Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 60
KIRKJUSTARF
60 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
geir Valdimarsson og Alda Ingi-
bergsdóttir. Organisti kvöldsins
verður Lenka Mateova.
Jólavakan í Hafnarfjarðarkirkju
er fyrir löngu orðinn ómissandi
hluti af aðventu og undirbúningi
jóla hjá þeim fjölmörgu er hana
hafa sótt ár eftir ár. Að þessu sinni
verður lögð sérstök áhersla á að öll
fjölskyldan njóti kvöldsins saman
og tónlistin valin með tilliti til þess.
Eftir jólavökuna er boðið upp á
kaffi, kakó og piparkökur í safn-
aðarheimilinu.
Jólaball Fylkis
og Árbæjarkirkju
EINS og undanfarin ár er samvinna
kirkjunnar og íþróttafélagsins í Ár-
bænum á aðventunni. Stórum og
smáum Árbæingum er boðið til fjöl-
skylduguðsþjónustu í kirkjunni kl.
11.
Að henni lokinni er haldið í safn-
aðarheimilið þar sem haldið verður
jólaball. Dansað í kringum jólatréð
og sungin öll gömlu og nýju jólalög-
in af hjartans list. Heyrst hefur að
jólasveinar séu væntanlegir á stað-
inn. Komum og gleðjumst saman í
jólaundirbúningnum.
Fylkir og Árbæjarkirkja.
Helgistund
á Lækjartorgi
HELGISTUND verður á jólamark-
aðnum á Lækjartorgi sunnudaginn
15. desember kl. 14.00. Bjarni
Karlsson prestur í Laugarneskirkju
flytur hugleiðingarorð.
Tónlistarmennirnir Tómas R.
Einarsson, Gunnar Gunnarsson og
Þorvaldur Þorvaldsson munu flytja
fallega jólasálma.
Jólastund barnanna í
Hressingarskálanum
Í DESEMBER hefur Hressing-
arskálinn í Austurstræti 20 fengið á
sig nýjan og jólalegan blæ. Þar hef-
ur allt verið skreytt og fegrað.
Helgina 14. og 15. desember verður
jólastund barnanna í húsinu klukk-
an 3. Jóna Hrönn Bolladóttir, mið-
borgarprestur, segir frá atburðum
jólanna, brúðukrakkar úr sunnu-
dagaskólanum koma í heimsókn og
það verða sungin jólalög.
Foreldrar og börn eru velkomin
að staldra við í miðborginni og
njóta samvista í Hressó, en þar er
einnig hægt að kaupa ljúffengar
Anton Bruckner, Pál Ísólfsson,
Francis Polanck og fleiri. Þá verð-
ur einnig almennur söngur.
Aðgangur er ókeypis og allir
hjartanlega velkomnir.
Hugleiðingar í tónum
og tali í Neskirkju
MITT í aðventuönnum, sunnudag-
inn 15. desember kl. 17, býður Nes-
kirkja til uppbyggilegrar samveru í
kirkjunni þar sem fluttar verða
undurfagrar Rósakranssónötur nr.
I-V eftir Heinrich Biber (1644-1704)
en hann var bæheimskur fiðlusnill-
ingur og tónskáld er dvaldi síðustu
24 ár ævi sinnar við hirð erkibisk-
upsins í Salzburg. Flytjendur eru
Dean Richard Ferrell á bassa,
Martin Frewer á fiðlu og Stein-
grímur Þórhallsson á orgel. Séra
Örn Bárður Jónsson les ritning-
arlestra og flytur stuttar hugvekjur
á milli tónlistaratriða.
Jólasöngvar
í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
Á MORGUN, sunnudaginn 15. des-
ember, verður fjölskylduhátíð í Frí-
kirkjunni í Hafnarfiði og hefst dag-
skráin kl. 11. Þriðja aðventuljósið
verður tendrað og fjallað um merk-
ingu þess. Börn úr æskulýðsstarfi
kirkjunnar sýna helgileikinn um
fæðingu frelsarans og að sjálfsögðu
verða jólalögin fallegu rifjuð upp.
Það er Örn Arnarson tónlist-
armaður sem leiðir þessa stund
ásamt leiðtogum barnastarfsins.
Fjölskyldufólk er hvatt til þess að
mæta til kirkjunnar og undirbúa
þannig komu jólanna.
Jólavaka
í Hafnarfjarðarkirkju
Á MORGUN, sunnudag, verður
haldin aðventuhátíð í Hafnarfjarð-
arkirkju sem kölluð hefur verið
jólavaka við kertaljós.
Hefst jólavakan kl. 20.30. Þar
mun Guðrún Helgadóttir rithöf-
undur halda hátíðarræðu kvöldsins.
Kór kirkjunnar flytur ný og gömul
jólalög undir stjórn Antoniu Hev-
esi, hins nýja organista kirkjunnar.
