 Bréf 80/81
Landið 35 Dagbók 82
Neytendur 36/37 Leikhús 84
Heilsa 37 Fólk 84/89
Listir 38/50 Bíó 86/89
Forystugrein 46 Ljósvakamiðlar 90
Viðhorf 50 Veður 91
* * *
YFIRMAÐUR samninganefndar Al-
coa segist vera mjög bjartsýnn á að
áætlanir Alcoa um álver á Íslandi
verði að veruleika. Iðnaðarráðherra
telur þetta enn eitt jákvætt skref í
rétta átt, hún hafi raunar alveg eins
átt von á að þessi áfangi næðist ekki í
þessari samningalotu. Nú bíði menn
hins vegar eftir úrskurði Skipulags-
stofnunar um hvort fara þurfi í nýtt
umhverfismat eða ekki.
Michael Baltzell, yfirmaður samn-
inganefndar Alcoa, sagði í samtali við
Morgunblaðið að sú vinna sem eftir
væri snerist fyrst og fremst um að
fara yfir og laga orðalag samnings-
ins. Baltzell segist líta svo á að samn-
ingurinn sé meira eða minna frá-
genginn og hann bíði nú samþykktar.
„Auðvitað eiga stjórnir beggja fyr-
irtækja eftir að samþykkja og und-
irrita samningana og Alþingi að af-
greiða lög. Þannig að vinnunni er
ekki allri lokið. Við erum þó mjög
ánægðir með að hafa náð þessari nið-
urstöðu núna og erum mjög bjart-
sýnir á að fyrirhugaðar framkvæmd-
ir verði að veruleika.“
Baltzell segir að Alcoa-menn séu
sæmilega sáttir við raforkuverðið
sem samið var um; hann telji það
sanngjarnt gagnvart báðum aðilum.
„Auðvitað hefðum við viljað fá raf-
orkuna á lægra verði en við gerum
okkar auðvitað grein fyrir því að
bæði fyrirtækin þurfa að sjá ávinn-
ing af því raforkuverði sem samið er
um.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra segist ánægð með þennan
áfanga. „Raunar hafði ég efasemdir
um að þessi áfangi myndi nást í þess-
ari lotu og það er sérstakt gleðiefni
að það skyldi takast. Þetta er eitt já-
kvætt skref í viðbót þannig að við
færumst nær og nær markinu og ég
er afskaplega ánægð með hvað þetta
hefur gengið vel en ég hef fyrirvara á
meðan ekki hafa verið teknar end-
anlegar ákvarðanir.“
Valgerður segir að Alþingi eigi eft-
ir að samþykkja lög hvað varðar fjár-
festingarsamning o.fl. „Ég reikna
með að fara með það frumvarp inn í
ríkisstjórn strax eftir áramótin. Það
liggur auðvitað fyrir að stjórnar-
flokkarnir styðja þessi áform og það
er mikilvægt að bæði ríkisstjórnin og
þingflokkar hafi fjallað um frum-
varpið fyrir stjórnarfund Alcoa 9. og
10. janúar.
Næsta spurning er hins vegar
Skipulagsstofnun, þ.e. hvort álverið
er matsskylt og það skýrist væntan-
lega eftir um eina viku.“
Sáttur við samningana
Guðmundur Bjarnason, bæjar-
stjóri Fjarðabyggðar, segir aðeins
fínpússningu samninga hjá lögfræð-
ingum vera eftir og hann sé mjög
sáttur við þá niðurstöðu sem nú ligg-
ur fyrir. Hann segir að samningar
um þau mál, sem snúa að Fjarða-
byggð, þ.e. samningur um hafnar-
gerð, skattamál o.fl. verði lagðir fyrir
í bæjar- og hafnarstjórn strax upp úr
áramótum þegar samningar hafi ver-
ið áritaðir og hann eigi ekki von á
öðru en þeir verði einróma sam-
þykktir, bæði í bæjar- og hafnar-
stjórn.