Með kirkjukórnum syngur barna-
og unglingakór Hafnarfjarð-
arkirkju, en honum stjórnar Helga
Loftsdóttir. Ásamt kórunum koma
fram einsöngvararnir Jóhann Frið-
Í TILEFNI þess að 40 ár eru liðin
frá vígslu Kópavogskirkju verða
ýmsir viðburðir í kirkjunni á næstu
mánuðum. Bæði verður um að ræða
söng- og orgeltónleika og einnig
þátttöku listamanna og kóra í guðs-
þjónustum.
Afmælisárið hefst með tónleikum
og hátíðarguðsþjónustu dagana 14.,
15. og 16. desember.
Laugardagur 14. desember:
Skólakór Kársness heldur tónleika
ásamt hljóðfæraleikurum kl. 20.30.
Á tónleikunum mun kórinn m.a.
flytja nýtt efni. Undirleikari á tón-
leikunum verður Marteinn H. Frið-
riksson og stjórnandi Þórunn
Björnsdóttir.
Sunnudagur 15. desember:
Kirkjudagur Kópavogskirkju.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Nem-
endur úr Tónlistarskóla Kópavogs
leika á hljoðfæri á undan guðsþjón-
ustu. Séra Árni Pálsson predikar
og sóknarprestur þjónar fyrir alt-
ari. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Julian Hewlett. Samvera og
kaffi verður á Gjábakka að lokinni
guðsþjónustu.
Mánudagur 16. desember:
Kirkjukór Kópavogskirkju heldur
tónleika ásamt einsöngvurum kl.
20.30. Á efnisskrá tónleikanna
verður fjölbreytt efni, m.a. að-
ventu- og jólasöngvar. Stjórnandi
Julian Hewlett.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Aðventuhátíð
barnanna
HIN árlega aðventuhátíð barnanna
verður í Dómkirkjunni sunnudag-
inn 15. desember kl. 11.
Að þessu sinni munu börn úr
sunnudagaskólanum ásamt krökk-
um úr 9-10 ára starfi flytja helgileik
um fæðingu frelsarans undir umsjá
æskulýðsfulltrúans, Hans G. Al-
freðssonar. Einnig mun barnakór
Dómkirkjunnar (yngri hópur)
syngja í helgileiknum undir stjórn
Kristínar Valsdóttur. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson flytur jóla-
hugleiðingu og leiðir stundina. Að
henni lokinni munu krakkarnir úr
9-10 ára og 11-12 ára hópunum
standa fyrir kökusölu. En þau eru
um þessar mundir að styrkja stúlku
til náms á Indlandi.
Andi jólanna verður allsráðandi
nk. sunnudag og við hvetjum því
alla til þess að mæta og eiga með
okkur góða stund í Dómkirkjunni.
Jólastund
í Lágafellskirkju
JÓLASTUND barnastarfsins verð-
ur á sunnudag kl. 11. Skólakór Mos-
fellsbæjar syngur undir stjórn Guð-
mundar Ómars Óskarssonar.
Kirkjukrakkar, TTT-krakkar og
félagar úr Æskulýðsfélaginu taka
þátt í guðsþjónustunni. Umsjón hef-
ur Þórdís Ásgeirsdóttir djákni og
Hreiðar Örn, organisti er Jónas
Þórir.
Athugið að jólastundin kemur í
stað hinnar almennu guðsþjónustu
safnaðarins og að sunnudagaskól-
inn í safnaðarheimilinu fellur niður.
Kvöldstund verður í Lágafells-
kirkju kl. 20 í tilefni af 10 ára
vígsluafmæli orgels kirkjunnar.
Organisti safnaðarins, Jónas Þórir,
leikur aðventu- og jólalög.
Kyrrðarstund til bænar og íhug-
unar á jólaföstu.
Aðventusöngvar í
Hjallakirkju
AÐVENTUSÖNGVAR kamm-
erkórsins Vox Gaudiae verða í
Hjallakirkju sunnudaginn 15. des-
ember kl. 20. Hugmyndin að að-
ventusöngvunum er sótt til Bret-
lands þar sem slíkir
aðventusöngvar kallast „An Advent
Carol Service“. Á milli söngva eru
lesnir sjö lestrar úr ritningunni þar
sem spáð er fyrir um fæðingu Jesú
Krists. Einsöngvari með kórnum er
Hrafnhildur Björnsdóttir og söng-
stjóri Jón Ólafur Sigurðsson. Flutt
verða aðventu- og jólalög eftir Alta
Heimi Sveinsson, Benjamin Britten,
veitingar.
Miðborgarstarf KFUM/K og
kirkjunnar.
Helgileikur
barnakóra Fella-
og Hólakirkju
SUNNUDAGINN 15. desember
verður fluttur helgileikur af barna-
kórum Fella- og Hólakirkju í kirkj-
unni kl. 17. Helgileikurinn Hljóðu
jólaklukkurnar er eftir hjónin Wal-
ter og Carol Noona. Íslensku þýð-
inguna gerðu Guðfinna Ólafsdóttir
og Rúnar Einarsson. Stjórnendur
kóranna eru Lenka Mátéová og
Þórdís Þórhallsdóttir. 40 börn eru í
kórunum á aldrinum 6 til 12 ára og
æfa þau tvisvar í viku yfir vetr-
armánuðina.
Undanfarnar vikur hafa þau æft
helgileikinn en þar fá þau tækifæri
til að læra sviðsframkomu og leik
auk söngsins. Íslenska óperan hef-
ur góðfúslega lánað leikbúninga
sem börnin kunna vel að meta og
gerir atburðinn ennþá meira spenn-
andi fyrir þau.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill. Foreldrafélagið selur veit-
ingar í safnaðarheimilinu eftir
stundina í kirkjunni á vægu verði.
Kórstjórar.
Aðventuguðsþjónusta
eldri borgara í Fella-
og Hólakirkju
SUNNUDAGINN 15. desember,
verður aðventuguðsþjónusta kl. 14 í
Fella- og Hólakirkju sem, eins og
undanfarin ár, er tileinkuð er eldri
borgurum, en að sjálfsögðu eru all-
ir hjartanlega velkomnir.
Sr. Ólafur Skúlason biskup pre-
dikar og þjónar í guðsþjónustunni
ásamt sr. Guðmundi Karli Ágústs-
syni og Lilju G. Hallgrímsdóttur
djákna. Um tónlistina sjá Lenka
Mátéová organisti, Þorvaldur Hall-
dórsson og Gerðubergskórinn und-
ir stjórn Kára Friðrikssonar. Með-
hjálpari er Valdimar Ólafsson.
Eftir guðsþjónustuna bjóða sókn-
arnefndir Fella- og Hólabrekku-
safnaða upp á kaffiveitingar í safn-
aðarheimilinu.
Sóknarnefndir.
Feðgar í jólaskapi
AÐVENTUMESSA verður í Selja-
kirkju sunnudagskvöldið 15. des-
ember. Feðgarnir Þorvaldur Hall-
dórsson og Þorvaldur Þorvaldsson
munu leiða okkur inn í notalega
jólastemmningu með miklum jóla-
söng. Sr. Bolli Pétur Bollason pré-
dikar. Altarisganga.Verið velkomin
í Seljakirkju.
Hátíðartónleikar í
Fríkirkjunni Kefas
MÁNUDAGINN 16. desember kl.
20 verða hátíðartónleikar í Frí-
kirkjunni Kefas. Flutt verða valin
jólalög sem eiga að koma öllum í
hátíðarskap. Fram kemur tónlist-
arhópur Kefas ásamt góðum gest-
um. Einsöngvararnir Geir Jón Þór-
isson og María Jónsdóttir flytja
einstakar jólaperlur. Komdu og
upplifðu sanna hátíðargleði –
syngjum hátíðina inn. Miðaverð kr.
500.
Aðventuvaka í Frí-
kirkjunni í Reykjavík
AÐVENTUVAKA verður í dag,
laugardag, kl. 22.
Aðventuvakan sem ber yfirskrift-
ina Á dimmri nóttu er klukkustund-
ar kyrrlát dagskrá með kerta-
ljósum, hugleiðingum og ljúfum
tónum. Anna Sigríður Helgadóttir
söngkona og Aðalheiður Þorsteins-
dóttir píanóleikari munu sjá um
tónlist og Ása Björk Ólafsdóttir
guðfræðinemi mun flytja hugleið-
ingar um aðventu og jólahald. Allir
eru hjartanlega velkomnir og að-
gangur er ókeypis.
Siv Friðleifsdóttir í
Seltjarnarneskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 15. des-
ember, flytur Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra hugvekju í
messu í Seltjarnarneskirkju kl. 11
f.h.
Í vetur munu leikmenn flytja
hugvekju við messu einu sinni í
mánuði og er Siv önnur í röðinni, en
prófessor Pétur Pétursson talaði í
sl. mánuði. Siv hefur búið á nesinu
frá því að hún var tveggja ára, en
er af siglfirsku og norsku bergi
brotin. Hún var á skólaárum sínum
virkur þátttakandi í félags- og
íþróttalífinu á Seltjarnarnesi. Það
má segja að Siv hafi hafið stjórn-
málaferil sinn í bæjarpólitík ness-
ins, en hún sat í tvö kjörtímabil í
bæjarstjórn fyrir Neslistann. Siv
var kjörin á þing fyrir Framsókn-
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kópavogskirkja
40 ára