Guðmundur segir að í raun hafi
samningaviðræður verið í góðum far-
vegi allan tímann en eðli málsins
samkvæmt hafi komið upp ný og ný
atriði sem þurft hafi að huga að og
því hafi tekið örlítið lengri tíma að
ganga frá samningunum en til stóð í
upphafi. Að öðru leyti megi segja að
staðið hafi verið við allar tímasetn-
ingar sem komu fram í viljayfirlýs-
ingu aðila í sumar.
Guðmundur, sem einnig kom að
viðræðum við Norsk Hydro á sínum
tíma, segir Alcoa-menn vinna mun
hraðar en Norðmennina en eins hafi
skipt máli að samningsaðilar hér
heima hafi verið vel undirbúnir.
Stíft fundað hjá Landsvirkjun
Stjórn Landsvirkjunar kom sam-
an upp úr hádegi í gær og fundaði
fram eftir degi. Þorsteinn Hilmars-
son hjá Landsvirkjun segir að fram-
undan sé að skoða málin ofan í kjöl-
inn. „Við höfum verið að kalla saman
bæði innlenda og erlenda sérfræð-
inga á undanförnum dögum, bæði af
ál- og fjármálamörkuðum.“
Þorsteinn segir vinnuna nú snúast
um að fínpússa allar forsendur og sjá
hvað komi endanlega út úr dæminu,
þ.e. arðsemina. „Það má gera ráð
fyrir að það verði haldnir fleiri
stjórnarfundir og einnig fundir með
eigendanefndinni áður en kemur að
því að tekin verði endanleg ákvörðun
um að samþykkja samninginn eða
ekki. Sá fundur verður væntanlega
ekki haldinn fyrr en eftir áramótin.
Þetta er auðvitað góður áfangi sem
hefur náðst en forsenda okkar er
auðvitað sú að verkefnið sé arðsamt
fyrir Landsvirkjun.“
Styttist í ákvörðun
Samningur að
mestu leyti frá-
genginn og bíður
samþykktar
SAMNINGAMENN Alcoa héldu af landi brott síðdegis í
gær eftir að hafa lokið við gerð samninga við Lands-
virkjun, ríkið og Fjarðabyggð. Þeir sem að samning-
unum komu, þ.e. Alcoa, Landsvirkjun, iðnaðarráðu-
neyti og bæjar- og hafnarstjórn Fjarðabyggðar, sendu
frá sér sameiginlega fréttatilkynningu:
„Samninganefndir Alcoa og Landsvirkjunar luku í
dag við gerð raforkusamnings vegna fyrirhugaðs
322.000 tonna álvers Alcoa við Reyðarfjörð. Á sama
tíma var lokið vinnu við samninga á milli Alcoa, rík-
isins, Fjarðabyggðar og Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar.
Lögfræðingar aðila munu yfirfara samningstexta og
verða samningarnir áritaðir fyrir áramót.
Raforkusamningurinn verður lagður fyrir stjórnir
fyrirtækjanna til staðfestingar. Iðnaðarráðherra mun
leggja fram heimildarfrumvarp vegna samninganna
þegar Alþingi kemur saman að loknu jólaleyfi. Jafn-
framt verða samningar sem Fjarðabyggð er aðili að
teknir til afgreiðslu hjá bæjaryfirvöldum þar.
Álverinu er ætlað að hefja framleiðslu árið 2007.“
Morgunblaðið/GolliSamningamenn Alcoa og íslensku aðilanna skömmu áður en samningar lágu endanlega fyrir.
Samningar áritaðir fyrir áramótin
FJÖLDI atvinnulausra í nóvember
var að meðaltali 15,7% meiri en í
október og hefur tæplega tvöfald-
ast frá nóvember í fyrra.
Atvinnuleysi í nóvember mældist
2,8% að því er fram kemur á vef
Vinnumálastofnunar. Alls voru
85.584 atvinnuleysisdagar á land-
inu öllu sem jafngilda því að 4.077
manns hafi að meðaltali verið á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum.
Á vef Vinnumálastofnunar segir
að líklegt sé að atvinnuleysi aukist í
desember og verði 2,9%–3,3%.
Eykst um 35% á landsbyggðinni
Á landsbyggðinni eykst atvinnu-
leysi um 35% milli mánaða og er nú
2,5% af mannafla á landsbyggðinni.
Í október var hlutfallið 1,9%. At-
vinnuleysi eykst alls staðar á land-
inu, hlutfallslega mest á Austur-
landi, þar sem það mælist 2,8% en
var 1,8% í október. Það er nú alls
staðar meira en í nóvember í fyrra
nema á Norðurlandi vestra þar sem
það mælist 1,2% en þar er atvinnu-
leysi jafnframt minnst á landinu.
Meðal kvenna á landsbyggðinni
eykst atvinnuleysi milli mánaða um
10,6% og hjá körlum um 20,9%.
Atvinnuleysi er mest á Suð-
urnesjum en 66% af þeim sem
skráðir eru atvinnulausir á landinu
búa á höfuðborgarsvæðinu.
Aukið at-
vinnuleysi
!
!
!
"
# $ % & ' # ( ) ( # # $ % & ' # ( ) ( # # $ % &
5% kvenna/33
RANNSÓKNARDEILDIR lögregl-
unnar í Reykjavík hafa í nógu að
snúast. Til marks um það eru nú 15
einstaklingar í gæsluvarðhaldi að
þeirra kröfu; sex vegna fíkniefna-
brota, fimm vegna auðgunarbrota og
fjórir vegna ofbeldisbrota.
Á þessu ári hafa verið gerðar 119
gæsluvarðhaldskröfur í þágu rann-
sóknar mála, sem verið hafa til rann-
sóknar í rannsóknardeildum lögregl-
unnar. Árið 2001 var sambærilegur
fjöldi 77. Ómar Smári Ármannsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykja-
vík, segir að af þessu megi sjá að
gæsluvarðhaldskröfum vegna auðg-
unarbrota og ekki síst ofbeldisbrota
hafi fjölgað mikið á milli ára. Skýrist
það einkum af því hversu alvarleg
málin hafa verið.
15 sitja
nú í gæslu-
varðhaldi
SKILYRTUR SAMRUNI
Samkeppnisráð hefur ákveðið að
stofnun nýs einkahlutafélags, Græns
ehf., og samruni Banana ehf. og
Ávaxtahússins, Nýs og fersks ehf.,
skuli lúta ákveðnum skilyrðum til að
koma í veg fyrir röskun á sam-
keppni. Grænt ehf. mun verða í
jafnri eigu Baugs Group hf. og Eign-
arhaldsfélagsins Fengs hf.
ESB semur um skilmála
Leiðtogar Evrópusambandsins
lögðu grunninn að mestu stækkun í
sögu þess í gær þegar þeir náðu
samkomulagi við tíu ríki um fjár-
hagslega skilmála aðildar þeirra að
sambandinu. „Innganga tíu ríkja í
ESB bindur enda á skiptingu Evr-
ópu,“ sagði Romano Prodi, forseti
framkvæmdastjórnar sambandsins.
Ekki bjartsýnn
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra er ekki bjartsýnn á að
samningaviðræðum Íslands og ann-
arra EFTA-ríkja við Evrópusam-
bandið um aðlögun EES-samnings-
ins að stækkun ESB ljúki fyrir
miðjan apríl eins og framkvæmda-
stjórn ESB stefnir að.
Ber ekki skylda til að semja
Gerhard Sabathil, sendiherra
Evrópusambandsins á Íslandi, segir
að sambandið sé tilbúið að taka til
skoðunar kröfur Íslendinga um
markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir í
ESB til að vega upp á móti missi frí-
verslunarsamninga við ríki sem hafa
sótt um aðild að sambandinu. Því
beri þó ekki lagaleg skylda til að
bjóða bætur fyrir þennan missi.
Spáir nýju þjóðaratkvæði
Kjell Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, telur líklegt að
efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu
um aðild landsins að Evrópusam-
bandinu fyrir árið 2010.
Útboð í heilsugæslu
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra hefur ákveðið að bjóða út
rekstur nýrrar heilsugæslustöðvar í
Salahverfi í Kópavogi. Rekstur af
þessu tagi hefur ekki verið boðinn út
áður.